Morgunblaðið - 08.09.1961, Blaðsíða 1
24 SlUUr
48. árgangur
202. tbl. — Föstudagur 8. september 1961
Prentsmiðja 'dorgunblaðsins
Táragas í Beriín
Berlín, 7. sept. — (Reuter) —
L.ÖGREGLAN í Vestur-Ber-
lín skýrði frá því í dag að
austur-þýzka lögreglan hafi í
gærkveldi varpað táragas-
sprengjum og sprautað vatni
a Vestur-Berlínarbúa á nokkr
um stöðum við landamærin
í borginni.
I>á hafa kommúnistar sett upp
griðarstórt auglýsingaspjald á
ibökkum Teltow-skurðarins þar
sem heitið er 10.000,00 marka
(108 þús kr.) verðlaunum fyrir
handtöku Willy Brandts borg-
arstjóra. Spjald þetta er beint
andspænis öðru spjaldi vestan
megin, þar sem heitið er sömu
verðlaunum fyrir upplýsingar, er
leitt geti til handtöku austur-
þýzka landamæravarðarins sem
skaut til bana flóttamann, sem
var að reyna að synda yfir skurð
inn til Vestur-Berlínar fyrir 10
dögum.
4 Sprengjur og vatn
Á einum stað við landamærin
fleygðu austur-þýzkir landamæra
verðir þrem reyksprengjum á
blaðsölutorg á vestursvæðinu til
að dreifa mannfjölda sem þar.
hafði safnast saman. Brunalið og
lögregla Vestur-Berlínar voru
kvödd á vettvang, og handtók lög
reglan þrjá menn fyrir að egna
til óspekta. Þá varpaði austur-
þýzka lögreglan táragas-sprengj-
um á um 100 Austur-Berlínar-
búa, sem safnazt höfðu saman um
50 metrum frá landamærunum
til að veifa til kunningja og ætt-
ingja fyrir vestan. Mannfjöld-
inn svaraði með því að gera óp
að lögreglumönnunum og kasta
steinum.
Á þrem öðrum stöðum við
landamærin vörpuðu austur-
þýzkir lögreglumenn alls sjö tára
gassprengjum á hópa Vestur-
Berlínarbúa og sprautuðu á þá
vatni með aflmiklum slökkviliðs-
dælum.
Krúsjeff of skynsamur
til oð hefja kjarnorkusfyrjöld,
segir Adenauer
Nehra ræðir
við Krúsjeíf
Moskva, 7. sept
(NTB-Reuter)
NITKITA Krúsjeff forsætisráð-
herra Sovétríkjanna og Jawa-
harlal Nehru forsætisráðherra
Indlands áttu í dag stunda
viðræður í Moskvu. Samkvæmt
upplýsingum talsmans Nehrus,
ræddu þeir ýms vandamál heims-
ins, þar á meðal Þýzkalands og
Berlínarmálin og tilraúnir með
kjarnorkusprengjur.
Ekkert hefur verið látið uppi
um það hvernig Krúsjeff tók
tilmælum þeim frá Belgradráð-
Stefnunni að hann og Kennedy
forseti hittist til að fyrirbyggja
nýja styrjöld.
Grasfrœ
Londön, 7. sept. (Reuter)
BREZKT fyrirtæki, sem verzl-
ar með grasfræ, tilkynnti í dag að
það hefði ræktað nýja tegund
fræs, sem mundi vaxa 50—100%
hraðar en venjulegt gras.
Bonn, 7. sept. — (NTB-Reuter)
LAURIS Norstad hershöfð-
ingi, yfirmaður herafla At-
lantshafsbandalagsins í Ev-
rópu, átti í dag hálfs annars
tíma fund með Adenauer
kanzlara Vestur-Þýzkalands
og Franz-Josef Strauss varn-
armálaráðherra í Bonn.
Að fundinum loknum hélt
Norstad strax aftur til París-
ar, en Adenauer snæddi há-
degisverð með fréttamönnum
og svaraði þar ýmsum spurn-
ingum þeirra.
ÁFRAM I HERNUM
Sagði Adenauer að ríkisstjórn
in hefði í huga að framlengja
herskyldutíma 36.000 vestur-
þýzkra hermanna, sem áttu að
fá lausn úr herþjónustu seinna
í þessum mánuði. Tólf mánaða
herskylda er í Vestur-Þýzka-
landi og hefur verið rætt um
að auka hana. Aðspurður sagði
Adenauer að lagabreytingar
þyrfti til að lengja herskylduna.
Hann sagði að efri deild þings-
ins kæmi hins vegar saman til
fundar á morgun til að ræða
heimild fyrir ríkisstjórnina til
að kalla í herinn ýmsa sérfræð-
inga á aldrinum 18—60 ára á
hættutímum.
KRÚSJEFF OF SKYNSAMUR ...
Adenauer ítrekaði fyrri um-
mæli sín um að ekki kæmi til
styrjaldar út af Berlín. Varhann
beðinn að gefa frekari skýring-
ar á þessum ummælum, og sagði
þá að hann teldi Krúsjeff of
skynsaman til að hefja kjarn-
orkustyrjöld. Bætti hann því við
að enginn maður vildi hefja
styrjöld, sem einnig tortímdi
Breytt viðhorf
Portsmouth, Englandi,
7. sept. (NTB-Reuter)
Á ÞINGI brezku verkalýðsfélag-
anna, (T.U.C.) sem haldið er í
Goulart tekinn við
BrasíHa, 7. sept. (NTB-Reuter)
JOAO GOULART tók í dag
við forsetaembætti í Brasilíu
við liátíðlega athöfn. Er þar
með lokið ellefu daga stjórn-
arkrcppu í landinu, sem hófst
þegar Janio Quadros fyrr-
verandi forseti sagði óvænt
af sér og sigldi af landi burt.
Allt þar til hátíðahöldin hófust
ríkti mikil spenna í Brasilíu og
kom jafnvel til mála að fresta
embættistökunni, því ekki hafði
tekizt að skipa fyrsta forsætis-
ráðherra landsins. En hingað til
hefur forseti Brasilíu farið með
vöid forsætisráðherra, og var
stjórnarskránni breytt fyrir em-
bættistöku Goularts. Samkvæmt
þeim breytingum er mjög dregið
úr völdum forsetans og þau flutt
í hendu rríkisstjórnar. sem er
ábyrg gagnvart þinginu.
í ræðu, sem Goulart hélt við
embættistökuna, sagði hann að
hin nýja stjórn Brasilíu befði það
efst í huga að tryggja efnahag
landsins og að berjast gegn fá-
tækt og vanþróun.
Portsmouth, samþykktu fulltrú-
arnir í dag að styðja varnarmála-
stefnu Hugh Gaitskells leiðtoga
Verkamannaflokksins. Stefna
Gaitskells, sem nú hlaut hrein-
an meirihluta, er í aðalatriðum
sú að Vesturveldunum heri að
halda kjarnorkuvopnum sínum
meðan Sovétríkin gera það.
Þingið harmar það að Sovét-
ríkin skuli hafa tekið upp að
nýju tilraunir með kjarnorku-
vopn og skorar á Krúsjeff for-
sætisráðherra að stöðva þær.
Þá samþykkti þingið með naum
um meirihluta mótmæli gegn þvi
að vestur-þýzkir hermenn væru
við æfingar í Bretlandi. Þingið
sitja 1.000 fulltrúar frá 183 verka
lýðsfélögum, en í félögum þess-
um eru um 8 milljónir verka-
manna.
Á þingi verkalýðsfélaganna í
fyrra var stefna Gaitskells í
minnihluta og vildu þá fulltrú-
arnir að Bretar afsöluðu sér kjarn
orkuvopnum.
honum sjálfum. Þetta hindraði
að vísu ekki að styrjöld brytist
út vegna mistaka, en hin ótta-
legu vopn nútímans hafa leitt
til þess að mennirnir, sem
stjórna þeim, eru sérstaklega
aðgætnir.
t gær hófst hér í Reykjavík ,
ráðstefna yfirmanna viðskiptal
deilda utanríkisráðuneytarma I
á Norðurlöndunum. Fjallari
ráðstefna þessi um viðskipta-j
mál Norðurlandanna almennt, ]
en stærsta mál hennar aðj
þessu sinni verður sjálfsagt af (
staða Norðurlandana til mark- j
aðsbandalaganna í Evrópu og)
þá einkum Efnahagsbandalagt ]
ins. Ráðstefnunni lýkur ij
kvöld. — Mynd þessa tók ljós- ]
myndari Mbl. KM á fundi'
hennar í gærdag.
Utanrikisráðherrafundur i
Reykjavík næsta vor
Kaupm.höfn, 7. sept. — (NTB)
RÁÐSTEFNU utanríkisráð-
herra Norðurlandanna laukí
Kaupmannahöfn í dag. —
Ákveðið var að næsta ráð-
stefna verði haldin í Reykja-
vík næsta vor. í fundarlok í
dag gáfu ráðherramir út
sameiginlega yfirlýsingu þar
sem þeir harma það að til-
raunir með kjarnorkusprengj
ur eru hafnar að nýju eftir
nærri þriggja ára hlé. Segja
ráðherrarnir að aldrei fyrr
hafi verið jafn mikil þörf
fyrir raunhæfar viðræður
um almenna afvopnun.
í tilkynningunni segir m. a.:
• Skylda smáríkjanna
í viðræðunum um afvopnunar-
málin voru allir sammála um að
eins og ástandið er í heiminum
í dag væri meiri ástæða en nokk-
urntíma fyrr að koma af stað
raunhæfum viðræðum um al-
menna afvopnun undir virku eft-
irliti. Það varðar jafnt fi'am-
tíð smáríkjanna og stórveldanna
að dregið verði úr spennunni og
afvopnun hafin. Smárikjunum
ber skylda til að þessum mél-
um verði haldið vakandi og að
komið verði á viðræðum og samn
ingum. Utanríkisráðherrarnir
vona að þær viðræður, sem enn
fara fram um þessi mál, muni
leiða til þess að umræðurnar á
16. Allsherjarþingi SÞ beri já-
kvæðan árangur. Utanríkisráð-
herrarnir eru einhuga í að lýsa
harmi sínum yfir því að kjarn-
orkutilraunir eru hafnar að nýju
eftir nærri þriggja ára hlé. Þeir
telja ástæðu til að leggja áhe^lu
á nauðsyn þess að kjarnorkuveld
in nái sem fyrst samningu-m um
að hætta tilraunum og hvetja ein
dregið til þess að viðræðum verði
tafarlaust haldið áfram með þetta
fyrir augum. Utanríkisráðherrarn
ir leggja ennfremur áherzlu á
að æskilegt sé að leysa vandamál-
ið varðandi inntöku Kína í Sam-
einuðu þjóðirnar.
• Fundur í Reykjavík
Varðandi Kongó segjast ráð-
herrarnir hafa rætt um þá stað-
festu sem komin er á stjórnmála-
líf landsins eftir að þingræðis-
stjórn tók þar við völdum. Þetta
er veigamikið spor í þeirri stefnu
sem SÞ ákváðu varðandi Kongó.
Utanríkisráðherrarnir urðu sam-
mála um að styðja framboð
danska stjórnmálamannsins Her-
mod Lannung sem formanns
Framh. á bls. 23
Skýring
Krúsjeffs
MOSKVA, 6. sept. (NTB —
Reuter). — Á sunnudag hefst
í Bandaríkjunum ráðstefna
vísindamanna víða að og sendi
Krúsjeff forsætisráðherra ráð
stefnunni kveðju sína í dag.
1 orðsendingunni segir Krú
sjeff að Sovjetríkin hafi með
miklum söknuði og harmi á
kveðið að hefja að nýju kjarn
orkutilraunir. En hann kvaðst
jafnframt vona og trúa því að
þessi ákvörðun yrði til þess
unnt væri að koma í veg fyrir
nýja heimsstyrjöld.
i