Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 15
Miðvikudaerur 25 maí 1960 ^ ^ n r TMI n T TTllfl 15 81 nemandi lauk prófi við Vélskólann Fjárskortur tefur úr hófi aukningu verklegrar kennslu Gunnar Bjarnason, skólastjóri, við kennslu í kælitækni. VÉLSKÓLANUM í Reykjavík var sagt upp laugardaginn 21. maí við aíhöfn er fram fór í há- tíðasal Sjómannaskólans. I skólaslitaræðu sinni minntist skólastjórinn, Gunnar Bjarna- son, fyrst þriggja nemenda er látizt höfðu á skólaárinu, þeirra Halldórs Tryggvasonar í2. bekk B, Eiríks Steingrímssonar . í raf- magnsdeild A og Öla Hrafns Ólafssonar í rafmagnsdeild B. All ir voru þessi menn efnileg ung- menni og að þeim mikil eftirsjá. Var þeim að lokum vottuð virð- ing með því að menn risu úr sætum. Hálfgerður vélasalur Síðan ræddi skólastjórinn skólaárið s.l. vetur. Kvað hann talsverða bót hafa orðið að því, að hægt var að nota nýja véla- salinn nú í vetur, þó ekki hafi það verið nema að nokkru leyti, enda langt frá því, að hann sé enn kominn í sæmilegt horf Harmaði skólastjórinn mjög, að ekkert fé fengist til að ganga frá neinu til fullnustu, og sagði að það millibils ástand, sem nú hef- ur ríkt í nokkur ár, torveldaði ákaflega kennslustarfið. Taldi 'hann, að lítils samræmis gætti mili þeirra milljónaverðmæta, sem eru í höndum vélstjóranna, bæði á sjó og í landi og þeirra upphæða, sem fjárveitingavald- ið telur sig geta af höndum innt til að mennta þessa menn og búa þá undir störf þeirra, sem þar að. auki eru beint eða óbeint í sambandi við aðalframleiðslu þjóðarinnar. Á þessu ári er ekk- ert unnið við framkvæmdir í skólanum. Fyrir þær kr. 500.000 1 sem á fjárlögum fyrir árið 1960 voru veittar til Sjómannaskól- ans, var gengið í fyrrasumar frá gólfi og ljósum og öðru óhjá- kvæmilegu, svo hægt væri að koma vélum inn í nýja vélasal- inn, og þar við situr. Timbur- hlerar eru fyrir dyrum í stað hurða og annað eftir pví. Það þarf engan að undra, þótt tækni- þróunin sé langt fná því að vera ör á Islandi. ★ Til náms ytra A s.l. sumri fór einn kennari skólans, Andrés Guðjónsson til Englands og var þar á olíurann- sóknarstofu hjá Wakefieldfélag- inu. Olíuverzlun íslands (BP) sá um þessa för og kostaði hana og er skólinn þakklátur fyrir þessa fyrirgreiðslu. Hreinn Pálsson forstjóri átti þar mestan hlut að. Því miður er ekki útlit fyrir, að hægt verði að senda neinn kenn- ara utan í sumar. Við eigum að vísu heimboð frá ýmsum fyrir- tækjum, en getum fjárhagsins vegna ekki þekkzt þau. Að því er mikill skaði, því engum er eins nauðsynlegt að fara utan, helzt árlega, eins og tæknikenn- urum, m. a. til að kynnast öllum nýungum jafnóðum og þær koma fram og ræða við menn í sínu fagi. Eitt tæki h'efur skólanum bætzt á þessu ári. Er það raf- magnstafla fyrir vélasalinn. Hún var keypt í fyrra, en vegna þess að fé til vélakaupa hrökk það ár ekki til, var samið um að greiða helming nú eftir áramót- in, en greiðslan varð skólanum nokkuð dýr, vegna gengisbreyt- ingarinnar og hækkaðs tolls. ★ Aukin verkleg kennsla Fallizt hefur verið á að ráða 1 fastan kennara í vélfræði að skól anum í haust. Er þá hugmyndin að auka verklegu kennsluna, svo hún verði helmingi meiri næsta vetur heldur en hún hefur verið Yíirleitt hefur sú stefna ráðið, að auka verklegu kennsluna eins og hægt er, án þess að slá af bóklegu kennslunni og verður þetta eitt spor í þá átt. Við skólann störfuðu í vetur 1P kennarar auk skólasjóra og þakkaði skólastjóri þeim ánægju iegt samstarf. ★ Hæstu einkunnir Nemendur 'skólans voru í haust 131. Vélstjórar og vélstjóraefni voru 123 en rafvirkjar 8. 1 1. bekk voru 40 (2 bekkjardeildir) í 2. bekk 42 (2 bekkir, í rafmagns- deild vélstjóra 41 (2 bekkir) og 8 í eldri deild rafvirkja. Yngri deild rafvirkja starfaði ekki vegna ónógrar aðsóknar í haust. 2 nemendur í 1. bekk hættu við nám og 3 létuzt, eins og áður hefur verið sagt. Undir próf gengu alls 88 nem- endur og stóðust það 34 vélstjórar í rafmagnsdeild, 39 vélstjórar og 8 rafvirkjar. Ágætiseinkunn hlutu Óskar Pétursson, vélstj. rafmagnsdeild, 7,07, rafvirkjarn- ir Haukur Arinbjarnarson 7,36 og Ingimar Karlsson 7,31. Atta vélstjórar hlutu ágætiseinkunn þeir Guðlaugur Ketilsson 7,54, Svavar Sveinsson 7,44, Jón Sig- urðsson 7.32. Jón Vilhjálmsson 7,13, Kristmann Gunnarsson 7,13, Brynjólfur Guðmundsson 7.10, Sveinn Sigurðsson 7.04 og Gunn- ar Guttormsson 7.00. Hæstu einkunn í eimvélafræði hlaut Svavar Sveinsson 38% (af 40 mögulegum), en hæstu eink- unn í mótorfræði Guðlaugur Ketilsson 39% (af 40 möguleg- um). Beztan árangur úr vélfræði fögunum samanlagt hlaut Guð- laugur Ketilsson 100 stig (af 104 mögulegum). Er skólastjóri hufði afhent skírteini, árnaði hann nemendum allra heilla og kvaðst vona, að þeir yrðu gæfumenn í starfi, stétt sinni til sóma og föðurlandinu til heilla. Síðan afhenti hann bókaverð- laun þeim Óskari Péturssyni, Hauki Arinbjarnarsyni, Guðlaugi Ketilssyni og Svavari Sveinssyni. ★ Gjafir Þegar skólastjóri hafði Iokið máli sínu, kvaddi sér hijóðs Ey- þór Þórðarson úr hópi 10 ára vélstjóra, sem þarna voru mætt- ir. Árnaði hann skólanum allra heilla og tilkynnti, að þeir fé- lagar myndu færa skólanum full- komna kvikmyndasýningarvél að gjöf. Skólastjóri þakkað) þessa góðu gjöf og sagði síðan skólan- um slitið. Eftir skólaslitin sýndi skóla- stjóri geStum vélasalina og til- raunastofuna og skýrði fyrir þeim framtíðaráætlanir. Njósnarar kominúnista AÞENU 20. maí. — Sex Griklclr voru dæmdir til lífstíðarfangels- isvistar í Aþenu í dag. Voru þeir fundnir sekir um njósnarstarf- semi fyrir kommúnistaríkin og sannaðist einnig, að þeir höfðu notið þjálfunar í starfi sínu i njósnaskólum austan járntjalds. Einn njósnaranna var kona. 4 LESBÓK BARNANNA GRETTISSAGA 41. Hjarrandi hét bróðir Bjarnar. Hann varð reiður mjög:, er hann frétti vígið og vildi engum sáttum eða fé- bótum taka. Þorfinnur fékk til Arinbjörn, frænda sinn, að ganga með Gretti hvern dag, því að hann vissi, að Hjarrandi sat um líf hans. I*að var einn dag er þeir gengu úti á stræti, að mað- ur hljóp út úr garðshliði nokkru með reidda öxi oe hjó til Grettis tveim hönd- um. Hann varði einskis um þetta og gekk undan seint. Arinbjörn þreif til Grettis og hratt honum áfram svo hart, að hann féll á hné. Öxin kom á herðablaðið og renndi út undir höndina. 42. Grettir snaraðist vil fast og brá saxinu. Hann kenndi, að þar var koniinn Hjarrandi. Öxin stóð föst í strætinu, og varð honum seint að sér að kippa, og í þvi hjó Grettir til Hjarranda, og kom á höndina uppi við öxl, svo að af tók. Þá hlupu að fylgdarmenn Hjarranda fimm saman. Sló þá í bardaga með þeim. Urðu þar skjót um- skipti. Drápu þeir Grettir og Arinbjörn þá fimm, er með Hjarranda voru, en einn komst undan, og sá fór þegar á fund Sveins jarls og sagði bonum þessi tíðindi. 43. Jarl varð afar reiður, er íiann frétti þetta. Stefndi hann Gretti til Túngsbergs, en þar var Gunnar, bróðir þeirra Bjarnar og Hjarranda, garðs- bóndi. Gunnar var í bænum og sat um Gretti, nær sem færi gæfi á honum. Það bar tii á einhverjum degi, að Grettir sat í búð nokk urri og drakk, því að hann vildi eigi verða fyrir Gunnari. Og er minnst varði er hlaupið á hurðina svo hart, að hún brotnaði 1 sundur, þar hlupu inn fjórir menn alvopnaðir. Var þar kominn Gunnar og fylgdarmenn hans. Þeir sóttu að Gretti. Lauk svo að Grettir felldi Gunnar og félaga hans alla, nema einn, sem fór þeg- ar á fund jarls og sagði hon- um tíðindin. 44. Sveinn Jarl varð ákaf- lega reiður við þessa sögu og itefndi þegar þing í bænum. Bersi Skáld-Torfuson bauð fram allt sitt góss, ef Grettir aæði sættum, en jari kvaðst ikki gefa grið, þeim sem ó- lífismenn væru. Þá bauð Þorsteinn drómund ur, bróðir Grettis, mörg boð fyrir hann, Jarl svarar: „Drengskapur er þér í, þó að þú viljir hjálpa honum. En vér skulum hafa (íf Grcttis, hváð er kostar. Barnaþula Sofa urtu börn á útskerjum, veltur sjór yfir, og enginn þau svæfir. Sofa kisu börn á kerhlemmum, murra og mala, og enginn þau svæfir. Sofa Grýlu börn á grjóthólum, N- urra og ýla, og enginn þau svæfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.