Morgunblaðið - 29.07.1961, Síða 4
4
s. o. s.
Óska eftir 2—3 herb. íbúð
strax eða fyrir 1. sept.
Upplýsingar í síma 16582
eftir kl. 0.
Rauðamöl
Seljum mjög góða rauða-
möl. Ennfremur vikurgjall,
gróft og fínt. Sími 50447.
og 50519.
Rauðamöl
Seljum rauðamöl og vikur
gjall til uppfyllinga í
grunna, í vegi plön o.fl.
Sími 50997.
Sunnlendingar
tannlækningastofan á Sel-
fossi verður lokuð í 2—3
vikur frá 29. júlí.
Tannlæknirinn.
Tveggja til þriggja
herbergja
Ibúð óskast 1. október.
Uppl. í Síma 35757.
Ráðskona óskast
Má hafa með sér 1 barn.
Uppl. í síma 580, Akranesi.
Sófaborð
Nýtt nýtízku sófaborð úr
palesander til sölu á Lauf-
ásvegi 74.
Til sölu
Kvenmanns- og karlmanns
reiðhjól að Laugavegi 157.
íbúð óskast
til leigu fyrir finnska fjöl-
skyldu. Tilboð sendist afgr.
Mbl. merkt. „fbúð 5059“.
Mótorhjól óskast
teg. og verð sendist afgr.
blaðsins fyTÍr mánudags-
kvöjd. Merkt 5124.
Hraðbátur
Nýr glæsilegur hraðbátur
til sölu. Upplýsingar í
símum 36797 og 36953.
Mótatimbur til sölu
Uppi. í síma 11408 og Hlé-
gerði 20, Kópavogi.
Myndavél
Sem ný 35 mm myndavél
til sölu, ódýrt. Uppl. í dag.
Sími 37161.
Reglusamur
maður með bilpróf, óskar
eftir einhvers konar
atvinnu. Tilboð merkt
„Stundvísi 5055“. Sendist
afgr. Mbl.
Stúlka með
eins árs dreng óskar eftir
ráðskonustöðu eða vist í
Reykjavík eða nágrenni.
Uppl. í sima 24355.
VORGVNBLAÐIB
Laugardagur 29. júlí 1961
í dag er 2X0. dagur ársins.
Laugardagur 29. júlí.
Árdegisflæði kl. 07:15.
Síðdegisflæði kl. 19:36.
Slysavarðstofan er opln allan sólar-
hringinn. — Læknavörður L.R. (fyrir
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Sími 15030.
Lamaða stúlkan: NN 100 AB 300 FG
50.
Sólheimadrengurinn: HH 50.
Gengið •
Næturvörður vikuna 30. júli til 5.
ágúst er í Ingólfsapóteki, sími 11330.
Holtsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7, laugar-
daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Kópavogsapótek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl.
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Sími 23100.
Næturlæknir I Hafnarfirði vikuna
30. júlí til 5. ágúst er Ölafur Einars-
son, sími 50952.
Næturlæknir f Hafnarfirði 22.—29.
júlí er Kristján Jóhannesson, sími
50056.
Sölugengi:
1 Sterlingspund ...... Kr. 106,40
1 Bandaríkjadollar ..... — 38,10
1 Kanadadollar ......... — 34,65
100 Danskar krónur ........ — 549,80
100 Norskar krónur ........ — 532,10
100 Sænskar krónur ........ — 736,95
100 Finnsk mörk ........... — 11,86
100 Franskir frankar ...... — 776,60
100 Belgískir frankar ..... — 76,47
100 Svissneskir frankar .... — 882,90
100 Gyllini ............... — 1060,35
100 Tékkneskar krónur ...,v.. —- 528,45
100 V.-þýzk mörk .......... — 957,35
1000 Lírur ................ — 61,39
100 Austurrískir schillingar — 147,56
Kvenfélagið Hvítabandið fer skemmti
ferð 1. ágúst. Farið verður um Grafn-
inginn og til Þingvalla. Uppl. í síma
16360 og 15138.
100 Pesetar .............. — 63,50
Messur a morgun
Dómkirkjan: — Messa kl. 11. Séra
Jón Auðuns.
Elliheimilið: — Guðsþjónusta kl. 10
f.h. — Heimilispresturinn.
Hallgrímskirkja: — Messa kl. 4. —
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup.
Reynivallaprestakall: — Messa kl.
1:30. Sóknarprestur.
Fjölskyldan á Sauðárkróki: NN 200
AP 300 AB 300 JH 100
Tekið á móti
tilkynningum
í Dagbók
frá kl. 10-12 t.h.
Gengið
um bæinn
„VIÐ grasvelli fríða og grjót-
skeifutorg, hún gnæfir vor
dýrmæta háskólaborg". Svo
var eitt sinn kveðið. Þá var
björkin ekki farin að setja
svip á lóðina. Nú eru þarna
einhver lengstu trjágöng á
landinu og hin laglegustu.
Leggur margur leið sína í
bjarkaskjóli eftir „Háskólahell
unum“. Atvinnudeildin stend-
ur nú svo að segja inni í
skógi, þ. e. a. s. girt skjólbelt-
um. Veitir og ekki af því á
þessum stormsama stað. Ger-
izt nú miklu hlýlegra og vina
legra en fyrr á þessum stöð-
um. Nokkuð er þarna af Al-
askaösp, en ekki þolir hún
næðinginn til jafns við birkið.
— Sitkagrenihríslurnar við
Sólvallakirkjugarðshornið eru
furðu brattar og standast
stormana, þótt þær standi al-
veg áveðurs, en þær skýla tals
vert hver annarri, enda verð-
ur að gróðursetja þétt á slík-
um vinda-stöðum. En blaðlús
hefur undanfarin siumur
skemmt hríslurnar. — Sól-
vallakirkjugarðurinn m u n
vera einhver stærsti trjágarð-
ur í Reykjavík, og er einnig
hinn blómríkasti. Hið misstóra
og margvíslega legsteinasafn
nýtur sín bezt innanum trjá-
lundi. — Tjömin og beltið
græna þ. e. Hljómskálagarð-
urinn, Háskólalóðin, Sólvalla-
kirkjugarður og garðarnir við
Sólvallagötu eru eins konar
lungu miðhluta bæjarins. Þarf
Reykjavík að eignast marga
væna gróðurhólma í framtíð-
inni.
B j a r k i.
1) Meðan þau voru að borða
morgunverðinn, útskýrði prófessor-
inn, hvað um var að vera og hvað
fyrir lá að gera. — Það merkilegasta,
sem ég hef fundið hér, er málm-
spegill, en á bak hans er letruð ein-
hver frásögn....
>f Xr
2) ... .Þið sjáið hann þarna uppi.
Við verðum að leysa alla gátu
Hljóðapýramídans — áletranirnar á
hinu óþekkta letri — áður en við
getum þýtt frásögnina á speglinum.
GEISLI GEIMFARI
3) — Þess vegna hef ég gert þessa
áætlun: Mikkí reynir að skríða inn í
pýramídann gegnum litla gatið í
véggnum og rannsakar, hvort nokk-
ur af hinum innri göngum liggja að
raunverulegum inngangi, sem við
gætum síðan grafið upp.
>f >f >f
— Þér getur virzt það smávægi-
legt verkefni að vernda keppendur í
fegurðarsamkeppni sólkerfisins,
Geisli....
— Það er ekki ofmælt, doktor
Hjalti!
— En þetta er í rauninni mjög þýð
ingarmikið verkefni! Ungar stúlkur
frá öllum stjörnum yfirgefa heimili
sín og koma til jarðarinnar til að
taka þátt í þessari miklu keppnL
Það er starf öryggislögreglu jarðar-
innar að sjá um að þær verði ekki
fyrir neinu tjóni! •
— Ég veit, ég veit!