Morgunblaðið - 30.08.1960, Side 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. ágúst 1960
TTtg.: H.l. Ai'vakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ÞRENNT VELDUR
| SÍÐUSTU viku gerði Þjóð-
viljinn margar tilraunir til
að skýra ástæðuna fyrir hinni
miklu skatta- og útsvarslækk
un. Komst blaðið loks að
þeirri niðurstöðu, að það
væri þrennt, sem ylli lækk-
uninni. Staðhæfingar komm-
únistablaðsins eru mjög eftir-
tektarverðar og þess vegna
verða þær raktar hér á eftir.
í fyrsta lagi heldur blaðið
því fram, að tekjur hafi ver-
ið miklu hærri árið 1959 en
þær voru árið á undan. Síðar
hefur það skýrt þessa skoð-
un sína þannig, að tekjuhækk
tmin stafi að nokkru leyti af
því, að menn búi enn við
hluta þeirra kauphækkana,
sem urðu við fall vinstri
stjórnarinnar haustið 1958.
Umbúðalaust segir þessi yfir-
lýsing, að launakjör séu nú
betri en þau voru í tíð vinstri
stjórnarinnar.
í öðru lagi telur kommún-
istablaðið skattalækkunina
stafa af því, að skattar á fyr-
irtæki séu hærri en áður
vegna þess að velta fyrirtækj-
anna hafi verið meiri. í þeirri
yfirlýsingu felst það að hagur
alls almennings hafi verið
batnandi því að örugg vís-
bending um batnandi afkomu
og aukna kaupgetu er einmitt
hin vaxandi velta.
í þriðja og síðasta lagi segir
Þjóðviljinn svo, að tekju-
hækkunin stafi meðfram af
því, að menn hafi unnið meiri
yfirvinnu en áður. Sam-
kvæmt því hefur eftirspurn
eftir vinnuafli farið vaxandi
og meira verið starfað og
framleitt í þjóðfélaginu en
áður.
Niðurstöðurnar af skrifum
kommúnista eru í stuttu máli
þessar: Staðhæfingar þeirra
um minnkandi laun, kaup-
skerðingu o. s. frv. eru dæmd-
ar dauðar og ómerkar. Full-
yrðingamar um samdrátt og
stöðvun hafa gufað upp, eins
og dögg fyrir sólu, er í ljós
kom, að velta fyrirtækja fór
vaxandi í stað þess að
minnka. Og loks hafa spárn-
ar um atvinnuleysi ekki verið
á traustari rökum reistar en
svo, að nú er því lýst yfir, að
eftirspurn eftir vinnuafli hafi
aldrei verið meiri.
Allar eru þessar yfirlýsing-
ar stjórnarandstæðinga mikið
lof um stefnu stjórnarflokk-
anna. Sú mun að vísu ekki
hafa verið ætlun höfundanna,
heldur til röksemdanna grip-
ið í vandræðum út af skatta-
og útsvarslækkuninni. Það
breytir þó engu um, að stað-
hæfingarnar standa óhaggað-
ar og þó að skatta- og útsvars-
lækkunin stafi ekki nema að
litlu leyti af þessum ástæð-
um, sem kommúnistar til-
greina, þá er ákveðirm sann-
leikur í þeim fólginn.
Stjórnarflokkarnir bjugg-
ust að vísu ekki við jafn
skjótum árangri og raun hef-
ur orðið á af breyttri stefnu
í efnahags- og fjármálum. En
að sjálfsögðu gleðjast þeir yf-
ir því, að erfiðleikarnir við
að breyta um efnahagsstefnu
hafa orðið minni en ráð var
fyrir gert. Og sérstaklega er
ánægjulegt að fyrstu yfirlýs-
ingarnar um bætt laun, aukna
veltu og meiri atvinnu skuli
berast úr herbúðum stjórnar-
andstæðinga.
En þegar þessar staðreynd-
ir liggja fyrir, er von að menn
spyrji: — Hvernig dettur
stjórnarandstæðingum í hug,
að þeim takist að espa verka-
lýð til verkfalla í þeim til-
gangi að hrinda þessari
stefnu og innleiða á ný hafta-
og uppbótakerfi, sem verst
fór með launþega og það svo
að margyfirlýst er, að þeir
hafi engar kjarabætur fengið
í nær hálfan annan áratug,
þrátt fyrir ímyndaða launa-
hækkun?
Og þessari spurningu má
gjama fylgja eftir með ann-
arri: — Hvað gæti áunnizt
með nýjum vinnudeilum?
Svar við þeirri spurningu er
þetta: — Verkfall getur end-
að á tvennan veg, annað
hvort að launahækkanir
verði eða þá að verkfallsboð-
endur fái ekki kröfum sínum
framgengt. í síðara tilfellinu
væri augljóslega enginn bætt-
ari. En einmitt má gera ráð
fyrir að verkfalli, sem nú yrði j
boðað til, lyki þannig, einfaldj
lega vegna þess að atvinnu- (
vegirnir geta ekki enn borið
hærra kaupgjald og ríkis-
stjórnin mun ekki velta nýj-
um kauphækkunum yfir á al-
menning í hækkuðu vöru-
verði. í fyrra tilfellinu aftur
á móti, að einhverjar kaup-
hækkanir yrðu, án þess að
framleiðsluaukning fengi bor-
ið þær uppi, þá getur niður-
staðan ekki orðið önnur en
sú, að úr atvinnu dragi.
Þess vegna er það einmitt
verkalýður og launþegar, sem
mest mundu tapa á því, ef nú
yrði efnt til vinnudeilna.
yrði efnt til vinnudeilna. Og
sérstaklega væri það hið al-
varlegasta áfall fyrir launa-
menn, ef uppbótakerfið yrði
innleitt á ný og þannig komið
í veg fyrir þá framleiðslu-
aukningu, sem ein getur bætt
kjörin í framtíðinni.
Frá höfninni í Esbjerg.
200 fiskiskipum
lagt í Esbjerg
í SÍÐUSTU viku boðaði sjó-
mannafélagið í Esbjerg verk-
fall á skipum þeim er leggja
upp afla hjá Andels eða sam-
eignar-síldarbræðslustöðinni
þar í borg. Um helgina höfðu
nær 200 fiskiskip stöðvazt
vegna verkfallsins.
TALAST EKKI VIÐ
En ekkert er gert til að leysa
vandann. Engar viðræður hafa
farið fram. Sjómannafélagið vill
að skipstjórarnir undirriti kjara-
samninga og segja að þegar líður
á verkfallið muni það takast. En
hingað til hafa þeir ekki einu
sinni getað komizt að því við
hvem skipstjóranna eigi að ræða.
í hópi skipstjóranna er enginn
einn sem hefur umboð fyrir
heildina, og segja skipstjórarnir
að sildarbræðslustöðin eða stjórn
hennar hafi heldur ekkert umboð
til að semja fyrir þeirm hönd.
VILJA STÖÐVA FLEIRI
Vilja skipstjórarnir nú láta
hart mæta hörðu og stöðva allan
Esbjergflotann, ekki aðeins þá
báta sem leggja upp hjá sam-
eignarstöðinni. Takist þeim þetta
munu um 600 fiskiskip stöðvast
og 3—4.000 manns missa atvinnu
núna á hávertíðinni þar.
Bandarísk stúlka
þjálfuð til geimferða
STÚLKAN hér á myndinni
verður væntanlega fyrsta
bandaríska konan, sem flýg.
ur út í geiminn í geimfari
Hafa verið gerðar á henni alls
kyns athuganir og rannsóknir
vegna væntanlegrar ferðai
hennar og virðist hún að
mörgu leyti betur til slíkrar
ferðar fallin en karl-
mennirnir sjö, sem undanfar-
ið hafa verið í þjálfun fyrir
slika ferð.
Frá þessu var skýrt á lækna
þingi, sem nú stendur yfir i
Stokkhólmi. Læknirinn, sem
fjallaði um málið heitir W.
R. Lovelace. Segir hann frétta
mönnum, að súlkan, sem heit
ir Jerrie Cobb, væri reglu-
leg víkingastúlka, ljóshærð
og frískleg 28 ára gömul, ó-
gift, 171 sm á hæð og 55 kg
að þyngd. Auk þess er hún
deildarstjóri í flugvélaverk-
smiðju og síðast en ekki sízt
hafði hún ágætan smekk fyr-
ir fötum.
★
En Jerrie Cobb hefur reynd
ar enn fleira til síns ágætis,
sem getur komið henni að
gagni við væntanlega ferð í
háloftunum.
Frá unga aldri hefur hún
haft mikinn áhuga á flugi og
á að baki sér 7 þúsund flug-
stundir. Hún á auk þess
kvennamet í langflugi og
hefur flogið hæst allra
kvenna.
Á einni viku fóru fram þær
rannsóknir, sem eru undan-
fari geimferðaþjálfunar. —
Kvaðst læknir hennar nú vita
um hjartastarfsemi hennar,
vöðvastyrkleika, starfsemi
lungna og meltingarfæra svo
og skynfæra.
★
Þeir sem vinna að því að
senda mönnuð geimför í loft
upp hafa sérstakan áhuga á
Framhald á bls. 23
Verður þessi Ijóshærða víkingastúlka fyrsti fulltrúi Banda-
rikjanna úti í geimnum?
UTAN UR HEIMI