Morgunblaðið - 10.05.1961, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.05.1961, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 10. maí 1961 MORVVNBLAÐIÐ 3 í- FYRTR nokkrum dögum var Halldór Frank Sigurðs, sem er 11 ára gamall reykvískur drengur, að leika sér með vél- knúið skip úr plasti á Tjörn- inni. f samanburði við skipið var Tjörnin eins og úthaf, og Hólminn hefði getað verið Garðarshólmi. Þangað stefndi skipið, þótt ferðinni hefði upphaflega verið heitið þvert yfir Tjörnina, án viðkomu í Hólmanum. Farþegana hef- ur sennilega langað til að stíga þar á land og skoða álfta hreiðrið og fuglalífið í Hólm- anum, og því annað hvort mútað skipstjóranum til að breyta ferðaáætluninni eða gert uppreisn. Kannski hefur Galvao höfuðsmaður verið um borð, en hann kann manna bezt til slíkra verka nú á tím- um. Hvernig sem þessu hefur Verið varið, þá stóð útgerðar- maðurinn eftir fyrir framan Miðbæjarbarnaskólann með sárt ennið. Hann vissi að skip ið myndi stranda þarna við Skipsstrand klettótta strönd Hólmans. Hon um var alveg sama um afdrif farþeganna, en vildi fá skipið sitt aftur. Hann beið með önd- ina í hálsinum, þar til skipið tók niðri, en þá tók hann fyrir alvöru að leggja höfuðið í bleyti (samt ekki upp úr Tjörninni.) Nú voru góð ráð dýr. Hvernig væri að fara á Slökkvistöðina og segja að kviknað hefði í skipinu? Kannski gætu þeir hjálpað honum. Slökkviliðsmennirnir tóku vel á móti honum, en kváðust ekki geta hjálpað honum. Það lagði engan reyk frá skipinu í Hólmanum, svo það mundi jafngilda gabbi, ef SlÖkkvilið- ið legði í svona erfiðan og kostnaðarsaman leiðangur yf- ir úthaf, auk þess réðu þýzku keisarahjónin ríkjum í Hólm- anum, en þau voru síður en svo gestrisin um þessar mund ir. Litli útgerðarmaðurinn varð að sætta sig við þessi málalok á Slökkvistöðinni. Hvert var þá hægt að snúa sér? Ekkert nema til pabba. Það er gott fyrir útgerðarmann að eiga pabba. Ekki síst pabba, sem á gúmmíbjörgunarbát. En það verður að fá leyfi hjá lög- reglunni til að fara á litlum gúmmíbjörgunarbát yfir út- haf, þegar maður er ekki nema 11 ára gamall. Þessir stórvöxnu og alvöru- gefnu menn skilja vel, þegar þeim er tjáð að uppreisn hafi verið gerð á skipinu, og það Nýr bœklingur Neytendasamtakanna; Um sólböð, sólbruna, sólgleraugu o.fl. TÍT ER kominn nýr bæklingur Irá Neytendasamtökunum, og er hann mjög tímabær og ætti væntanlega að vekja engu imnni athygli en bæklingur þelrra „Um vítamín“, sem kom «t fyrir skömmu. Bæklingur þessl fjallar um sólböð, sól- bruna og vernd gegn honum, sól gleraugu, sólbrúnt hörund og gervi-sólbrúnt, en síðastliðið 6umar komu á markaðinn ýmis konar efni, sem sögð voru gera jnenn sólbrúna án sólarljóss. — Eirta Neytendasamtökin almenn ®r niðurstöður rannsókna banda- rísku og brezku neytendasam- takanna um þau efni. i Fyrsta grein bæklingsins nefn Ist: „Er það tákn heilbrigði að vera sólbrúnn?“, en önnur fjall- iir um efni til varnar sólbruna. í bæklingnum eru aðeins gefnar einfaldar og almennar upplýs- tagar og leiðbeiningar um þessi efni, sem byggðar eru á því, sem hin erlendu neytendasam- tök hafa birt í ritum sínum. Er bæklingurinn því fljótlesinn, en fróðlegur þó. Mcðlimum hefur farið ört fjölgandi undanfarna mánuði, og um 1300 bætzt við síðan í nóvember sl. Tekið er á móti nýjum meðlimum í síma allan daginn, en skrifstofa Neytenda- samtakanna ér opin kl. 5—7 dag lega, en hún er í Austurstræti 14, sími 19722. Bæklingarnir eru póstsendir meðlimum, en ár- gjald er 45.00 kr. Þeir meðlimir, sem breytt hafa um heimilisfang, eru beðn- ir að gera skrifstofunni aðvart, sem og þeir sem ekki hafa feng- ið bæklinga 1 pósti, en um 3000 manns hafa gerzt meðlimir gegn um síma, og þá er hættara við misritun nafns eða heimilis- fangs. Utgerðarmaðurinn kemur að landi til pabba. á Tjörninni sé nú strandað í Hólmanum, þar sem keisarahjónin ráða ríkjum. Skipið er lögleg eign útgerðarmannsins, og ef hann vill sjálfur leggja á sig erfiði við að ná því aftur, þá er það guðvelkomið. Lögreglan hafði samband við Slökkviliðið, sem á lönd að Tjörninni. Jú, þeir gáfu leyfi fyrir sitt leyti. Pabbi kom með gúmmíbátinn í bíl niður að Tjörn. Þar var báturinn blásinn út og útgerð armaðurinn sté um borð og lagði frá landi. f stað ára not aði hann þriggja metra langt borð. Það var ekki sérlega hentugt til að róa með því, en þegar hann nálgaðist Hólm- ann, kom 1 ljós að keisara- hjónunum stóð hinn mesti stuggur af borðinu. Sennilega hafa þau haldið að þetta væru fallbyssur. SvO mikið er víst að þau lögðu á flótta út á Syðri-Tjörn, áður en innrás- arherinn tók land. Þar létu þau ófriðlega. Skipið reyndist vera óbrot- ið, en enginn maður var um borð í því. Útgerðarmaðurinn var ekkert að hugsa um það. Hann hafði náð skipi sínu aft- ur, Og það var fyrir öllu. Síð- an innbyrti hann skipið í björgunarbátinn og hélt til lands, þar sem pabbi tók á móti honum, auk fjölda áhorf enda, sem höfðu fylgzt með leiðangrinum. — i.e.s. STAKSTEIMAR Pólitísk ofiókn Framsóknarmenn í Þingeyjar* sýslu hafa nú hafið pólitiskar ofsóknir gegn Bjartmari Guð- mundssyni, alþingismanni á Sandi. Á aðalfundi Kaupfélags Þingeyinga, sem haldinn var á Húsavík fyrir skömmu, bund- ust Framsóknarmenn samtökum um það að sparka honum úr stjórn kaupfélagsins, þar sem hann hefur setið í 24 ár. Aliir Þingeyingar vita, að Bjartmar Guðmundsson er ein- lægur samvinnumaður og hefur tekið mikinn þátt í samvinnu- starfi í heimahéraði sínu. Þess vegna hefur honum í nær ald- arfjórðung verði sýndur sá trún- aður oð sitja í stjóm kaupfélags síns. Þekkja aliir Þingeyingar að hann hefur unnið störf sin þar af dugnaði og samvizkusemi. Hingað og ekki lengra En haustið 1959 var Bjartmar bóndi á Sandi kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norð- urlandskjördæmi eystra. Þá sögðu Framsóknarmenn í Þing- eyjarsýslu: Hingað og ekki lengra. Það er óhæfa að maður, sem fyllir Sjálfstæðisflokkinn og er meira að segja einn af leið- togum hans í heilum landshluta skuli sitja í stjóm kaupfélags. Þetta má ekki svo til ganga. Við verðum að sparka Bjartmari Guðmimdssyni úr þessari trún- aðarstöðu. Þetta sögðu æstustu öfgamenn- irnir í liði Framsóknar norður þar. Við þessar hótanir var stað- ið. Alþingismanninum og bónd- anum á Sandi var sparkað úr stjórn Kaupfélags Þingeyinga, vegna þess að hann fylgdi Sjálf- stæðisflolsknum og er einn af forystumönnum hans í héraði sínu. Þannig er ,,frjálslyndi“ Framsóknarmanna. Þannig standa þeir vörð um sína hjart- fólgnu samvinnustefnu. En hin pólitíska ofsókn gegn Bjartmari Guðmundssyni mun hvorki skaða hann persónulega né pólitískt. Hún mun hinsvegar verða Framsóknarflokknum og þeim sem að ofsókninni standa til skaða og skammar. Gæti misst kosningaréttinn! Morgunblaðinu barst fyrlr skömmu bréf norðan frá Siglu- firði, sem sýnir greinilega, hvers konar brögðum kommúnistar og fylgilið þeirra hafa beitt við söfnun uppáskrifta á Moskvu- víxilinn. Bréfið er frá ungum dreng til foreldra sinna, sem eru fjarverandi, og greinir frá lieim- sókn undirskriftasmala kommún ista á heimili fjölskyldunnar. Fer kafli úr bréfinu hér á eftir, nöfn eru aðeins felld niður úr því en bókstafir settir í staðinn. í bréfinu segir á þessa leið: „Elsku pabbi og mamma! Við höfum það öll gott hérna. Jæja, það er bezt að byrja á byrjuninni. Á föstudaginn sem þið fóruð með skipinu kom mað- ur frá hernámsandstæðingum, heitir hann B, ég veit ekki hvers son, en hann á heima á K-götu. Kemur hann og spyr J, hvort hún hafi kosniragarétt. Hún segir já. Segir hann þá: „Viltu skrifa hérna undir?“ Hún segist ekki ætla að eiga neitt við það. Þá segir hann: ,,Já, þú getur bara misst kosningarétt við það“ (ef hún skrifi ekki undir). Hún seg- ir, það allt í lagi, ég er hvort sem er ekki svo mikið pólitísk“. Þanraig eru vinnubrögð komm- únista. Norður á Siglufirði hóta þeir ungri stúlku að hún muni missa kosningarréttinn, ef hún skrifi ekki upp á Moskvuvíxil- inn!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.