Morgunblaðið - 15.03.1961, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.03.1961, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAfílÐ MiðvikudagUr 15. marz 1961 Orkuvinnsla úti í geimnum VÍSINDAMENN vinna nú að því að finna leiðir til þess að fullnægja orkuþörf þeirra manna, sem munu leggja und- ir sig geiminn í framtíðinni. í>aÐ líður ekki á löngu þar til fyrsti maðurinn verður sendur út í geiminn. — Senni- lega verður bann látinn snú- ast nokkrum sinnum í kring- um jörðina, en síðan náð aft- ur til jarðar á hugvitsamleg- an hátt. Auðvitað verður það mikill sigur fyrir raunvísind- in, en þó er það aðeins eitt þrep í þann mikla himnastiga, sem vísindamenn eru nú að smíða út í geiminn. Áður en hann er fullsmíðaður þarf að leysa margar þrautir og verk- efni. Margar eru þegar leyst- ar, en enn fleiri bíða úrlausn- ar. Þúsundir og aftur þúsund- ir manna starfa við það að leysa verkefnin, og eitt af • þeim er orkuþörfin fyrir geim- skip og gerviplánetur framtíð- arinnar. Orkulindir í geimnum Þegar komið er út fyrir loft- hvolf Jarðar út í tómarúmið, sem er algjörlega efnissnautt í mannlegum skilningi er varla hægt að tala um nokkr- ar orkulindir. Reyndar eru alls konar efnisagnir í geimn- um, sem vegna hraða síns hafa inni að halda töluverða orku, en þær eru svo tiltölulega fá- ar, að orkuvinnsla úr þeim er vart hugsandi. En það er annað í geimnum, sem er líklegra að geta full- nægt orkuþörf, og það er geisl unin. Sólin sendir stöðugt frá sér alls konar geisla, sem all- ir hafa inni að halda orku, og hlutverk geislaorkuversins í geimnum yrði því ekki annað en að safna þessum geislum, og breyta þeim í hagnýta orku, t. d. raforku. Sólarblómið Eitt af þeim tækjum, sem nú eru í smíðum, til þess að full- nægja orkuþörfinni í geimn- um, er Sólarblómið. Það Þessi gervihnöttur Bandaríkja manna vegur 500 pund og er þak- inn utan með ótalmörgum kís ilrafhlöðum, sem sjá honum fyrir nægu rafmagni í skeytasendin gar. er gert úr 32 feta víðum bjúgspegli, sem safnar geisl- unum saman. Orkunni er breytt í raforku með kvika- silfurstúrbínu og búast vísinda menn við 3000 watta afköst- um í allt að eitt ár. Sólcr- Hæstiréttur sýknor ökumnnn Var sakíelldur í undirrétíi vegna Ölvunar í HÆSTARÉTTI er genginn dómur í máli manns, er var kærður fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis. Ekki sannaðist að hann > hefði neytt áfengis, en hann skýrði frá því, að hann hefði drukkið sjö flöskur af íslenzkum pilsner. Taldi undirréttur manninn hafa neytt svo mikils af öli, að hann hafi ekki verið talinn geta stjórnað bíl örugglega. í undirrétti var hann dæmd- ur í 1200 kr. sekt til ríkissjóðs, en ekki var hann sviptur öku- leyfi. Þegar maðurinn var færður til blóðtöku og alkóhólrannsókn ar á Keflavíkurflugvelli, voru um 45 mín. liðnar frá því lög- reglan handtók hann. Reducer- andi efni í blóðinu reyndust vera 0,51% af alkóhóli. Maður þessi heitir Þórir As- valdur Roff, bílstjóri, til heim- ilis í Innri-Njarðvík. Þetta gerð ist haustið 1958 við samkomu- húsið í Ytri-Njarðvík, en þar hafði Þórir sungið á dansleik um kvöldið. Var hann á leið heim til sín í bíl föður síns er lögregluþjónar handtóku hann. í Hæstarétti fór málið þannig, að Þórir Ásvaldur Roff var sýknaður og segir svo m. a. í dómsf orsendum: „Eins og í héraðsdómi grein- ir, reyndust í blóði ákærða, sem honum var tekið kl. 0300 aðfaranótt 19. október 1958, „reducerandi efni, er samsvara 0.51%« af alkóhóli“. Samkvæmt élitsgerð lækna- ráðs, sem lögð var fram í hæstaréttarmálinu nr. 161/1959, er talið, að „eðlileg" reducer- andi efni blóðs, er mælist sem áfengi án þess að vera það, nemi 0.03%«, og séu efni þessi „meiri í venublóði og meiri að kvöldi dags en endranær". Þegar litið er til þessara læknisfræðilegu gagna, verður ekki við það miðað, áð áfengis- magn í blóði ákærða hafi náð því lágmarki, sem getur í 3. mgr. 25. gr. umferðarlaga nr. 26/1958. Að svo vöxnu máli og þar sem eigi er samkvæmt öðr- um gögnum leitt í Ijós, að ákærði hafi verið með áhrifum áfengis við akstur þann, er mál þetta er af risið, þá verður honum dæmd sýkna af kröfum ákæruvaldsins. Geimflaug með kjarnorkuofn í eftirdragi. Til aukningar laxagengd á Ausfurlandi FYRIR NOKKRU var stofnað i Egilsstaðakauiptúni Stangaveiði félag Austurlands, og voru stofn endur 20 áhugamenn um stang veiði, aðallega frá Seyðisfirði, Eskifirði og úr Egilsstaðakaup- túni, og hyggst félagið beita sér fyrir bættri aðstöðu til stanga- veiða á Austurlandi. Eins og kunnugt er, er laxaganga mjög lítil í ár á Austurlandi nema í Vopnafirði, en þar er töluvetð laxveiði. Áðrar ár eru svo til laxlausar, hverju sem um er að kenna, en eitthvað mun vera um rányrkju að æða, og getur það ef til vill verið orsökin að ein hverju leyti. Hyggst félagið reyna að hafa samvinnu við landeigendur um að sleppa seiðum í ámar til aukn ingar á fiskigengd, og einnig reyna að koma í veg fyrir rán- yrkju. Stjórn félagsins skipa þeir Val geir Vilhelmsson formaður, Ein ar Ólason ritari og Gunnar Gunn Bíl hvolíir AKRANESI, 13. marz. Lítill fólksbíll frá Ólafsvík, P-515 á leíð til Reykjavíkur, rann út af veginum og hvolfdi síðdegis í gær hjá Kalastöðum á Hvalfjarð arströnd. Enginn meiddist. arsson gjaldkeri, allir í Egils- staðakauptúni. Félagssvæðið nær yfir Austur landskjördæmi, og er þeim sem heima eiga í kjördæminu einum heimil þátttaka í félaginu, og er inntökugjald kr. 500: Inntöku- beiðnir skulu vera skriflegar og sendast til formanns. Kviknar í bifreið Akureyri, 13. marz KL. 17,30 í gær, voru starfsmenn Rafveitu Akureyrar að taka ný- lega bifreið, sem rafveitan hefur fengið til vetrarferða, út af bif- reiðaverkstæði. Kom þá skyndi- lega upp eldur í vélarrúmi bif- reiðarinnar. Bifreiðin var þá stödd í Hafnarstræti, og komst bifreiðarstjórinn þegar inn í ná- lægt hús og náði símasambandi við slökkviliðið, sem kom þegar á vettvang og tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. All- miklar skemmdir urðu á vélar- rúmi bifreiðarinnar, og brann þar aljt, sem brunnið gat. Slökkvi- liðinu tókst að verja aðra hluta bifreiðarinnar og voru notuð til þess nýleg slökkvitæki, sem slökkviliðið hefur fengið til af- nota, og einkum eru ætluð til að slökkva eld í bifreiðum og öðrum farartækjum. — St.E.Sig. NÝLEGA er lokið sveitakeppni bridgedeildar Breiðfirðingafé- lagsins. 14 sveitir tóku þátt í keppni þessari og varð röð þriggja efstu þessi: Stig 1. Sveit Jóns Stefánssonar 24 Ógild NEW YORK, 13. marz — (Reuter __ NTB) — Fulltrúi Sovétríkj- anna í eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna, S. G. Lapin, krafðist þess á fundi nefndarinnar í dag, að Sameinuðu þjóðirnar lýsi því þegar yfir, að ógild séu yfirráð stjórnar Suður-Afríkusambands ins yfir Suðvestur-Afríku, sem áður var þýzk nýlenda. Skuli ríkið fá sjálfstæði fyrri hluta árs 1962. Lapin hélt því fram, samhliða kröfu sinni, að Stóra-Bretland væri siðferðislega ábyrgt gagn- vart Suðvestur-Afríku og að berzka samveldið gæti neytt stjórn Suður-Afríku til að breyta stjórnarháttum sínum í suðvestur Afríku. blómið er góð byrjun, en varla er hún fullnægjandi, auk þess er hætt við því, að erfitt verði að láta Sólarblómið snúa stöð ugt speglinum í áttina til Sól- ** ar. Þau orkuvinnslutæki s*em hingað til hafa þjónað geim- ferðahugsjóninni bezt, eru kís- ilbatteríin, sem eru þannig, að þau geta breytt sólarork- unni beint í raforku. Þau eru 55 þó ekki nógu kraftmikil, þar sem þau geta aðeins hagnýtt ákveðinn lítinn hluta af sól- arorkunni. Þau eru þó stöðugt að verða betri og afkastameiri og síðasta gerðin af þeim get- ur hagnýtt 28% af sólarork- unni, sem fellur á þau. Flest gervitunglin, sem send hafa verið upp, hafa verið útbúin með kísilbatteríum, sem sjá senditækjum þeirra fyrir nægu rafmagni til þess að senda frá sér skeyti öðru hvoru. Framh. á bls. 23. 2. — Þór. Alexanderss. 21 3. •— Ingibj. Halldórsd. 20 — ★ — Úrslit í 4. umferð sveita- keppni Bridgefélags kvenna urðu þessi: Sv. Astu Flygenring vann sveit Sigríðar Jónsd. 71:41 4—0 — Sigríðar Ólafsdóttur v. sv. Laufeyjar Þorgd. 48:38 4—0 — Dagbj. Bjarnadóttur v sv. Guðr. Einarsd. 55:37 4—0 —■ Eggrúnar Arnórsd. v. sveit Þorg. Þórarinsd. 49:44 3—1 —. Júlíönu Isebarn jafnt við sv. Elínar Jónsd. 40:39 2—2 í 5. umferð urðu úrslit þessi: Sv. Dagbjartar vann sveit Þorgerðar 51:38 4—0 — Eggrúnar vann sveit Sigríðar J. 96:19 4—0 — Elínar vann sveit Laufeyjar 74:33 4—0 —• Sigríðar Ó. vann sveit Guðrúnar 56:53 3—1 Leiknum milli sveita Júlíönu og Ástu er ekki lokið. Að 5 umferðum loknum er staðan þessi: Stig 1. sv. Eggrúnar Arnórsdóttur 15 2. — Dagbjartar Bjarnad. 14 3. — Laufeyjar Þorgeirsd. 12 4. — Elínar Jónsdóttur 11 5. — Sigríðar Ólafsdóttur 11 6. umferð verður spiluð mánu daginn 13. þ. m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.