Morgunblaðið - 06.11.1960, Blaðsíða 23
Sunnudagur 6. nóv. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
23
Sveinn Jón
Minning
SVEINN JÓN Einarsson létzt í
Landakotsspítala eftir stutta legu
23. f. m. tveim árum miður en
níræður, fæddux að Efri Þverá
í Fljótshlíð 11. nóv. 1872. Útför
ihans hefur farið fram í kyrrþey
eins og ósk hans var.
y Sveinn Jón Einarsson eða
Sveinjón. í Bráðræði, eins og
hann var kallaður lengst ævinn
ar, var einn hinna kyrrlátu en
athafnasömu manna í þjóðfélag
inu. Stundum er talað um alda
mótakynslóðina og dugnað henn
ar, er hún bjó í haginn fyrir kom
andi kynslóðir, byggði upp land'
ið og barðist til pólitísks sjálf-
stæðis, braut athafnalífinu nýja
farvegi. Til hennar taldist Svein
jón. Samfellda ævina var hann
sístarfandi og brjótandi upp á
nýju. Vallt þá á ýmsu eins og
gengur, aðra stundina var hann
með efnaðri mönnum, hina snauð
ur, en ærðulaus þótt á móti
blési.
Hann fluttist til Reykjavíkur
rétt fyrir aldamótin eins og svo
margur bóndasonurinn, sem
stundað hafði alla sveitavinnu
og róið í veri, en nú var kominn
til þess að taka þátt í uppbygg-
ingu þessa bæjar. Á engum ára-
tug hefur Reykjavík stækkað
hlutfallslega meira en á fyrsta
tugi þessarar aldar. íbúatalan
tvöfaldaðist, úr 5 þús. í 10 þús.,
og Sveinjón var einn þeirra, sem
hófst handa um húsbyggingar
Enska
knattspyrnan
16. umferð ensku deildarkeppninnar
fór fram í gær og urðu úrslit leik-
anna þessi:
1. deild
Aston Villa — Burnley ... 2:0
Ðlackburn — Birmingham . 2:0
Blackpool — Cardiff .... 6:1
Bolton — Machester City . 3:1
Chelsea — Newcastle ..... 4:2
Everton — W.B.A ......... 1:1
Manchester U. — Sheffield W .... 0:0
Tottenham — FuHiam ........ 5:1
6:0
Wolverhampton — N. Forest .. k
2. deild
Charlton — Southampton ........ 1:3
Lincoln — Scunthorpe 6:2
Luton — Ipswich 3:J
Norwich — Rotherham ......... 3:1
Bljrmoutrh «— Uverpoio ........ 0:4
Bortemouth — Leyton Orient .... 1:2
Sheffieid U — Leeds .......... 3:2
Stoke — Middlesbrough ........ l ;l
Sunderland — Bristol Rovers .. 2:0
Swanaea — Brighton ............ 2:3
Að 16 umferðum loknum er staðan
þessi:
1. Tottenham deild 16 lfr 1 0 53:1« 31
Sheífield W. 15 10 4 1 26:11 24
Everton 1« 10 3 3 38:25 23
Wolverhampton 1« 9 4 3 37:29 32
Cardiff 1« 4 3 9 19:34 11
Biackpool 1« 4 2 10 27:36 10
Bolton 1« 4 2 10 20:30 10
N. Forest 1« 2 2 12 19:40 6
Sheffield U. deild 17 13 i 3 34:17 37
Ipswich 16 9 3 4 36:21 21
Norwich 16 8 5 3 28:18 21
Southampton 16 9 3 4 43:31 31
Luton 16 4 4 8 22:34 12
Swansea 16 3 5 8 22:29 11
Brighton 16 4 3 9 27:37 11
Lincoln 16 4 3 9 20:31 11
Einarsson
þessi árin. Jafnframt fékkst hann
við verzlun, en 1911 keypti hann
Bráðræðiseignina hér í bæ og
síðan Meistaravelli og bjó þar
góðu búi til 1929. Þá þótti honum
vaxandi bær þrengja um of að
búskapnum og seldi Bráðræðið
íyrir Bjarnarhöfn á Snæfells-
nesi. Sú ráðstöfun reyndist ekki
happasæl og þremur árum síðar
brá hann búi og fluttist enn til
Reykjavíkur og keypti smásölu
verzlun í bænum. Jafnframt
keypti hann steinhús í Bráðræð
islandi og undir það síðasta auðn
aðist þeim hjónum, honum og
Helgu Ólafsdóttur frá Hlíðarenda
koti, hinni fegurstu konu og
tryggasta lífsförunaut, að búa
smábúi á skák úr Bráðræðislandi.
Konu sína missti Sveinjón 1953
eftir 54 ára sambúð, en eftir það
dvaldi hann ýmist hjá syni sín-
um Ingólfi lögregluþjóni og konu
hans Klöru Halldórsdóttur eða
dótturdóttur Helgu Hansdóttur
og manni hennar Þorsteini Þor-
steinssyni viðskiptafræðing. Eftir
lifandi börn Sveinjóns og Helgu
í Bráðræði eru auk Ingólfs, Ein
ar skósmíðameistari og Ólafur
verzlunarmaður, en fyrir þeirri
þungbæru sorg urðu þau hjón, að
missa dætur sínar allar, Málfríði
á barnsaldri en Guðrúnu 1925 og
Ólafíu 1937, báðar ungar og ný-
giftar konur í blóma lífsins.
Börn og bamabörn Sveins Jóns
Einarssonar svo og allur vina
og tengdahópurinn þakkar hon-
um liðna tíð og saknar þess að
sjá hann ei framar í lífsins önn,
hressann og æðrulausan á hverju
sem gekk, en glettinn og skraf-
hreyfinn í góðum fagnaði.
L. S.
Skip breniiur
i hoininm
í Gaulaboro
Einkaskeyti frá fréttaritara
Mbl. í Gautborg, 5. nóv.
TVÖ þúsund tonna skip, M/s
Volo frá Hull sökk í gær í höfn-
inni í Gautaborg, eftir að eldur
hafði komið upp í pappírsmassa
í lestunum.
Margmenni safnaðist saman
við höfnina til þess að horfa á
brunann og átti lögreglan fullt
í fangi með að vísa fólkinu frá.
Er gífurleg sprengin varð um
borð í skipinu, var sýnt að því
yrði ekki bjargað. Sex slökkvi-
liðsmenn slösuðust svo að flytja
varð þá í sjúkrahús.
60 slökkviliðsmenn frá öllum
slökkvistöðum borgarinnar tóku
þátt i björgunarstarfinu, sem
var mjög erfitt vegna þess, að
reykurinn var eitraður af hráefn
um, sem voru í lestinni.
Hlaut sekt
PRÓFESSOR Niels P. Dungal
fékk kr. 15500 sekt vegna víns-
ins, sem hann flutti inn í bifreið
sinni á dögunum. Var vínið gert
upptækt.
Á Keflavíkur-
flugvelli
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
er hafin samvinna milli íslenzku
lögreglunnar og herlögreglu
varnarliðsins, á sviði umferðar-
mála á flugvallarsvæðinu.
Dagarnir styttast óðum og þörf
er meiri aðgæzlu í akstri en ella
þegar vetur og snjór fer í hönd.
Hafa allir þeir sem bílum aka á
flugvallarsvæðinu verið hvattir
til þess að gera sitt ýtrasta svo
komið verði hjá slysum og
óhöppum á götum og vegum inn-
an flugvallarsvæðisins.
SIGLUFIRDI, 4. nóv.: — Bæjar-
togarinn Hafliði landaði hér 130
tonnum af fiski sem unnin verð
ur í hraðfrystihúsi SR. — Guðjón. *
á Skaganum
AKRANESI 5. nóv. — Lokið er
við að steypa um 300 metra af
Kirkjubraut og er það mjög tii
bóta. Ættu Akurnesingar þvi að
geta dansað vel og mikið á
næstu þjóðhátíð. — Odfur.
— Kasavubu
Frh. af bls. 1.
fengið boð um að vera við
öllu búið.
★
Kasavubu hefur dvalizt á heim
ili sínu síðastliðna tvo mánuði
og ekki tekið beinan þátt í opin-
berum málum, að heitið getur.
Nú eru fylgismenn hans og
Mobutus gripnir sterkum grun
um, að Sameinuðu Þjóðirnar
hyggist setja Lumumba til valda
á ný. Ástæðan mun fyrst og
fremst vera gagnrýni sú, er fram
kemur á herstjórn Mobutus í síð-
ustu skýrslu um Kongómálið til
Hammarskjölds framkv.stj. Verð
ur fjallað um þá skýrslu í New
York á mánudag, en þá ráðgerir
Kasavubu að vera kominn þang-
ag.
1 gær skírskotaði stúdenta-
ráðsstjórn Mobutus til íbúa
Kongó, að þeir berðust til hins
ítrasta með stjórninn gegn ný-
lendustefnu Sameinuðu þjóð-
anna eins og þeir komust að
orði.
★
Liðsmenn Sameinuðu Þjóð-
anna reyna nú að telja Baluba
liðsmenn Alberts Kalonjis á að
leggja niður vopn og hverfa til
heimskynna sinn. Þeir hafa und-
anfarið gert allmikinn usla í
Kasai. Hafa SÞ í hyggju að koma
á hlutlausu belti í suður Kasai
svo sem komið var á í norður-
hluta Katanga. Um þau beltl
skulu þá engir ferðast utan
starfsmenn SÞ.
í Leopoldville og víðar er óró
í lofti, þótt kyrrt sé á yfirborð-
inu og hefur liðsmönnum SÞ ver
ið fyrirskipað að vera við öllu
búnir.
— Brúarsmiði
Framh. af bls. 3
ist á í sumar, svo þetta urðu
héraðsmönnum nokkur von-
brigði, auk þess sem það hefur
aukinn kostnað í för með sér að
hætta við hálfklárað verk og
byrja það á ný. — Þá var í
sumar byggð brú á Fjarðará i
Lóni og mun brúarsmíðinni þar
nýlokið. Fjarðará er aS vísu
ekki stórt vatnsfall, en hefur þó
torveldað mjög samgöngúr. — í
sumar var einnig unnið að dýpk
un hafnarinnar í Hornafirði eins
og þið hafið haft spurnir af.
Sæmilegur afli —
nýr bátur
Bátarnir I Höfn voru að byrja að
róa með línu og fiskuðu mjög
sæmilega. í haust er von á nýj-
um 150 lesta báti og voru menn
farnir að sækja hann er ég fór
að heiman.
Jöklar eyðast
— Þá langar mig til að minn-
ast á það að lokum, sagði Þor-
steinn, að vegna þessa hlýja og
góða sumars hafa jöklarnir mjög
látið á sjá. Mælingar, sem gerð-
ar hafa verið í haust, sýna, að
eyðing þeirra hefur verið með
langmesta móti í sumar.
— Æskulýðsráð
Framhaid af ols. 10.
en Helgi Daníelsson leiðbeinir
f rímerj kasöf nurum.
Aðilar að Æskulýðsráði Akra-
ness eru: íþróttabandalag Akra-
ness, Skátafélag Akraness,
Barnastúkan Stjarnan, K.F.U.M.
og K., Barnaskólinn, Gagn-
fræðaskólinn, Iðnskólinn, Séra
Jón M Guðjónsson. ^_ -,
— Dragnótin
Frh. af bls. 1.
verðmæti dragnótaveiðarnar
hafi gefið og þá hve mikið
hefur fengizt fyrir aflann.
Óhætt mun að reikna með að
fyrir bolfiskinn, hafi fengizt
að meðaltali kr. 2.55 fyrir kg.
og 4800 lestir þá gefið 12,3
millj. króna. Af flatfiskinum
fram til septemberloka fengu
Vestmannaeyingar 887 lestir,
en vegna þess hve flutnings-
kostnaður með leiguskipum
varð mikill á útflutta fiskin-
um, er talið að þeir fái ekki
nema um eina krónu fyrir
kg., þegar búið er að gera upp.
Þetta gerir 887 þús. kr. fyrir
flatfiskaflann hjá þeim á
þessu tímabili. Aðrir drag-
nótabátar, veiddu samtals
1113 lestir af flatfiski og
seldu fiskinn á innanlands-
markað fyrir verð, sem mun
mun vera ca. 4 kr. á kg. að
meðaitali og hafa þá samtals
fengið 4,5 millj. króna fyrir
hann.
Betri útkoma í okt.
hjá Vestmannaeyingum
Þá er útkoman sú, að frá því
veiðin hófst með dragnót, sem
mun almennt hafa verið í byrj-
un ágúst, og fram til september-
loka, hefur aflaverðmæti bát-
anna verið eitthvað nálægt 17,5
milljónum kr. Við það má svo
bæta októberafla Vestmannaeyja
bátanna, 300 lestum alls, líklega
mest flatfiski og þá voru Vest-
mannaeyingar farnir að ugga að
sér um sölur til útlanda og létu
aflann í frystihúsin. Um afla
annarra báta þennan síðasta mán
uð er ekki vitað en hann var þá
farinn að minnka, eins og áSur
er sagt.
Um 120 fengu leyfi
Um 120 bátar munu í upphafi
veiðanna hafa fengið leyfi til
dragnótaveiða, en ekki allir not-
að leyfi sín. Meira en helmingur
þeirra sem leyfi fengu voru Faxa
flóabátar, 33 Vestmannaeyjabát-
ar voru á dragnótaveiðum lengri
eða skemmri tíma, og auk þess
stunduðu nokkrir Austfjarðabát-
ar, örfáir Breiðafjarðarbátar og
nokkrir bátar frá Tálknafirði og
Pateksfirði dragnótaveiðar.
Schannong’s minnisvurðar
0ster Farimagsgade 42,
K0benhavn 0.
Stór hæð
5 herbergja íbúð ásamt hluta af kjallara á bezta
stað í Vesturbænum til sölu. Tilboð merkt: „Góður
staður — 1782“ sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudags-
kvöld.
Eiginkona mín
UNNUB KBISTlN EGGEBTSDÓTTIE
andaðist föstudaginn 4. nóv.
Fyrir hönd vandamanna.
Magnús Sigurjónsson
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma
ANNA ANIKA JAKOBSDÓTTIB
Bugðulæk 13
andaðist í Sjúkrahúsi Hvítabandsins 5. nóvember.
Vilborg Stefánsdóttir, Ingólfur Gissurarson
Bjargey Stefánsdóttir, Ágúst Guðmundsson
Kristjana Kristjánsdóttir, Júlíus Kristjánsson
og barnabörn
Konan mín
SIGBÍÐUB GUÐMUNDSDÓTTIB
fyrrum ljósmóðir, Gelti, Grímsnesi,
lézt aðfaranótt 4. þ.m.
Brynjólfur Þórðarson
Útför eiginmanns míns
HEBMANNS ÓLAFSSONAE
Holtsgötu 41
fer fram frá Dómkirkjunni 9. nóv. kl. 10,30. — Athöfn-
inni verður útvarpað. — Blóm afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hans, er bent á æfingarstöð fatlaðra og
lamaðra.
Fyrir hönd bama, tengdabarna og barnabama.
Halldóra Daníelsdóttir
Þökkum hjarcanlega öllum fjær og nær, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför elsku-
legrar dóttur minnar
ÞOBBJARGAB LUND
Fyrir hönd vina og vandamanna.
Rannvcig Lund
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför eiginkonu minnar, dóttur, móður og tengdamóður
HELGU BJÖBNSDÓTTUR
Finnur Gislason, Jónína Jónsdóttir
Hörður Björn Finnsson, Iris Jóhannsdóttir
Sigurjón Helgason