Morgunblaðið - 30.08.1960, Page 17
Sieflvikingar í 2. deild
Töpuðu fyrir KR 8:1
í LEIKNUM við Keflvíkinga
sannaði Þórólfur Beck mönnum
svo ekki verður um villzt að
hann er bezti knattspyrnumað-
ur íslands í dag. Hann var svo
áberandi bezti maður vailarins
að stundum var engu líkara en
að hann væri einn á vellinum.
Alls skoruðu KR-ingar 8 mörk
í leiknum gegn einu marki
Keflvíkinga, sem gert var úr
vítaspyrnu. Yfirburðir KR voru
þó enn meiri í leiknum, því vel
hefðu þeir getað skorað þrjú til
fjögur mörk til viðbótar. Frá
byrjun til enda léku þeir Kefl-
víkingana sundur og saman.
Menn urðu fyrir miklum von.
brygðum með leik Keflviking
anna. Búizt var við að þeir
myndu berjast og sýna sigur-
vilja, en algert viljaleysi ein-
kenndi leik þeirra. Var eins og
þeim væri alveg sama um það
hvort þeir féllu niður úr deild-
inni eða ekki. Rétt áður en Jeik-
urinn hófst höfðu úrslitin
frétzt frá Akureyri og var trú-
legt að þau myndu hafa áhrif
á Keflvíkingana og ýta undir þá,
en slíkt var ekki sjáanlegt.
Hver einasti KR-ingur sýndi
mun meiri hugsun í leik en
Keflvíkingarnir, og Vald KR-
ínga yfir knettinum var það
mikið að oft á tíðum var eins
og þeir væru að leika í gegnum
knattþrautastangir.
Mörkin
Tuttugu mínútur voru af leik,
er Ellert Schram skoraði fyrsta
Lögregluþjónar
keppa á Norður-
landamóti
ÞRÍR íslenzkir lögregluþjónar
taka þátt í Norðurlandamóti lög-
regluþjóna í íþróttum, sem hald-
ið er í Stokkhólmi 31. ágúst tii
2. september. iÁ mótinu er keppt
í frjálsum íþróttum, fimmtar-
þraut, knattspyrnu og skotfimni.
Islendingarnir, sem taka þátt í
mótinu eru: Guðmundur Her-
mannsson, sem keppir í kúluvarpi
Hallgrímur Jónsson keppir í
kringlukasti og Þórir Þorsteins-
son í 100 metra og 400 metra
hlaupi. Fararstjóri með lögreglu-
þjónunum er Sigurður M. Þor-
steinsson, varðstjóri.. i
markið fyrir KR, eftir að Þór-
ólfur hafði lagt vel fyriy hann
knöttinn. Fimm mín. síðar er
talsverð hætta við KR-markið,
en vörnin hreinsar frá og sótt
er upp að marki Keflvíkinga.
Tvö horn eru tekin og upp úr
síðara horninu skorar Ellert
annað markið. Á 43. mín. er
Þórólfur með knöttinn og gef-
ur til Ellerts. Þórólfur heldur
áfram upp og Ellert sendir aft-
ur til hans og Þórólfur skorar
3:0. Og þannig endar fyrri hálf-
leikur.
Tíu sek. eru af síðari hálf-
leik, er KR skorar fjórða mark-
ið. Ellert er þar að verki eftir
sendingu frá Þórólfi og er 9 mín.
eru af síðari hálfleik gefur Þór-
ólfur til Leifs Gíslasonar, sem
skorar örugglega. Er 14. mín.
eru af hálfleiknum skorar Ell-
ert fjórða mark sitt í leiknum
úr sendingu frá Þórólfi og stað-
an er 6:0 fyrir KR. — Stutlu
siðar klúðrar Sveinn Jónsson
sendingu frá Þórólfi, þótt hann
sé fyrir opnu marki. Öm Stein-
sen skorar 7. markið úr send-
ingu frá Þórólfi er 21 mín. er
af síðari hálfleik og tveim mín-
útum síðar lyftir Ellert sendingu
frá Þórólfi yfir markið.
Um þetta leyti yfirgefur
Leifur Gíslason völlinn, meidd
ur í fseti. Er 34 mínútur eru af
síðari hálfleiknum skorar Þór-
ólfur 8. markið fyrir KR eftir
góðan samleik við Örn. Þórólf-
ur sendi knöttinn örugglega
markið framhjá úthlaupandi
markmanni Keflvíkinga. Er 35
mín. eru liðnar af hálfleiknum
fer Helgi Jónsson út af og leika
því KR-ingarnir aðeins 9 síðustu
Heimir sést hér vera á Ieiðinni í öfuga átt, eftir að Þórólfur
hefur leikið á hann og sendir knöttinn i netið.
10 mínúturnar. Er 5 mín. emlskorti algerlega hjá Keflvíking
unum og urðu menn fyrir sáruvn
vonbrigðum með leik þeirra.
eftir af leiknum dæmir dómar-
inn, Haukur Óskarsson, víta-
spyrnu á KR, sem mönnum
fannst allstrangur dómur. Kefl-
víkingar skora úr vítaspyrnunni
og leikurinn stendur 8:1. Sveinn
Jónsson hafði enn eitt tækifæri
til að skora, er tvær mínútur
eru eftir, en mistekst.
Af einstökum leikmönnum
bar Þórólfur Beck af í KR-lið-
inu, en baráttuvilji var í öllum
leikmönnum KR. Baráttuviljann
Jairt leikur á Akranesi
Valur — Akranes 1
1
ÁGÆTIS. keppnisverður var á
Akranesi er Akranes og Valur
kepptu í 1. deild íslandsmótsins.
— Hvorugu liðin i tókst þó að
skora mark í fyrri hálflciknum
Valur átti heldur maira í leikn-
um framan af, en Skagamenn
sköpuðu sér betri marktækifæri,
þótt þeirn tækist ekkj að skora.
Nokkur bardagi var í síðari
hálfleiknum og sóttu bæði liðin á
víxl. Skagamenn áttu skot í þver-
Lögregluþjónarnir og fararstjórl þeirra, talið frá vinstri: Sig-
urður Þorsteinsson, Þórir Þosteinsson, Hallgtmur Jónsson og
Guðmundur Hermannssou.
slána. Um 10. mín. voru liðnar af
síðari hálfleiknum, er Valur skor-
ar. Björgvin Daníelsson skallaði í
mark Skagamanna. Var hann
fljótri til en Helgi bróðir hans,
sem hugðist taka hann.
Fyrst eftir markið sóttu Skaga-
menn af kappi og sköpuðu oft
hættu við mark Vals, en Gunn-
laugi tókst að halda hreinu. —
Skagamönnum tókst ekki að
kvitta fyrr en 7 mínútur voru
eftir af leiknum. Skúli Hákonar-
son skoraði með nokkuð snöggu
skoti neðst niðri í horn marksins.
Þvaga hafði verið fyrir framan
markið, er knötturinn var sendur
til Skúla, sem tók viðstöðulaust
við knettinum og sendi í markið.
Eftir markið fenigu bæði lið-
in tvö góð tækifæri, sem úr hefði
verið hægt að skora. Ingvar átti
skot utan af kanti, sem lenti ut-
an á stönginni. Og Matthías fékk
knöttinn úr þvögu og skaut strax
en beint á Helga.
Leikurinn í heild var efkki góð-
ur, en kapp var mikið í mönn-
um og leikurinn þannig oft
skemmtilegur. Úrslit mega telj-
ast sanngjörn eftir gangi leiksins.
Ingvar var hættulegasti maður
Skagamanna og Kristinn stóð sig
vel í vörninni. Hjá Val átti Þor-
steinn Friðþjófsson ágætan seinni
hálfleik og franwerðirnir réðu
mikið yfir miðju vallarins. Fram-
línan var mjög sundurlaus og
sumir þar virtust alls ekki vera
í skapi til að leiika knattspyrnu,
að undanbeknum Björgvin Dan-
íelssýni og Steingrími, sem er
mjög efnilegur leikmaður.
Pressu-
leikur
a fimmtudag
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
pressuleikur fari fram n.k.
fimmtudag í Laugardalnum.
Landsliðsnefndin hefur valið
landsliðið og eru eftirtaldir
menn í því.
Helgi Daníelsson, Akranesi,
Árni Njálsson, Val, Rúnar Guð
mannsson, Fram, Sveinn Teits
son, Akranesi, Hörður Felix-
son, KR, Guðjón Jónsson,
Fram, Örn Steinsen, KR, Þór-
ólfur Beck, KR, Steingrímur
Björnsson, Akranesi, EHert
Schram, KR og Þórður Jóns-
son, Akranesi.
Blaðamenn munu velja
blaðaliðið í dag.
Ármaitn og
Færeyingar
I KVÖLD kl. 7 e.h. fara frarn
tveir handknattleiksleikir á Ár-
mannssvæðinu milli Færeying-
anna, sem eru hér gestir Víkings,
og meistaraflok.ks karla og
kvenna úr Ármanni.
Akureyri vann
Fram með 6:3
ÞAÐ mættu fleiri á vellinum á
Akureyri en nokkru sinni fyrr,
er Akureyringar og Fram léku í
1. deild íslandsmótsins á sunnu-
daginn. Áhorfendur fóru líka
ánægðir heim af vellinum, því
heimaliðið vann leikinn 6:3 og
tryggði sér þar með sæti í 1.
deiid næsta ár. Leikurinn var
fjörugur og skemmtilegur frá
byrjun til enda. Framarar náðu
góðum leik framan af, en Akur-
eyringar sóttu sig eftir því sem
á leið leikinn og upphlaup þeirra
og marktækifæri voru mun hættu
legri en Framaranna.
Það voru aðeins 10 mín. af leik
ur gerði þetta ipark alveg upp £
eigin spýtur. Lék í gegnum vörn-
ina og skoraði. — Er hann lék
í gegn rakst hann illilega á Rún-
ar Guðmannsson, sem varð að
yfirgefa vóílinn um tíma en kom
svo aftur inn á og lék þá á kanti,,
það sem eftir var leiksins, en
Halldór Lúðvíksson tók stöðu
Rúnars.
Stuttu síðar var Björgvin í góðu
færi, en lét knöttinn fara fram
hjá sér, en er 13 mín. eru af hálf-
leiknum skorar Björgvin eftir að
hafa fengið góða sendingu frá
Grétari. — Leikurinn stendur 4:2
og Framarar sækja nú meir en
er Skúli útherji skoraði fyrir Ak- nokkru sinni fyrr og 5 mín. síðar
ureyri. Annað markið var skor-
að er 20 mín. voru af leik og var
Steingrímur þar að verki. Skotið
var fremur laust og hefði Geir
markmaður átt að geta tekið
knöttinn. Framarar herða nokk-
uð sóknina næstu mínútur og að
þrem mínútum liðnum skorar
Björgvin eftir að hafa fengið
góða sendingu frá Hinrik, sem
tók aukaspyrnu, 2:1. — Nokkru
síðar skapar Geir markmaður
hættu við markið. Hann var að
sparka út, en framkvæmir
spyrnuna svo að knötturinn fer
beint fyrir fætur Steingríms, sem
sendir knöttinn þegar að mark-
inu aftur, en hann smaug við
stöng framhjá. Akureyringar
sækja nú fast og gera harða hríð
að marki Fram.
Og á 28. mín. bjargar Rúnar
og stuttu síðar bjargar Birgir á
línu. Þessi sóknarlota Akureyr-
inga endar með marki, sem Magn
ús framvörður skorar er 5 mín.
er eftir að hálfleiknum. Þetta var
glæsilegasta mark leiksins, gert
af 25 metra færi og lenti knött-
urinn efst upp í hægra horni.
Staðan var því 3:1 í hálfleik.
Akureyringar byrjuðu af mikl-
um krafti síðari hálfleikinn og
ekki eru meira en 4 mínútur
liðnar er Steingrímur skorar og
ieikurinn stendur 4:1. Steingrím-
skorar Grétar eftir góða aðstoð
Guðmundur Óskarssonar, sem
hafði einleikið áður en hann senli
til Grétars, sem skoraði úr dauða
færi. Leikurinn stendur 4:3 og
harka og hraði færist í hann.
Framarar sækja enn um stund og
beygur er auðsjáanlegur meðatl
Akureyringanna, en þeir hrista
sókn Fram af sér og á 22. mín.
hálfleiksins skorar Steingrímur
fyrir Akureyri og leikurinn stend
ur 5:3. Guðmundur og Halldór
geta kennt sér um markið, því
báðir virtust ætla hvor öðrum
knöttinn, og hlupu báðir frá hon
um, en Steingrímur hirti hann og
„negldi“ í netið hjá Geir.
Þrem minútum síðar skorar
Magnús svo enn annað mark af
20 metra færi. Skaut hann yfir
þvögu af Frömurum og Akureyr-
ingum, og því erfitt fyrir Geit
að sjá knöttinn. Akureyringar
sækja enn um hríð og Framarar
bjarga á línu einu sinni eftir
þetta.
Leiknum lauk þannig með sigri
Akureyringa 6:3 og var það af
öllum talin réttmætt úrslit.
Af einstökum leikmönnum
vöktu ^rngstu mennirnir á vell-
inum mesta athygli, Sigurður
Einarsson, bakvörður í Framlið-
inu og Magnús framvörður í liði
Akureyrar.