Morgunblaðið - 08.09.1961, Qupperneq 3
Fðstudagur 8. sept. 1961
MORCVNBLAÐ1Ð
3
:.;;v • •••
STRÁKARNIR við Réttarholts
veginn voru að ljúka við stökk
gryfjuna, en voru búnir að
reisa stengui'nar. Þær voru 2
m. á hæð, og naglar reknir í
þær með 5 cm. millibili. Þver-
slána vantar enn, svo þeir
nota bara band, þegar þeir
stökkva hástökk.
— Stekkur nokkur ykkar
tvo metra?
— Já, flestir.
— f langstökki?
— Nei, hástökki.
— Látið okkur sjá.
— Nei, við .stökkum tvo
metra í stangarstökki.
— Hvar er stöngin?
Sverrir Jensson var bezt vaxinn til stökks, hár og grannur ogorðinn 12 ára. (Ljósm. Mbl. km'
í
„Eg er bara rangeygöur"
— Við ætlum niður í bæ á
eftir og kaupa hana og þver-
slána.
— Hafið þið félag?
— Já, það heitir Geysir. Það
er eiginlega fótboltafélagið
okkar, en við notum bara
sama nafnið.
— Hvað eruð þið margir?
— Svona tólf. Allir úr sömu
— Jú, marga leiki, en við feit
töpuðum oftast. . . .
— Hvers vegna?
— Það er Matta að kenna,
sagði einn þeirra.
— Mér? hváði Matti.
— Já, þú ert sjálfsmarkari.
— Hann er alltaf að góna á
Möttu, þegar hann á að ver'a.
— Hver er Matta?
og ekki heldur Stína
og
M?’ias Sveinn (Matti) og Rúnar Björgvinsson vor’ dug-
Zegir að moka. (Ljósm. Mbl.: km).
blokkinni. SvO eru aðrir með
aðra velli.
— Hvenær byrjuðuð þið?
— Snemma í sumar. Við
byrjuðum á fótboltavellinum
þarna. Svo komu einhver
hrekkjusvín og skáru með
hnífum inn í stengurnar, svo
þær féllu í næsta roki.
— Voruð þið ekkert búnir
að keppa áður?
— Hún er skotin í honum.
— En ég er ekkert skotinn
í henni, sagði Matti.
— Hvers vegna ertu þá allt-
af að horfa á hana? sagði einn
strákanna.
— Eg er bara rangeygður.
■— Er hún feit.
-—Nei, hann hefur nú betri
smekk en það, sagði einn strák
urinn, en Ella er heldur ekki
— Þú lýgur, öskraði Matti.
— Eru þær kannski feitar?
■—Nei, en ég ekkert skotinn
í stelpum.
— Hvers vegna ekki?
— Þær eru svo vitlausar.
—Þær geta verið laglegar
samt.
— Já, en . . .
— Taka þær aldrei þátt í
frjálsum íþróttum með ykkur?
— Nei, þær geta ekkert.
— En hafa gaman af að
‘horfa á?
— Já, á fótboltaleiki.
— Ætlið þið ekki að reisa
stengurnar aftur?
— Löggan kom um daginn
og sagði, að þetta væri ekki
góður staður, því þetta er
alveg við veginn. Það hefur
líka oft komið fyrir, að bílar
hafi ekið yfir boltann.
— Strætó?
— Nei, þeir stoppa alltaf,
það eru helzt trukkarnir. Einn
ætlaði einu sinni að lyfta hjól
unum, en varð of seinn og ók
yfir boltann. Við fáum
kannski grasvöll einhvers stað
ar, sagði Löggan.
— Þá skuluð þið láta Möttu
standa í marki andstæðing-
anna og láta Matta leika fram-
vörð.
— Já, þá vinnum við örugg-
lega.
— Það er ekki víst, að ég
verði með, sagði Matti, ég er
orðinn þrettán ára.
— Hafið þið aldurstak-
mark?
— Já, eiginlega. Bóbó er til
dæmis hættur. Hann var enn
verri en Matti.
Tvær stúlkur á reiðhjólum
bar að. Kannski var önnur
þeirra Matta, því Matti varð
eitthvað svo kindarlegur á
svipinn, en hinir strákarnir lét
ust ekki sjá þær, og fóru að
stökkva hástökk. Þær stungu
saman nefjum.
— Hvernig lízt ykkur á þá?,
stelpur.
— Þetta eru aumingjar,
sögðu þær.
En það er ekkert að marka,
því kvenfólk segir víst ekki
það, sem það meinar, og mein-
ar ekki það, sem það segir.
Og strákarnir héldu áfram
að stökkva Og gutu augunum
til stelpnanna, þegar þeim
tókst vel upp, en litu ekki á
þær, ef illa gekk.
Þeir voru orðnir kófsveittir.
Bergmál frá Moskvu
Austur-Berlín, 7. sept. (Reuter)
AUSTUR-ÞÝZKA dagblaðið
Neues Deutschland vitnaði í
dag í grein eftir bandaríska
blaðamanninn Joseph Alsop
sem sönnun þess að mótmæli
Vesturveldanna gegn ákvörð-
un Rússa um að hefja að
nýju tilraunir með kjarn-
orkuvopn hafi frá upphafi
verið „viðbjóðsleg hræsni“.
Hvorki Neues Deutschland
né önnur dagblöð í Austur-
Þýzkalandi hafa minnzt einu
orði á það að Rússar hafi
þegar hafið tilraunirnar.
Neues Deutschland segir að
Alsop hafi ritað grein, sem birt-
ist í New York Herald Tribune
degi áður en Kennedy forseti
tilkynnti að Bandaríkin muni
einnig hefja tilraunir með kjarn
orkusprengiur. í ereininni seeir
Alsop að Kennedy hafi tekið
þessa ákvörðun áður en tilkynn-
ing Rússa var birt.
„Þetta sannar að stjórnend-
umir í Banndaríkjunum höfðu
þegar ákveðið að hefja kjarn-
orkuvopnakapphlaup, meðan
Sovétríkin voru þolinmóð og eft-
irgefanleg í Genf að reyna að ná
samningum um að hætta öllum
tilraunum með kjamorkuvopn.“
Þá segir blaðið ennfremur: —
Bandaríkin hörmuðu alls ekki
tilkynningu Sovétríkjanna, helc.
ur þvert á móti tóku henni feg-
ins hendi sem ástæðu til að geta
siálfir hafið tilrannir
ouaitarnir byrjuóu á ein-
um ínetra, en hækkuðu brátt
upp í 1,17.
(Ljósm. Mbl.: km)
SMSTEIMR
Eymdin á Akureyri
í blaði Sjálfstæðismanna á
Akureyri, íslendingi, er m. a. kom
izt að orði á þessa leið sl. föstu-
dag:
„í Þjóðviljanum sl. fimmtudag
(24. ágúst) er birt viðtal við tvo
verkalýðsleiðtoga á Akureyri, þar
sem lýst er eymdarástandi í at-
vinnumálum bæjarins. Báðum
ber þessum verkalýðsfrömuðum
saman um, samkvæmt óskhyggju
Þjóðviljans, að hreint eymdar-
ástand ríki á Akureyri í atvinnu-
málum vegna aðgerða núverandi
ríkisstjórnar. Trésmiðir og húsa-
smiðir, sem aldrei hafa haft tíma
til að sinna verkbeiðnum lieima
hjá sér, hafi farið hópum saman
á sild í sumar. Við skulum vona
að þeir verði tilkippilegir í haust,
þegar íeitað verður til þeirra, ef
síldargioðinn er þá ekki svo mik-
ill að skattskýrslan þoli ekki. Svo
mikið er víst, að á meðan ein-
stakir húseigendur hér í bæ, sem
byggja á breytingar eða viðgerð-
ir á húsum sínum, fá engan tré-
smið eða húsasmið vegna ann-
ríkis þeirra, segja Björn og
Tryggvi að þeir búist við að fá
meira út úr síldinni. ef hún veið-
ist. Þeir Björn og Tryggvi um
það, hvort eymdin í atvinnumál-
um Akureyrar er sú, er þeir lýsa
að ósk Þjóðviljans."
Fréttaflutningur
í Sovét
Þegar þetta er ritað, hafa hvorki
blöð né útvarp í Sovétríkjunum
sagt rússnesku þjóðinni frá því,
að Rússar séu byrjaðir að
sprengja kjarnorkusprengjur.
Hinsvegar hef-
ur útvarpið í
Moskvu býsnast
yfir því, að
Bandaríkjamenn
séu byrjaðir að
sprengja neðan-
jarðar!
Þetta er nú
fréttaflutningur
í lagi. Almenn-
ingur í Rússlandi
fær ekkert um
það að frétta, að
valdhafar Sovét-
ríkjanna hafa
tekið þá ákvörð-
un að rjúfa samkomulagið um
bann við kjarnorkutilraunum.
Því er haldið vandlega leyndu.
Þegar svo hinvegar Bandaríkja-
menn svara kjarnorkusprenging-
um Rússa í gufuhvolfinu með því
að ákveða sprengingar neðanjarð
ar, þá er rússneska þjóðin látin
halda að það séu Bandaríkja-
menn, sem séu að hefja kjarn-^.
orkusprengingar!!
Þannig hafa kommúnistar jafn-
an endaskipti á hlutunum. Þeir
segja svart hvítt og hvítt svart.
Hér heima á íslandi reynir 5.
herdeild kommúnista einnig í
lengstu lög að breiða yfir þá
staðreynd, að Rússar hafi orðið
fyrstir til þess að hefja kjarn-
orkusprengingar að nýju.
Átök innan Framsóknar
Ágreiningur um afstöðuna til
utanríkis- og öryggismála verður
stöðugt djúptækari innan Fram-
sóknarflokksins. Leiðtogar flokks
ins vilja halda áfram dekrinu við
kommúnista og treysta sem meat
bandalagið við þá, en yngri menn
flokksins telja slíkt atferli glap-
ræði. Mikill meirihluti yngri
manna í Framsóknarflokknum að
hyllist eindregið vestræna sam-
vinnu og þá stefnu í utanríkis- og
öryggismálum, sem lýðræðis-
flokkarnir í landinu hafa sam-
eiginlega markað á undanförnum
árum. Hermann, Eysteinn og
Þórarinn hvetja hinsvegar flokks
menn sína til þess að skrifa upp
á Moskvuvíxilinn og styðja
kommúnista í hverskonar mold-
vörpustarfí