Morgunblaðið - 08.11.1962, Qupperneq 24
í RÉXTASfMAS M B L.
— eftir lokun —
Erlendar 'féttir: 2-24-85
Innlendai iréttir: 2-24-84
Ittciv^wiáiíaíiiíi
250. tbl. — Fimmtudagur 8. nóvember 1962
/ Kaupmannahöfn
Með hverri Faxa-flugferð til K.-
hafnar kemur MBL. samdægurs í
Aviskiosken, i Hovedbanegárden
Vel hefur tekizt um fram-
kvæmd stjórnarstefnunnar
þótt mörg verkefni bíði enn úrSausnar
Bjami Benediktsson
— sagði Bjarni Benediktsson form. Sjálf-
sfæðisflokksins á Varðarfundi í gærkvöldi
A FUNDI Varðarfélagsins í
gærkvöldi flutti Bjarni Bene-
diktsson, dómsmálaráðherra,
ýtarlega ræðu um stjórnmála
ástandið og þau vandamál,
sem nú væri við að etja. Veik
hann fyrst að hinni dapur-
legu aðkomu, sem verið hefði
eftirað vinstristjórnin hrökkl
aðist frá völdum og forsætis-
ráðherra hennar lýsti yfir í
Jörð er víðast
komin fyrir fé
BLAÐIÐ hefir haft af því komu norður í Rana í dag og
spurnir að víðast sé að breyta
til batnaðar ineð fjárbeit, þar
sem snjóa lagði í hretinu. Einna
verst mun ástandið hafa verið
á utanverðu Fljótdalshéraði. Seg
ir fréttaritari blaðsins hér frá
ástandinu nú.
eru þar að smala Klaústursfénu
sem er rúimt 500 talsins. Féð er
mjög dreift og mun smölun
standa í nokkra daga.
í dag er hér 6 stiga hiti.
Fréttaritari
des. 1958, að hún væri úr-
ræðalaus. í upphafi viðreisn-
arinnar hefði ástandið verið
þannig, að naumast var hægt
að flytja til landsins brýn-
ustu nauðsynjar. Mætti því
segja, að skiljanlegar hefðu
verið hrakspár stjórnarand-
stöðunnar.
En Viðreisnarstjórnin gekk
að því verki að reisa við fjár-
hag þjóðarinnar, og nú væri
svo komið, að lán þau, sem
tekin hefðu verið til þess að
treysta gjaldmiðilinn, hefðu
að fullu verið greidd, og
aldrei hefði meiri hagsæld
ríkt hér á landi en einmitt í
dag. Óumdeilanlegt er því,
sagði dómsmálaráðherra, að í
heild hefur vel tekizt til,
þótt illa horfði, er stjórnin
tók við völdum.
Mikil eftirspurn eftir tánsfé
Andstæðingarnir héldu þvi í
upphafi fram, að ráðstafanir
stjórnarinnar ílánamálum myndu
leiða til samdráttar í atvinnulíf-
inu. Atvinnurekendur myndu
ekki fá nægilegt lánsfé og myndi
það leiða til samdráttar, stöðnun
ar og atvinnuleysis. Hér sem
annars staðar hafa andstæðing-
arnir reynzt algerir falsspámenn.
Fullyrt var, að atvinnurekendur
myndu ekki taka það lánsfé, sem
þeir þyrftu, vegna vaxtaihækkun-
arinnar. Sannleikurinn er sá, að
frekar hefur skort lánsfé. Vaxta-
(hækkunin hefur leitt til annars,
þ.e.a.s. sparifjáraukningar, sem
andstæðingar okkar staðlhæfðu
æ ofan í æ, að alls ekki væri
fyrir hendi. Hinn greinargóði
reiknimeistari Framsóknar,
Skúli Guðmundsson, hélt því t.d.
fram á Alþingi, í útvarpi og blöð-
um, að það væri alger þlekking,
að sparifjáraukning hefði orðið.
Nú eru menn fyrir löngu hættir
að halda slíku fram, enda þýðir
það ekki, því að sparifjáraukn-
ingin er meiri og örari en bjart-
sýnustu menn höfðu þorað að
vona.
Vaxtahækkunin á sinn þátt í
þessari aukningu. Áður hafði allt
af verið hallað á sparifjáreig-
endur, en nú hefur tekizt að
rétta hag þeirra, án þess að
draga þurfi úr framkvæmdum.
. t>ví var haldið fram, að inn-
köllun á hluta sparifjárins hef-
um væri bragð Reykjavíkur-
valdsins til þess að draga fé til
Reykjavíkur og raska jafnvægi i
byggð landsins. t>etta reyndist
alrangt, því að einmitt þessi inn-
köllun á hluta sparifjársins hef-
ur styrkt bankakerfið til að geta
veitt meira fé en áður var gert
til margvíslegra framkvæmda úti
um land.
Hvarvetna vinnuaflsskortur
Andstæðingar okkar íullyrtu,
að ráðstafanir okkar hlytu að
leiða tii þess að atvinna minnk-
aði í landinu. Sumir sögðust þó
ekki vilja fullyrða, að atvinnu-
leysi hæfist strax, en ödl eftir-
vinna myndi falla niður fljótlega.
Nú er komið annað hljóð i
strokíkinn, því að niú er eftir-
vinnan talin of mikil, svo að um
vinnuþrælkun sé að ræða. !>að
eru sömu menn og sömu blöð,
sem halda því fram og áður
hörmuðu, að eftirvinna hlyti að
hverfa.
Seinna hertu andstæðingamip
sig og sögðu, að algert atvinnu-
Framhald á bls. 17.
Nýmæli að prestur beiti sér fyr-
ir sáttatilraun í kjaradeiiu
BSRB hefir ekki enn skotið læknamálinu til Hæstaréttar
Fossvöllum, Jökufldal, 7. nóv.
HÉR er nú komdn hlóka og
hefir tekið talsvert af snjó.
Jörð er orðin góð í Jökulsár-
hlíð og víðast inn um sveitir.
Hinsvegar er snjór enn mikill
úti á Húsey og eylendinu svo og
austan til á Héraði, enda setti
þar niður mun meiri fönn.
Allt er því hér að lagast þar
sem nú er hægt að beita fénu á
ný. Enn óttast menn að kind og
kind hafi hlekkst á í fönn.
Smalamenn frá Skriðuklaustri
„Hlíf“ efnir til
fræðslustarfs
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Hlíf í
Hafnarfirði er um þessar mundir
að hefja fræðslustarf meðal yngri
félaga sinna. Mun Hannes Jóns-
son, félagsfræðingur, veita þessu
fræðslustarfi forstöðu á vegum
Félagsmálastofnunarinnar.
í kvöld verður fyrsti fundur-
inn haldinn í Góðtemplarahúsinu
kl. 8,30. Er þess vænzt að ungir
Hlífar-félagar mæti.
BSRB mót-
mælir uppsögn
EINS og skýrt 'hefur verið frá,
hefur Geir Gunnarssyni aliþingis
manni verið sagt upp skrifstofu-
stjórastarfi hjá Hafnarfjarðarbæ,
sem honum var veitt, er sam-
stjórn Alþýðuflokks og kommún-
ista hófst í Hafnarfirði 1954, án
þess þó að staðan hefði áður ver-
ið auglýst laus til umsóknar.
Mbl. hefur nú borizt frétt frá
BSRB, þar sem frá því er skýrt,
að stjórn þess hafi einróma sam-
þykkt að taka þátt í kostnaði
vegna málshöfðunar ve^na fyrr-
greindrar uppsagnar og að Egill
Sigurgeirsson hæstaréttarlögmað
ur yrði málflytjandi.
Þýzkur
togari
strandar
Patreksfirði 7. nóv.
HER kom í gærkvöldi þýzki
togarinn Maria von Jever.
Kom togarinn að sækja tvo
menn, sem lagðir höfðu verið
inn í sjúkrahúsið fyrir
skemmstu. Við innsiglinguna
vildi það óhapp til að skip- J
stjórinn sigldi togaranum ut- 4
an hafnarmerkja og strand- í
aði honum utan til við hafn-
armynnið. Skipið losnaði af
eigin rammleik klukkan hálf
tvö í nótt. Skemmdir voru
engar. í»á kom hingað í dag
þýzki togarinn Sonne með fót-
brotinn mann, sem lagður var
inn í sjúkrahúsið. — Trausti. i
BLAÐIÐ átti í gærkvöldi tal
við séra Jakob Jónsson út a£
frétt er birtist í gær í Vísi
um að hann ætlaði að beita
sér fyrir sáttatilraunum milli
deiluaðila í læknadeilunni.
Séra Jakob kvaðst ekkert
vilja láta hafa eftir sér um mál-
ið á þessu stigi, enda væri frétt-
in í Vísi ekki eftir sér höfð. —
Hann kvaðst hins vegar ekki
vilja synja fyrir að fitjað hefði
verið upp á þessu sem tilraun
til sátta og því aðeins hefði sér
komið þetta í hug, að hann ef-
aðist ekki um einlægan vilja
allra aðila deilunnar deilunnar
að finna á henni lausn, hvort
sem þetta eða eitthvað annað
yrði til að deilan leystist sem
allra fyrst.
Það sem valdið hefði afskipt-
um sínum í málinu væri að
sjúkrahús þau er um ræddi væru
í sinni sókn.
Ummæli formanns
Læknafélags Reykjavíkur
Ennfremur hafði MorgunblaS-
ið tal af Arinbirni Kolbeinssyni,
formanni Læknafélags Reykja-
víkur, og spurði hann um lækna
deiluna. Hann kvað séra Jakob
Jónsson hafa átt tal við sig i
gærkvöldi og stungið upp á
fundi deiluaðila um málið í þeim
tilgangi að hægt væri að hefja
umræður á ný um bráðabirgða-
samkomulag, sem .notast mætti
við þar til dómar ganga í mál-
inu.
Arinbjörn kvaðst gera ráð
fyrir að séra Jakob myndi senda
aðilum bréf og boða til fundar
um málið. Ekki kvaðst hann vita
hverju svarað yrð^ af hálfu
lækna. Þó finndist ser ekki úti-
lokað að ímynda sér að einhver
lausn fengist þótt telja..mætti
það til bjartsýni.
Hann kvað hins vegar þetta
mætti telja til nýmæla að prest-
ur gengi fram fyrir skjöldu í
kjaradeilu.
Kæra BSRB ekki komin fram
Þá spurðist biaðið fyrir um
það í gærkvöldi hjá Hákoni Guð-
mundssyni, hæstaréttarritara,
hvað liði kæru BSRB út af úr-
skurði Félagsdóms, þar sem
hánn tók ekki til greina frávís-
un ’-'iálsins frá dóminum.
Hæstaréttarritari sagði að
ekki hefði enn borizt formleg
kæra BSRB til Félagsdóms. Það
væri síðan dómsins að afgreiða
málið til Hæstaréttar.