Morgunblaðið - 06.11.1960, Page 17

Morgunblaðið - 06.11.1960, Page 17
f Sunnudagur 6. nóv. 1960 MORCUNBLAÐIÐ 17 Fdlk Eitt af íþróttablöðunum í Moskvu „Sovetski Sport“ er átta síður að stærð. Meðan á Olymp- |Bíuleikunum stóð |kom eitt hefti út |með aðeins einni fsíðu af íþrótta- Ifréttum. Á hin- ium sjö var ná- ikvæm frásögn |af ræðu, sem iKrúsjeff hafði |haldið. í>að verð ur þó að viður- kennast, að þegar Krúsjeff reglu lega tekst upp geta ræður hans verið reglulegt íþróttaafrek. Franska kvikmyndaleikkonan Martine Carol varð alveg fjúk- andi vond fyrir skömmu, er ný handbók um leikara kom út. þvi þar var hún sögð 28 ára göm ul. — Ég er ekki nema 26, sagði hún og bað lög- fræðinginn sinn um að sjá um að þessu yrði breytt. En hún varaði sig ekki á því, að forvit- inn blaðamaður vildi fullvissa sig um þetta. — Hann fór í bæjarskrifstofuna, þar sem fæðing hennarvar skráð. I>ar stóð: Fædd 16. maí 1930! Og það verður hún að hafa. J Jt'\" r- v.,, |t % 3 ' Hún er ekki sérlega madonnu- leg þessi unga st'úlka, a. m. k. ekki í klæðaburði. En hún leik- ur nú samt heilaga guðsmóður 1 kvikmyndinni Ber Hur. Hlut- verk Maríu meyjar var mjög eft irsótt, þegar William Wyler fór að velja í það, en ítalska leik- konan José Greci þótti hæfa bezt. Það er ekki víst að hún klæðist slíkum síðbuxum í myndinni, þó hún noti þær heima við hússtörfin. sagði: — Hann sendi mér texta dagsins, en miðinn frá honum er auður. Við skulum því snúa okk ur að orðunum í Spekinnar bók: Af engu skapaði guð heiminn . . . og út af þessum orðum lagði hann. Hann fékk stöðuna. ur að koma fram í sjónvarpi og beinir kröftum sínum að því að syngja inn á hljómplötur. Ann- ars vill hann helzt eyða tím- anum heima, með fjölskyldu sinni, eiginkonunni Shirley og dætrunum fjórum, sem sjást hér með þeim hjónunum á mynd- inni. Þær heita Lindy, Debby, Cherry og Lorry og eru fimm ára, fjögurra ára og tvær tveggja ára gamlar. ÞESSAR tvær Sigríðar voru í fréttunum í blaði á Langasandi í Kaliforníu ekki alls fyrir löngu og þótti skrýtið að þær skyldu báðar heita sama nafni og ennþá kynlegra að eftirnafn beggja skyldi enda á dóttir. Af Sigríði Geirsdóttur er það að helzt að frétta, að hún er búin að leigja sér tveggja herbergja íbúð í Hollywood, búna öllum hugsanlegum þægindum. Hún kemur nú fram nokkuð reglu- lega í sjónvarpi. Þannig er mál með vexti að þegar kvikmynda- félögin kepptust um að gera henni tilboð, komu fulltrúar M. C. A. Artists Ltd., sem er öflugasta umboðsfélag lista- manna í heimi til skjalanna og buðust til að gerast umboðs- menn hennar og hjálpa henni til frama á þeirri listabraut., sem hún hefur helzt hug á. Félagið sér um að nemendur á þess veg- um komi fram í sjónvarpsþátt- um og tryggir þeim þannig ör- uggar tekjur, þangað til þeir hafa æfzt í þessu starfi um hríð og er fengið kvikmyndahlutverk, Og nú æfir Sigríður daglega í stærsta kvikmyndaveri Banda- ríkjanna, Universal, en núver- andi eigendur þess eru umboðs menn Sigríðar. Af Sigríði Þor- valdsdóttur er það nýtt að frétta að hún fékk hlutverk í kvik- myndinni „Þegar þögnin kem- ur“. Hún er sögumaður, 17 ára gömul stúlka, og sézt ekki, en talar inn söguþráðinn. Hún fékk nafnið sitt á kvikmyndatjaldið og þá þótti fullt nafn dálítið stirt og hún nefnd Thor. Ann- ars stundar Sigríður Þorvalds- dóttir nám í leiklistarskólanum í Pasadena. í fréttunum Negrasöngvarinn Paul Robe- soner er sem kunnugt er mikill kommúnisti — og enginn fæ.r hann til að setja ljós sitt undir mæliker. Hvern ig lízt ykkur t. d. á síðustu yfir lýsingu hans: — í sósíalistísku landi syng ég ókeypis. En 1 kapitalista ríkj- um tek ég eins mikið fyrir söng minn og ég get kreist út úr fólkinu. Á ýmsan hátt hafa menn valið sér presta. Þessi saga er frá dög- um Friðriks mikla: Ungur préláti hafði sótt um embætti hallarprests. Friðrik mikli sendi honum þau skilaboð, að hann vildi heyra hann predika næsta sunnudag og að hann mundi sjálfur senda honum textann, sem hann skyldi leggja út af. Dagarnir liðu og á laugar- dag fór hallarprestsefnið ekki í rúmið fyrr en um miðnætti, og enn var enginn texti kominn frá höllinni. Á sunnudag hélt hann til kirkjunnar, án þess að hafa undirbúið nokkra ræðu. Um leið og hann gekk upp að predikun- arstólnum var honum fenginn miði og sendimaður hvíslaði: — Hans hátign sendir yður text ann! Hallar- prestsefnið steig í stólinn, braut sundur miðann og sá að ekkert stóð á honum. Hann missti þó ekki kjarkinn og Meðan á kosningabaráttunni stendur í Bandaríkjunum, setur Eisenhower svo lítið beri á nýtt met. Hann er elzti forsetinn sem nokkru sinni hefur verið við völd í Bandaríkjunum, sjötug- ur að aldri. Næstur honum kem- ur Andraw Jackson, (1829— 1837), sem lét af forsetaembætt- inu 11 dögum áður en hann varð sjötugur. Vel gert af Eisenhower, ekki síst þegar tillit er tekið til allra þeirra sjúkdóma, sem hann hefur orðið að þola. Jarðýtur til leigu Eins og undaníarin ár framkvæmum við alla jarð- ýtuvinnu með okkar úrvals-vélum og þaulþjálfuðu ýtu-stjórum. JARÐYTAN S.f. Ármúla 22 — Sími 35065. Heimasímar: 36065 og 15065. Takið eftir Höfum 4ra hraða Stero plötuspilara, VerÖ frá kr. 908,00. Rad íóverkstæðið VÉLAR & VIÐTÆKI Bolholti 6 — Sími 35124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.