Morgunblaðið - 02.11.1961, Blaðsíða 16
M O na U N BL AÐIL
Fimmtudagur 2. nðv. 1961
10
Gott
skrifstofuherbergi
til leigu nú þegar á fögrum
stað við Miðbæinn. Uppl. 1
síma 24753.
við Vitatorg.
Mercedes-Benz 180 ’55, mjög
góður bíll.
Opel Record ’59, mjög falleg-
ui.
Opel Caravan ’59- nýkominn
til landsins.
Volkswagen ’61 ’60 ’59 ’58 ’57
’56 ’55 ’54 ’53 ’52 ’51 ’50.
Chevrolet ’52.
Morris ’47, mjög góður.
Opel Kapitan ’57 og ’55,
einkavagn.
Opel Rekord ’57, nýkominn
til landsins.
^llnienna
S/'/n/ : h 11 4 4
íslenzk frímerki
Verðlistinn 1962 nýkominn.
Sendum í póistkröfu.
Frímerkjastofan, Vesturg. 14.
Opið virka daga 5 til 7 og 8
til 9.30 e. h. nema Miðviku-
dagskvöld og laugardagskvöld
Skíði
Skautar
Bakpokar
Svefnpokar
Ferðapríinusar
Útiæfingaföt
Handboltaskyrtur
Sundbolir
Sundskýlur
Badmi n tonspað ar
Borðtennissett
Aflraunagormar
Atlaskerfið
Körfuboltaskór
Leikfimiskór
Leikfimibúningar
Allt til íþróttaiðkana.
HELLAS
Skólavörðustíg 17. Sími 15196.
Til sölu
Amerískt eldhúsborð og 4
stólar úr stáli.
Borðstofuborð og 6 stólar úr
eik.
Saumavél í hnotuskáp Neccki.
Stofuskápur. — Allt notað.
Upplýsingar í síma 35753.
Bjarni Runólfsson
minning
Þar sem góðir menn fara
þar eru guðs vegir.
MER eru þessi orð hugstæð, er
ég minnist hins ágæta drengs
Bjarna Runólfssonar, sem drukkn
aði með m.s. „Helga“ frá Horna-
íirði þann 15. sept. sl.
Þegar þessi helfregn barst okk
ur til eyrna, áttum við í fyrstu
erfitt. með að trúa því að þetta
væri raunveruleiki. Svo mun
flestum varið, þegar dauðann ber
skjótt að og ekki sízt, þegar hann
tekur svo marga í einu, sem í
þetta sinn, frá ungum börnum,
eiginkonum og öldruðum foreldr-
um.
Þessi saga hefur endurtekið sig
svo oft i okkar litla þjóðfélagi um
aldaraðir. að, hafið gefi okkur
mikinp auð, en taki líka þunga
skatta. Samt sem áður er þessi
saga alltaf ný í hvert sinn, sem
hún er endurtekin. Það einasta,
sem víð mennirnir vitum með
öruggri vissu er þetta: „Eitt sinn
skal hver deyja“, samt sem áður
erum við alltaf jafnóviðbúin þeg-
ar kallið kemur. Sárin sem dauð-
inn veldur, gróa furðu fljótt,
vegna þess að hann er þjónn
lífsins, sem við erum öll háð og
lútum skilyrðislaust, samkvæmt
lögmálinu.
Bjarni Runólfsson var slíkur,
að hann gleymist aldrei þeim,
sem honum kynntust sökum
mannkosta, sem hann hlaut í
vöggugjöf og hvernig honum
tókst að ávaxta sitt pund. Það
eru samir menn þannig gerðir,
að það ar eins og frá þeim streymi
guðlegur andblær, líkastur ylmi
frá blomabeði. Þannig var Bjarni.
Slík var bókmenntaþekking hans
og alhliða þroski að unun var að
eiga við hann tal um tilveruna
og ég held að hver, sem þess
naut, hafi farið auðugri’ frá hans
garði. Aðal einkenni hans voru
skarpskyggni, góðvild og sjálfs-
agi.
Lífið er eilíf endurspeglun gleði
og sorgar, sem virðast vera óað-
skiljanlegar einingar. Ef annað
þessa ber hitt ofurliði, bíður
þroski vor tjón. Okkur þykir
hver dagur fljótur að líða og
hver dagur öðrum líkur, þó fel-
ur örstutt stund úr degi í sér
veraldir, sem umbreyta lífi ein-
staklinga svo gjörsamlega að
hvergi nálgast þær áætlanir, sem
gjörðar höfðu verið.
Bjarni var fæddur á Kálfafelli
í Suðursveit 11. maí 1921. For-
eldrar hans eru þau hjónin Sig-
urborg Agústsdóttir og Runólfur
Bjarnason. Fluttist hann með
þeim barn að aldri til Horna-
fjarðar og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Arið 1951 útskrif-
aðist hann úr Stýrimannaskóla
Islands með fyrstu einkunn. Réðst
þá á olíuskipið Skeljung Og síðar
æ Kyndil hjá sama félagi. Var
hann þar fyrsti stýrimaður og
siðan skipstjóri í forföllum. Ar-
ið 1955 kvæntist hann Rögnu Sig-
rúnu Guðmundsdóttur, Bjarna-
sonar frá Skaftafelli í öræfum
og konu hans Sigríðar Gísladótt-
ur. Þau eignuðust 5 börn. Elzta
barnið misstu þau rúmlega eins
árs, eru því fjógur á lífi.
Lífið leggur sjaldan þyngri
byrðar á herðar einstaklinga, en
þeir eru f ærir um að bera, ef þeir
leyta styrks þangað, sem hann
er að finna, það er í hinu guðlega
afli tilverunnar, sem skapar og
viðheldur. Virðist það sjónarmið
ríkja í hjörtum ' þeirra nánustu
ættingja Bjarna, sem nú eiga um
svo sárt að binda. Guð veri þeim
öllum styrkur.
Sigrún Gísladóttir
\
OMO þveginn þvottur stenzt alla athugun og isfnrfni
— vegna þess að Omo hreinsar burt hveru auefil,
af óhreinindum, meira að segja óhreinindi, sem ekki
sjást með berum augum. Og Omo er engu síður gagn-
legt fyrir litað lín, því eftir Omo-þvottinn verða lit-
irnir fegurri og skýrari en nokkru sinni fyrr. —•
© -ið skilar
Og þw nákvcemar
sem þtð athugið
þvf betur sjáið
þið-að
HVITASTA
ÞVOTTINUM
framk&ííar fegurstv litina-um l&ið og það hreinsar