Morgunblaðið - 24.03.1961, Side 1
24 slður með BarnalesboK
18. árgangur
69. tbl. — Föstudagur 24. marz 1961
Prentsmiðja MorgunblaðsÍM
Brefar vilja samvinnu við Rússa
um vopnahlé í Laos
Óttast nýja Kóreustyrjöld
London, 23. marz. — (Reuter).
BRETAR leituðu í dag til Rússa um samvinnu við að
koma á vopnahléi í Laos áður en borgarastyrjöldin í land-
inu breiðist enn út. í þessari umleitun Breta felst ótti við
að Laosstyrjöldin geti leitt til svipaðra átaka og urðu í
Kóreu.
Það var sendiherra Breta í Moskvu, sir Frank Roberts,
sem afhenti Nikolai Firyubin utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna orðsendinguna eftir að hafa munnlega skýrt málið.
Sagði talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins á eftir
að Firyubin hafi hlustað á erindi sendiherrans „með mik-
illi athygli og vakandi áhuga“.
Vonast Bretar til að orðsending þeirra leiði til aðgerða
I Laos innan fárra vikna. En fyrst verður að senda orð-
sendínguna til Krúsjeffs forsætisráðherra, sem er í Síberíu,
og til Gromyko utanríkisráðherra, sem er í New York.
3. Ef eftirlitsnefndin, sem skip-
uð var fulltrúum Indands,
PRÓFRAUN
Brezka stjórnin tekur það
fram að tillögur hennar séu
fluttar með fullum stuðningi
Bandaríkjanna. Sé þetta hin
mesta prófraun á friðarvilja
Sovétríkjanna, sem lögð hefur
verið fram eftir að Kennedy tók
við forsetaembætti 20. jan. sl.
Neiti Rýssar þessum tilmæl-
um, gæti ástandið versnað mjög
skyndilega í Laos og bæði Aust-
ur og Vesturveldin mundu þá
auka vopnasendingar sínar þang
að, jafnvel senda þangað herlið.
Brezku tillögumar eru í þrem
Jiðum:
. 1. Utanríkisráðherrar Bretlands
og Sovétríkjanna skori á
hægri og vinstrisinna í Laos
að semja um vopnahlé. En
Bretland og Sovétríkin skip-
uðu formannssætið á Genfar-
ráðstefnunni 1954, sem kom
á friði í Indókína.
2. Fallist báðir styrjaldaraðilar
- á vopnahlé, ættu utanríkis-
ráðherrar Bretlands og Sovét
ríkjanna að beita sér fyrir
því að alþjóða eftirlitsnefnd-
in frá 1954 verði kvödd sam-
an að nýju til að ganga úr
skugga um að Skilyrðum
vopnahlésins sé fylgt.
Kanada og Póllands, telur að
reglum vopnahlésins sé fram-
fylgt, ber að boða til al-
þjóðaráðstefnu um Laos.
★
Til ráðstefnu þessarar mætti
boða sömu fulltrúa og sátu ráð-
stefnuna í Genf 1954, eða að
þetta yrði 14 ríkja ráðstefna
Framh. á bls. 23.
f GÆR hringdi kona nokkur
til Morgunblaðsins og sagði
því þá sögu, að á ákveðinni
nuddstofu væri nuddkona, sem
auk hins eiginlega nudds, væri
stöðugt að nudda og nauða í
sjúklingunum að uppáskrifa
Moskvuvíxilinn, Hvort
tveggja nuddið værl fram-
kvæmt með sama „tempóinu“
hægt væri farið af stað meðan
í verið væri að ræða um börnin
og æskulýðinn og hætturnar,
sem steðjuðm að siðferðinu. Síð
an væri hert á um leið og
Ameríkuauðvaldið tæki á sig
ham ógnþrunginnar ófreskju.
Konan, sem hringdi, kvaðst
hafa orðið þeirri stund fegnust
er hún losnaði úr prísundinni
og bað blaðið að vara fólk, sem
ekki væri sterkt fyrir við því
að lenda í lúkunum á nefndwm
kvenskörungi í nuddkvenna-
stétt. Má líka segja, að þá fari
að taka í hnjúkana, ef menn
eiga að bíða af því líkamlegt
tjón að neita að skrifa upp á
fyrir Krúsjeff.
HœkkaBur
í tign
Moskva, 23. marz. (NTB).
SAMKVÆMT opinberum
heimildum í Moskvu, verð'
ur Andrei Gromyko utan-
ríkisráðherra leystur frá
ráðherraembætti og hækk
aður í tign í miðstjórn
kommúnistaflokksinss.
Brezku nfósnararnir
Gordon Lonsdale, forustumaður
njósnahringsins: 25 ára fangelsi.
Henry Houghton og Ethel Gee:
15 ára fangelsi
mm
Smygl
STOKKHÓLMI, 23. marz. (NTB.
Reuter) — Sænsk kona, sem seg
ist vera Ann Bernadotte inóns-
essa, hefur verið handtekin fyrff
smygl í Monrovia, höfuðborg
Liberiu. Ekki hefur fengizt staS
fest hver kona þessi er.
Upplýsingadeild sænska utan-
ríkisráðuneytisins, hefur enn
ekki gefið út opinbera yfirlýs-
ingu um handtökuna, en hefur
hinsvegar símað sænska ræðis-
manninum í Monrovia og beðið
um nánari upplýsingar.
Ann Bernadotte prinsessa hef
ur undafarna mánuði dvalið ú
Spáni. Hún var áður gift Carl
Bernadotte prins.
Lorna og Maurice Cohen feða
Helen og Peter Kroger eins og
þau nefndu sig í Bretlandi):
20 ára fangelsi.
Rannsókn á oryggis-
þjónustu Breta
afleiðing njósnadómanna
London, 23. maz. (Reuter).
HAROLD Macmillan forsæt-
isráðherra Breta fyrirskipaði
í dag gagngera rannsókn á
öryggiseftirliti brezka flot-
ans. Er þetta gert í sambandi
við njósnarana fimm, sem
dæmdir voru í gær fyrir að
koma upplýsingum um kaf-
bátavarnir Breta o. fl. til
Moskvu. Ennfremur skýrði
ráðherrann þinginu frá því
að njósnurunum hefði ekki
tekizt að komast yfir banda-
rískar upplýsingar um kjarn-
orkuvopn og kjarnorkukaf-
báta.
Meðal njósnaranna fimm, sem
dæmdir voru í gær, voru Banda
rísk hjón. Höfðu fimmmenning
arnir stolið leyniskjölum um neð
ansjávarvarnir frá brezku flota
tilraunarstöðinni í Portland. En
þar er aðallega unnið að kaf-
bátavörnum.
Lítill árangur.
Macmillan bar á móti því að
njósnurunum hafi tekizt að ná
teikningum af Dreadnought,
kjarnorkukafbáti Breta.
Sagði ráðherrann að það væri
ekki heppilegt að láta neitt uppi
um árangur njósnaranna, en
bætti við að engar líkur bentu til
þess að þeim hafi tekizt að ná
Framh. á bls. 23.
Vilja semja
Kaupmannahöfn 23. marz —
(Reuter) —
JOHAN Paulson þingmaður
frá Færeyjum lýsti því yfir
í danska þinginu í dag að
stjóminni bæri að endurskoða
dansk-brezka fiskvoiðisamnt-
inginn með tilliti til samkomu
la.gs Breta og íslendinga.
Sagði Paulson að ásókn
togara á miðin við Færeyjar
mundi aukast verulega og
skerða efnahag landsins.
Jens Otto Krag utanríkis
ráðherra varð fyrir svörum
og sagði að danska ríkisstjóm-
in væri að undirbúa viðræð-
ur við Breta um fiskveiði-
samninginn.
Soames ver stjórnina
— vegna samkomulagsins
j fiskveiðideilunni
London, 22. marz, (Reuter).
CHRISTOPHER Soames fiski
málaráðherra Bretlands hef-
ur neitað að fara þess á leit
við íslendinga að þeir gefi
tryggingu fyrir því að fisk-
veiðilögsagan vð ísland verði
ekki færð út fyrir tólf míl-
ur næstu tuttugu árin.
Tilkynnti Soames þetta í
bréfi er hann ritaði L. Oli-
Viðræður eru ekki friöur
segir Ferhat Abbas
Tunis, 23. marz, (Reuter).
FERHAT Abbas, forsætisráð-
herra útlagastjórnarinnar í
Alsír, sagði í dag að eina
samkomulagið, sem gert
hefði verið við Frakka, væri
að opinberar viðræður um
sjálfsákvörðunarrétt Alsír-
búa hæfust snemma í næsta
J, mánuði. Abbas sagði ennfrem
ur: „Viðræður eru ekki frið-
ur. Að sjálfsögðu vonum við
að væntanlegar viðræður
leiði til friðar. En allir verða
að muna það að nýlenduher-
inn hefur ekki verið afvopn-
aður og að viðræðurnar geta
orðið langar og erfiðar. Sú
hætta er jafnvel fyrir hendi
að viðræðurnar verði árang-
urslausar vegna ágirndar og
óbilgirni franskra heimsvalda
stefnu“.
Uppreisnarleiðtoginn lagði á-
herzlu á að enn hafi enginn
vandamál verið levst þrátt fyrir
margra mánaða tilraunir.
„Þannig standa málin í dag“,
sagði Abbas. „Eini árangurinn,
sem náðst hefur á átján mánuð
um — frá því franska ríkisstjórn
in viðurkenndi rétt a'sír.sku þjóð
arinnar til að ákveða framtíð
sína er þessi opinberi fundur sem
boðað er til án þess að viðkom-
andi stjórnir leggi fram kröfur
sínar fyrirfram“.
ver, ritara félags yfirmanna
á togurum í Hull. í bréfi ráð-
herrans segir m.a. „Þér hafið
lagt til í bréfi yðar að fara
ætti fram á tryggingu frá
íslendingum um að þeir færi
ekki fiskveiðilögsögu sína út
fyrir 12 mílur í að minnsta
kosti tuttuugu ár. Ég tel
ekki að nokkurt ríki geti
með réttlæti orðið krafið um
slíka tryggingu.
Hins vegar hefði brezkia ríkis-
stjómin aldrei gengið inn á sam-
komulag, sem ekkj hafði inni að
halda viðunandi tryggingu gegn
einhliða útfærslu íslenzkrar lög-
sögu. Raunverulega er í hinu
nýgerða samkomulagi Breta og
íslendinga einmitt slík trygging".
ENGIN LÖG TIL
Oliver hafði farið fram á það
að ráðherran fengi tryggingu frá
fslendingum fyrir því að þegar
samkomulagið rennur út eftir
þrjú ár verði lögsagan ekki færð
frekar út næstu tuttugu árin. Ef
slík trygging fengist ekki, gætu
samtök yfirmanna „eftki sam-
þykkt landanir á nýjum fiski úr
íslenzkum togurum í Hull.“
f svari Soames segir: „Að því
er Bretland varðar getur ekki
verið um frekari útfærslu fisk-
veiðilögunnar við ísland að ræða
Framh á hls. 23.