Morgunblaðið - 29.07.1961, Blaðsíða 6
6
MORCZJNBL 4 ÐIÐ
Laugardagur 29. júlí 1961 I
Slysœ/arnakoaur frá
Akureyri á ferðatagi
F1MMTUDAGINN 6. júlí sl. heim
sóttu 83 konur úr kvennadeild
Slysavarnafélags' Akureyrar
Reykjavík og Suðurland. Formað
ur deildarinnar er frk. Sesseija
Eldjárn. — Sama dag komu 23
feonur úr kvennadeild Slysavarna
félagsins „Unnur“ á Patreksfirði,
en formaður hennar er frú Þor-
unn Sigurðardóttir. Dvalið var
sunnanlands í þrjá daga og voru
feonur beggja deildanna gestir
Kvennadeildar Slysavarnafélags
ins í Reykjavík. Stórum hluta
feomugesta var komið fyrir til
gistingar í húsi S.V.F.Í. við
Grandagarð en þar starfræktu
fconur úr Kvennadeildinni í
Reykjavík mötuneyti meðan á
heimsókn stóð, en nokkrar kon-
ur frá Akureyri og allar Patreks-
fjarðarkonurnar bjuggu hjá kunn
ingjum út um bæ.
Heimsóttar voru ýmsar merkar
stofnanir í bænum. Á iaugardag
var farið um Suðurland og bætt-
ust þá við í hópinn konur úr
Kvennadeild Siysavarnafélagsi.is
í Reykjavík og voru í þeirri ferð
236 konur.
Farið var í Múlakot, Skálholt
og til Þingvalla. Á sunnudag var
ekið um Reykjanes, komið að
Garðskagavita og hann skoðaður
undir leiðsögn frú Helgu Þor-
steinsdóttur og frú Ásdísar Kára
dóttur. Þaðan var haldið til Kefia
víkur Og tóku þar á móti þeim
feonur úr Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins í Keflavík, en for
maður hennar er frú Jónína Guð-
jónsdóttir.
Á sunudagskvöldið var svo sam
eiginlegur fundur í húsi Slysa-
varnafélags íslands. Þar voru
samankomnar ca. 200 konur frá
Afeureyri, Patreksfirði og úr
Reykjavík. Þar voru rædd ýmis
áhugamál slysavarnakvenna.
Mánudaginn 10. júlí íóru báð-
Bifreiðarslys
ir hóparnir heim aftur. En komið
var og farið með hópferðabílum.
Heimsóknir í milli deilda SVFÍ
sem þessar, eru nauðsyn og verð-
ur öllum gestum sem heimafé-
lögum til mjög mikillar ánægju
og hvatningar og flestum ógleym
anleg.
Persónuleg kynning félaganna
sjálfra er mikill styrkur í þjóð-
nýtu starfi Slysavarnafélags ís-
lands. — G.V.
Jafnað niður
útsvörum
í Borgarnesi
BORGARNESI, 24. júlí — Út-
svarsskrá Borgarneshrepps var
lögð fram fyrir síðustu helgi. Alls
var jafnað niður 2.208.000 kr.,
þar af 1.514.000 á 300 einstaklinga
694.000 á 15 fyrirtæki. Hæstu út-
svör einstaklinga bera Einar
Ingimundarson málarameistari
50 þús., Eggert Einarsson, héraðs
læknir, 19700 og Sigurður Gísla-
son, húsasmíðameLstari 19.500. Af
fyrirtækjum er hæst Kaupfélag
Borgfirðinga 358 þús., Verzlunar
félag Borgarfjarðar 66 þús. og
Verzlunarfélagið Borg 62 þús.
Jafnað var niður skv. útsvars-
stiga Reykjavíkur, eins og hann
er í 5. grein útsvarslaga frá al-
þingi 1960, þó þannig að útsvör
einstaklinga voru lækkuð um
25%. Veltuútsvar á fyrirtæki
voru 1% af veltu þeirra, að und-
anskildum olíuverzlununum, en
á þær var lagt 1.3%.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
unar voru 3.2 millj. þar af til
menntamála 570 þús. til hreppa-
vega, skolpræsa og varanlegrar
gatnagerðar. 500 þús., til trygg-
ingarmála 400 þús. og til fram-
fevæmda í vatnsveitu 200 þús.
— H. J.
Fyrsta verkið — að
skipa nýja stjórn
— segir Kasavubu, er hann setti Kongóþing
Leopoldville, 27. júlí
(NTB-Reuter).
KASAVUBU Kongóforseti
setti í dag formlega þing
landsins — en það hefir ekki
komið saman um tíu mánaða
skeið. — I setningarræðu
sinni sagði Kasavubu, að
fyrsta verkefni þingsins væri
að koma sér saman um nýja
ríkisstjórn sambandsríkis
Kongó — og síðan að setja
ríkinu sem fyrst nýja stjórn-
arskrá.
★
1 gær voru haldnir deildar-
fundir í þinginu fyrír lokuðum
dyrum, fyrst og fremst til þess
að kjósa deildarforseta og aðra
starfsmenn þingsins. Vakti það
athygli, hve miklu fylgi Lum-
umbasinnar virtust eiga að
fanga meðal þingmanna. —
Meira en þúsund hermenn úr
liði SÞ standa vörð um þing-
staðinn — og bar Kasavubu
fram þakkir til samtakanna fyr-
ir að „verja þannig öryggi þings
ins“.
Katangaþingmenn hafa ekki
mætt til fundar — en Tsjombe
hefir krafizt þess, að haldinn
yrði nýr leiðtogafundur í Kon-
gó, áður en þingið hæfi störf.
Kasavubu sagði í dag, að ef
Katangastjórn léti ekki af þess-
ari stefnu sinni, bæri þinginu
að láta í ljós eindregna van-
þóknun sína.
Margir hafa leltað tll Bllaskoð :j
unarinnar eftir að hún tók til j
starfa. Sérstaklega hafa þeir,
sem keppt hafa bíla, viljað fá
mnisögn hennar um ástand
þeirra. — Á myndinni sést bíll j
Bskoðaður. 1 t
Franska fréttastofan AFP hef-
ir það eftir ótilgreindum heirn-
ildum, að Joseph Ileo, forsæt-
isráðherra í Leopoldville hafl
sagt af sér á þingfundinum í
gær. Ekki er ljóst, hvort hann
hefir beiðzt lausnar, eða hvort
þingið hefir lýst vantrausti á
hann. En að sjálfsögðu er það
eðlilegur gangur mála, að Ileo
segi af sér, um leið og þinginu
er falið að skipa nýja ríkis-
stjórn.
— ★ —
Fulltrúar stjórnar Lumumba-
sinna í Stanleyville (Gizenga-
stjórnarinnaí1) hafa krafizt þess,
að þegar hin nýja ríkisstjórn
biðji um traust þingsins, skuli
atkvæðagreiðsla verá leynileg.
Kasavubu tjáði sig í dag sam-
þykkan því, að svo yrði.
við Isafjörð
UM kl. 21 í gsérkvöldi varð það
slys á veginum frá Súðavík til
ísafjarðar, að bifreiðin í-656 frá
ísafirði fór út af veginum og
slösuðust tveir bræður, sem í
henni voru.
Bifreiðin í-656, sem er fjögurra
manna fólksbifreið, var að koma
innan úr Súðavík, og ók Arnar
G. Hinriksson frá ísafirði bílnum,
en í aftursætinu var bróðir hans,
Sigurjón. Þegar bifreiðin var
komin nokkuð inn fyrir Selja-
brekku, sem er rétt ofan við
flugvöllin á Skipeyri, missti Arn
ar vald á bifreiðinni með þeim
afleiðingum, að hún fór út af
veginum og valt tvær veltur, áð-
ur en hún stöðvaðist niðri í
mýri. Sjúkrabifreið og læknir
komu fljótlega á vettvang, og
voru þeir bræður fluttir í Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði. Arn-
ar hafði fengið heilahristing og
skrámur í andliti, en Sigurjón
bróðir hans hafði aðeins hlotið
smáskrámur. Líður þeim báðum
vel eftir atvikum. Bifreiðin er
mikið skemmd. AKS.
•jRóIegúthverfi
í gær var í blaðinu sagt frá
nýju einbýlishúsahverfi, sem
Garðahreppur hefur látið
skipuleggja sunnan við Vífil-
staðaveginn, og fyrir skömmu
var einnig sagt frá skipulagn
inu Arnarnessins, þar sem á
að rísa annað einbýlishúsa-
hverfi. Þetta gefur okkur hug
mynd um hvernig höfuðborg
framtíðarinnar ætlar að verða
í framtíðinni. Hún mun byggj
ast upp svipað og aðrar stærri
borgir úti í heimi, enda hljóta
óskir borgarbúa um lifnaðar-
hætti óhjákvæmilega- að
verða nokkuð svipaðar. Þeir
vilja hafa ról«g íbúðahverfi
með lítilli umferð, sem þeir
geta snúið til úr ysnum og
þysnum, að dagsverki loknu.
í öllum stærri borgum, eru
því úthverfi, sem notuð eru
eingöngu sem íbúðarhverfi,
þar sem hægt er að fá nokkuð
rúmar lóðir fyrir garða og
einbýlishús. Um leið og
slík hverfi byggjast batna
samgöngur, strætisvagnaferð-
ir verða tíðari, og fólki finnst
það litlu muna, ef það þarf að
stíga upp í bíl eða strætisvagn
á annað borð, þó það aki 10—
15 mínútum lengra. Á þess-
um hverfum er öll áherzla
lögð á að þar verði lítill háv-
aði og ró.
• Fyrir framtíðina
Það er lífea auðséð, að
Garðahreppur gerir sér grein
fyrir því að hann á eftir að
tengja saman byggð í Reykja-
vík, Kópavogi og Hafnarfirði
og að hreppurinn mun nú
alveg á næstunni breytast í
bæ. Hreppurinn hefur stórhug
til að fara ekki út í bráða-
birgðaframkvæmdir, sem strax
verða of litlar, heldur búa í
haginn fyrir framtíðina. Nú
t. d. að hefja vatnsveitufram-
kvæmdir fyrir 8000 manna
bæ. Og hverfin eru skipulögð
til fulls fyrirfram,
• Meira fyrir minna
meðjítboði.
Athyglisvert er það, að
Garðahreppur hefur tekið þá
stefnu, sem einnig er að
verða ríkjandi í Reykjavík,
að bjóða út slík verk. Á s.l.
ári var sorphreinsun í hreppn
um og viðhald gatna fengið
lægstbjóðanda. og sama er
íppi á teningnum núna. Lagn
ing vatnsveitunnar var boðin
út. Munaði nærri hálfri
milljón á því sem lægstbjóð-
andi og sá hæsti treystu sér
til að gera verkið fyrir. En
munurinn á þeim lægsta og
næstlægsta var 20 þús. kr,
Sumum finnst það e. t. v.
ekki há upphæð, en ef maður
fengi þessa upphæð ofan á út-
svarið sitt, mundi muna vel
um hana.
Sveitarstjórinn í Garða*
hreppi Ólafur Einarsson tjáði
blaðamönnum, um leið og
skýrt var frá nýjustu fram-
kvæmdum, að með því að
bjóða þannig út verkin í stað
þess hreppsnefndin sæi um
þau sjálf, fengist meira fyrir
minna. Þetta hefði reynzt
þannig, bæði hvað vegagerð-
ina snerti og einnig hefði
fengizt betri sorphreinsun fyr
ir minna fé. Útboð sparaði
hreppnum mikið skrifstofu-
hald og mannahald, og virtist
ætla að gefast betur.
Það verður gaman að fylgj-
ast með uppbyggingunni á
svæðinu í Garðahreppi. Þar
eru hverfin skipulögð til hlít-
ar áður en nokkrar bygging-
ar hefjast og hafa öll skilyrði
til að verða með fallegustu
einbýlishúsahverfum i ná-
grenni Reykjavíkur. Enda er
það haft eftir mönnum. sem
um skipulag fjalla, að feg-
ursta bæjarstæði í nágrenni
Reykjavíkur, sé frá Kópavogi
að EneidaL ________