Morgunblaðið - 29.07.1961, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. júlí 1961
Allir hreppar greiða
fyrir íþróttanámskeið
UNGMENNASAMBAND Vest-
fjarða efndi að venju til síns
íþróttanámskeiðs á þessu sumri.
Var það haldið að Núpi í Dýra-
firði dagana 13.—25. júní. Kenn-
arar voru Valdimar Örnólfsson,
Gígja Hermannsdóttir og íþrótta
kennarinn að Núpi, Sigurður
Guðmundsson. Hefur Sigurður
af mikilli elju komið þessum
námskeiðum á og brotið með
þeim blað í sögu slíkra nám-
skeiða.
ýif Nýstárlegt námskeið
Honum og fleirum forráða-
mönnum íþróttamála þar vestra
hefur tekizt með skilningi yfir-
valda að gera slík iþróttanám-
skeið að föstum lið ár hvert.
Greiðir hver hreppur lágmarks-
gjald, kr. 500, og hvert kaup-
tún lágmarksgjald, kr. 1000, til
námskeiðanna. Skiptir ekki
máli hvort nokkur þátttakandi
er frá byggðarlögunum eða ekki.
Hverjum hreppi og kauptúni er
gert að skyldu að greiða þetta
gjald. Þátttökugjald er hins
vegar 200 kr. á hvern þátttak-
anda. Geta byggðarlögin sent
fyrir lágmarksgjaldið þátttakend
ur sem því nemur án auka-
gjalds, en séu þátttakendur
fleiri en lágmarksgjaldið hrekk-
ur fyrir, þá verður aukagreiðsla
að koma til. Með þessu móti
hefur .UMSV tryggt það að
íþróttanámskeið séu haldin
hvert ár — og reynslan af þeim
námskeiðum hefur verið sú að
ekkert byggðarlag sér eftir
greiðslunni til námskeiðanna,
enda hefur tekizt vegna lág-
marksgjaldsins að útvega hæf-
ustu kennara hverju sinni.
★ Vel heppnað
Þátttakendur að þessu sinni
voru 29 unglingar frá 13—16 ára
og auk þess allir landsmótsfarar
UMSE, 9 talsins.
Á þessu námskeiði voru
kenndir fimleikar, frjálsar
íþróttir, handknattleikur, körfu-
knattleikur og sund. Á kvöldin
voru kvöldvökur og tilsögn í fé-
lagsstarfi, mikið um dansa og
mikið um söng. Allir ungling-
arnir sem námskeiðið stunduðu
sýndu þjóðdansa og fimleika 17.
júní að Rafnseyri.
★ Gott mót
í upphafi námskeiðsins fór
fram árlegt héraðsmót UMSV í
frjálsum íþróttum. Náðist þar
allgóður árangur í ýmsum
greinum, en keppnisgreinar voru
alls 21 fyrir karla og konur og
eru starfsíþróttir meðtaldar. Úr
slit mótsins urðu þau að Grett-
ir hlaut 131 stig, Stefnir 100
stig, UMF Mýrahrepps 54 og
Höfrungur 47 stig.
Heims-
met í
sundi
rÓKÍÓ — Bandaríkjamaður-
inn Chet Jastremski setti í
dag nýtt heimsmet í 200 m
bringusundi. Synti hann vega-
lengdina á 2 mín 33.6 sek.
Jastremski á fyrra heimsmetið <
2.35.3, og bíður það afrek stað- 7
festingar. Hann var er hannl
vann hið nýja afrek að keppa
á japanka meistaramótinu.
Staðfeta metið er 2.36.5 og
á það Gathercole, Átralíu, sett
í Brisbane 1958.
Jastremski bætti einnig hið
staðfesta met í 100 m bringu
undi. Synti hann vegalengd-
ina á 1.10.7 mín er staðfesta
metið er 1.11.5. og á Rússi það.
Jastremski á hins vegar tíma
1.09.9 sem bíður staðfestingar
sem heimsmet.
Úrslit
í dag
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik karla heldur áfram í dag kl.
3 í Hafnarfirði. Þá keppa Vík-
ingur og ÍR og FH og Fram, og
verður það úrslitaleikur. Vinni
Fram verða þau að keppa aftur,
en FH dugir jafntefli. Á fimmtu-
dag kepptu:
Víkingur — Ármann 21—14.
, Fram — ÍR 22—16.
Stigatala félaganna er þessi:
FH hefur 6 stig. — Fram 4, Ár-
^iann 4, Víkingur 2, ÍR 0 stig.
Um liðin er það að segja, að
Ármann, Víkingur og Fram hafa
leikið jafnbetur í þessu móti en
nokkru sinni áður utanhúss. ÍR
'hefur átt misjafna leiki og hefur
stundum leikið betur undanfarin
ár. FH er með sterkasta móti. Þó
að sumir af landsliðsmönnunum
væru ekki með alla leikina, eru
yngri menn FH í stöðugri fram-
för. Sumir þeirra hafa leikið með
afbrieðum vel í þessu móti.
29 lið berjast um Evrdpu-
bikaríknattspyrnu
Keppnin hafin — lýkur i mai '62
EVRÓPUKEPPNIN er sú keppni,
sem undanfarin ár hefur vakið
hvað mesta athygli knattspyrnu
unnenda um allan heim.
Keppni þessi, sem hófst fyrst
árið 1955, er haldin að tilhlutan
Kanttspyrnusambands Evrópu
(UEFA), en í því sambandi eru
31 land.
Keppnin fyrir timabilið 1961—
’62 er nú í þann mund að hefjast
og ríkir mikill spenningur um
hver sigra muni að þessu sinni.
Þátttakendur í keppni þessari
eru meistaralið í hverju landi,
en í þeim löndum þar sem keppn
istímabilið hefst í ársbyrjun og
lýkur í desember, eru þau lið
valin, sem eru efst þegar fyrri
hluta keppninnar er lokið á vor
in.
Gott dæmi um þetta er i Dan-
mörku, en þar hefst keppnin í
marz og er fyrri hluia lokið í
júní. Síðari hlutinn fer síðan
fram á tímabilinu ágúst—nóv-
ember. Danska liðið B-1913 var
efst að fyrri hlutanum loknum
og var því valið í Evrópukeppn-
ina.
• 28 lönd taka þátt
Evrópukeppnin er úrsláttar-
keppni, en liðin, sem leika sam-
an í hverri umferð, leika tvo
leiki, þ. e. heima og heiman og
gildir markatalan, séu stigin
jöfn.
Að þessu sinni senda 28 lönd
lið til keppninnar og senda Rúss
land, Albanía og ísland ekki lið
til keppni, en Portúgal hefur
rétt á að senda tvö lið að þessu
sinni. Ástæðan fyrir því er sú,
að portúgalska liðið Benfica sigr
aði í keppninni s.l. ár og kemur
það af þeim sökum sjálfkrafa
inn í þá keppni, er nú er að hefj-
ast auk annars portúgalsks liðs.
Um síðustu mánaðarmót var
dregið um hvaða lið skyldu
leika saman í fyrstu umferð,
sem skal verða lokið fyrir 30.
september n.k. Þessi lið leika þá
saman:
• Fyrsta umferff
Legia (Pólland) — Tottenham
(England). G0teborg IFK (Sví-
þjóð) — Feijenoos (Holland).
Vorwárts (A-Þýzkaland) — Lim
field (N-frland). Spora (Luxem-
burg). — B-1913 (Danmörk),
Núrnberg (V-Þýzkaland) —
Drumcondra (S-írland). Liegois
(Belgía). — Fredrikstad (Noreg
ur). Monaco (Frakkland) —
Glasgow Rangers (Skotland).
Servette (Sviss) — Hibernian
(Malta). Panathinaíkos (Grikk-
land) — Juventus (Ítalía).
CDNA (Rúmenía) — Austuria
(Austurríki). Vasas (Ungverja-
land) — Real Madrid (Spánn).
CDNA (Búlgaría) — Dukla
(Tékkslóvakía). Sporting Club
(Portúgal) — Partizan (Júgó-
slavía).
Þrjú lönd sitja yfir í þessari
umferð, en þau eru Benfica
(Portúgal), Valkeakosken (Finn
land) og Besiktas (Tyrkland).
Úr fyrstu umferð koma 13 lönd
og bætast þá þau þrjú er yfir
sitja í hópinn.
Reiknað er með að úrslitaleik-
urinn fari fram í maí 1962 í
Amsterdam.
ÞETTA er hópurinn sem
tók þátt í námskeiðinu að
Núpi í Dýrafirði. Yzt til
hægri í aftari röð eru
kennararnir, Valdimar Örn
ólfsson og Sigurður Guff-
mundsson, íþróttakennari
aff Núpi.
• Strangar reglur
Reglur í keppni þessari eru
mjög strangar t. d. getur fram-
kvæmdarnefndin ákveðið leik-
daga og keppnisstaði ef viðkom
andi lönd eiga erfitt með að
koma sér saman.
Fyrirfram ákveðnum leik verð
ur ekki frestað nema landsleikur
viðkomandi lands hindri. Eigi
lið í erfiðleikum með að fá vega-
bréfsáritun þá er því lði er heim
sækja á vikið úr keppninni. Kom
þetta t. d. fyrir í síðustu keppni
þegar A-Þýzkum leikmönnum
var meinað um vegabréfsáritun
til N-frlands. frska liðinu var
vikið úr keppninni. Nú vill svo
einkennilega til að A-Þýzkl lið
og lið frá N-írlandi eiga að leika
saman í 1. umferð! Hefur því
verið ákveðið annar leikurinn
fari fram í hlutlausu landi.
Ekki er hægt að neita því að
gaman væri að vita af íslenzku
liði í keppni þessari og er von-
andi að ekki verði þess langt að
bíða. )
Á MÁNUDAGINN hefst í
Ósló Norffurlandamót í
frjálsum íþróttum. — Til
mótsins sendir Island sex
keppendur. Verffur þaff án
efa fámennasti hópurinn á
mótinu, en hann er skipaff-
ur harðsnúnum mönnum,
sem líklegir eru til afreka
og jafnvel meistaratitla. —
Sveinn Þormóffsson tók
þessa mynd af piltunum
sem keppa fyrir fslands
hönd á mótinu. Þeir eru
frá vinstri Kristleifur Guff
björnsson sem keppir i
hindrunarhlaupi, Björgvin
Hólm sem keppir í tug-
þraut, Vilhjálmur Einars-
son sem keppir í þrí-
stökki, og Jón Þ. Ólafs-
son sem keppir í hástökki.
Aff baki þeim situr Bene-
dikt Jakobsson, sem er
þjálfari og fararstjóri pilt-
anna.