Morgunblaðið - 20.02.1962, Qupperneq 17
Þriðjudagur 20. febr. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17.
Unnur Andrea Jónsdóttir
„Heyr þú barnshugans bæn:
Ó, ég bið þig um líf.“
SKÁLDIÐ Stefán frá Hvítadal
orti ýmislegt um haust og vetr-
arkvíða, er á ævina leið, en
aldrei voru þó söngvar hans
um sólina og vorið, æskuna og
igleðina, innilegri en þá. Bak við
'brimgarð harms og tára ljómaði
eólskinsveröld hans í æ skærara
ljósi. Þó að hann væri sjúkur
©g sár, kvað hann
um hinn dýrlega dag
©g hið draumfagra kveld
hamingjunnar, svo að feigðin
hörfaði frá rekkjustokknum, og
veröld hans öll og vitund var
glædd þeim guðs loga, er sér-
hvern heim gerir að sælustað.
Þeir tímar komu, er sólskins-
löndin hans hættu að eiga sér
staði og stundir á þessari jörð.
I>au fluttust yfir í heiðríkjuna
fyrir handan. I einu kvæði sínu
gerir hann upp ævireikninginn,
eftir að hann er tekinn að þrá
lausnina héðan, og biður enn
um meira líf, eins og Goethe bað
um meira ljós í dauðanum. Þrá
mannanna eftir lífinu og ljósinu
uær út yfir þennan heim.
Þessi unga kona, sem í dag er
kvödd með tárum af ástvinum
sínum, bað einnig um líf, eins
og aðrir lifendur. Hún þráði að
lifa nokkru lengur í þessum
heimi vegna eiginmannsins og
barnanna sinna, sem ung og smá
þurftu hjálpar hennar við. Er
nokkuð örðugra fyrir göfuga
konu en hverfa frá börnum sín-
um, sem ekki eru komin á legg?
Nýlokið var að byggja heim-
Jlið fagurt og aðlaðandi, þar
sem framtíðin sýndist geta bros-
að við þeim. Þá kom kallið.
Heilsan brast. Mörg ár barðist
hún hugrökk við dauðann. Loks
er hún sá, hvern endi sú bar-
átta hlaut að hafa, sætti hún
sig við hann með undra mik-
illi sálarró og með bros á vör-
um. Þannig geymist minningin
um hana í hugum ástvinanna.
Æskuárin voru umleikin björt
um geislum ástar og umhyggju
föður og móður og margra ætt-
ingja. Þá kynntist ég henni sem
fögru og blíðlyndu barni, sem
allir hlutu að elska. Svo fóru
erfið ár í hönd. Föðurinn missti
hún aviplega af slysförum, er
hún var um fermingaraldur. —
Móðirin átti fullt í fangi með
að kljúfa lífsbaráttuna. Einka-
bróðirinn hvarf af landi brott
og settist að erlendis. Fyrir
þetta var hún meira einmana
an ella.
Næstu árin var hún að námi
bæði hér á landi og erlendis.
Einn vetur var hún í Húsmæðra
skólanum á Laugalandi. Þar
kynntist ég henni aftur. Hún
var enn Ijúflynd og ástúðleg í
umgengni, en stundum hljóð og
innibyrgð eins og einmana börn
verða, sem þrá meiri sól og yl.
Aftur brosti hamingjan við
henni, er hún giftist duglegum
og efnilegum manni fyrir fimm-
tán árum. Þau höfðu kynnzt í
New York, og þar stofnuðu þau
heimili og bjuggu um fjögurra
éra skeið. Skuggi féll þó brátt
á veginn. Hún fékk snert af
berklum og lá um hríð á sjúkra
húsi, en náði þó aftur sæmi-
legri heilsu. Eftir það komu
tiokkur góð og hamingjusöm
ár, unz brydda tók á sjúkleika
þeim, er að lokum varð henni
að bana.
Unnur Andrea Jónsdóttir, eða
Stella eins og hún var venju-
lega kölluð, var fædd í Reykja-
vík 1. maí 1925. Hún var dóttir
Jóns Erlendssonar frá Sturlu-
reykjum, sem lengi var verk-
stjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands, ágætur maður og list-
fengur og konu hans Guðlaug-
ar Björnsdóttur, er um margra
ára skeið bjó að Álfabrekku við
Suðurlandsbraut. Hún giftist 5.
júlí 1947 Guðmundi Einarssyni
verkfræðingi, sem stundað hafði
nám í New York og vann þá
við ýmsar stórbyggingar vestra,
til dæmis aðalbyggingu Samein-
uðu þjóðanna. Árið 1951 flutt-
ust þau til Islands og bjuggu
um hríð í Njarðvík og á Kefla-
víkurflugvelli, þar sem Guð-
mundur er yfirverkfræðingur
hjá Sameinuðum verktökum, en
síðustu árin, eftir að heilsu
hennar tók að hnigna, áttu þau
heimili í Reykjavík. Átti hún þá
lengst af, er hún ekki var í
sjúkrahúsi, athvarf á heimili
móður sinnar, sem gerði allt,
sem í hennar valdi stóð til að
léttg henni hina síðustu bar-
áttu, og tók að sér umsjá barn-
anna fimm, sem enn eru á ung-
um aldri.
Hún andaðist i Landsspítalan-
um 7. febrúar sl. Útförin fór
fram í kyrrþey eftir ósk henn-
ar sjálfrar og í samræmi við
hlédræga skapgerð hennar. En
ef einhver vildi minnast henn-
ar, bað hún um, að Krabba-
meinsfélag íslands yrði látið
njóta þess.
Stella var framúrskarandi hús
móðir, og léku henni öll verk í
höndum. Hún var gædd næmri
fegurðartilfinningu eins og hún
átti ætt til, ástúðleg og um-
hyggjusöm móðir barna sinna.
Hjá þeim dvaldi hugurinn löng-
um í hinu langvinna sjúkdóms-
stríði. Oft fékk hún að skreppa
heim dauðveik af sjúkrahúsinu
fáa daga í senn til að sjá þau
og hlynna að þeim. Seinasta
von hennar og bæn var sú að
fá að lifa það, að sjá elzta son
sinn fermdan. En svo langur
frestur gafst ekki, þó að einskis
væri látið ófrestað til að leita
henni heilsubótar. Stundin var
komin.
Lífsstarfinu í þessum heimi er
lokið. Sjálf efaðist hún ekki um,
að til væri önnur veröld, sem
fullkomnar allt, sem hér er í
molum. Sú trú gaf henni aðdá-
anlegt sálarþrek og öryggi. „Að
deyja er að hverfa út í sólskin-
ið“, hefur mikið skáld sagt. Megi [,
nú Guð hugga ástvini hennar;
en gefa henni nýja sólskinsver-
öld bak við skuggann og ráð-
gátuna. Blessuð sé hennar minn-
ing.
Benjamín Kristjánsson.
ávallt fyrirliggjandi
I. Brynjólfsson & Kvaran
Myndin sýnir ELAC LAZ-40. Sjálfritari
og skiftikassi sambyggt í stjórnpúlt.
ELAC Sjálfritarar
og ELAC Fisksjár
fyrir stærri og
smærri skip eru næm
tæki, sem ekki þurfa
hvíta línu til þess að
hægt sé að greina
fisk.
INIýja ELAC
síldarskásjáin LAZ-40
Langdrægi 24000 metr. eða um 1300 faðma
í góðu sjávarskyggni. Sjálfvirk leit 130
gráður á borð, alls 260 gr. Efnng hand-
stýrð, alls 300 gráður. — Hátalari og heyrn-
artól á veikar lóðningar. — Stefna botns-
skjaldar sýnd með vísi á hringskífu. Stillan-
leg geislabreidd.,
Aukabotnsskjöldur fyrir botnlóðningar og
bolfiskleit.
Færsla útfarans er
allt að einn metri
Leitargeislinn er því
vel laus við kjöl og
í þéttum sjó.
Útfaraskaftið er úr
sjóþolnu efni 120
mm. í þvermál.
Allar hreyfingar út-
farans eru rafknúnar.
Útvegsmenn og skipstjórar! Leitið tilboða hjá oss, þegar
þér hafið í hyggju að kaupa fiskileitartæki í bát yðar.
Tilboð kosta ekki nema spurningu!
STURLAUGUR JONSSON & CO
Vesturgötu 16 — Sími 14680.
SCANIAtO/VABIS
L 75
Söluumboð
ÁRNI ÁRNASON
Hamarsstíg 20, Akureyri
Símar 1960 og 1291
Góð bifreið þolir nákvæma athugun. Kynnið yður
nákvæmlega uppbyggingu, efnisval og e-n-d-i-n-g-u
SCANIA-VABIS bifreiða, áður en þér festið kaup
annarsstaðar.
Vörubifreiðar fyrir 6,5—15 tonn á grind
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
SCANIA sparar allt riema aflið
L 55
Aðalumboð
ÍSARN H.F.
Klapparstíg 27. Sími 17270.
Sími 17270