Morgunblaðið - 06.11.1960, Page 24

Morgunblaðið - 06.11.1960, Page 24
Stúdentar undirbúa hátíðahöld 1. des. Almennur stúdentafundur á mánudagskvöld Krúsjeff hlær tvaer nefndir, skipaðar 5 mönn- um, sem sjá munu um hátíðar- höldin og útgáfu blaðsins. Eins og kunnugt er hafa komm únistar oft reynt að ná undirtök*, unum við undirbúning hátíðar- haldanna og misnotað þennan merkisdag í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar til áróðurs í þágu sinnar þjóðhollu stefnu. Með þessu hafa þeir oftsinnis vakið úlflúð og sundrungu í stað þeirra ar einingar, sem æskilegt er að fái að ríkja á þessum degi. Það kæmi því ekki á óvart, þótt kommúnistar reyndu nú enn að koma af stað deilum um hátíðahöldin 1. desember og þvi leggja kapp á að fá sína fylgis- menn kosna í umræddar nefndir. Þar sem slíkt yrði í algjörri óþökk alls þorra háskólastú- denta, .er ástæða til að hvetja stúdenta til að fjölmenna á fundinn og leggja þar með traust án grundyöll að því að fullveld- ins verðf minnzt þannig að stú- dentum sé sómi að. senda nefnd til hátíðahaldanna. Mikill viðbúnaður hefur ver- ið í Moskvu undanfarna tvo daga. Götur og torg eru skreytt og ljós myndum af forystumönnum Sov étríkjanna komið fyrir vísvegar á byggingum. Kauði herinn hefur haft æf. ingar á Rauða torginu uhdan. famar nætur, en hersýning verð. ur eitt stærsta atriði hátíðahald. anna. Ekkert afl á jörðu. í Kína hefur einnig verið mik. il viðhöfn og skreytingar síðasta sólarhringinn. Bússnesk sendi- nefnd kom þangað í dag og í ræðum móttökumanna var sér. stök áherzla lögð á einingu þjóð anna og að ekkert afl á jörðu gæti skert þá einingu. Drógu fisk fyrir 75 þús. kr. HÚSAVÍK 5. nóv. — Óvenju góð veiði var hér í síðasta mánuði og fengu margir álitlegan hlut. Sjö bátar réru með línu, þrír voru með net, en 25 voru á handfærum og var afli þeirra einna beztur. Meðaltekjur þeirra, sem handfæraveiðina stunduðu, urðu 20—25 þús. kr. eftir mánuðinn. Á aflahæsta bátnum voru tveir og lögðu þeir upp fyrir 57 þús. krón- ur. Þegar bezt aflaðist drógu menn tvö skippund yfir dag- inn og samsvarar það kr. 2,600. Sumir komust upp i hálft þriðja skippund. Mesti afli ,sem handfærabátur lagði upp eftir daginn, reynd ist vera kr. 5700 að verð- mæti, en þar voru líka tveir á. — Eindæma blíða var nær allan mánuðinn og má segja, að gefið hafi hvern dag. — Silli. HÁSKÓLASTÚDENTAR eru nú að hefja und'irbúning hátíðar- haldanna 1. desember. Verður á mánudagskvöldið haldinn í Há- skólanum almennur stúdenta- fundur, er kjósa skal nefndir, sem hafa munu undirbúning há- tíðarhaldanna með höndum. Undanfarin ár hefur Stúdenta- ráð sjálft undirbúið hátíðahöld- in 1. desember og kosið í ritnefnd 1. desember-blaðs. Nú verða hins vegar kjörnar á almennum fundi Komnir frá Lundónum ÞEIR Hans G. Andersen þjóðrétt arfræðingur og Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, sem fóru til Lund úna 28. okt. sl. til þess að undir- búa frekari viðræður Breta og íslendinga um lausn deilunnar um fiskveiðilandhelgi íslands, komu aftur til landsins í gær. Reykjavíkurbrét er á bls. 13. íþróttir eru á bls. 9 og 22. 255. tbl. — Sunnudagur 6. nóvember 1960 Prófessor Ólafur Björnsson flytur minningarræðu í andyri Háskólans. Virðuleg útför Dr. Þorkels Jóhannessonar ÚTFÖR dr. Þorkels Jóhann- essonar, háskólarektors, fór fram í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Meðal við- staddra voru forseti íslands, ráðherrar, biskupinn yfir Is- landi, sendiherrar erlendra rikja o. fl. — Var athöfnin mjög virðuleg. Klukkan 10 árdegis hófst hús- kveðja að heimili hins látna. Prófessor Magnús Már Lárusson flutti húskveðju, Dómkirkjukór- inn söng og dr. Páll ísólfsson lék á orgelið. I Háskólanum Síðan fór fram stutt kveðjuat- höfn í anddyri Háskóla íslands. Stúdentaráð bar kistuna í Há- skólann. Þar vay margt manna. Innarlega í andyrinu sat fjöl- skylda hins látna, forseti íslands, nánustu vinir og samstarfsmenn rektors og í stiganum og aftar, meðfram veggjum, stóðu háskóla stúdentar. Stúdentakórinn »öng undir stjórn Höskuldar Ólafssonar „Hvað bindur vorn hug“. Vara- rektor, prófessor Ólafur Björns- son, flutti minningarræðu við kistu rektors. Þá söng stúdenta- kórinn „Kom huggari, mig hugga þú“ eftir Valdimar Briem. Pró- fessorar heimspekideildar báru kistuna úr Háskólanum. ÚTFÖRIN var gerð frá Nes- kirkju og fóru háskólastúdent- ar og stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur fyrir líkvagninum. Báru stúdentar fána sinn, silf- urstjörnu á bláum feldi og stjórn stúdentafélagsins hvitbláa fán_ ann. í kirkju var kistan borin af menntamálaráðherra, háskóla- dagar til stefnu. Trygg- ið yður miða í skyndi- happdrætti Sjálfstæðis- flokksins strax í dag. Á þriðjudaginn verður dregið um tvo Volks- wagen. o O o Miðarnir fást í happ- drættisbílunum í Aust- urstræti og í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, sem opin verður allan dag- inn. o O o Sjálfstæðismenn! Herð- ið sóknina. Gerið skil strax í dag. ráði og Birgi Thorlacius, ráðu- neytisstjóra. Dr. Páll ísólfsson var við or- gelið og sungnir voru sálmarnir ,,Yndislega ættarjörð“ eftir Sig- urð Jónsson frá Arnarvatni, „Ég lifi og ég veit“ og „Ég stend til brautar búinn“. Séra Jón Thor- arensen jarðsöng. Kirkjan var þéttsetin. Dr. Þorkell Jóhannesson var jarðsettur í Fossvogskirkjugarði. Nokkrir prófessorar, nánustu samstarfsmenn rektors, báru kistuna síðasta spölinn. ★ ★ Margar gjafir bárust í gær, í sjóð þann, er stofnaður hefur verið til minningar um dr. Þorkel Jóhannesson, háskólarektor. — i Minningarspjöld fást í skrifstofu Happdrættis Háskólans við Tjarnargötu 4, og í Bókasölu stúdenta. Moskva og Hongkong, 5. nóv. — (Reuter) — ER KÍNVERSKA sendinefnd in kom til Moskvu í dag í til- efni byltingarafmælisins, tóku þeir Nikita Krúsjeff, forsætisráðherra, Andrei Gromyko og Mikhail Suslov. á móti henni á flugvellinum. Fréttamenn segja, að Krús- jeff hafi verið hinn hressi- legasti í bragði og aðeins hlegið að orðróminum um, að hann hefði verið sviptur embætti. Kveðjur voru mjög hjartan- legar með sovézku leiðtogunum og Liu Shaou-Chi, forseta Kína, og í ávarpi, sem hann síðarnefndi hélt á flugvellinum, lagði hann áherzlu á órofa samheldni Kín- verja og Rússa. Mikil viðhöfn. Sendinefndir voru væntanleg- ar til Moskvu frá mörgum ríkj.. um, t. d. Tékkóslóvakíu Ung- verjalandi, Norður Vietnam, Austur Þýzkalandi og Iraq. Af formönnum sendinefnda eru taldir þeir Antonin Novotny, Tékkóslóvakíu, Janos Kadar, Ungverjalandi, Valter Ulbricht, A-Þýzkalandi og Ho Chi-Minh, forseti Norður Vietnani Júgóslavíu var ekki boðið að Hámerar fluttar út frá Patreksfirði PATREKSFIRÐI, 5. nóv. — Ein- hvern næstu daga verða fluttar út um 100 hámerar á Ítalíumark- að. Mikið hefur verið veitt að undanförnu, bæði á stórum bát- um og litlum þilfarsbátum. Afl- inn er orðin nær 200 hámerar. Eikum hafa þær veiðzt grunnt út af Blakknesi, þar sem dýpið er um átta faðmar. Mestur afli í veiðiför hefur verið 16 hámerar og má telja það dágott, því fyrir hverja fást um þúsund krónur. Hámerarnar eru fluttar utan hraðfrystar. Tekið er innan úr þeim, hluti af hausnum skorinn af, uggeir og hluti af kviðnum. Síðan er skepnan vafin inn í pappír og strigi saumaður utan um hana eins og saltfiskpakka. — Geysimikill áhugi hefur vaknað á þessum veiðum hér og gætu þær orðið góð búbót á haustin, ef öruggur markaður fengist fyrir aflann. — Trausti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.