Morgunblaðið - 20.02.1962, Page 1
24 siður
Versta veður aldarinnar
500 manns fórust — Nær 100 þús. heimilisiausir
Eignatjón nem-
ur tugmiliorð-
um króna
0 EINS og frá hefur ver-
ið skýrt hefur síðustu daga
geisað aftakaveður á Norð-
ursjó og þó einkum á Þýzka-
landsströndinni. Fylgdi Veðr-
inu gífurlegt flóð allt frá
Hollandi að Jótlandsströnd
■— en Hamborg og umhverfi
hennar urðu einna harðast
úti. —
• Þetta óveður er hið
mesta, sem orðið hefur í Ev-
rópu á 20. öldinni. Öruggt er,
að hátt á þriðja hundrað
manna hefur farizt og um
tvö hundruð er ekki vitað, en
óttazt að þeir hafi týnt lífi.
Nærri hundrað þús. manns
hafa misst heimili sín. Eigna-
tjón nemur tugum milljarða
króna. —
I Þýzkalandi hafa nær
40 þúsund manns unnið að
björgunarstörfum. Allt lið
lögreglu, slökkviliðs og
Rauða krossins var að starfi.
Hundruð sjálfboðaliða og
brezkir og bandarískir her-
menn tóku einnig þátt í björg
unarstarfinu.
0 Víða annars staðar í
Þýzkalandi hafa orðið skriðu
föll sem valdið hafa miklu
tjóni, brýr hefur tekið af ám
og vegir eyðilagzt. Símasam-
bandslaust var um helgina á
stórum svæðum.
• 4—500 mannslíf ?
í Bremen er vitað að nokkrir
létuzt, áreiðanlegar tölur eru
ekki fyrir hendi. En það var
Hamborg, sem verst varð úti í
þessum hamförum. Vatnsborðið
í höfninni hækkaði um fjóra
metra og vatn flæddi inn í íbúð-
ar- og iðnaðarhverfi í nágrenni
hafnarinnar — og allt inn í kjall
ara í miðri borginni.
Þúsundir fbúa björguðu sér
upp á húsþök og sátu þar marg-
ir fáklaeddir tímum saman í
etormi og regni og biðu björgun-
ermanna, sem sigldu um göturn-
ar í gúmmíbátum. Víða dróst
björgun fólksins úr hömlu sökum
Iþess, að bátar voru ekki nægilega
margir til taks.
Af opinberri hálfu var í kvöld
tilkynnt, að 227 lík hefðu fund-
izt í Norður-tÞýzkafandi svo vitað
væri með vissu — þar af 208 í
Hamborg. Að minnsta kosti 200
var enn saknað og er óttazt, að
þegar öll kurl koma til grafar,
hafi veðrið kostað 4—500 menn
lífið.
• Þúsundir manna
einangraðar
Flest líkin fundust í bæjar-
hlutunum Wilihelmsburg og Har-
Frh. á bls. 23.
Fullvíst talið að samkomulag hafi
náðst í Alsírdeilunni
París og Túnis, 19. fébrúar — (AP — NTB) —
0 Þ A Ð er talið fullvíst, að samkomulag hafi náðst
um Alsírdeiluna milli frönsku stjórnarinnar og útlaga-
stjórnar Serkja — en fulltrúar þeirra hafa undanfarið
setið á rökstólum einhvers staðar skammt frá landamær-
um Sviss og Frakklands.
0 Nefndarmenn munu flestir eða allir farnir heim til
þess að gefa yfirboðurum sínum skýrslu. Er þess talið
skammt að bíða, að opinberlega verði tilkynnt um sam-
komulagið, sem á að binda endi á styrjöldina í Alsír,
tryggja landinu sjálfstæði og verða grundvöllur samstarfs
Frakka og Serkja í framtíðinni.
0 Viðbrögð við þessum fregnum hafa hvarvetna verið
hin beztu, menn gleðjast yfirleitt yfir því, að þetta lang-
vinna deilumál komist í höfn, hversu örugg, sem hún svo
kann að reynast. Standa nú vonir til þess að unnt verði
að uppræta OAS hreyfinguna eða knýja hana til upp-
gjafar og koma á algerum friði í landinu.
• Gefa stjórnum sínum skýrslu
Hvorugur aðila hefur látið
nokkuð uppiskátt um samtkomu-
lagið. Oddviti frönsku nefndar-
innar, Alsírmálaráðherrann,
Louis Joxe, lagði skýrslu sína
fyrir de Gaulle í Elysée-höll í
dag og nefnd Serkja átti fund
með útlagastjórninni í Túnis í
kvöld.
í París var almennt talið, að
opinberlega yrði skýrt frá sam-
koimulaginu áður en vikan er lið-
in og þykir enginn vafi, að það
verði samþykkt af stjórnum
beggja aðila. Síðan mun koma
til kasta franska þingsins að
fjalla um samkomulagið.
Það olli mönnum í Túnis nokk-
urri furðu, að nefnd Serkja vildi
ekki gera mikið úr fregnum um
samkomalag. Belkacem Krim,
oddviti nefndarinnar vildi ekkert
um það segja, en utanríkisráð-
herra FLN-stjórnarinnar Saad
Dalhab sagði að viðræðunum
væri lokið — þær yrðu e. t. v.
teknar upp aftur við hentugt
tækifæri. Þrátt fyrir þetta er sú
skoðun ríkjandi, að samkomulag
ið hafi náðst í öllum aðalatrið-
um, enda hefði serkneska sendi-
nefndin verið með afbrigðum
glöð í bragði við komuna til Tún-
is.
Þessi aðalatriði munu fyrst og
íremst vera hvernig unnið verði
að fullu sjálfstæði Alsír; hvernig
tryggð verði réttindi evrópskra
manna í lándinu; hvernig háttað
skuli samvinnu Frakka og sjálf-
stæðs Alsírs; hvernig nýttar
skuli auðlindirnar í Sahara og
loks herbækistöðvar Frakka í Sa-
hara Og Alsír.
Hið svokaliaða þjóðarráð serk
neskra uppreisnarmanna kemur
saman í Tripoli í Lybíu eftir
nokkra daga og ræðir málið.
• Síðasta orð Frakka?
Talið er víst að þegar saan-
komulagið verður undirritað
verði uppreisnarleiðtoginn Ben
Bella látihu laus úr fangelsi og
ef til vill fleiri Serkir, sem staðið
hafa framarlega í sjálfstæðisbar-
áttunni.
Háttsettur starfsmaður frönsku
stjórnarinnar sagði við frétta-
mann Reuters í kvöld, að þetta
samkomulag'suppkast, sem nú
yrði lagt fynr, yrði áreiðanlega
síðasta orð Frakka í þessu máli.
Nú eru liðin sjö ár og 110 dag-
ar síðan uppreisnin hófst í Alsír,
1. nóvember 1954.
Gerðar höfðu verið þrjár mis
heppnaðar tilraunir til þess að
koma á friði, áður en de Gaulle
komst til valda 1958. Þá lýsti
de Gaulle því yfir, að taka mundi
a-llt að fjórum árum að vinna að
lausn Alsirdeilunnar.
Menn velta því nú mjög fyrir
sér, hvað OAS foringjarnir muni
taka til bragðs, en margir helztu
forystumenn hreyfingarinnar
hafa hlotið lífláts- eða þunga
íangelsisdórna „in absentia“. Við-
búnaður er af hálfu frönsku
stjórnarinnar til þess að berja
niður sérhverja uppreisnartil-
raun, sem uann að verða gerð.
• Víðast vel tekið ,
Eins og fyrr segir, er fregnum
þessum yfirleitt afar vel tekið,
nema í röðum þeirra manna, sem
vilja enn að Alsír verði áfram
franskt land, Og neita að sætta
sig við annað. Eru þeir flestir
tengdir undir merki OAS.
Nokkur skoðanamismunur kem
ur fram hjá frönskum stjórnmála
mönnum. Paul Reynaud, fyrrver-
andi forsætisráðherra sagði að
samkomulagið gæti skapað við-
unandi grundvöll fyrir samstarfi
Frakka og Norður-Afríkuþjóða.
George Bidault, fyrrverandi for-
sætisráðherra. sem síðustu árin
hefur verið eindreginn andstæð-
ingur stefnu de Gaulle í Alsír-
málinu, kvaðst helzt ekkert vilja
segja fyrr en samkomulagið hefði
verið kunngert — en það, sem
dagblöðin hefðu sagt um þetta
Frh. á bls. 2
Brnno Wulter
lntinn
HINN heimsfrægi hljómsveitar-
stjóri Bruno Walter andaðist í
Beverley Hills í Kaliforníu að
morgni sl. laugardags, 85 ára að
aldri.
Hans verður nánar getið síðar.