Morgunblaðið - 06.11.1960, Blaðsíða 15
Sunriudagur 6. nóv. 1960
MOnCllTSfíL 4ÐIÐ
15
hverjum bita fyrir sér og
tyggur svo vandlega, að eng-
inn yrði hissa þó hann teldi'
Af fútunum skuluð
þið þekkja þá
Hvernig eru fœtur
unnustans — eða
borðsiðir
Mir Mohammed Ajan
Qayoom er Pakistanbúi og
„cartopedisti" að atvinnu.
Það þýðir, að hann getur
greint skapgerð viðskipta-
vina sinna með því að skoða
fæturna á þeim.
Uppruni „cartopediunnar"
er löngu gleymdur og týndur
í myrkri fornsögu Austur-
landa. En rekja má hann allt
til Forn-Persíu. Fyrrnefndur
Pakistanbúi er af persnesk-
um uppruna og ætt hans hef
ur öldum saman iðkað þessa
„fótamennt“.
Þessi „vísindagrein" er allt
of flókin til þess að segja
megi frá henni í stuttu máli.
Eftirfarandi atriði geta þó ver
ið gagnleg ungum stúlkum,
sem þurfa að komast að raun
um, hvern mann biðlar þeirra
hafa að geyma.
Lítum þá fyrst á.
T ærnar
Séu tærnar frammjóar
er ekki rétt að láta töfrast af
blíðlegum brosum hans, þvi
að öllum líkindum er hann
mesti hrosshaus og lifir tvö-
földu lífi — einskonar dr.
Jekyll og Mr. Hyae. Auk þess
þykir honum áreiðanlega
vænt um smápeninga.
3éu tærnar breiðar
er hann án efa kærulaus með
tilveruna. Það er ekki leiðn-
legt að lifa lífinu með honum,
en hann er óstundvís og hirðu
laus í klæðaburði. Hafi hann
kímnigáfu, máttu búast við
að hún eigi betur við á vinnu
stað en heima.
Hælar
Sporöskjulagaðir hælar
sýna þann, sem er þurr a
manninn, verkhygginn, með
góðar skipulagsgáfur. Hann
getur átt það til að gera upp-
reisn en hann hefur ætið
stjórn á' sjálfum sér. Kreppir
hnefana í vösunum og þrjózk
ast við.
Breiðir hælar
bera vitni um glaðværð, í-
þróttaáhuga og jákvæða af-
stöðu. Allt sem hann verður
fyrir hefur hann tilhneigingu
til að líta á björtum augum. -
Hnöttóttir hælar
eru aðalsmerki hins trausta
manns. Hann er ekki spenn-
andi eða hættulegur en í ást-
um er hann blíðlyndur og
rómantískur.
Séu tærnar loðnar
verður stúlkan að fara var-
lega. Sál hans er eins og djúp
ur 'hylur. Hann er hættulegur
stúlkunum vegna þess að
hann er blóðheitur, uppstökk
ur og suðrænn elskhugi.
Sleppum nú tánum og höld
um aftur á hæl.
Afturmjóir hælar
sýna að ekki má treysta á
hann við hættulegar aðstæð-
ur. Hann er eldfljótur að taka
ákvarðanir en því miður eru
þær oftast rangar.
Loks eru það
Öklar
Langa ökla
hefur maður með listgáfuna,
lundhitann og hinn góða
smekk.
Stutta ökla
hafa þunglyndir menn. Þeir
eru ætíð að leita hins full-
komna.
En séu öklarnir í meðallagi,
er það merki þess að dæma
má hundinn eftir hárunum.
__ t ! i __
En gætið að því, stúlkur,
þegar þið rannsakið fótalag
unnusta ykkar, að þótt hælarn
ir og tærnar mjókki til end-
anna, getur það stafað af því
að hann gangi í of þröngum
skóm. Það verður að taka með
í reikninginn.
Af þessu tvennu getið
þið dregið ályktanir
um skapgerð hans og
. persónuleika.
Hvernig
borðar
hann ?
Þetta var um fæturna. En
borðsiðir mannsins geta einn
ig komið upp um hann. Ame-
rískir sálfræðingar hafa rann
sakað sambandið milli per-
sónu mannsins og borðsiða
hans og hér eru þeirra niður-
stöður:
Hann vil matinn mikið
kryddaðan með ókjörum af
sósum út á. Og fái hann tæki-
færi til, stappar hann sósur
og kartöflur í einn graut.
Að eðlisfari er hann grautar
haus og nýtur lífsins í ríkum
mæli. Hann er alltaf reiðubú-
inn að reyna eitthvað nýtt,
ræðst á verkefnið eins og naut
í flagi, en úthaldið er ekki að
sama skapi.
Jórtrarinn
Hann étur hægt. Veltir
upphátt hve oft hann tyggir
áður en hann kingir.
Hann er rólegur og stundum
næstum því daufur. Að eðlis
fari er hann nákvæmur og
fullur grunsemda. Hann leik-
ur oft á menn þannig, að hann
litur út fyrir að vera í þung-
um þönkum en „þá er hann
jafn þankalaus, og þorskur er
lepur strauma".
Sælkerinn
Hann kroppar í matinn, fisk
ar upp gómsætustu bitana
með hægð, sem gerir honum
fært að éta bæði mikið og
lengi.
Smámunasemi hans er óþol
andi. Auk þess er hann þröng
sýnn og vantar hæfileikann
til að taka ákvarðanir eða
frumkvæði.
Gleypirinn
Hann étur hratt og ákveðið
og horfir á næsta rétt á með-
an. Hann á erfitt með að njóta
lífsins vegna þess hversu af-
skaplega hann á annríkf með
að eiga annríkt. Hann eyðir
tímanum í að áætla og ræða
um hvernig hlutirnir eigi að
gerast í staðinn fyrir einfald
lega að gera þá.
Hamstrarinn
Hann sker alla beztu bitana
frá og nýtur þeirra undir lok
in.
Hann er tillitssamur og hugs
ar allar sínar gerðir fyrir-
fram. Hann gerir áætlanir af
ró og skynsemi og er reiðu-
búinn að bíða eftir árangrin
um af verkum sínum, hvað
sem hann nú annars fæst við.
____________ ! ! ! __
Þarna sést það svart á
hvítu, hverja eiginleika unn-
ustar ykkar og eiginmenn
hafa til að bera.
Stúlka óskast
til skrifstofustarfa. Þarf að kunna vélritun og vera
vel að sér í ensku og einhverju Norðurlandamálanna.
Hraðritunarkunnátta æskileg.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Bernh. Petersen
Hafnarhúsinu.
Telpa
13 —14 ára óskast til sendiferða
(íyrir hádegi) á skritstofu vora.
t0tttiUnb i*
nýjar bækur
liaðurinn, sem steig
ofan á höndina á sér
Ný snjöll skáldsaga eftir
hinn vinsæla rithöfurid
Halldór Stefánsson
Bók hans
Fjögurra manna póker,
sem kom út í fyrra var
mjög vinsæl og er nær
uppseld.
Kvæli
fyrsta ljóðabók
Jakobinu
: sem þegar er landskunn
fyrir hin snjöllu og skap-
heitu baráttukvæði sín. —
Kærkomin bók handa
öllum ljóðaunnendum.
I barnabækur
Sagan um nýzka hanann
og
Lata stelpan
Fagrar
ævintýrabækur
prentaðar í mörgum litum
og með mörgum heilsíðu-
myndum. Tilvaldar jóla-
bækur fyrir yngri lesend-
urna.
Fást í
bnkaverzlunum
HEIMSKRINGLA