Morgunblaðið - 26.04.1962, Page 17
Fimmfudagur 26. apríl 1962
MORGVNBLAÐ1B
Jóhanna
Gísladóttir
Olgeirsson
í DAG er til grafar borin frá
Dómkirkjunni frú Jóhanna
Gísladóttir Olgeirsson, sem and-
aðist hér í bænum 17. þ. m„ 87
éra gömul. Frú Jóhanna var
fædd að Kirkjubæ í Hróars-
tungu 18. ágúst 1874. Foreldrar
hennar voru Gísli Jónasson
skipstjóri í Stærra-Árskógi og
Ingunn Stefánsdóttir Jónssonar,
'umboðsmanns á Snartarstöðum.
Börn þeirra voru mörg og var
Þorsteinn Gíslason, ritstjóri og
skáld, þeirra elztur (1867-1938).
Enn eru fjögur á lífi af þeim
systkinum: Jónas, rúmlega ní-
ræður, bóndi og útgerðarmaður,
hefur nú um allmörg ár átt
heima í Grindavík ásamt Stef-
áni bróður sínum. Hér í bænum
eru Björn, fyrrum útgerðar-
maður. og Steinunn.
Um tvítugt fór frú Jóhanna til
Amerítku með foreldrum sínum
og fóru einnig fleiri af þeim
systkinum. Dóu þrjú þeirra
vestra, aldurhnigin, Vilborg,
Hjálmar og Ragnheiður, en tvö
komu hingað aftur, Jóhanna og
Steinunn.
Vestra giftist Jóhanna Vil-
hj'ákni Olgeirssyni (1857-1925)
og áttu þau eitt barn. er dó í
bernsku. bau fluttust heim
hingað 1907 og settust að á fsa-
firði, en þar stjórnaði Karl,
bróðir Vilhjálms, verzlun og út-
gerð og átti síðan, og vann Vil-
hjálmur við þau fyrirtæki.
Hann var dugnaðar og dreng-
skaparmaður, skyldurækinn og
snyrtilegur starfsmaður, átti
gott bókasafn og var vel heima
f islenzkum skáldskap og unni
söng. Þau ólu upp Ágústínu
Vedholm, er giftist Þorgils Ingv-
erssyni bankafulltrúa. Fóstur-
dóttir þeirra er frú Hulda, kona
Rafns Jónssonar tannlæknis.
Var frú Jóhanna síðustu árin á
þeirra vegurn.
Síðari maður frú Jóhönnu var
Árni Sveinsson, þjóðkunnur at-
hafnamaður á fsafirði (1858-
1939).
Frú Jóhanna hafði lengi verið
veik og rúmföst, síðast i sjúkra-
deild Hrafnistu, en hún hafði
lifað langa og góða starfsævi,
verið lifsglöð og vinsæi. Hún
rak lengi verzlun og hafði all-
mikla umsýslu. Heimili hennar
var fallegt og hlýlegt og oft
gestkvæmt þar og glaðvært.
Hún var framkvæmda og dugn-
aðarkona, þrekmikil, hjálpsöm
og hjartahlý og gestrisin, ætt-
rækin og sannur vinur vina
einna. Hún hafði yndi af skáld-
Bkap og ágætt vit á honum. Hún
var einnig fróð um ættir og um
menn og málefni á Austurlandi
og kunni vel að segja frá. Hún
er hanmdauði öllum, sem þekktu
bana.
HraðrStun
Stúlka með góða kunnáttu í enskri hraðritun og vél-
ritun óskar eftir atvinnu. Tilboð merkt: „Hraðritari
— 4631“ sendist Morgunblaðinu.
Hótel Hvanneyii á Siglufirði
er til leigu frá 1. júní n.k. Hótelið leigist með
öllum búnaði.
Upplýsingar gefur Sparisjóður Siglufjarðar.
Atvinna
Bifvélavirkjar eða rnenn vanir bifreiðaviðgerðum
geta fengið atvinnu hjá okkur, e.nnig menn til
aðstoðar á verkstæði.
BIFREIÐASTÖÐ STEINDÓRS
Sími 1-85-85.
Peningalán
Get lánað allt að kr. 200 þús. til 10 ára gegn öruggu
fasteignaveði. Þeir sem hafa áhuga á þessu sendi
nöfn og heimilisfang ásamt nánari upplýsingum um
veð til afgre:ðslu Mbi. merkt: „Peningalán — 4630“
fyrir hádegi n.k. iaugardag.
Hjnkrunorkonur nthugið
Hjúkrunarkonu vantar nú þegar að héraðsspítalan-
um á Blönduósi og aðra 1. júlí næstk. Kaup sam-
kvæmt launalögum eða samkomulagi. Umsækjend-
ur snúi sér til héraðslæknisins Óla Kr. Guðmunds-
sonar sem veitir frekari uppl.
Sjúkrahússtjórnin.
Kjörskró iyrir Gnrðnhrepp
til Sveitastjórnar- og sýslunefndarkosninga liggur
frammi á skrfis.tofu hreppsins til 22. maí n.k. Kæru
frestur er t.il 2. júní og skulu skrifiegar kærur hafa
borizt skrifstofu hreppsins fyrir þann tíma.
Sveitarstjórinn i Garðahreppi 24. april 1962.
Vön afgreiðslustúlka
óskast strax í balcarí. (Góð rithönd æskileg).
JÓN SÍMONARSON H.F.
/ Bræðraborgarstíg 16.
Atvinna — Glerverkstæði
Öskum eftir lagtækum manni á glerverkstæði vort.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Egill Vilhjálmsson h.f.
JLaugavegi 118.
íbúðaskipti
4—5 herb.'ibúð óskast í skiptum íyrir 3 herb. íbúð
sem er á góðum stað á hitaveivusvæðinu. Tilboð er
greini verð og ástrnd íbúðar st-ndist Mbl. fyrir lok
þessa mánaðar merkt: „Ibúðaskipti — 4926“.
Búfasala
Seljum í dag geysi fjölbreytt úrval af alls
konar bútum úr vefnaði og prjóni, í kápur,
kjóla, dragtir, pils, ullarpeysur, bómullar-
peysur og barnanáttföt.
Laugavegi 116.
ísskápur — ískista
til sölu, tæiufærisverð. Góðir greiðsluskilmálar.
Sími 18476.
Bifvélavirki
Bifvélavirki eða maður vanur vélaviðgerðum óskast.
Tilboð sendir.t blaðinu fyrir 3. maí, merkt:
„Reglusemi — 4524“.
Til sölu
er stór 2ja herbergja íbúð í kjallara við Laugames-
veg. Ennfremur til sölu 3ja herbergja risíbúð í
sama húsi. íbúðirnar eru í nýiegu steinhúsi.
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9 — Símar 14400 og 20480.
5 herb. íbúðarhœð
Til sölu er mjög glæsileg 5 herb. íbúð á 1. hæð við
Blönduhlíð. íbúðin er með sér nitaveitu. Sér inn-
gangi og bílskúr, i lcjallara fylgir stórt herbergi
með sér snyrtiherbergi og sér inngangi. Teppi út
í horn á hæðinni fyigja.
Sanngjarnt verð ef samið er sírax.
Skipa & fasteignasalan
(Jóhannes Lárusson, hdl.)
Kirkjuhvoii. Símar 14916 og 13842
íbúðir til sölu
Til söiu eru rúmgóðar 3ja til 4ra herbergja íbúðir
í sambýlishúsi við Kleppsveg. Eru nú þegar með
fullgerðri hitalögn og múrhúðun á sameign inni er
langt komin. íbúðunum fylgir tvöfalt gler, fullgerð
húsvarðaríbúð, frystihólf o. fl. íbúðirnar fást sjálfar
múrhúðaðar eða ómúrhúðaðar. Hitaveita væntanleg.
Stutt í verzlanir.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgöiu 4 — Sími 14314 og 34231.
Tíl sölu einoloug
í fullum gangi á góðum stað ca. 5C km frá Reykja-
vík. Aliar vélar i góðu standi, næg verkefni, sér-
stakt tækifæri fyrir mann sem vill skapa sér sjálf-
stæða atvinnu.
Nánari uppl. veitir
FASTEIGNASALA
Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar
Sölum.: Ólafur Ásgeirsson
Laugavegi 27 — Sími 14226.