Morgunblaðið - 21.09.1961, Side 1
24 sfður
Mongi Slim forseti
aiisherjarþingsins
Frá Sameinuöu. þjóöunum,
New York, 20. september.
(AP — NTB — Reuter)
Á FUNDI allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna í dag
fór fram kjör forseta þings-
ins og varð fyrir valinu
Mongi Slim frá Túnis, er var
einróma kjörinn.
Mongi Slim hlaut 96 atkvæði,
tvö ríki sátu hjá — Frakkar og
ísrael, sökum þess að miðviku-
dagurinn er helgidagur með Gyð
ingum. Upphaflega var annar
frambjóðandi til kjörsins, Indó-
nesíumaðurinn Ali Sastroamid-
jojo, en hann dró sig í hlé og
ihvatti þingið til þess að veita
Slim einróma kosningu, því mik-
ið væri nú í húfi að samstaða
með þjóðum á allsherjarþinginu
væri sem mest.
— ★ —
Slim hélt ræðu að loknu forseta
kjöri og sagði m. a.: að fulltrúar
á þinginu hefðu enn ekki náð
sér eftir áfallið, sem fregnin af
fráfalli Hammarskjölds varð
þeim. Sagði hann erfiðleikum
bundið fyrir sig, að setjasf í fbr-
setastólinn við hliðina á auðu
sæti Hammarskjölds. — Hamm-
arskjöld féll á verðinum, sagði
Slim — og ég mun leitast við að
gera skyldur mínar sem forseti
þessa þings í hans anda. Kvaðst
Slim mundu reyna að stjórna
þinginu með sömu þolinmæði og
hlutleysi sem fyrirrennari hans
Boland.
Slim ræddi ýmis mál, er vænt
enlega yrðu á dagskrá þessa
þings. Hann vottaði hollustu sína
þeim liðsmönnum S.Þ. er inntu
af hendi erfið störf í Kongó og
Slim lýsti því yfir, að nú yrði að
binda endi á kynþáttahatur í
heiminum.
Rætt hefur verið um að Slim
yrði jafnframt falið að aðstoða
við framkvæmdastjórn samtak-
anna. — (Sjá nánar um Slim í
ramma á bls. 4).
Formenn stjórnmálanefnda
voru kjörnir beir Mario Amadeo
frá Argentínu og Jordan Tsjoba-
nov, frá Búlgaríu. Formaður efna
'hags- og fjármálanefndar var
kjörinn ítalinn Brasco Lanza d’
Ajeta og formaður þjóðfélags
nefndar Salvador Lopez frá Fil-
Kommar reknir
úr flokknum
MOSKVU, 19. sept. — Það kom
fram hér í gær, að ýmsir hátt
settir embættismenn kommún-
istaflokksins og stjórnarinnar í
Turkmenistan hafa að undan-
fömu verið reknir úr flokknum
og frá störfum sínum „fyrir
ýmiss konar yfirsjónir“.
Samkvæmt blaðinu „Turk-
menskaya Iskra“, sem berst til
Moskvu í gær, eru yfirdómari
við æðsta dómstólinn, Saparov
að nafni, og Igdirov, innanrík-
isráðherra Turkmenistan, meðal
þeirra, sem vikið hefir verið
til hliðar. — Áður hafði aðal-
ritari deildar kommúnistaflokks
ins í Turkmenistan upplýst, að
sl. fjögur ár hefðu 327 meðlimir
flokksdeildarinnar verið reknir.
ippseyjum. Formaður eftirlits-
nefndar var kjörin kona í
fyrsta sinn, ungfrú Angie Brooks
frá Líberíu. Hermod Lannung frá
Danmörku varð formaður fram-
kvæmda og fjárhagsnefndar og
Cesar Quintero frá Panama for-
maður laganefndar.
Aðeins einn frambjóðandi var
fyrir hverja formannsstöðu og fór
kjör þeirra fram með lófa klappi.
★ Kennedy ávarpar þingið
en Krúsjeff ekki *
Haft er eftir sovézkum heim-
ildum, að Krúsjeff muni ekki
koma til allsherjarþingsins —
hann eigi alls ekki heimangegnt
vegna anna við undirbúning
flokksþingsins 1 október. Hins
vegar hefur fyrr verið tilkynnt,
að Kennedy muni ávarpa þingið,
sennilega í byrjun næstu viku.
14. spreng-
ingin
Washington, 20. sept.
(AP-NTB—Reuter)
Rússar sprengdu í dag 14. kjam-
orkusprengjuna síðan um mánaða
mót að þeir hófu að nýju slíkar
tilraunir. Tilkynning um þetta
barst frá Kjamorkunefnd Banda-
ríkjanna og segir þar, að sprengj
an hafi samsvarað einni milljón
lesta af TNT sprengiefni. Tilraun
in fór fram við Novja Semlja.
Mynd þessi var tekin við afhjúpun styttu Ingólft Amarsonar í Hrífudal. Yzt til vinstri sést
Bjarni Berrediktsson forsætisráðherra (Telefoto).
Samiö verði um aigera afvopnun
undir sterku eftirliti
og friðsamlegar lyktir deilumála
i # \
j Bandar'ikjamenn og Rússar leggja \
\ i sameiningu fram yfirlýsingu um j
j grundvallaratriði frekari j
\ afvopnunarviðræðna
New York, 20. sept. — (AP) —
BANDARÍKIN og Sovétrík-
in hafa gefið út sameigin-
lega yfirlýsingu um grund-
vallaratriði, sem hyggja skuli
á frekari alþjóðlegar viðræð-
ur um afvopnunarmál. Yfir-
lýsing ríkjanna tveggja, sem
er framhald samkomulags
þeirra er boðað var allsherj-
arþingi SI» 30. marz sl., er
í 8 liðum og kveður svo á,
að öll ríki leggist á eitt um
að leysa dcilumál í framtíð-
inni á friðsamlegan hátt
skuli unnið stig af stigi að
algerri afvopnun undir al-
þjóðlegu eftirliti.
Stjórnmálamenn telja yfirlýs-
ingu þessa mikilvægt spor, sem
hafi rutt úr vegi fyrstu hindr-
uninni á leið nýrra afvopnunar-
viðræðna Austurs og Vesturs.
Þrátt fyrir umfangsmiklar
viðræður í New York, Moskvu
og Washington, hefur þó ekki
tekizt að ná samkomulagi um
hvemig skuli haga frekari við-
ræðum. Verður mál þetta nú
sent allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna til meðferðar.
★
Þess er skemmzt að minnast,
að fulltrúar kommúnistarikjanna
á ráðstefnu hinna tíu ríkja í Genf
gengu af fundi 27. júní 1960 og
sögðu tilgangslaust að halda við-
ræðum áfram. Varð sá fundur
mjög athyglisverður m. a. sökum
Framh. á bls. 23
Vopnahlé
í Katanga?
Ndola, N.-Rhodesíu, 20. sept.
— (AP — NTB — Reuter) —
MOISE TSHOMBE kallaði
fréttamenn á sinn fund í
kvöld og skýrði frá því, að
hann og fulltrúi Sameinuðu
þjóðanna, Arabinn Mahmoud
Khiari, hefðu í dag orðið
ásáttir um að vopnahlé
Framhald á bls. 23.