Morgunblaðið - 11.07.1962, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIG
Miðvikudagur 11. júlí 1962
Sjónvarpsmyndatökuvél (1) I Evrópu tekur mynd, sem síðan er endurvarpað (2) til sendistöðvar í Englandi (3). Hún sendir aftur til gervitunglsins (4),
sem tekur á móti merkjunum á leið sinni yfir Atlantshafið (5—6), magnar þau og sendir áfram til viðtökustöðvar í Andover (7). Þegar til Andover kem-
ur eru merkin aftur orðin veik, en þar eru þau mögnuð á ný og send með venjulegum endurvarpsstöðvum (8) til sjónvarpssendistöðva (9), sem sjá um að
koma myndunum á sjónvarpsskerma áhorfenda (10).
Fyrsta tilraun til að sjón-
varpa um gervitungl
í GÆR var gerð hini fyrsta til-
raun manna til þess að sjón-
varpa heimsálfa í milli með
aðstoð gervitungls. Var sjón- '
varpsgervitungli, sem gefið
hefur verið nafnið „Teistar“
skotið á loft frá Canaveral-
höfða með þriggja þrepa eld-
flaug af gerðinni Thor-Delta.
Gervitunglið komst þegar á
braut umhverfis jörðu og er
reiknað með því, að unnt
verði að hefja reglulegar sjón
varpsseningar milli þar til
gerðra stöðva í Bandaríkjun-
um og Evrópu eftir um það
bil vikutíma.
Að tilrauninni standa tal-
og ritsimafél. American Tele-
pihone and Telegraph Comp-
any (skammst. AT&T) og
'bandaríska geimrannsóknar-
stofnunin. Takizt tilraunin
vel, markar hún þáttaskil í
íjarskiptasamibandi þjóða og
heimsálfa og stóreykur mögu-
leika sjónvarpsins. Enn frem-
ur er það atlhyglisvert um til-
raunina, að þetta er í fyrsta
sinn, sem einkafyrirtæki legg-
ur fram fé til smíði gervi-
tungls.
★ ★ ★
Gervitunglið ,,Telstar“ er
kúlulaga það vegur um 80 kg
og er 85 om í þvermál. í því ^
eru afar flókin og margvísleg
vísindatæki — eru tækin og
tunglið sjálft í fimmtán þús-
und hlutum. „Telestar" er
eins konar spennubreytistöð;
með sólknúnum rafhlöðum
getur það magnað þau merki,
sem það tekur við tíu þúsund
milljón sinnum í útsendingu.
AT&T hefur þegar varið
meiru en tveim milljörðum
kr. (ísl.) til rannsókna og
smíði „Telstar" gervitungls-
ins, en þess utan gert samn-
ing við NASA um að greiðá
125 milljónir króna til hverrar
eldflaugar, sem notuð er við
, Sjónvarpsgervitunglinu „Telstar
skotid frá CanaveralhöfBa
;
,,Telstar“ tilraupir.
Um það bil mínútu eftir að
„Telstar" var skotið á loft, kl.
7.35 GMT, var það komið á
braut sína, sem er sporbauigur
og myndar 45° horn við mið-
baug. Áætlað hafði verið að
minnsta fjarlægð frá jörðu
yrði 920 km, mesta fjarlægð
5.520 km og umferðartíminn
156 mínútur — en fyrstu mæl-
ingar sýndiu, að umferðartím-
inn var heldur meiri, eða
157.8 mínútur, minnsta fjar-
laeigð 1000 km og mesta fjar-
lægð 5.700 km frá jörðu. Þeg-
ar í stað var hafinn undir-
'búningur að því að senda
myndir frá Bandaríkjunum
til Englands um gervitimglið,
sem reyna átti um miðnætti
í nótt. Hafa stöðvar í Andover
í Maine og Goonlhilly í suð-
vesturhluta Englands verið út
búnar sérstaklega til þess að
senda og taka við þessum
myndum. Ennfremur mun fyr
irhugað að sjónvarpa um
gervitunglið símtali frá Banda
ríkjunum til Englands. Ekki
'hefur fengizt upplýst, hverjir
muni eiiga fyrsta samtalið, en
óstaðfestar fréttir herma, að
annar aðilinn verði Lyndon
Johnson varaforseti.
Með tilrauninni til sjón-
varpssendinga í nótt geta-
stöðvar í Bretlandi og Frakk-
landi stillt tæki sín og undir-
búið þau fyrir hinar reglu-
legu sendingar síðar, en þá
munu evrópskir sjónvarps-
áihorfendur sjá 12 mín. sam-
fellda fréttadagskrá frá Banda
rí’kjunum og áhorfendur þar
sjá samfellda dagskrá frá 16
Evrópuþjóðum, sem send verð
ur frá stöð i Bretlandi.
★ ★ ★
Takist tilraunirna<r með
„Telstar“ vel, segja sérfræð-
ingar, að samtölum milli
heimsálfa, t. d. Bandaríkjanna
og Evrópu, muni fjölga feikna
ört á næstu árum. Þeir gera
náð fyrir 21 milljón samtala
árið 1970 og 100 milljónum
samtala árið 1980, en til þess,
að sú þjónusta geti gengið
snurðulaust, þurfa a. m. k. 60
„Telstar" gervitungl að vera
á braut umihverfis jörðu. í
áætlun AT&T um „Telstar“
gervitunglin, er gert ráð fyrir,
að þeim verði komið á braut-
ir umlhverfis jörðu þannig, að
þau verði í himinlhvolfinu líkt
og baujur á hafi. Vegna hinn-
ar breiðu mikrobylgju gervi-
tunglsins eiga samtímis að
geta farið fram 60 símtöl
gegnum hvert tungl.
★ ★ ★
Á bandaríska þinginu er nú
til umræðu lagafrumvarp þar
sem gert er ráð fyrir, að eigna
réttur yfir þessari fjarskipta-
leið verði í höndum sérstaks
hlutafélags. Skal helmingur
hlutafjárins boðinn út til sölu
en hinum helmingnum skipt
milli þeirra aðila, sem að til-
rauninni standa. Andstæðing-
ar þessa fyrirkomulags í öld-
ungadeildinni hafa haldið því
fram, að með þessu sé verið
að gefa einkafyrirtækjum ár-
angurinn af tilraunum Banda-
ríkjamanna á sviði geimvís-
inda, sem almenningur hafi
kostað með skattgreiðslum.
Kvort sem gerðar verða breyt
ingar á frumvarpinu í eina
eða aðra átt, þykir líklegt, að
samþykkt verði stofnun nýs
hlutafélags í þessu skyni. Á
hinn bóginn er ljóst, að „Tel-
star“ gervitunglunum og
þeirri starfsemi, sem rekin
verður í sambandi við þau,
eiga eftir að fylgja margs
konar vandamál, sem enn er
ekki séð fyrir endann á. Aðrir
aðilar hafa einnig laigt á ráðin
um smíði gervitungla til þess
að bæta fjarskipti milli heims
álfa. Hughes Aircraft & Co
vinnur að tilraunum með svo-
nefnd „samstillingar gervi-
tungl“, sem fyrirbugað er að
senda á braut umihverfis jörðu
í 35.600 km fjarlægð. Eiga þau
að fylgja jörðinni sem fasta-
stjörnur. Ennfremur vinnur
RCA félagið að áætlun um
gervitungl, sem nefnist „Rel-
ay“ og landvarnaráðuneyti
Bandaríkjanna vinnur að á-
ætlun sem nefnist „Advent.
y,;7f
. .stt.•'A.d.í*
Þessi mynd var tekin á sunnudag, þegar sérfræðingar voru
„Telstar“-gervitunglitf, áður en því var skotið á loft.
leggja sítfustu bönd