Morgunblaðið - 29.07.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 29.07.1961, Síða 1
V 20 siður Frakkar hafna miili- göngu SÞ París og New York, 28. júlí. ■J _ (NTB — Reuter) ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna hóf í kvöld að nýju umræðum um Bizerta-málið. ! Setningu fundarins hafði þá verið frestað í 3 stundarfjórð- unga, vegna fjarveru franska full itrúans. Voru um tíma uppi get- igátur um, að hann hygðist ekki eækja fundinn. Síðar barst svo forseta ráðsins, Leopoldo Benites, crðsending frá fulltrúanum, Ar mand Berard, þar sem hann greindi fiá því, að Frakkar teldu ástæðulaust að taka þátt í umræðum Öryggisráðsins um málið. Eftir að orðsendingin hafði ver Ið lesin upp hófust umræður í ráðinu að nýju og hafði franski varafulltrúinn, Pierre Millet, þá tekið sæti Frakka. RÆBA TÚNIS-FULLTRÚANS Fyrsti ræðumaður var fulltrúi Túnis, Mongi Slim, sem gerði að limtalsefni það er hann nefndi „alvarlegt ásandt“ er skapazt hefði, vegna þess að Fra'kkar Ihefðu látið undir höfuð leggjast »ð fara að samþykkt Öryggisráðs ins frá 22. júlí. Þá vék hann að för Hammarskjölds til Túnis og því atviki, er hann var stöðvaður við umferðatálmanir af frönsk um fallhlífarhermönnum. Lét full trúinn svo ummælt, að Öryggis- ráðið yrði að gera ráðstafanir til, að ákvarðanir þess væru ekki virt ar að vettugi með þeim hætti sem Frakkar hefðu gert. — Umræð- unum var ekki lokið þegar síðast fréttist. AFSTAÐA FRÖNSKU STJÓRNARINNAR Fyrr í dag gaf franska stjórnin út yfirlýsingu um Bizerta-málið, |þar sem hún hafnaði allri milli- göngu öryggisráðsins. Væri hún enda óþörf, þar sem friður væri kominn á. Nú vildu Túnismenn freista þess að ná fyrir milli- göngu öryggisráðsins því, sem jþeim hefði ekki tekizt með vopna valdi. Eina leiðin til þess að leysa úr ágreiningi Frakka og Túnis- smanna væri sú að setjast að samn ingaborði. Til þess væri franska Stjórnin reiðubúin. Að öðru leyti var tekið fram í yfirlýsingunni, að áhugi Frakka á flotastöðinni í Bizerta byggð- Framhald á bls. 19. Reykjavíkurkynning á 175 ára afmæli bæjarins Kynning á starfsemi bæjarstofnana og atvinnuvega, sýning á gömlum munum, fjölbreytt hátiðahöld í TILEFNI af 175 ára afmæli Reykjavíkurkaupstaðar hinn 18. ágúst n.k. hefur bæjarstjórn Reykjavíkur ákveðið að efna til sýninga og hátíðahalda, sem hlotið hafa nafnið „Reykjavíkurkynning 1961“. Á kynningunni, sem ráðgert er, að standa í 10 daga, verða m.a. sýningar og upplýsingar um þróun bæjarlífsins, sýndir verða ýmsir gamlir munir, lista- menn munu koma fram, haldnir verða hljómleikar, guðsþjón ustur o.fl. o.fl. í sambandi við kynninguna verða svo bæjar- stofnanir og ýmis einkafyrirtæki opin almenningi. Aðalhátíðasvæði Reykjavíkurkynningarinnar mun tak- markast af Melaskóla, Hagaskóla, Hagatorgi og Furumel. * ÞRÓUN BÆJARINS í Melaskóla og Hagaskóla verða sýningar og upplýsingar um þróun bæjarlífsins. Verður safnað þar saman ýmsum upp- lýsingum og gögnum, sem til eru hjá bæjarstofnunum um starf- semi þeirra, en hver bæjarstofn un hefur unnið að undirbúningi sinnar deildar. Jafnframt verða þarna sýningar á vegum atvinnu veganna. Þá hafa ýmis félaga- samtök og aðrar stofnanir lagt Framhald á bls. 19. Uppdráttur af hátíðasvæði „Reykjavíkurkynningar 1961“. Takmarkast svæðið af Melaskóla, Hagaskóla, Hagatorgi og Furumel. Nr. 1 og 3 eru Melaskóli og Hagaskóli, þar sem verða sýningar og upplýsingar um þróun bæjarlífsins. Nr. 2 er Neskirkja, en þar verða guðsþjónustur og hljómleikar nokkur kvöld. Barnaleikvöllur verður þar sem víkingaskipið er á uppdrættinum, en sexhyrn ingarnir merkja svæðin, þar sem sýndir verða gamlir munir og tæki o. fl. Svæði skátanna er auð- kennt með varðeldi og tjöldum. Þar sem litlu fer- hyrningarnir eru merktir inn á uppdráttinn verður komið fyrir sölutjöldum. Eitt eða fleiri kvöld verð- ur svo dansað á malbikaða vellinum franian við Mela- skólann. Framkvæmdanefnd kynning- rinnar boðaði blaðamenn á fund inn í gærdag, og greindi for- laður nefndarinnar, Björn Ólafs son fyrrv. ráðherra, þar frá skipu lagi sýningarinnar í höfuðdrátt Viðræðurnar í Evian farnar út um þúfur — Alsírsku þjóðernissinnarnir segia það þó frestun en ekki slit Kunngjörð á morgun? Ný steínuskrá sovéxha komm- únistatlokksins Verður tögð fram af Krúsjeff á 22 ftokksþinginu í október Moskvu, 28. júli. (Reuter) t D A G komst á kreik hér orðrómur um, að næsta sunnudag megi vænta mik- ilvægrar tilkynningar frá sovézka kommúnistaflokkn- um um heimsmálin. Verði þar greint frá þeirri stefnu, sem flokkurinn hyggist fylgja á næstu árum í bar- áttu sinni fyrir heimsyfirráð- um. —■ Lengi í undirbúningi Þessi stefnuyfirlýsing flokks- ins hefur verið í undirbúningi um 22 ára skeið og á að leysa af hólmi gömlu flokksstefnu- skrána, sem Lenin samdi árið 1919. Mun hún eiga að ná til næstu tveggja áratuga. Verður hin nýja stefnuskrá lögð fyrir 22. þing sovézka kommúnista- flokksins í október nk. af Nik- ita Krúsjeff, forsætisráðherra. Samt sem áður er skýrt opin- Framhald á bls. 19. Evian, 28. júli (NTB — Reuter) ALSÍRSKIR þjóðernissinnar hættu í dag viðræðum sínum við Frakka. Lýsti talsmaður frönsku stjórnarinnar, Thi- baud, því yfir eftir fund við- ræðunefndanna í Lugrinliöll- inni við Evian í dag, að full- trúar þjóðernissinnahreyfing- arinnar hefðu tilkynnt, að hún teldi sér ekki fært um sinn að halda lengur áfram umræðum um frið í Alsír. ÁGREININGUR UM SAHARA Thibaud lét svo ummœlt, að leiðtogar viðræðunefndanna, Louis Joxe og Belkacem Krim, hefðu ræðst við einslega um möguleikana á því, að koma í veg fyrir, að viðræðurnar rynnu út í sandinn. en það hefði ekki borið árangur. Talsmaðurinn skýrði af- dráttarlaust frá því, að það hefði verið ágreiningurinn lun framtíð Sahara-eyðimerkur- innar, sem viðræðuslitunum olli. Samræður þeirra Joxe og Krim áttu sér stað bæði á fimmtu dag og föstudag og stóðu yfir í meira en tvær klukkustundir báða dagana. Framhald á bls. 19. > V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.