Morgunblaðið - 17.01.1961, Blaðsíða 10
10
[ MORGl’ NBLAÐIÐ
Þrlðjudagur 17. janúar 1961
ft!JR evn elÍAKeiNO WORLD By Otto O. Bínder
Verðir í geimnum
-9
ÞESS VERÐUR e. t. v. ekki eldgosum og öðru slíku .. Þá
ýkjalangt að bíða, að um- verða stórveldin líka búin
hverfis jörðu þjóti allmörg að skjóta á loft gervihnöttum,
gervitungl, sem hafi það verk heilu viðvörunarkerfi gegn
efni að vara mennina við nátt hugsanlegum flugskeytaárás-
úruhamförum í tíma. Ekki að um óvinveittra rikja. Banda-
eins fellibyljum, hvirfilvind- ríkjamenn eru þegar byrjað-
um og stórflóðum, heldur líka ir að ieggja drög að slíku
viðvörunarkerfi.
CLANGING WORLD By Otto O. Bindor
Heims-
sjónvarp
t Sennilegt er, að árið 1965 skyldur í Sidney og Reykja-
verði fjöldi „sjónvarps-gervi- vík, Buenos Aires og Vínax-
hnatta“ komnir á braut um- borg geta þá fylgzt með sjón
hverfis jörðu, en þeir verða varpssendingum frá Washing-
notaðir til að endurvarpa sjón ton, Moskvu eða París. Fjar-
varpi um allan heim. Fjöl- lægðir, fjöll og fimindi,
skipta ekki lengur máli.
ðgurami
Akonj anboliologu nefnist kunn
asti töframaðurinn í Akkra, höf-
uðborg svertingjaríkisins Ghana
að sögn blaðamanns Morgun-
blaðsins (5.1.1961), en Ógurami
sonur hans, einnig töframaður,
nú staddur hér í borg. Það virð-
ist ekki vekja mönnum neina
verulega undrun, þótt þeim sé
sagt, að töframaður komi nú
fram í einu af samkomuhúsum
borgarinnar. Viðurkenna menn
umyrðalaust, að slíkt eigi sér
stað, að hægt sé að gleypa í sig
eld og láta brenna undir sér bál-
köst án þess að saka neitt a<
ráði? Væri þetta satt, þá væri
síður ástæða til að efast um, að
enski miðillinn D.D. Home hafi
getað haldið á glóandi kolamola
í höndunum, eftir því sem eðlis-
fræðingurinn William Crookes
lýsti, og hlaut mikið ámæli fyrir
frá ýmsum, sem töldu sig vita
betur en hann. Og sé þetta svo,
að athafnir svertingjans séu svo
sem sýnist og ekki loddarabrögð,
þá er hér vissulega efni til rann-
sóknar fyrir líffræðinga og
lækna, þá sem mests trausts
njóta í þjóðfélaginu sökum þekk-
ingar. Það er full ástæða til að
Í$f/R EVER CHANGíNG vvorld iy OÍfo 9.0
pot/eet fui t£T
srftem 6£lo,v
FOftms air
CU&HÍON...
WAVE SKIMMER&
CRAFT'S BOTTcm
HeVEFÍ TOUCHE&
WATER^
Sf''j/bPAY’S EXPERIMENTAl- HOVEÆCfíAFr
WILL EVENfUALLY EVOLVE INTO...
„Hovercraft“ nefna Bretar
fljúgandi bát, sem þeir gerðu
tilraunir með á siðasta ári.
Þessi bátur „flýtur“ á eins
konar loftteppi á sjávarflet-
inum, knúinn þotuhreyflum.
Þykir „Hovercraft“ lofa góðu
og nú eru menn með ýmsar
bollaleggingar . . . meðal ann-
ars, að í framtíðinni færist
skipastóll heimsins meira og
meira í þetta form Herskipin
þjóti þá um heimshöfin með
160 km. hraða á klst. og stóru
„hafskipin“ fari þvert yfir
Atlantshaf á 30 klst., eða
skemmri tíma en flugferð Lind
bergbs tók.
OUR EVER CHANGING WORLD By Otfo O. Binder
„Flug-
1960 »Y COLUMBIA 1EATURES M&,
Ótrúlegt en satt. Nokkrar
sveitir bandarískra fótgöngu-
liða hafa verið þjálfaðar i
meðferð smá þrýstilofts-
hreyfla, sem spenntir eru á
bakið og notaðir, sem eins
konar hjálparvélar, þegar
stokkið er yfir skurði ©g gjár
. . . Síðar meir verða e. t. v.
notaðir öflugri hreyflar, sem
lyft geta „fótgangandi" yfir
umferðaþröng gatna og neðan
jarðarleiða stórborganna. En
kemur þá ekki sama vanda-
málið upp aftur? Allt of mik
il umferð.
bera fram þá tillögu við Há-
skóla íslands að bregða við fljótt
og vel og fara þess á leit við
svertingjann Ógurami, að hann
gefi sig undir rannsókn á veg-
um háskólans og sýni hin sömu
fyrirbrigði þeim mönnum sem
háskólinn mundi velja til að vera
viðstaddir. Er engin ástæða til
að ætla að hann mundi bregðast
öðruvísi en vel við þeirri mála-
leitun.
Ég hef fyrir mitt leyti nokkra
sérstaka ástæðu til að taka til
máls af þessu tilefni og jafnvel
að telja mér með nokkrum hætti
til tekna, ef satt reyndist það
sem sýnzt hefur. Um margra ára
skeið hef ég enga dul dregið á
þá skoðun mína, að það sé raun
veruleiki, sem hinn íslenzki vís-
indamaður dr. Helgi Pjeturss
hélt fram í ritum sínum um líf-
magn og lífmagnan og þau fyrir
bæri sem verða við meir en
venjulegt aðstreymi þess. Ég hef
haldið því fram, að ég fylgdi
með þessu vísindastefnu og engri
dulrænu eða trúarbrögðum, þótt
flestir hafi ímyndað sér að svo
væri. Menn hafa haft rangar hug
myndir um þetta málefni, en til
lengdar verður þeim ekki stætt
á því, og þar mun koma, að all-
ir munu sjá, að þar er eina leið
in til skilnings á fyrirbrigðum
þessarar furðulegu náttúru, sem
mannlífið er nokkur hluti af.
Til viðbótar því sem hér var
sagt, vil ég minna á, að í grein
um Afríkumálefni í Alþýðubl.
Frh. á bls. 23
Jólin
á
Grund
UM jólin komu margir góðir gest-
ir að heimsækja vistfólkið á
Grund eg gleðja það með gjöfum
og skemmta því á ýmsan hátt.
Atthagafélög og kvenfélög
gleyma ekki sínu fólki frekar en
ýms önnur félög, sem færa hing-
að á hverjum jólum mörgu af
vistfólkinu góðar og kærkomnar
gjafir. Eg held þó, að mest gleðji
vistfólkið hugulsemin, sem er á
bak við. Það kann svo vel að
meta að því sé ekki gleymt.
Luciumar komu að vanda og
unglinga hljómsveit frá Tónlist-
arskólanum hélt tónleika á
Grund rétt fyrir jólin. Varnarlið
ið sendi talsvert af sælgæti, töfl
og spil og einn bakarameistari
bæjarins sendi ágætis brauð með
kaffinu handa heimilisfólkinu.
A þrettáanda skemmti Omar
Ragnarsson með gamanvísum, en
Hafliði Þ. Jónsson, Magnús Jóns-
son og Agúst Guðmundsson önn-
uðust hljóðfærasláttiim. Þor-
steinn J. Sigurðsson kaupm. gat
ekki komið í þetta skipti vegna
veikinda, en hann hefur leikið
jólalögin fyrir okkur undanfar-
inn tuttugu og sex þrettánda-
kvöld.
Jólunum lauk hjá okkur með
barnaskemmtun, sem haldin var
sl. þriðjudagskvöld í Sjálfstæðis-
húsinu. Hefir stjóm og forstjóri
Sjálfstæðishússins sýnt þá rausn
og hugulsemi, að bjóða árlega til
þessa fagnaðar, í þetta skipti
voru þátttakendur rúmlega
fimmhundruð. Afa og ömmu þyk
ir vænt um, að geta boðið litlu
börnunum, og reyndar þeim
stóru líka á þessa jólatrésskemmt
un, enda þótt þau geti ekki alltaf
komið með — sökum lasleika.
Skemmtunin fór prýðilega
fram að vanda og flyt ég öllum
þeim mörgu, sem hjálpuðu til
innilegustu þakkir. Jólasveinninn
lét ekki á sér standa, hljómsveit
Svavars Gests, og allir starfs-
menn Sjálfstæðishússins unnu að
iiþessu án endurgjalds, ég á við,
án þess að fá kaup fyrir. Aftur
á móti hefir allt þetta fólk fengið
hlýja kveðju, margir hafa hugsað
til þess með þakklæti.
Að lokinni barnaskemmtuninni
var haldinn árlegur fagnaður fyr
ir starfsfólkið á Grund og í Asi
í Hveragerðj og gesti þess. Einnig
komu til okkar nú eins og svo
oft áður starfsfólkið frá Skála-
túni.
A þessarl skemmtun söng Arni
Jónsson óperusöngvari nokkur
lög, undirleik annaðist Fritz
Weisshappel. Þakka ég þeim
ágæta skemmtun og vinsemd i
okkar garð fyr og síðar.
Að lokum þetta:
Við þökkum ykkur öllum, sem
á einn eða annan hátt glöddu
vistfólkið á Grund um jólin og
áramótin. Eg hefi líklega gleymt
einhverjum, sem ég hefði átt að
nafngreina. Þeir voru svo marg-
ir, sem hingað hefa komið. En að
síðustu þakka ég öllu starfsfólk-
inu á Grund og í Asi, sem unnu
mikið og prýðilegt starf, enda
þótt veikindi væru mikil meðal
þess og störfin því miklu meiri
fyrir hvern og einn en endranær,
og skólastúlkunum, sem notuðu
jólafríið sitt til þess að hjálpa
okkur að liðsinna öldruðu og las
burða fólki gleymi ég ekki.
12. janúar 1961
Gísli Sigurbjörnsson.
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskriístofa.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
*AGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlögmaður
Vanarstr. 4 VR-húsið. Sími 17752
CBgfræðistörí og eignaumsýsla-