Morgunblaðið - 06.11.1960, Blaðsíða 2
2
MORCUNRLAÐIÐ
Sunnudagur G. nóv. 1960
V.
’ ^
Iransprins var
skírður Reza
Teheran, Iran, 5. nóv.
—■ (Reuter) —•
FARAH drottning og sonur
hennar fóru í morgun tii
keisarahallarinnar, í fylgd
með keisaranum.
Mikill mannfjöldi hyllti
fjölskylduna á leiðinni og
hrópaði: „Lengi lifi keisar-
inn, drottningin og krón-
prinsinn“. Stræti, sem þau
óku um, voru skreytt fán-
um og sigurbogum.
★ Ró ogr regla
í morgun var útvarpað tilmæl-
um innanríkisráðherra landsins,
Alavi Moghadam, til almennings
um að gæta stillingar og reglu
meðan drottningin æki um með
son sinn.
★ Skírður
Prinsinn litli var í gær skírður
jReza eftir föðurafa sínum, Reza
keisara. Fór skírnin fram við há-
tíðlega athöfn í fæðingarheim-
ilinu, að viðstöddu nánasta skyld
menni keisarahjónanna og æðstu
ráðamönnum ríkisins.
Einn of forystumönnum múha-
meðstrúarinnar í íran fram-
kvæmdi skírnina og þuldi þætti
úr Kóraninum í eyra korna-
barnsins.
/
dag
NÚ er hver síðastur að
tryggja sér miða i
skyndihappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins. Á þriðju
daginn verður dregið
um Volkswagen-bílana
tvo. Hundruð manna
hafa keypt miða í bíl-
unum í Austurstræti síð
ustu dagana og ekki er
að efa, að margir bregða
sér niður í bæ í dag tii
þess að skoða gripina og
freista gæfunnar.
Bílunum hefur verið
ekið um á vögnum og
þess vegna fá eigend-
urnir þá í hendur ó-
snerta. Hér á myndinni
er ungt fólk að fá sér
miða. Fá þau bílana —
eða e. t. v. þér?
Skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins verður opin i
dag og þar verða mið-
ar seldir.
Gagnrýnir breytingarnar
BLAÐIÐ Grimsby Evening
Telegraph skýrir frá því 31.
okt. sl., að Mr. Anthony
Crosland hafi gagnrýnt for
sætisráðherra Bretlands
vegna breytinga, sem hann
hefir gert á ráðuneytum
jarðyrkju, fiskimála og mat-
væla meðan á viðræðum hef-
ur staðið við íslendinga.
I blaðinu segir m. a.: SI. laug-
ard. átti Mr. Crosland fundi með
togaraeigendum. Að þeim fundi
loknum sagði hann við frétta-
menn: Ég hef fylgzt nákvæmlega
með framvindu viðræðnanna við
íslendinga. Ég vil helzt ekki
gera neinar athugasemdir um við
ræðurnar sem stendur, að nokkru
leyti vegna þess að ég hef fengið
ýmsar upplýsingar um trúnaðar-
mál og einnig vegna þess, að sér-
hver opinber athugasemd gerð á
þessu stigi málsins, kann frem-
ur að verða til ills en góðs.
— En ég vil segja eitt, hélt
Mr. Crosland áfram. Mér þykir
mjög leitt til þess að vita, að
brezka rikisstjórnin skuldi halda
áfram að skipta á mönnum í
ábyrgðarstöðum varðandi fisk-
iðnaðinn á þessum óheppilega
tíma Mr. Soames kom í stað Mr.
Hare sem jarðyrkju og fiskimála
ráðherra, rétt í þann mund, sem
íslenzka ríkisstjórnin féllzt á að
taka upp viðræður. Og nú hefur
verið settur nýr maður í em-
bætti aðstoðarfiskimálaráðherr-
ans, Mr. Godbers. Afleiðing er
sú, að nú eiga að fjalla um þetta
flókna mál tveir ráðherrar sem
enga grundvallarþekkingu hafa
á því.
Og Mr. Crosland segir að lok-
um: Mér virðist að forsætisráð-
herrann hefði átt að gefa fisk-
iðnaðinum meiri gaum, þegar
hann gerði breytingar á ráðherra
stöðum.
Ný stjórn í Félagi ísl.
hljómlistarmanna
Á FUNDI, sem haldinn var í
Félagi ísl. hljómlistarmanna hinn
23. okt. s.l. var kosin ný stjórn
og varastjórn, þar sem stjórn fé-
lagsins og varastjórn sögðu af
sér.
Hin nýja stjórn félagsins er
skipuð eftirtöldum mönnum:
Svavar Gests, formaður; Þor-
valdur Steingrímsson, varafor-
maður; Hafliði Jónsson, gjald-
keri; Poul Bernburg fjármálarit-
ari; Elfar B. Sigurðsson, ritari.
Félagið hefur opna skrifstofu
í Skipholti 19, þangað sem fé-
lagsmenn geta snúið sér, eða þeir
Hringkonur tafía til
Barn aspátaians
Halda skemmtun í Sjálfstœðishúsinu
ÁÆTLAÐ er að vesturálma
Landspítalans. með Bamasoital
tnum nýja á tveunur hæðum,
verði fullgerð 1962. Hringkonur
hafa þegar lagt í Barnaspítalann
4 nrullj .króna ,fyrir utan tæki,
rúm og fatnað, sem nú er notað
á barnadeildinni í gamla spítal-
anum, og keppast þær við að
afla fjár til að geta lagt ftam
meira fé eftir því sem til stend-
ur, svo að það tefji ekki fram-
gang málsins.
Föstudaginn 11. nóvember ætl-
ar Hringurinn því að halda
kvöldfagnað í Sjálfstæðishúsinu
Dagskrá Alþingis
DAGSKRA sameinaðs þings á morg-
un: Rannsókn kjörbréfs.
Dagskrá efri deildar: 1. Fiskveiði-
landMelgi Islands. 2. Ræktunarsjóður
og Byggingarsjóður sveitabæja. 3. Bú-
stofnslánasjóður. Jarðgöng á þjóðveg-
um. 5. Bjargráðasjóður Isiands.
Dagskrá neðri deildar: Lífeyrissjóð-
ur togarasjómanna, frv. 1 .umr.
með fjölbreytturh skemmtiatrið-
um og dansi. Var slíkur kvöld-
fagnaður haldinn fyrir tveimur
árum og var þá svo vel sóttur að
færri komust að en vildu. Vænta
Hringkonur þess að þær fái ekki
lakari undirtektir nú. Aðgöngu-
miðar verða seldir á miðvikudag
og fimmtudag kl. 3—6 í Sjálf-
stæðishúsinu.
Álman sem Barnaspitalinn
verður í, hefur nú verið múrhúð
uð að utan og búið að ganga frá
þaki og er álman fullbúin til
pússningar.
Skarðið opnað
SIGLUFIRÐI, 5. nóv. — Siglu-
fjarðarskarð var ekki fært bilum
í morgun. Snjór er ekki mikill,
jörð er aðeins grá í byggð, en
töluvert hefur skafið í Skarðið.
Ýta verður send upp eftir 1 dag
til að opna Skarðið fyrir lang-
ferðabílunum, sem eru að koma
að sunnan. — G.
SÍBS
happdrættið
í GÆR var dregið í 11. flokki
Vöruhappdrættis SÍBS, um 1255
vinninga, að fjárhæð alls krónur
1.350.500,00. Þessi númer hlustu
hæstu vinningana:
200 þús. kr.: 31747 (Hjalteyri)
100 þús. kr.: 55139 (Austur-
stræti 9)
50 þús. kr.. 7746 (Austurstræti
9) og 12720 (Grettisgata 26)
10 þús. kr.. 1154 9611 15879
16932 19444 21285 26628 27989
36642 40370 40870 40928 42484
42863 45182 48242 48830
5 þús. kr.. 2429 4374 4891 7931
8659 9131 11977 15624 18042 18366
20562 25235 27186 28053 30563
31886 31969 33045 34527 37260
43807 46014 46062 40412 51744
58697 61680 64219
aðilar er þurfa á upplýsingum
eða aðstoð að halda varðandi
hljóðfæraleik.
Skrifstofa félagsins verður
fyrst um sinn opin á þriðjudög-
um og f immtudögum kl. 4—6
t.h. og laugardögum kl. 2—4 e.h.
I /'NAIShnUv ! ✓ SVSOhM*r H Sn/iittn* Stúrir K Þrumur •yS KuUortit HUtttí
Konur
Kópavogi
Næsta handavinnukvöld Sjálf-
stæðiskvennafél. Elcldu, verður
n.k. þriðjudag kl. 8,30 að Mel-
gerði 1, Kópavogi.
Kaffi verður framreitt á staðn
Síldin fellur
r
i veroi
AKUREYRI, 5. nóv. — Nú hafa
veiðst liðlega sex þúsund mál
hér í Eyjafirði og hafa 4 bátar
stundað þessar veiðar síðan fyrir
miðjan október. Mesti afladag-
urinn var í fyrradag, 1800 mál.
Að meðaltali hafa 10 tunnur far-
ið til niðursuðu á dag, en hitt
í bræðslu. Framan af var um
millisíld að ræða, allgóða til
vinnslu. Voru kr. 80.00 þá greidd
ar fyrir málið. Síðustu dagana
hefur eingöngu veiðst smásíld,
sem lítið fæst úr. Hefur síldar-
verksmiðjan því neyðst til að
iækka verðið niður í kr. 60.00
á mál. —Magnús.
Ljósaborg
á Dýrafirði
ÞINGEYRI, 5. nóv. —- ÞaS
minnir okkur á gamla daga
að sjá ljósaborgina hér úti
á firðinum. Undanfarna
tvo sólarhringa hefur verið
vonzku veður hér úti fyrir
og togararnir hafa leitað
vars í hrönnum á Dýrafirði.
Ekki aðeins þeir íslenzku.
Bretarnir hafa bætzt í hóp-
inn. — Markús.
Ný götulýsing og
nýr prestur
ESKIFIRÐI 5. nóv. — Hér er nú
geysimikil atvinna og róa bát-
arnir ekki með fulla áhöfn af
þeim sökum. í síðasta mánuði
voru gerðir út héðan 5 bátar.
Afli var allgóður, 4—8 lestir í
róðri. Nokkrir voru í úti’egu og
tveir sigldu með afla til Þýzka-
lands og fengu sæmilegt verð
fyrir.
Unnið er að mik’um fram-
kvæmdum. Átta íbúðarhús eru •
í smíðum, sömuleiðis sundlaug,
nótastöð, Póst- og símahúsið er
brátt fullgert, nýr símastrengur
er lagður í kauptúninu og ný
götulýsing er í uppsiglingu. Og
síðast en ekki sízt. Eskfirðingar
eru nýbúnir að fá nýjan sýslú-
mann og eiga nú von á nýjum
presti. — Fréttaritari.
Ágæt færð á heið-
D
um
ÞINGEYRI 5. nóv. — í gær-
kvöldi kom jeppabill að sunnan
og sagði bílstjórinn ágæta færð
yfir heiðarnar. Fjöll eru grá nið
ur í miðjar hlíðar og fremur
kuldalegt. Einn bátur er byrjað-
ur róðra. Hefur fengið liðlega 12
lestir 1 tveimur veiðiferðum.
Fjórir bátar verða gerðir út héð,
an til áramóta. — Magr.ús. i
HlHm» I
s //. nv>. kl s |
Veðurspáin í gærkvöldi:
SV-land til Breiðafjarðar og
miðin. Hægviðri í nótt en
sunnankaldi á morgun, þykkt
loft og þíðviðri.
Vestf. og Vestfj.mið: SV og
sunnan gola, skýjað, dálítil
slydda eða rigning.
Norðurland og norðurmið:
Hægviðri, skýjað með köflum.
NA-land til SA-lands og
migin: Hægviðri, víðast létt-
skýjað.
$
f!
\