Morgunblaðið - 06.11.1960, Side 3

Morgunblaðið - 06.11.1960, Side 3
r Sunnudagur G. nóv. 1960 MORGVUVl/ATHÐ 3 Þegar rafstraumnum er hleypt á ræðst kötturinn með grimmd á rottuna. Áhrif rafstraums Sr. Jón Auðuns, dómprófastur: Vegur allra sálna TVÆB fornar kirkjuhátíðir falla á fyrstu dagá þessa mánaðar: Allra heilagra messa, mmningar dagur dýrlinga og helgra manna, 1. nóv., og Allra sálna messa, minningardagur allra framlið- inna, 2. nóv. Víðast eru þessar hátíðir haldnar nú á fyrsta sunnudegi í nóv. Sá dagur er i dag. Allra sálna messa er í huga þeirra, sem hana viija muna, há- tíð minninganna um vini, sem af jarðneskum heimi eru farnir. Dagur minninga og bæha í senn. „Svipþyrping sækii^ þing i sinnis hljóðri borg“, segir Gr. Thomsen í kvæðinu um endur- minninguna, hana sem „gleðina jafnar, svæfir sorg“. í hljóðan huga þyrpast mmningarnar um þá, sem fóru Þeim mun fleiri minningar, sem á ævina líður og fleiri vinir hafa kvatt. Þær kveðja hljóðlega dyra og koma inn eins og gamlir. kænr gestir, eins og vinir, sem gleymast oft í argi og þrasi daganna, en koma nú til að minna hjartáð á hluti, sem það má ekki gleyma. En þegar þeirra er minnzt, sem engill dauðans leiddi á sín- um tíma yfir laidamærm, ger. ist mannshugurinn spuruil, spur- ulL um sín eigin örlög og vin- anna, sem hurfu. Þú skált ekki spyrja, trúðu aðeins, — er þrásinnis sagt. Þeir um það, sem það geta gert, en hver má banna öðrum, sem aðr- ar leiðir verða að fara? Getur barnshönd stöðvað fossafarl? Getur veikur maður bundið storminn? Menn vitna til heilagrar Ritn- • ingar um það, að eftir dauðann sé ekki um þróun að ræða. í andlátinu séu endanleg örlög mannsins innsigluð, eftir það vérði engu breytt. Fyrir nokkrum árum háðu danskir kirkjumenn deilú. Kunn ur guðfræðingur hafði vegið mjög að hugmyndinni um ódauð leika sálarinnar og látið uppi fullar efasemdir um hann. Marg ir kirkjumenn lögðu saman í bók til andmæla, en flestir þeirra töldu það ókristilegt með öllu og óbiblíulegt. að gera ráð fyrir þróun mannssá.arinnar eftir dauðann. NOKKRlH vísindamenn við New Vork State Psychiatrie Institute hafa reynt að finna hvernig heilinn stjórnar vöku, vörn eða flótta dýra, sem komast í hann krappann. Ný- lega sögðu þessir vísinda- menn frá tilraunum sinum á fundi hjá félagi bandarískra taugafræðinga. Við tilraunirnar notuðu þeir kött og rottu, sem voru hinir ágætustu vinir Þeir komu endum grannra málm- Góðir vinir í sama búri. t heila kattarins eru þræðirnir. þráða fyrir í dyngjubotni (hypothalmus) kattarins, en það er sá hluti heilans, sem stjórnar hitastigi, blóðþrýst- ingi og fleiru. Því næst var ket.tinum hleypt inn í búr þar sem rott- an var fyrir. Það fór vel á með þeim unz rafstraumi var hleypt á vírana. Hóflegur straumur olli þvl, að köttur- inn réðist á rottuna, en væri straumurinn aukinn, fhiði hann hana. Með því að fiytja þræðina fundu vísindamenn- irnir, að það svæði í heila kattarins þar sem straumur olli flótta var mun stærra en það svæði þar sem straumur olli vígamóði. Brúarsmíbin stöBvaðist á miðju sumri Þorsteinn Guðmunásson segir fréttir úr Suðursveit og Hornafirði ÞORSTEINN Guðmundsson, hreppstjóri á Reynivöllum í Suðursveit, lítur stundum inn á ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins þegar hann er á ferð í höfuðborginni. — Blaðið hefur engan fréttarit- ara í Suðursveit og notum við því ætíð tækifærið þegar Þorsteinn kemur og spyrjum hann spjörunum úr. Er Þor- Steinn leit inn fyrir nokkr- um dögum sagði hann okkur m. a. þannig frá árferði, skepnuhöldum og fram- kvæmdum í Hornafirði: Sumar kom með sumri — Það hefur verið ágætf að búa í sumar. Voraði snemma og mátti heita að sumar kæmi með sumri eða jafnvel fyrr. Fé var sleppt á Krossmessu, en því hef- ur maður ekki átt að venjast. Gekk féð vel fram, tíðarfar var gott um sauðburð og lamba- dauði enginn. Var með heldur meira móti tvílembt 1 vor Hey með mesta móti Gras spratt vei og snemma og var töluvert af túninu slægt upp úr miðjum júní. Hófst sláttur lega þeir, sem höfðu nógan véla- kost. En 1. júlí brá til oþurrka, sem stóðu til 20. júlí. Áttu marg- ir bændur mikið hey laust þegar óþurrkarnir hófust og lenti það í talsverðum hrakningum. Var okkur ekki fanð að lítast á og héldum við að enn eitt óburrka- sumarið væri komið. Um 20. júli breyttist þetta og siðan hefur verið ágætis tíð. Höfðu margir bændur lokið heyskap um 20. á- gúst Heybirgðir eru með mesta móti og heyin sæmileg þrátt fyr- ir óþurrkakaflann. Fallþungi dilka með betra móti Fé gekk vel fram og var fall- þungi dilka með betra móti i minni sveit a. m. k. Voru kropp- arnir víða 13 til 14 kg til jafn- aðar. Mikið kartöflumagn nokkuð misjöfn, léleg í sand- mesta móti, en uppskerar. varð görðum, en annars staðar ágæt. Voru kartöflusendingar til kaup félagsins svo miklar. að félagið gat ekki tekið við nema helm- ingnum. Verða bændur að sitja uppi með hitt, en eitthvað verð- ur tekið um áramótin. E.- erfitt að þurfa að geyma kartöfiurnar heima, því menn hafa ekKÍ góð- ar geymslur. Brúargerð stöðvast — Helztu framkvæmdir? — I sumar var byrjað á brú- argerð yfir Hornafjarðarfljói Var lokið við að byggja allarund irstöður um miðjan ágúst, en þá voru bitarnir í brúna ekki til- búnir þg varð því að hætta við verkið að sinni. Sennilega hefði brúin komizt á i haust, ef ekki hefði staðið á að fá bitana smíð- aða í Reykjavík. Þótti mönnum hið mesta mein, að verkið skyldi stranda á miðju sumri, og voru brúarsmiðurinn og aðrir sem með honum unnu sérstaklega leiðir yfir því. Einnig hafði ver- ið gert ráð fyrir að brúin kæm- Framh. á bls. 23 almennt um 20. júní. Voru þá þurrkar í vikutíma og menn Vegna þess hve vel voraði var land snemma brotið til kartöflu- náðu inn töluverðu heyi, sérstak ræktar. Var sett niður með allia Hvar sem þetta kann að vera kennt og hvar sem stoð þess kann að mega finna í fornum helgiritum, snúast hugsandi menn gegn slíkum hugmyndum. Þeir benda á, að brotleg og beisk erum vér öll, þegar jarðlífin'.i lýkur, — jafnvel hinir göfugustu menn, og neita að trúa því, að eftir þennan örstutta spöl á jörðu eigi .mafinssálin sér enga von þróunar og vaxtar. Er hægt að trúa því, að barn- ið, sem andast nýfætt, eigi um eiiífð að halda áfram að vera óviti, og það eins þótt pað hafi af mistökum manna verið svipt þroskamöguleikunum, sem jarð- lífið átti að veita því? Dettur nokkrum í hug í al- vöru, að glæpamaðurinn haldi alltaf áfram að vera glæpamað- ur, grimmdarseggurinn um ei- lífð grimmur, fávitinn um eilífð fáviti, barnið sem deyr á frum- stigi jarðlífsins, ávallt barn? Frá þessum úreltu hugmynd- um snýr sér hugsandi mað ur.* F.r hitt ekki sennilegra, samræmara hinni kristnu trú á alrráttugan og algóðan Guð, að í dauðanum sé framundan sálunni ósegjan- lega mikil vegferð, skólaganga með sigrum og ósigruni erfiði og gleði um heim af heimi, um himin af himni, unz hið lága, dýrslega hefir ummyndast í deiglu nýrrar og nýrrar reynsiu til þeirrar dýrðarmyndar sjálfs Krists, sem Ritningin segir aS Guð ætli oss að lokum að ná? Leiðin er iöng, breyzkum og brotlegum manni, upp í heilag- leikans svimandi, háu hæðir en að hinu dýrlega lausnarverki vinnur Krists-kærleikurinn í öllum heimum tilverunnar. Hvert ljós, sem á hinni miklu, löngu leið er kveikt, er endur- skin af kærleikssól Hans, sem fæðingu sinni til jarðarinnar gerðist fátækur vor vegna. Á þeim vegi eru vinirnir sem Allra sálna messa minnir oss á. Af eigin ramleik göngum hvorki við né þeir þann veg. En milli endimarka ómælisvíddanna er að verki endurleysandi kærleik- ur Krists. Hinn gamla veg, sem dulspekingar löngu liðinna alda kenndu, hinn þrefalda, heilaga veg: Veg hreinsunarinnar, veg upplýsingarinnar og veg eming- arinnar við sjálfan hinn æðsta, eilífa Guð, verða allar sálir að ganga. En einn gengur enginn veginn, einmana engin sál Leiðarmerkin eru mórg, en öll eru þau endurskin af sól hans, sem vakir yfir vinunum, sein vér minnumst í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.