Morgunblaðið - 29.07.1961, Page 10
10
MORGVTSBLAÐIh
Laugardagur 29. júlí 1961
Utg.: H.t. Arvakur Reykjavík.
Franikvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 ó mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
AFNÁM VERÐLAGSEFTIRLITS
Tllalgagn Framsóknarflokks-
ins ræðir í gær um
verðlagseftirlit og kemst m.
a. svo að rði:
„Það þarf þess vegna eng-
an að undra þótt kaupfélags-
menn um allt land óski eftir
afnámi verðlagseftirlits fyrir
sitt leyti.... Á það má einn-
ig benda til fróðleiks að verð
lagsákvæði tryggja engan
veginn neytendum lægsta
verð á varningi. Þau tryggja
aðeins að akveðin hundraðs-
tala sé notuð við verðlagn-
ingu varanna. Þess vegna er
það að þeim, sem gerir óhag-
stæðust innkaup varnings,
kaupir inn dýrasta vöru,
skapa þau mestan hagnað.
Þeim, sem hins vegar leitast
við að gera sem hagkvæm-
ust innkaup, refsa þau.
Neytendum í landinu er
því furðulítil trygging í
verðlagsákvæðunum".
Morgunblaðið fagnar því,
að það og Tíminn geta að
minnsta kosti einu sinni ver-
ið sammála í þýðingarmiklu
pólitísku máli og vill taka
undir orð Tímans. Verðlags-
ákvæði eru andstæð hags-
munum neytenda, þegar til
lengdar lætur. Þau eru neyð-
arúrræði, sem stundum get-
ur verið nauðsynlegt að
grípa til, þegar um almenn-
íui vöruskort er að ræða, til
dæmis vegna styrjaldar-
ástands, en við eðlilegar
þjóðfélagsaðstæður og traust
an efnahag koma þau í veg
fyrir hagkvæmni hinnar
frjálsu samkeppni.
Eftir skrifum Alþýðublaðs-
ins að dæma síðustu tvo dag-
ana virðist það blað hins-
vegar enn hafa trú á verð-
lagseftirliti sem varanlegum
úrræðum. Vegna þess tilefnis
verður ekki hjá því komizt
að benda á að sósíaldemó-
krataflokkar Vestur-Evrópu
hafa yfirleitt fyrir alllöngu
gert sér fulla grein fyrir
því, að verðlagshöft væru til
þess fallin að skerða hag al-
mennings en ekki bæta hann.
Hefði verið ánægjulegt, ef
Alþýðuflokkurinn íslénzki
hefði líka vilja gera sér grein
fyrir þessu. Þá hefði getað
skapazt samstaða allra ís-
lenzkra lýðræðisflokka um
eitt þýðingarmikið málefni.
GÖNGUM í VIÐ-
SKIPTABANDA-
LAG
k llt útlit er nú fyrir að
meginþorri Evrópuþjóða
verði í einu viðskiptabanda-
lagi áður en langt um líður.
Talið er að Bretar muni láta
til skarar skríða og ganga í
Sameiginlega markaðinn, en
það skírist væntanlega nú
um helgina. Aðrar þjóðir
munu þá fylgja þeim eftir,
og Danir til dæmis hafa þeg-
ar undirbúið inngöngu í
Sameiginlega markaðinn.
Hver sem örlög fríverzlun-
arbandalagsins (EFTA) yrðu
þá, er Ijóst að íslendingar
hljóta að verða að taka þátt
í viðskiptasamstarfi Evrópu-
þjóða á einhvern hátt og lík-
legast að réttast væri að
ganga þá þegar í Sameigin-
lega markaðinn.
Ef þessi verður þróunin,
sem allt bendir nú til, verð-
um við íslendingar að búa
við traustan efnahag og
frjálsa viðskiptahætti, ann-
ars erum við ekki hlutgeng-
ir í samstarfi þroskaðra lýð-
ræðisþjóða. Eitt með öðru er
það, að þá verður að afnema
verðlagsákvæði og önnur
höft, sem enn eru á viðskipt-
um. Þannig styður þessi þró-
un það líka að við vindum
bráðan bug að afnámi verð-
lagseftirlits.
Ef til vill mundi einhver
hækkun verða á álagningu
fyrst í stað við afnám verð-
lagseftirlits, en heppilegri
innkaup og betri ástundun
viðskipta mundi von bráðar
veita landsmönnum mun
metri viðskiptakjör en þeir
búa nú við. Sú hefur alls
staðar orðið raunin og þann-
ig mundi einnig fara hér.
ÓSKAÐ SVARS
ryrir nokkrum dögum benti
* Morgunblaðið á þann sig-
ur íslands, að fá tólf mílna
fiskveiðitakmörk viðurkennd
með samkomulagi við aðrar
þjóðir, án þess að binda sig
með samþykktum um að tólf
mílur skyldu vera alþjóða-
regla, eins og við þó vorum
reiðubúnir til að gera á
Genfarráðstefnunum. Er hér
um augljósan sigur að ræða,
þar sem við náum tólf mílun
um, en höldum þó dyrum
opnum til áframhaldandi út-
færslu.
Vegna afstöðu Framsókn-
arflokksins í landhelgismál-
inu leyfði Morgunblaðið sér
að spyrja, hvort sá flokkur
væri reiðubúinn að standa
nú að alþjóðlegri samþykkt
um tólf mílna fiskveiðitak-
mörk, eins og allir vildu gera
á Genfarráðstefnunum. Slíkt
teldi Morgunblaðið hið
mesta óráð, þar sem við höf-
um þegar náð miklu lengra
og varðveitt réttindi til
áframhaldandi útfærslu.
Tíminn hefur enn ekki
utzYtmm
Þessi mynd var tekin, þegar belgíski leiðangurinn kom til Umanak. — Fremst á mynd-
inni, til hægri við miðju, er leiðangursstjórinn, Jean Duchesnes, sem var einn hinna
fjögurra, sem fórust. í þeim hópi var einnig eina konan í leiðangrinum, Nadine Simandl,
og sést hún til vinstri við Duchesnes.
Skriöa færöi
fram af brúninni
DANSKA blaðið Berlingske
Tidende hefir nú skýrt frá
því, að belgiska fjallgöngu-
fólkið, sem beið bana í Græn
landi á dögunum, muni ekki
hafa hrapað fram af hamra-
vegg vegna slæms skyggnis
eða villu, eins og talið var í
fyrstu, heldur hafi það senni
lega lent í skriðu, sem hafi
borið það með sér fram af
hengifluginu. Ef til vill hafi
fjórmenningarnir sjálfir rutt
þessari skriðu af stað, þótt
erfitt sé um það að segja
með vissu. Blaðið byggir
hér á framburði þeirra fimm
úr belgiska leiðangrinum,
sem eftir lifa, en þeir gáfu
lögreglunni 1 U m a n a k
skýrslu um sl. helgi. — I
framburði þeirra kemur m.
a. fram eftirfarandi:
svarað því, hvort flokkur
hans vildi standa að slíkri
alþjóðlegri samþykkt, og
þess vegna berum við enn
fram spurningu um það mál.
Hins vegar hefur aðalmál-
gagn bandalags stjórnarand-
stæðinga, Þjóðviljinn, lýst
því yfir að báðir bandalags-
flokkarnir séu andvígir því
að Færeyingar fái lítilvæg
fiksveiðiréttindi hér við
land. Áreiðanlega er þjóðin
andvíg þeirri afstöðu stjórn-
arandstæðinga
Tveir sneru aftur
Hinn 14. júlí lögðu þau
fjögur, sem fórust, af stað frá
búðum sínum, ásamt tveim öðr-
um úr leiðangrinum, Marty og
Harlez, — og var ætlunin að
klífa hnjúk nokkurn, sem nefn-
ist „Snjópýramídinn“. Þar sem
þeir Marty og Harlez voru ekki
vel friskir, sneru þeir brátt við
til tjaldbúðanna, en hin fjögur
héldu áfram (í hópnum var ein
stúlka, eins og lesendur minn-
ast af fyrri fréttum). Þegar. þau
voru enn ókomin til búðanna
17. júlí, lögðu félagar þeirra af
stað að leita þeirra, og höfðu
meðferðis nokkrar vistir og lyf.
Sporin hurfu
Tveir félaganna, Tamigneau
og Faber að nafni, rannsökuðu
hinn bratta norðurvegg Snjó-
pýramídans og vesturhlíð hans
— án árangurs. Hinir tveir, sem
fyrr voru nefndir, athuguðu
ranann, sem gengur norður úr
fjallstindinum. Þar fundu þeir
fótspor, sem lágu upp eftir í
áttina til „pýramídans". En
skyndilega beygði slóðin og lá
síðan til baka, niður eftir brött-
um slakka — þar sem sporin
hurfu svo snögglega — á hamra
brún.
Þarna, rétt hjá sporaslóðinni,
sáust merki eftir skriðufall —
og er það skoðun allra hinna
belgísku leiðangursmanna, sem
eftir lifa, að þarna hafi slysið
orðið. Telja þeir, að hinir fjór-
ir félagar þeirra hafi borizt með
skriðufallinu niður í undirdjúp-
ið, en þarna fyrir neðan er af-
ar bratt — og talið ókleift með
öllu. Þykir Belgunum fimm
ekki ósennilegt, að félagar
þeirra hafi sjálfir komið skrið-
unni af stað — þótt ekki treysti
þeir sér til að fullyrða það.
— ★ —
Hér ber ekki saman við fyrri
fréttir, sem höfðu það eftir
Belgunum, að félagar þeirra
mundu hafa gengið þarna fram
af brúninni, vegna slæms
skyggnis. Er ekki ljóst, hvort
rangt hefur verið eftir þeim
haft — eða hvort þeir hafa
ekki minnzt á merkin eftir
skriðufallið fyrr en við lögreglu
yfirheyrsluna.
ítalskir fjallgöngumenn, sem
eru í norðurhluta Grænlands
um þessar mundir, hafa sent
lögreglunni í Umanak boð um
það, að þeir séu fúsir til að
leita hinna horfnu Belgíumanna
— en hinir fimm úr belgiska
leiðangrinum, sem eftir lifa,
segja að það væri óðs manns
æði að reyna að fara niður
hamravegginn, þar sem félagar
þeirra virðast hafa hrapað. Slíkt
væri sama og að ganga í opinn
dauðann.
Norski
sjómaðurinn
Norðfirði, 27. júlí
NORSKI síldveiðimaðurinn af
reknetabátnum Frost frá Hauga-
sundi, sem kom hingað slasaður
í gær, hefur enn ekki verið rann-
sakaður til fullnustu. Verður það
sennilega ekki hægt á næstu dög
um. Hann er með fullri rænu, en
líðan hans virðist hin sama, þó
e. t. v. heldur skárrL — S.L.