Morgunblaðið - 29.09.1962, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Laugardagur 29. sept. 1962
mttsitirifofrifc
Otgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
AUKIN ÍBÚÐALÁN
t*ins og greint var frá hér
^ blaðinu í gær hefur Hús-
næðismálastofnunin á þessu
ári veitt lán að upphæð 82
millj. kr. og þar að auki 6,4
millj. kr. til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæðis. Er
hér um að ræða meiri lán-
veitingar til íbúðabygginga
en nokkurn tíma áður á einu
ári. En eins og kunnugt er
hefur m. a. náðst sá árangur
með viðreisninni, að geysi-
mikil aukning hefur orðið á
sparifé, sem auðveldar fram-
kvæmdir, bæði við íbúða-
byggingar og önnur mikil-
væg verkefni.
Með hliðsjón af því, að
stjórnarandstæðingar berjast
fyrir því að taka á ný upp þá
stefnu, er ríkti á tímum
vinstri stjórnarinnar, er eðli-
legt að gera samanburð á
þessari þróem og þeirri, sem
þá var.
Síðustu árin áður en vinstri
stjórnin tók við völdum var
hér hagstæð efnahagsþróun,
þar til jafnvæginu var rask-
að með víðtækum verkföll-
um 1955. Sparifjáraukning
var mikil og yfirleitt góð af-
koma. Það leiddi til þess að
meiri byggingaframkvæmd-
ir voru en nokkum tíma áð-
ur í sögu þjóðarinnar. Þann-
ig voru t. d. 1808 íbúðir í
smíðum í Reykjavík einni
1955. Á tímum vinstri stjórn-
arinnar dró jafnt og þétt úr
íbúðabyggingum og í Reykja-
vík voru íbúðir í smíðum
orðnar 1243, árið 1958.
Þessi þróun var óhjákvæmi
leg afleiðing af því, að ekki
var sinnt um að tryggja fé
til framkvæmdanna, enda
var stöðugur halli á viðskipt-
irm við útlönd og gífurleg
skuldasöfnun. Mánaðarlegar
lánveitingar úr hinu al-
menna veðlánakerfi lækkuðu
því úr 8,7 millj. í 3,9 mijlj. á
tímum vinstri stjórnarmnar.
HAGSTÆÐ
ÞRÓUN
Fyrst eftir að vinstri stjóm-
in hrökklaðist frá völdum
dró enn nokkuð úr íbúða-
byggingum, því að allir sjóð-
Ír*voru tómir. Einn megin
þáttur viðreisnarinnar var að
auka sparifjármyndun, svo
að unnt væri á ný að byggja
upp hina ýmsu lánasjóði.
Nú hefur þegar náðst sá
árangur af viðreisnarráðstöf-
ununum að íbúðahúsabygg-
ingar aukast jafnt og þétt og
það takmark nálgast að
menn fái viðstöðulaust þau
lán, sem lögboðin eru, þótt
þau séu enn of lág og nauð-
synlegt sé að halda viðreisn-
arráðstöfununum áfram, með
al annars til þess að treysta
sjóðina enn frekar.
Útlit er fyrir að bygginga-
framkvæmdir á næsta ári
verði meiri en nokkurn tíma
áður, m. a. s. enn þá meiri
en þær voru áður en vinstri
stjómar ævintýrið gekk yfir
landslýðinn. Nú þegar er
raunar orðið svo mikið að
gera í byggingaiðnaðinum að
hvarvetna skortir vinnuáfl,
og segja má að framkvæmdir
takmakist af þvi einu, að
ekki sé unnt að fá menn til
starfa.
Það er eðlilega eitt mesta
kappsmál sérhverrar fjöl-
skyldu að eignast eigin íbúð-
arhúsnæði, og hvarvetna leit
ast heilbrigðir lýðræðisflokk
ar við að aðstoða menn til
þess, þótt líklega hafi óvíða
eins mikið áunnizt í þessu
efni eins og einmitt hér á
landi.
Það á þess vegna að vera
einn meginþáttur viðreisnar-
innar að halda áfram að
styrkja þá lánasjóði, sem að-
stoða menn við íbúðabygg-
ingar, þótt auðvitað sé ekki
hægt að byggja meira en
vinnuafl leyfir, enda er jöfn
og stöðug þróun á þessu
sviði, eins og flestum öðrum,
affarasælust.
MIKLAR SKIPA-
BYGGINGAR
að er ekki eingöngu á sviði
íbúðabygginga, semfram
kvæmdir eru nú með allra
mesta mótj. Þvert á móti er
því þannig háttað á flestum
eða öllum sviðum.
í gær skýrði Mbl. frá því
að nú væri verið að smíða
34 skip heima og erlendis fyr
ir íslendinga ,mest stór og
fullkomin fiskiskip.
Þar að auki er búizt við að
fjöldi þeirra, sem nú hafa í
undirbúningi skipabygging-
ar, láti hefja þær innan
skamms, svo að gera má ráð
fyrir að einnig þær verði
með allra mesta móti.
Um það er ekki lengur
hægt að deila, að viðreisnin
hefur tekizt og menn eru að
byrja að njóta ávaxta hennar.
Auðvitað eru kjarabæturn-
ar minni fyrstu árin meðan
nota þarf meginhluta fjár-
magnsins til uppbyggingar og
auk þess er verið að safna
nauðsynlegum varasjóðum.
Þess vegna má fullyrða að
kjarabæturnar verði meiri
'
■
Mallorca Palma, 16. sept.
Á MEÐAN ég virði fyrir mér
höfuðborgina Palma, læt ég
hugann reika aftur í tímann
og reyni að rifja upp í stór-
um dráttum það sem ég hefi
átt kost á að kynna mér úr
sögu þessarar fögru spönsku
eyjar. Verður mér fyrst hugs
að til Föníkumanna, sem tald
ir voru með heimsins mestu
siglingamönnum, að þeir
skyldu ekki sjá sér hag í því
að ná Mallorca á sitt vald,
og nema þar land. í stað þess
tóku þeir Menorca og Ibiza,
og lögðu meira að segja grund
völlu að tveimur stórborg-
um í Evrópu, Syrakus og
Cadiz. Svo þegar Grikkir
fóru í herferð gegn Fönikíu-
mönnum, tóku þeir af þeim
Menorcu og Ibizu, en skiptu
sér ekkert af Mallorca. Róm-
verjum hefur heldur ekki lit-
izt á suðurhluta eyjarinnar,
en sigldu norður fyrir hana
og fundu þar góða höfn, sem
þeim leizt betur á. en jafn-
vel beztu hafnir Ibiza og Men
orca og þar lögðu þeir grund-
völlinn að bænum Meudia,
sem þá var kölluð Polentia,
við Alcudiahöfnina, 300 árum
fyrir Krist.
Ef ferðafólk, sem kemur
til Alcudia fýsir að sjá þar
einhverjar minjar frá Róm-
verjatímabilinu, vil ég benda
því á rústir af hringleikahúsi,
en það hefur verið grafið upp
fyrir nokkrum árum. Þær eru
mjög merkilegar og gefa góða
hugmynd um menningu og
framtak Rómverja svo
snemma á öldum.
Það voru þó ekki þeir sem
uppgötvuðu frjósemi eyjar-
innar. Þeir hafa verið meira
í listinni en búskapnum. —
Það voru Arabar, sem urðu
fyrstir til þess að sjá að Mall-
orca hafði mikla möguleika
sem aldinreitur, en til þess
varð að gera ýmsar umbætur
og þeir voru ýmsu vanir frá
heima^andinu og vissu hvern-
ig þeir áttu að fara að því að
breyta sandauðnum eyjarinn-
ar í frjósama garða. Þeir
komu upp hundruðum vatns-
mylna og enn í dag er hægt
að kynnast svo frumstæðri
aðferð til þess að ná vatni til
áveitu.
Ég var svo heppin að fá að
sjá eina slíka myllu í Alcudia,
þar sem asni var látinn ganga
hring eftir hring í þeim til-
gangi að snúa stóru vatns-
hjóli yfir djúpum brunni, en
á hjólinu voru festar margar
leirkrukkur, þannig, að þær
jusu vatninu upp í geymi,
sem stóð hærra en yfirborð
jarðarinnar í kring. Tæknin
var því nákvæmlega sú sama
og á dögum Arabanna. Þetta
munu þó vera fá dæmi og
nýrri aðferðir gengnar í gildi.
Ég gat um það er ég skrif-
aði síðast, að jörðin hér í
Mallorca væri hálfskrælnuð
af þurrki, en síðan hefur
komið steypiregn með þrum-
um og eldingum, svo að allt
ætlaði um koll að keyra. Mik
ið munu bændur hafa fagnað
regninu, þar sem ekki hafði
komið dropi úr lofti í fimm
mánuði samfleytt. Það er lík
ast því að jörðin hafi skipt
um liti. Laufin, sem áður
héngu á greinunum hálfmátt-
laus og guggin, breiða nú úr
sér safamikil og fagurgræn.
Aldinreitirnir hafa þrútnað,
allt er svo hreint og tært.
í gær tíndi ég fíkjur af
trjánum meðfram veginum.
Þær áttu aðeins eftir herslu-
munin til þess að verða full-
þroskaðar. Vínberin eru safa-
mikil en fremur smá.
Nýlega skoðaði ég gamlan
kastala frá því snemma á 14.
öld, sem mun hafa verið
byggður af Jakobi II Spánar-
konungi. Sýkisfarvegurinn
umhverfis hann er mjög
djúpur og kastalinn sjálfur
rammbyggilegur. Þar eru
geymdar ýmsar gamlar minj-
ar frá tímum Rómverja í
Mallorca. Einnig voru þar
hauskúpur, sem taldar eru
um 4000 ára gamlar og sagð-
ar vera af frumbyggjum eyj-
arinnar, en af þeim fara eng-
ar sögur. I eldhúsinu var
geysiStór tyektmyndaður reyk
háfur, svartur af innþornuðu
sóti. Það hefur áreiðanlega
verið hægt að steikja þarna
nautsskrokk í heilu lagi. —
Gríðarstórir pottar, líkastir
ámum, stóðu í röð undir ein-
um veggnum. Hafa eflaust
verið soðnar í þeim margs
konar konunglegar kræsing-
ar. Mér fannst næstum því
að ég finna reykinn af rétt-
unum. — Ofan af þaki hins
háa turns kastalans er víð-
sýnt yfir alla borgina. Hún
er ævintýralega fögur, um-
vafin blárri hitamóðunni, en
dálítið framandi í augum far-
andkonu norðan af fslandi.
Bílstjórar í Stykkishólmi buðu
STYKKISHÓLMI, 26. sept. —
í frétt sem ég sendi blaðinu um
strax á næstu árum og fram-
farirnir aukist jafnt og þétt,
eins og er hjá öðrum þjóð-
um, þar sem líkt er stjórnað
og hér og menn forðast aftur
hald „vinstri stefnunnar.“
daginn um skemmtiferð eldra
fólks í Stykkishólmi, gleymdi ég
aðalatriðinu, en það var að geta
þess að bifreiðastöð Stykkis-
hólms léði endurgjaldslaust áætl-
unarbifreið til ferðarinnar og
hið sama hefur hún oft gert áð-
ur, þótt þess hafi ekki verið
getið. — FréttaritarL
London, 27. sept. — AP
• f dag var komið til Shannon
flugvallar á frlandi með lík
12 manna, sem fórust af Con-
stellation flugvélinni, sem
nauðlenti á miðju Atlantshafi
á sunnudagskvöldið var. Enn
fremur voru tveir alvarlega
særðir farþegar fluttir með
þyrlum til London í dag. Er
óttast um líf þeirra.