Morgunblaðið - 02.11.1961, Blaðsíða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 2. nóv. 1961
Stökk 1,75 í hástökki
án atrennu, sem er 1
sm. hærra en eldra
heimsmetið
í GÆR varð hið gamla og sögufræga ÍR-hús við Túngötu
vettvangur fyrsta heimsmetsins sem sett er á íslandi. Þar
fór fram keppni í hástökki án atrennu og Vilhjálmur Ein-
arsson ÍR stökk þar 1.75 m en það er 1 sentimetra hærra
en skráð heimsmet í þessari grein. Norðmaðurinn Christian
Evandt átti gamla metið, sem var 1.74 m, sett á sl. ári.
Allar aðstæður voru löglegar. Þrír dómarar voru viðstadd-
ir, Jóhannes Sölvason, form. Frjálsíþróttasambandsins, Örn
Eiðsson og Ólafur Unnsteinsson. Við endurmælingu á hæð
stökksins kom í ljós að ráin var 1.755 m yfir gólfi. Verður
skrá um afrek þetta sé sent Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu
sem skráir met í atrennulausum stökkum en þau eru ekki
lengur formlega staðfest.
ir Keppnin
Hástökkskeppnin í gær var aug
lýst með tilskildum fyrirvara.
Keppendur voru þrír Jón Þ. Olafs
son og Karl Hólm auk Vilhjálms.
Vilhjálmur fór 1.50 í 1. tilraun
og 1.60 einnig. 1.69 fór hann í
3. tilraun en það er sentimeter
hærra en gamla Islandsmetið
hans
ir I fyrstu tilraun
Næst var hækkað í 1.75. Vil
hjálmur fór yfir í fyrstu til-
raun. Hann snerti rána og það
svo, að hún hreyfðist á okun-
um en ekki féil hún.
Síðan var hækkað í 1.76 og
átti Vilhjálmur þjár góðar til-
raunir við þá hæð og var nærri
því að fara yfir.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
BIÐJIÐ UM
SÖIMDERBORG GARN
Þórður Sveinsson & Co. h.f.
Þetta frábæra danska prjónagarn er ódýrt,
fallegt og vandað.
SELT UM ALLT LAND
★ Oft höggvið nærri
Atrennulausu stökkin eru ekki
mikið iðkuð og hætt er að stað-
festa met í þeim. Alþjóðasam-
bandið skráir þau hins vegar en
þetta met verður staðfest Norður
landamet, því á Norðurlöndum
er allmikill áhugi fyrir þessum
greinum — og raunar alls staðar
þar sem góðir stökkmenn koma
fram og mikið er æft innanhúss.
Vilnjálmur hefur lengi höggv-
ið nærri þessu meti. Heimsmetið
var 1.69 m og Vilþjálmur gerði
oft tilraun við það þá. En hann
náði aðeins 1.68 og á meðan bætti
Norðmaðurinn sig, bætti heims-
metið fyrst í 1.73 og síðar í 1.74
(á s.l. ári).
tslendingur hefur aldrei fyrr
sett heimsmet í íþróttum. Eng-
inn hefur höggvið nærri -þeim
nema Vilhjálmur í þessari
grein og einnig í sinini aðal-
grein — þrístökkinu. Þar hef-
ur hann um árabil verið í
fremstu röð í heiminum og
stokkið fjórða lengsta stökk
sem sögur fara af. Feril Vil-
hjáims, sem nú er 27 ára
þekkja allir og er óþarfi að
rekja hann.
Vilhjálmur hefur verið IR-
ingur um 6 ára skeið. Og það
er gaman og skemmtileg til-
viljun að þetta fyrsta heims-
met tslendings skuli sett í
hinu gamla ÍR-húsi, sem er
elzta fimleikahús landsins —
byggt úr gamalli kirkju.
Enska
knattspyrnan
FYRSTA umferð ens-ku bikarkeppn-
innar fer fram n.k. laugardag og taka
nú liðin úr III. og IV. deild þátt í
keppninni. 40 leikir fara fram að þessu
sinni og þau 40 lið, sem sigra munu
síðan dregin saman og fara þeir leik-
ir fram 25. nóvember. Þau 20 lið, sem
þá verða eftir fara svo í 3. umferð, sem
fram fer 6. janúar. t>á koma liðin úr
I. og II. deild inn í keppnina og má
þá segja að keppnin hefjist fyrir
alvöru.
Þessir leikir fara fram n.k. laugar-
dag:
Aldershot — Tunbridge
Barry --- Q.P.R.
Bournemouth — Margate
Bradford — Port Vale
Bradford City — York
Brentford — Oxford
Bridgewater — Weston
Brierley — Grantham
Bristol City — Herford
Chelmsford — Kings Lynn
Chester — Ashington
Coventry — Gillingham
Crewe — Lincoln
Crystal Palace — Portsmouth
Darlington — Carlisle
Dopcaster — Chesterfield
Exeter — Darford
Hartlepools — Blyth
Frh. á bls. 23
Danirnir náðu jafntefli við
KR á síðustu sekúndum
Frábær markvarzla Morfensens
vakti atbygli
jóns markvarðar tókst það.
John Bernht skoraði í mann-
laust markið með lausu skoti
úr aukaspymu, því Guðión.
var of seinn að taka sér stöðu.
ÞAÐ var spenningur og fjör
að Hálogalandi í gær — frá
upphafi til leiksloka, er
danska liðið Efterslægten lék
sinn fyrsta leik hér ogmætti
þá gestgjöfum sínum KR. —
Spenningurinn náði hámarki
á síðustu sekundum leiksins
— en þá tókst Dönum að
jafna leikinn og 20 sekund-
um síðar var flautað til leiks
loka. KR-ingar, sem áttu
slaka byrjun, sóttu sig mjög
í síðari hálfleik og komust
þá þrívegis yfir, en misstu
af sigrinum fyrir hreinan
klaufaskap á síðustu sekund-
unum.
Danska liðið er svipað ís-
lenzkum iiðum. Beztir leik-
manna eru lánsmenn þeir er
liðið fékk með sér í íslands-
förina og ber markvörðinn
Bent Mortensen hæst. Hann
varði með afbrigðum vel og
er óvíst að áður hafi sézt hér
á landi eins góð markvarzla
og nú. Án hans hefði KR án
vafa farið með sigur af hólmi,
því leikmenn eru í knattleikni
og leikaðferð mjög svipaðir
íslenzkum leikmönnum yfir-
leitt. Báru þeir nokkuð af á
vellinum Reynir Ólafsson og
Karl Jóhannsson, svo og John
Bernth, sem Efterslægten
fékk einnig lánaðan til ís-
landsfararinnar. Enda eru
þetta reyndir landsliðsmenn
Islands og Danmerkur. Mort-
ensen markvörður hefur marg
oft fengið það orð að vera
bezti markvörður heimsins —
en slíkt er þó alltaf matsatriði.
•k Glæsileg markvarzla
Strax í upphafi sló Morten-
sen í gegn. Hann varði tvívegis
mjög glæsilega falleg og snögg
og föst skot KR-inga. Og eitt slíkt
í viðbót stöðvaði markstöng Dan-
anna.
Og þá vökmuðu Danirnir. John
Bernth skoraði tvívegis af línu
og Nielsen bakvörður bætti því
þriðja við. En þá hóf Reynir sína
sigurgöngu, fann veika punktinn
hjá Mortensen og sendi inn niður
við gólf og gerði það oft síðan.
Dönsk forysta
Hélzt síðan dönsk forysta í
leiknum með 1 til tveimur mörk-
um framan af og síðar þremur og
í hálfleik stóð 10:7 fyrir Dani. —
Mortensen bætti enn á glæsilega
markvörzlu sína með því að verja
vítakast frá Reyni.
1 síðari hálfleik náðu KR-ing-
ar fastari tökum á leiknum. Guð-
jón markvörður þeirra fór nú
einnig.að verja hin ótrúlegustu
skot og bilið minnkaði í 1 mark,
10:9. —
JAFNAÐ
Og hraðinn og harkan urðu
enn meiri ok þegar 15 mín
eru til leiksloka jafnar Karl
fyrir KR 11 :11. Síðan skipt-
ast liðin á mörkum. Danir á
undan til að skora. en KR
jafnar off 11 mín fyrir leiks-
lok er staðan 13 :13.
Mínútu síðar komast KR-
ingar í fyrsta sinn yfir. Skor-
aði Þórir Þorsteinsson með
snöggu lágskoti
Næstu tvö mörk skora Dan-
ir og spenningurinn eykst enn.
KR tekst að jafna — osr ná
forystu 16 :15 og var aðeins
114 mín til leiksloka. Sigur-
inn biasti við er Danir tóku
að leika „maður á mann“ til
að freista þess að ná jafn-
tefli. Og fyrir mistök Guð-
MÖRKIN
I heild var jafnteflið kannski
réttlátustu úrslitin. Og leikurinn
var góður og skemmtilegur, oft-
ast. — Danirnir leika mjög svip-
áðan handknattleik og ísl. leik-
mennirnir. Þarna börðust jöfn
lið — en Mortensen, Bernht,
Reynir, Karl og Guðjón settu
skemmtilegastan svip á leikinn.
Reynir á þarna sérstakan heið
ur skilið. Hann skoraði 9 af
mörkum KR — og svekkti oft
Mortihensen. Karl skoraði 3 og
Þórir 2. Sigurður og Heinz sitt
hvort. Hjá Dönum var Berndt
markahæstur skoraði 4 mörk.
— A.St.
Lið Reykjavíkur
á föstudaginn
HANDKNATTDEIKSRAÐ
Reykjavíkur hefur samþykkt lið
það, er mæta á danska liðinu
Efterslægten á föstudagskvöldið.
Pétur Bjarnason valdi liðið í fjar
veru Þoileifs Einarssonar. Liðið
er skipað þessum mönnum.
Ingólfur Oskarsson, Guðjón
Jónsson, Sigurður Einarsson,
Karl Benediktsson og Agúst Odd-
geirsson allir úr Fram. Karl Jó-
hannsson, Guðjón Olafsson, Reyn-
ir Olafsson allir úr KR. Rósmund-
ur Jónsson Víking, Guðmundur
Gústavsson Þrótti og Gunnlaugur
Hjá’.marsson IR.
Aðalfundur
AÐALFUNDUR frjálsíþrótta-
deildar KR verður haldinn f
kvöld kl. 8,30 í félagsheimili KR
við Kaplaskjólsveg.