Morgunblaðið - 06.11.1960, Side 5

Morgunblaðið - 06.11.1960, Side 5
Sunnudagur 6. nóv. 1960 MORGVNBLAÐIÐ 5 Teljið þér, að leyfa beri sölu sterks öls hér á landi? Hinrik Guðmundsson verk- fræðingur: — Ég tel að leyfa beri framleiðslu og sölu á öllu öli hér á iandi, eins og annars stað- ar tíðkazt meðal menningarþjóða. Ég get ekki fall- izt á þann mál- flutning, sem oft er hafður í frammi 1 þessu sambandi, að ís- lendingar séu svo vanþroska, að þeir geti ekkx umgengizt öl eins og annað fólk. Slíkt er firra, sem reynt er að sanna með dæmum sem eru al- gerlega undantekningar í þjóð- félaginu. Er nokkurt vit í því að meðhönd'la þjóðina í heild eins og vanþroska fólk, vegna þess að slíkar undantekningar eru til — Ég held ekki. Hér á landi er bruggað öl, sem má ekki hafa meira en 1,8% alkóhólinnihald. Algengasta öl á erlendum markaði hefur 3—4% alkóhólinnihald en sterkt öl yfir- leitt 5—6%. Auk þessa hefur öl mikið^ næringargildi, inniheldur vítamín og kolsýruinnihald þess er hressandi. öl er framleitt ú'r korni, aðallega byggi, og er 1 Þýzkalandi oft kallað fljótandi brauð vegna næringargildis og hressandi eiginleika. __ Ég tel enga hættu á óhóflegri öldrykkju hér á landi, vegna hins kalda og raka veðurfars. Það er alkunn reynsla í öllum löndum, að í slíku veðurlagi er mjög lítið drukkið af öli og öðr- um lítið áfengum drykkjum. ís- lendingar eiga tvímælalaust að hafa allt venjulegt öl eins og aðrar siðaðar þjóðir. Annað er ekki vansæmdarlaust. — Um gæði ölsins þarf ekki að tala. Það er að sjálfsogðu hægt að brugga hérlendis öl sem í öllu tilliti er sambærilegt við hið bezta, er fæst erlendis. Sverrir Hermannsson fram- röksemd hefir reynzt haldgóð. í bjórlöndunum er reynslan sú, að sterka ölið kemur ekki í stað sterkari drykkja, því að neyzia þeirra er sízt minni þar en á Is- landi og verður þó ekki sagt, að íslendingar séu miklir eftirbátar annarra í þeim sökum. Sala á sterku öli veldur þar og myndi eins valda hér daglegri áfengis- neyzlu mikils fjölda fólks, en dagleg áfengisneyzla er sem bet- ur fer ekki almenn héc á landi. Ég held líka, að það væri holl- ara að fækka vínbörum og alls kyns veitingaholum, þar sem hópar unglinga sitja hálfa og heila daga, heldur en að bæta við bjórstofum, svo þokkalegar sem þær eru. Ég get vel skilið það, að-marg- ir vilji gjarnan fá áfengt öl, en hvort þjóðfélagið getur orðið við óskum ölvina eða ekki, tel ég vera komið undir mati á þjóð- félagslegum áhrifum þeirrar ráð stöfunar. Fái ég sannfæringu fyrir því, að sala á áfengu öli bæti ástandið í áfeugismálum þjóðarinnar, skal ekki standa á mér að styðja ölvinina, en nú er það skoðun mín^ að sala á sterku öli myndi stórauka á- fengisneyzluna, sem sannarlega er nóg fyrir, og þess vegna er ég því andvígur að sú saia sé leyfð. Herra Jóhannes Gunnarsson, Hólabiskup: Ég tel, að það sé að vinna með drykkjuskap að leyfa það ekki. Gömlu kirkjufeðurnir predikuðu gegn ofdrykkju, en þeir tala fal lega um vínið, enda er það ein af gjöfum guðs og þær á hvorki að misnota né láta ónotaðar. Létt vín og goti ai eru hiada þeim, r«m vilja gera sér glaðan dag, en hér þurfa menn að kaupa sér heila flösku af sterku og brenndu vini og verða þá venju legast ofurölvi. Annars tala ég ■. hér sem hver ■- annar fslending tSfc ur, en ekki sem figjþ ‘tðfc m biskup. Það . íp myndi örugg- lega draga úr of ^TrW*' drykkj u ef gott væri á boð- '*í r) ^■•-bjlum. og marg MMHHIHir ofdrykkju- menn, sem þurfa einhvern „stímúlans", myndu læknast að miklu leyti, ef þeir gætu náð í eitthvað annað en brennd vín. Ég botna satt að segja ekkert í þeim sem beinlínis ota sterkum vín- um að þjóðinni, en vilja banna saklausa drykki. í mínum aug- um væri ámóta skynsamlegt að banna mönnum að borða hafra- graut eða velling. ölið á ekki að vera sterkt, heldur 4—5%, eins og venjulegt öl erlendis. Þetta öl, sem nú fæst ,er varla boð- legt. Það er eins og vatn með ölbragði ,en út af fyrir sig er það kraftaverk, að ölbragð skuli yfirleitt finnast að því. Hér færi eins og annars staðar ef öl yrði leyft til neyzlu, að drykkjuskap ur minnkaði, en auðvitað ekki fyrst í stað. Menn verða sjaldn- ast fullir af öli, það fer betur í menn en brennivín að öllu leyti og leiðir síður til drykkjuskapar. Svona bönn verka öfugt, og því álít ég þá menn gera landi og þjóð mikinn skaða, sem koma í veg fyrir neyzlu góðs öls, meðan brenndir drykkir eru hvarvetna á boðstólum. Mér finnst einnig hálf ömurlegt að verða af sjálf- sögðum mannréttindum vegna öfgakenndra og ofstækisfullra hugmynda einhverra sérflokka. Vikurgjallplötur 7 cm. Kr. 48,00 ferm. 10 cm. Kr. 64,00 ferm. Heimkeyrt. Bru,nasteypan s.f. Sími 35785 Frá Brauðskálanum Langholtsvegi 126. — Selj um út í bæ heitan og kald an veizlumat. Smurt brauð og snittur. — UppL' í síma 36066. Dönsk hjón Herbergi til leigu með 3 börn óska eftir 3ja herb. íbúð til leigu. Tilb. sendist Mbl. merkt. „1144“ á Framnesveg 30. Gólfteppi til sölu á sama stað. Sími 24703. íbúð óskast miðaldra hjón með 5 ára barn vantar íbúð strax eða fyrir 14. maí. Tilb. merkt: „14. maí — 1145“ sendist Mbl. sem fyrst. Ung stúlka með landspróf óskar eftir kvöldvinnu. Vön afgreiðslu Margt annað kemur til greina. Uppl. í síma 33839 milli kl. 3 og 6 í dag. gömlu dönsunum hefst á miðvikud. kL 8 (innritun frá kl. 7,30) í Skátaheimilinu. Inngangur frá Kgilsgötu. Sími 12507. ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVlKUR. Tó n I ei ka r í Þjóðleikhúsinu þriðjudaginn 8. nóvember — Kaþólska kirkjan býður á- hangendum sínum að vísu að varna við (=halda sig frá) kjöti 1960 kl. 20,30. Stjórnandi: PÁLL pampichler á vissum dögum (þótt boðið sé Einleikari: vægt í framkvæmd), en hvergi hefir hún bannað að selja kjöt, né viljað meina öðrum að neyta þess ,eða skerða frelsi einstakl- ingsins til þess að neyta þeirrar fæðu, sem hann helzt kýs. RAFAEL SOBOLEVSKl Efnisssrá: I. Strawinsky: Svíta nr. 1 fyrir kammerhljómsveit. A. Khatchaturian: Fiðlukonsert. L. Beethoven: Sinfónía nr. 4, B-dúr. Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu. kvæmdastjóri; — Já. Myndi fram leiðsla og sala öls verða leyfð í öllum menningarríkjum heims, ef slíkt væri til ills? Rökin eru legíó, og þau haggast ekkí þrátt fyrir þá staðreynd, að áfengi er ævin- lega til bölvun- ar. Meðan áfengi er á annað borð selt til neyzlu, þá sýnist mér algerlega út í hött að banna þessa veiku tegund þess. Það eru býsn og fádæmi, að menn skuli vera pliktugir til að kaupa sér heila flösku af kol- brenndu víni við venjulegum þorsta. Æskan? Ekki leiðist hún neitt frekar út í drykkjuskap af völdum öls en annars áfengis, sbr. erlenda reynzlu og fyrst unglingar geta á annað borð orð ið sér úti um áfengi og ákveðinn hundraðshluti þeirra neytir þess eitthvað, þá er skömminni til skárra að þeir súpi öl en svarta dauða. Það þarf vonandi ekki að ræða frekar. — Svo hefur mér verið sagt, að þetta sé arðbær atvinnuvegur og jafnvel gjald- eyrissakkur, en um þetta veit ég ekkert. Magnús Jónsson, alþingismað- ur: Eina frambærilega ástæðan fyrir því að leyfa sölu áfengs öis hér á landi væri sú, að með ráðstöfununum væri dregið úr sölu sterkari drykkja. Ég minn- ist þess þegar bannlög .n voru af- numin á sínum tíma, að megin- röksemd andbanninga var sú, að innflutningur sterkra drykkja myndi bæta ástandið í áfengis málunum. Allir vita, hversu sú -— Ég skal láta þig vita að ég er húsbóndi á minu heimili. — Sama segi ég, konan mín er í sumarfríi. Pennavinir 15 ára ensk stúlka vill skrifast á við íslenzkan ungling á líkum aldri. Ahugamál frímerkjasöfnun, bækur og ljósmyndun. Nafn hennar og heimilis- fang er: Madeleine Bridgen, 53, Longmead Road, Thames Ditton, Surrey, England. Sænskur drengur 17 ára hefur áhuga á að skrifast á við dreng eða stúlku á líkum aldri. Skrifar ensku og sænsku. Nafn og heimilisfang: Karl-Erik Karlsson, Storgatan 53, Virserum, fiverige. Læknar fjarveiandi (StaSgcnglar í svigum) Erlingur Þorsteinsson til áramóta — (Guðmundur Eyjólfsson, Túng. 5). Ezra Pétursson til 17. des. (Halldór Arinbjarnar). Friðrik Einarsson til 5. nóv. Haralður Guðjónsson óákv. tíma Karl Jónasson). Sigurður S. Magnússon óákv. tíma — (Tryggvi Þorsteinsson). Fyrstan vil ég kjörinn kost kjósa, að liafi mín drós: hærð sé vel og hagorð, hyggin og ráðdygg, dægilega miðmjó, menntuð bezt og fagrhent, fótsmá og vclvitr, væneygð og örkæn. Loftur Guttormsson. — Það er einkennileg't Palli, en ég get Ials ekki komið auga á þig í sjónglerinu. — Hann hljóp beint út úr kirkjunni þegar hjónavígslan átti að byrja. — Nú hann hefir tapað sér á síðustu stundu? — Þvert á móti — hann áttaði sig á síðustu stundu. — Hvað hafið þér miklar árs- tekjur spurði tilvonandi tengda- faðir tilvonandi tengdason. — Þær geta orðið rúmar 46 þús. kr. á ári. — Það er nokkuð óákveðið. — Já, ég á sem sé fjórðungs- miða í happdrætti. — Frænka gefðu mér úlfalda. — Ég á engan úlfalda barnið gott. — Jú, víst áttu nóg af þeim. Mamma segir að þú gerir úlfalda úr mýflugu og hér er nóg af flugum. OPIÐ í KVÖLD i Matseðill \ J kvöldsins: ( i í KJÖRSVEPPASUPA ) I —o— \ ) KJÖXSEYÐI DORIA s ( 0—- ) S RÆKJUR > i I BRAUÐKOLLUM ( I —) í LAMBA SCNITSEL i m/ agurkusaladi ( \ e ð a i í TORMEDOSE BERNAISE ; \ -o- i s NOUGAX ÍS > HIN NÝSTOFNAÐA VEIZLUHLJ ÓMS VEIT RIBA leikur fágaða Dinner music í matartímanum Hljómsveit Riba — sem er skipuð f jórum þekktum hljóðfæra- leikurum — mun keppast við að gera gestum hússins til hæfis Borðpantanir í síma 15533. — Gjörið svo vel og reynið viðskiptin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.