Morgunblaðið - 08.09.1961, Síða 10
10
MORGUTSBLAÐIÐ
Föstudagur 8. sept. 1961
Viðskiptaskráin
1961 komin út
Fly/ur ýmsar nýjungar til báta
'ÚTKOMA Viðskiptaskrárinnar
er árlegur viðburður í viðskipta-
lífi landsins. Þessi bók er nú
orðin flestum svo kunn, að ó-
þarfi er að lý-sa henni nákvaem-
lega, nema að því leyti sem hún
ihefur breytzt frá fyrra ári.
Auk breytinga og viðbóta, sem
eiga rætur sínar að rekja til
breytinga og /axtar í viðskipta-
lífinu í landinu, eru nokkrar
liýjungar í bókinni, eins og frá
er greint í formála hennar.
Helztar þeirra eru þessar: Nýr
ttppdráttur af Reykjavík í fjór-
ttm litum, nýjar loftmyndir af
ísafirði og Akureyri með áteikn-
ttðu vegakerfi, fasteignamat
Kópavogs, og söguágrip allra
kaupstaða á landinu, þar sem
greint er frá helztu þáttum í
jþróunansögu þeirra, hvenær
íyrst er getið um byggð, hvenær
þéttbýli tekur að myndast, hve-
nær þeir fá kaupstaðaréttindi og
helztu áföngum í atvinnu- og
félagslífi þeirra.
Allar þessar viðbætur hafa
orðið til þess, að bókin hefur
■lengzt um 40 bls., og með tilliti
til þess hve brctið á henni er
Mognir
óþurrkar
HÚSAVÍK, 5. sept. Rigning í gær
Og rigning í dag, sama óþurrka-
tíðin og verið hefur. Fer nú víða
að líta illa út, ef ekki bregður til
þurrka, áður en haustannir hefj
ast, göngur og réttir, og síðan
sláturtíð. Erfitt getur þá orðið að
fá fólk í sláurhússvinnu, ef hey
önnum er ekki lokið. Hér í ná-
grenninu held ég að ástandið sé
einna verst í Kelduhverfi, því að
hjá sumum bændum þar er enn
mikið úti af fyrri slætti, og seinni
sláttur að mestu. — Fréttaritari.
stórt og letur smátt og þétt, má
ætla að lengingin jafnist á við
meðalbók.
í kaflanum „Atvinnulíf á ís-
landi“, sem er að mestu leyti
nýr á hverju ári, eru upplýsing-
ar um íbúatölu landsmanna og
skiptingu þeirra eftir atvinnu-
greinum, framleiðslu landbúnað-
ar- og sjávarafurða og helztu
iðnaðarvara, útflutning lands-
manna, búfjáreign, jarðargróða,
skipastól o. fl.
Útgefandi Viðskiptaskrárinnar
er Steindórsprent hf., en rit-
stjórn annast Gísli Ólafsson.
af kðldu
stáli
Úlfur Ragnarsson, læknir,
hefur sent Morgunblaðinu
þessa mynd og meðfylgjandi
ljóð. Bendir hann á að ástæða
sé til að mynd þessi komi fyr-
ir almennings sjónir þessa
dagana.
Sjá hér í myndamáli
mannsbörnin þín.
Geisladýrð gervitungla
glepur þér sýn.
Hermanna harðar grímur
horfa á lítinn dreng.
Fingratök föðurástar
finna þar brostinn streng.
P>M»Mtt»tti^ttM>Mtt<ttttA
Brosmildi blíðrar móðui
barn hlaut í vöggugjöf.
Kysstur af köldu stáli
kafnar í fjöldagröf.
Kærleikslaus kuldafræði
krefja sitt gjald.
Illt vex af illu sæði
Belsen og Buchenwald.
honur sem hafa fætt stór börn, er
hættara vii) sykursýki en öðrum
Menn hefur lengi grun-
Fegursti garðurinn í Keflavík
AÐ TILHLUTAN fegrunarnefnd
ar Keflavíkurbæjar, hefur þar til
Skipuð dómnefnd valið fallegasta
garð ársins 1961 og varð að þessu
sinni valinn garðurinn við Smára
tún 40, og eru eigendur hans þau
hjónin Trausti Björnsson og Ás-
laug Hilmarsdóttir. Dómnefndin
gerir þá grein fyrir vali sínu, að
þó garðurinn sé ungur að árum
©g trjágróður skammt á veg kom
inn, þá sé skipulag allt, miðað við
framtíðar þroska mjög gott og
gæti þar þekkingar á fyrirkomu-
lagi, sem síðar verði til að gera
garðinn sérkennilegan þegar trjá
gróður nær meiri þroska. Blóma-
val er mjög fjölbreytt og raðað
niður af þekkingu á stærð og iita-
vali, en eigendur töldu að það
stæði enn til bóta eftir reyi.slu
þessa sumars. Hirðing og snyrt-
ing garðsins var með afbrigðum
góð, ekkert rusl eða skran „á bak
við hús“ eða annarsstaðar og gras
flatir og kantar í beztu hirðu.
Dómnefnd sagði að það væru
mörg viðhorf sem réði ákvörðun
þeirra og vissulega ættu þau allt
eins við unga garða, því aldur
og hæð trjágróðurs væri aðeins
eitt af þeim atriðum, sem tillit
bæri að taka til. Þekking frum-
leiki og hirðing væri þungt á
metaskálunum.
Trausti Björnsson og Áslaug
Hilmarsdóttir hafa unnið sjálf að
mestu leyti við byggingu garðsins
og telja þau að fyrirhöfn og kostn
aður sé vel launað þegar blóma-
skrúðið angar og hægt er að sjá
vöxt og þroska trjáa og runna.
Verðlaunin sem garðurinn hlýt
ur er sérkennileur steinn, sem á
er festur koparskjöldur, sem
greinir frá ári því er garðurinn
hlaut verðlaun og verður steinin
um komið fyrir í garðinum þar
sem eigendur velja honum stað.
Fegursti garðurinn hefur ver-
ið valinn í Keflavík síðan 1958, þá
hlaut verðlaunin garðurinn við
Smáratún 3 ,eign Magnúsar Sig
urbergssonar, 1959 garður Ingi-
mundar Jónssonar Kirkjuvegi 22
og 1960 garður Guðjóns Klemens
sonar við Vesturbraut 7.
Hinir ötulu og smekkvísu garð
eigendur í Keflavík hafa nú fyr
ir löngu afsannað gamla vantrú,
að engin fagur gróður gæti vax
ið í Keflavík, en eins og nú horf
ir þá getur bærinn orðið „grænn“
innan fárra ára. — Norðan næð-
ingurinn svolítið blandaður sjó
roki á stundum, er slæmur fyrir
veikbyggðan gróður, en versti ó
vinurinn eru sauðkindurnar, sem
nábúarnir beita á lóðir og garða
í Keflavík. Bærinn hefur varið
tugum þúsunda til þess að girða
bæjarlandið af, og koma upp
vegahliðum, en ekkert virðist
halda sauðfénu frá, enda ekki um
neitt beitiland að ræða nema hina
ræktuðu bletti, þetta hefur þær
afleiðingar að hver sem vill halda
garði sínum i friði verður að víg
að, að konum, sem átt hafa
stór börn sé hættara við
sykursýki en öðrum. Þessi
grunur hefur nú sannazt.
Rannsókn var gerð á konum
í Birm.ngham, sem átt höfðu
börn yfir 10% pund að þyngd
fyrir þrettán árum. Þriðjung-
ur allra þessara kvenna hafði
sykursýki eða sýndu merki
um sykursýki á byrjunarstigi.
Af þeim, sem voru yfir 45
ára aldur gaf meira en helm-
ingur jákvæð merki, svo að
álykta má, að talsverður hluti
hinna eigi eftir að fá veikina.
bæði sjúkra og heilbrigðra
voru mjög feitar, og rúmur
þriðjungur hinna heilbrigðu
áttu ættingja með sykursýkL
Flestar kvenna þessara
höfðu átt mörg börn, 55 ai
hundraði áttu sjö eða fleiri.
Ekki er að svo komnu máli
hægt að segja um, hvort syk-
ursýkin var afleiðing a. að
hafa gengið með stór börn,
eða öfugt.
Einnig hefur komið í ljós,
að börn sykursjúkra feðra
eru færri og stærri en heil-
brigðra manna.
girða hann með miklum kostnaði
og oft til lítillar prýði.
Dómnefnd um fegursta garð’' n
skipa þau Jóhann Pétursson,
klæðskeri, Guðmundur Guðjóns
forstjóri, Erna Vigfúsdóttir frú og
Kristinn Reyr skáld.
Þeim Áslaugu og Trausta
Björnssyni á Smáratúni 40 er
óskað til hamingju með fegursta
garðinn 1961. —hsj—•