Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 22
22 MORGVNBLAÐIÐ MiffviVndagur 25. maí 1960 At 1 \ • > • F jþrctt afrétttr tHcnjyh ** 4 \ 4 í ia faiHá ' i : i < - KR Reykjavíkurmeistari — en yfirburðirnir minni en áður Unnu Fram i úrslitaleik 2:0 12 landa keppn'.n hefst í N.Y. í dag EIN mesta knattspyrnukeppni, sem komið hefir verið á fót, er frá eru taldar heimsmeistara- keppnin og knattspyrnukeppni Oiympíuleikanna, hefst í New York í dag. Tólf knattspyrnulið taka þátt i hinni alþjóðlegu keppni, og eru 11 þeirra erlend lið frá Evrópu og Suður-Ameríku. Og knattspyrnulið New York,- borgar getur vart kallazt banda- rískt, þar sem það er skipað sex enskum knattspyrnumönnum, Arentínumanni, Brazilíumanni, Ungverja, ísraelsmanni og Þjóð- verja. Keppnin fer fram í tveim riðl- um og lýkur keppni fyrsta riðils ins 18. júní, en keppni síðari rið- ilsins hefst 2. júlí og síðan keppa efstu lið hvers riðils til úrslita um veglegan og mikinn bkar sem borgarstjórinn í New York hefir gefið. Sá leikur fer fram 6. ágúst n.k. í dag keppa Bayern-Munchen frá Vestur-Þýzkalandi við Kil- marnock frá Skotlandi, en síðan mun keppnin halda áfram á fimmtud. og sunnudag. Þá munu meðal annars keppa Glenavon frá írlandi gegn New York og Burn- ley frá Englandi mun leika gegn þýzka liðinu. Sveinamótið SVEINAMEISTARAMOT Reykja víkur í frjálsum íþróttum fer fram á Melavellinum í Reykjavík í dag (miðvikudag) og hefst kl. 7 e.h., með keppni í stangastökki og kringlukasti. Kl. 8 hefst svo aðalhluti mótsins og verður þá keppt í 60 m hlaupi, 80 m grinda hlaupi, 300 m hlaupi, 600 m hlaupi, 4x100 m boðhlaupi, kúlu- varpi, sleggjukasti, hástökki og langstökki. Keppendur eru allir á aldrin- um 16 ára og yngri. Mótið er stigamót, og hljóta 6 fyrstu menn stig í hverri grein, en það félag sem flest stig hlýtur fær til varðveizlu fagran verð- launagrip. KR fór með sigur af hólmi yfir Fram í fyrrakvöld — 2:0 — og þar með var 20. sigur KR í Reykjavíkurmótinu, sem haldið hefur verið *2 sinnum á 45 árum, orðinn staðreynd. Það var mikil spenna og keppni í þessu móti. Þróttur tók í upphafi forystuna og allt fram í síðasta hálfleik síðasta leiks var óvissa um úrslitin. En svo skipuðust mál í þessum síðasta hálfleik mótsins, að KR vann Fram og tryggði sér með pví yfirburðasigur í mótinu. Þó er það staðreynd, að KR- ii.gar bera ekki af öðrum liðum í ár eins og í fyrra, þó óslitin sé sigurganga þeirra enn. (®) Fum í upphafi Fum og taugaóstyrkleiki ein- kenndi upphaf leiksins í fyrra- kvöld — og þessi einkenni entust hluta KR-liðsins (vörninni) ali- an leikinn. Það var hraði í leikn- um í upphafi og tilraunir á báða bóga en lítið um tilþrif við mörk in og marktækifæri sárafá. Gunnar Guðmannsson fór margtoft „í gegn“ á svona laglegan máta. — Hann var einn bezti maður framlínu KR. — ir: Sv. Þormóðsson. Fyrsta tækifærið var á 8. mín. ér Garðar tók aukaspyrnu fyrir KR. Vel var hún framkvæmd og skallað að marki og leit vel út, en Geir markvörður sló í horn á siðustu stundu. Fyrst 10 mín. síðar kemur næsta skot — frá Gunnari Guðmannssyni at 18 m. /æri en einnig það var varið. Fyrsta upphlaup Fram er nálg- aðist mark KR var á 19. mín. er Baldur Seheving sendi inn til Björgvins innherja er sendi við- stöðulaust að marki, en Heimir markvörður kom út á réttu augna bliki og bægði hættunni frá. Q KR veitti betur Á næstu 10 mín. á KR alla afgerandi sókn. Þórólfur átti skot í fang Geirs markvarðar og þrjár hornspyrnur fá KR-ingar á Fram, tvær eftir miklar og þungar sókn arlotur að marki þeirra, þar sem hætta var yfirvofandi, en hætt- unni bægt frá með því að „hreinsa" yfir endamörk. En ekk ert varð úr. Síðan á Guðjón skot á KR- markið og Gunnar Guðmanns- son á Frammarkið — en bæði fljúga framhjá. Aftur fá KR-ing- ar 3 hornspyrnur á Fram án ár- angurs og þá kom stærsta tæki- færi hálfleiksins er Þórótfur fær sendingu frá Ellert þar sem hann stendur óvaldaður á markteig. í stað þess að spyrna viðstöðulaust leggur hann knöttinn fyrir sig ir.eð þeirri uppskeru éinni að Gfcii flýgur á fætur hans — held- ur honum — meðan hreinsað er. Baráttan í fyrri hálfleik var öllu meiri út á vellinum. í • henni veitti KR mun betur. Þeir voru nákvæmari, þeir voru meir samtaka og þeir voru útsjónarsamari en Fram- arar. Þó náði KR aldrei afger- andi undirtökum og sennilega réði taugaóstyrkur mestu þar um, en slíkt er afleitur galli. Q KR tekur frumkvæðið Fátt gerðist markvert á fyrstu mín. síðari hálfleiks. En er 7 mín. voru af leik náðu KR- ingar góðu upphlaupi. Sveinn sendir í eyðu ætlað Þórólfi, sem brunar að marki og fær skorað af stuttu færi — og átti Geir markvörður þar al- rangt úthlaup! Við þetta mark kom annar svipur á KR-liðið. Fumið minnk- aði og spennan — nema hjá vörn- inni, sem var eins og þrumu slegin í hvert sinn er frámherjar Fram nálguðust og átti KR-vörn- in öllu meiri þátt í að skapa hættu við KR-markið en menn- irnir er að því sóttu. Á 16. mín. fá KR-ingar horn spyrnu á Fram. Gunnar Guð- mannsson spyrnir vel en hætt an virðist lítil, því 4 eða 5 Framarar voru í markinu. En Sveinn Jónsson fær skallað af markteig og boltinn hafnar eftir að hafa farið um hendur Geirs markvarðar í neti Fram — 2—0 og þannig urðu úrslit leiksins. Eftir þetta dofnaði leikurinn mjög og KR hafði allt vald á vell inum. Úthald leikmanna var á þrotum einkum hjá Fram. Ymis tækifæri komu þó sem ekki nýtt- ust. Falleg var hornspyrna Gunn- ars Guðmannssonar er rann með þverslá Fram-marksins. Arftaki Pnskasar kominn fram Ungverjaland vann England 2:0 ENGLAND tapaði fyrir úng- verjalandi 2:0 í landsleiknum sem fram fór í Rúdapest á sunnudaginn. Áhorfendur voru 90.000 og hrósuðu ensku knattspyrnumönnunum fyrir góðan leik. Enska vörnin átti erfiðan dag og framlína liðs- ins var óheppin að skora ekki, er Baker skaut hátt yfir þver- slána af markteig. Þessi leik- «r sannaði Englendingunum, að þótt enskir knattspyrnu- menn hafi flýti og kraft, þá skortir þá mjög leikni til þess að geta vonazt eftir sigri í nútíma knattspyrnu. Hinn 19 ára Albert, sem lék miðframherja í Unverska landsliðinu átti sér í lagi góð- an leik og skoraði bæði mörk Úngverjanna, auk þess sem hann átti þrumuskot í stöng. Eftir leikinn eru menn al- mennt á þeirri skoðun að ekki líði langur tími til þess að nafn hins unga knatt- spyrnumanns verði eins víð- frægt og Ianda hans Puskas, Hidegkuti og Koscis. Það er nóg af liðsmönnum Fram þarna — en Heimir er hlut- skarpastur og bægir allri hættu frá. 600 hafa náölág- marki. Veljaþarf 80 Q Fram-liðið Lið Fram var allheilsteypt í byrjun en þó vantaði á festuna. Hraðinn var nægur (kannski of mikill) en leikskipulagið og kunn áttu og leiktaktik ábótavant svo um munaði. Áberandi beztur var Rúnar Guðmannsson miðvörður- Hann bar af á vellinum í varnar- leik í þessum úrslitaleik og sann að með leik sínum að hann þarf meiri og stærri tækifæn til að sýna hvort í honum býr í stór- leikjum það sem hann sýnir leik eftir leik í smærri leikjum. í framlínu var Björgvin drýgst [ ur en illa notaður langtímum saman. Baldur erfiðaði mikið en ekki að sama skapi árangursríkt. Guðmundur Óskarsson var lang- tímum út úr leiknum og illa með. Guðjón átti góða spretti og er hættulegur við mark en kann illa stöðu útherja ennþá. Ragnar framvörður átti góðan leik. (g KR-liðið I liði KR var vörnin slöpp allan tíman, einkum vegna tauga óstyrkleika. Þetta var með henn- ar lakari leikjum lengi og illa færi af landsliðsnefndin notaði þennan leik sem afgerandi prufu á Hörð og Hreiðar. Garðar ef þungur en á góðar staðsetningar og vinnur á því. Óskar skilar stöðu framvarðar sæmilega af byrjanda. Heimir átti góðan leik í márki og styrkir liðið vel. Nú brást hægri vængur sóknarinnar en sá vinstri blakti, einkum Gunnar Guð- mannsson. Hafi hann ekki fyrr í vor sýnt að hann á sæti í landsliðinu þá gerði hann það nú — og það svo að ekki eru á nein tvímæli um það. Dómari í leiknum var Grétar Norðfjörð. Dæmdi hann vægast sagt illa. Með röngum dómum eyðilagði hann þrjú upphlaup KR í fyrri hálfleik og í þeim síðari álka mörg fyrir Fram. — A.St Moskvu, 21. maí. (AP) AÐALÞJALFARI rússneska Ólympíuliðsins, Gavril Kor- obkov, hefur látið þá skoðun í ljós að Rússar muni verða stighæsta þjóðin á komandi Ólympíuleikjum, sem fram eiga að fara í Róm í sumar. * SÍÐUSTU LEIKAR Þessa skoðun lét Korobkov í ljós í viðtali við fréttamann frá Tass-fréttastofunni, er hann lét orð falla um það að sameigin- lega myndu rússneskar konur og karlar vinna í 12 greinum Ólympíuleikjanna. (Á Ólympiu- leikjunum 1956 unnu Banda- ríkjamenn 15 gullverðlaun í frjálsíþróttum (karlagreinum) af 24 mögulegum, en Rússar unnu, 3 gullverðlaun. — Af 8 kvennagreinum unnu Rússar 3, USA f, Ástralía 3, Pólland 1 og Tékkóslóvakía 1). Þjálfarinn sagði að Rússland myndi mæta mikilli keppni frá Bandáríkjunum, Þýzkalandi og Ástralíu, og að sjálfsögðu væri erfitt að segja fyrir um sigra í einstökum greinum, því keppni margra einstaklinga er vitað um að verður mjög hörð. Rússland hefur mikið úrval keppnisbærra manna og kvenna til að velja úr Ólympíufara Rússlands, sagði Korobkov. ★ 600 HAFA NÁÐ LÁGMÖRKUM „Við munum þurfa að Framh. á öjS. 23. Hilinar hljóp á 10-4 sek. Sá sem er lengst til hægri skoraði ekki þó svo mætti ætla. Það er Geir markvörður, sem átti misheppnað úthlaup. Þórólfur Bech skoraði. Hann er á bak við Rúnar miðvörð. FRJÁLSÍÞRÖTTAMENNIRNIR æfa vel þessa dagana og ávallt eru að berast fréttir af betri ár- angri hjá þeim, en um svipaðan tíma í fyrra. í gær hljóp t.d. Hiimar Þorbjörnsson 100 m. á 10.4 sek. Hlaupið var undan all- sterkum vindi og aðstæður ekki löglegar, en kallt var í veðri og árangurinn því eftirtektarverður. Þorsteinn Löve kastaði kringlu um 51 metra, enda góðar aðstæð- ur fyrir kringlukast í gær. Forráðamenn frjálsíþróttanna vænta stórra viðburða í sumar og jafnvel á E. Ö. P. mótinu, sem hefst n.k. mánudag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.