Morgunblaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.11.1962, Blaðsíða 3
ÍT Sunnudagur 18. nðv. 1962 MORGVNBLAÐIÐ Þa3 var mikil umferð um Melavöllinn á föstudag þegar skaulasvellið þar var opnað. Vafalaust er eitthvað af þessum ungmennum með harðsperrur núna, en það var nú gaman samt. Stefnumót 1 GÆR var opnað vestur á Melavelli skautasvell. Undan- farna tvo sólarhringa hafa starfsmenn vallarins unnið að því að dæla vatni á völlinn og reynt að láta það frjósa sem sléttast. Margt var um mann- Sum börnin fóru að tínast heim upp ú. þrjú, og mörg þeirra sem áttu skauta síðan í fyrra, voru ekki einfær um að komast úr skónum. Þá var einhver félagi fenginn til að toga í skóinn, meðan skauta- — Ógurlegur hraði var þetta, mér varð bara ekki um sel. ist heilt herbergi af munum, en aðeins sárasjaldan hirti nokkur uip að vitja þeirra. Það vill oft verða þannig að þeim sem fengu skautana í fyrra ____ j,ag iitur einna helzt út gengur erfiðlega að ná þeim af í ár. (Ljósm. Sv. Þorm.) fyrir að fólk hafi nóg fjár- inn, þegar líða tók á daginn. Ennþá er svellið ekki orðið alveg slétt, en eftir að búið er að nota það í dag stendur til að úða á það vatni, og þá ætti það að verða vel slétt. Klukkan tvö í gær átti að opna íþróttavöllinn og þegar fréttamann Morgunblaðsins bar þar að garði nokkru áður voru nokkuð mörg börn þeg- ar komin út á svellið. Mörg voru með smærri systkin sín með sér, og ein stúlka kom með pappakassa, sem hún setti litla bróður í. Síðan var bundinn trefill í kassann og hann dreginn á fleygiferð um allt svellið af tveim skauturum. Það væri einum of mikið sagt að segja, að skautararnir hafi almennt verið fimir þenn- an fyrsta dag þeirra á Mela- vellinum. Iðulega urðu harka legir árekstrar eða þá að ein- hver datt og aðrir um hann, unz fjöldi var kominn í eina bendu. Þetta lagast þó vaía- laust og eftir fáeinar skauta- ferðir verður varla nokkur leið að sjá á þeim að það hafi nokkurn tíma komið sumar. eigandinn hélt sér dauða- haldi, þangað til skórinn losn- aði. á Melavelli Þegar ungviðið hvílir sig er það oft í stellingum sem aðrir skilja ekki. Þegar á fyrsta tímanum var komið inn á skrifstofu vallarins með fyrsta óskila- muninn. Drengur hafði fund- ið ljósa prjónahúfu úti á svelli og enginn, sem hann spurði, virtist kannast við hana. — Vallarverðirnir töldu litlar líkur fyrir að hún kæmist nokkurn tíma til skila, því á ótrúlega skömmum tíma fyllt- ráð, því allt kostar þetta eitt- hvað, þegar nýtt er keypt í staðinn, varð einum vallar- varðanna að orði. Ætlunin er að hafa hátal- arakerfi vallarins í notkun og munu þá tónar nýjustu og vinsælustu laganna vafalaust berast þarna um. Einnig er í ráði að lýsa upp svæðið og verður þá ljóskösturum kom- Sr. Jómas Gíslasorv Fyrirgefning 22. sunnud. e. trinitatis: „Fyrir því er himnaríki likt konungi einum, sem gjöra vildi upp reikning við þjóna sína. En er hann tók aS gjöra upp, var færð ur til hans einn, er skuldaði tíu þúsund talentur. En er hann hafði ekkert til að borga með skipaði herra hans að seija skyldi hann, konu hans og böm og aliar eigur hans, og skuldin borgast. Þá féii þjónninn fram, laut honum og sagði: Herra, haf biðlund við mig, og ég mun borga þér aUt. En herra þjóns þessa kenndi í brjósti um hann, lét hann lausan og gaf hon- um upp skuldina. En er hann ór út, hitti þessi þjónn einn af sam- þjónum sinum, sem skuldaði hon- um hundrað denara. Og hann greip hann, tók fyrir kverkar honum og sagði: Borga það, sem akuld- ar! Samþjónn hans féU þá fram, bað hann ðg sagði: Haf biðlund við mig, og ég mun borga þér. En hann vildi eigi, heldur fór og varpaði honum i fangelsi, unz hann hafði borgað skuldina. En er nú samþjónar hans sáu, hvað orðið var, urðu þeir mjög hryggir. Og þeir komu og sögðu húsbónda sin- um aUt, sem orðið var. Þá lét hús- bóndi hans kalla hann til sin og segir við hann: IUi þjónn, ég gaf þér upp aUa sbuldina, með þvi að þú baðst mig. Bar þá eigi einnig þér að vera miskunnsamur við samþjón þinn, eins og ég var misk unnsamur við þig? Og húsbóndi hans varð reiður og seldi hann f hendur böðiunum, þangað tU hann hefði borgað alla skuldina Þannig mum einnig faðir minn himmeskur breyta við yður, ef þér fyrirgefið ekki hver og einn af hjarta bróður yðar.“ Matt. 18. 23-35 I. VIÐ lifum á öld öryg'gisleye- is og rótleysis í enn ríkara mæli en áður hefur þekkzt í mann- heimi. Flestir horfa kvíðnir til framtíðarinnar og óttast, að hún kunni að bera böl og þjáningu inn í líf einstaklinga og þjóða. Við þurfum ekki að renna hug- anum marga daga aftur í tím- ann til að minnast ógnarfrétta Deiiur og stríð, uppþot og óeirðir Austur á Indlandi reyna Kín- verjar að sölsa undir sig aukið landrými. Við eyna Kúbu hafa staðið átök mestu stórvelda heims. Og þó eru þessi átöik aðeins smámunir hjá því, sem orðið get ur. Sú ógnin er meiri, sem hvál- ir eins og mara á öllu mann- kyni. Við getum aldrei gengið til hvílu að kvöldi í fullkomnu öryggi þess, að manrikyn muni lifa það að sjá sólina á ný varpa geislum sínum yfir jörðina. Hvenær sem er getur mannkynið undirritað sinn eigin dauðadóm. Þetta er heldur óskemmtileg mynd heimsmálanna í dag, en því miður er hún sönn. Aldrei hefur steðjað að okkur meiri ógn en ún. En hvers vegna er svo komið? Því þurfum við að fá svarað, ef við eigum að komast til ein- hvers skilnings á eðli vandans sem við er að glíma. II. Guðspjallið í dag er dæmisaga Jesú um hinn skulduga þjón. Hún minnir okkur á, að við mennirnir stöndum allir í spor- um hins skulduga þjóns frammi fyrir Guði. Við höfum brotið gegn Guði með syndum okkar, og þegar til reikningsskilanna kemur, eigum við ekkert gjald- gengt til að greiða Guði þá skuld Við eigum enga aðra leið færa en fara að dæmi þjónsins og ið fyrir á þakinu yfir stúk- unni. En þótt bjart verði næst þeim, rökkvar sjálfsagt þegar fjær dregur. Má því búast við að margt verði einnig um manninn á Melavellinum á kvöldin, þó það verði annar hópur en á daginn og Tjörnin hefði í gamla daga þótt róm- antískari staður. þ.h. biðja um fyrirgefningu og misk- unn. Þá er gott að vita, að skuld okkar við Guð er greidd. Annar hefur greitt í okkar stað. Fyrir krossdauða og upprisu Jesú Krists eigum við fyrirgefningu syndanna hjá Guði. Og hið eina, sem við þurfum ' að gera, er að þiggja þessa fyr- irgefningu fyrir trúna á Jesúm Krist. Við þurfum að gangast undir þann dóm, sem Guð kveð- ur upp yfir lífi okkar, og þiggja þá sýknun, sem hann býður okk ur. Þá eigurn við fyrirgefningu Guðs. En fyrirgefning Guðs sbuld- bindur oklbur. Er við höfum sjálf þegið náð og miskunn, ber okkur að miskunna og fyrirgefa. Við eigum að leyfa kærleika Guðs að kveikja kærleika hjá okkur. Og Jesús segir okkur í guð- spjallinu, að sá einn geti notið fyrirgefningar Guðs, sem sjálfur er reiðubúinn að fyrirgefa öðr- um. Og þá er spurningin þessi fyrir okkur: Einkennist líf okk- ar af þvi hugarfari? Er ekki hefnigirni og tortryggni ríkari þáttur hjá okkur? Við verðum með kinnroða að játa sekt okkar. Sú sekt kemur í ríkum mæli fram í samskipt- um hinna stóru og voldugu þjóða, og við sjáum dæmi hins sama í lífi okkar, einstakling- anna. Og hér erum við komin að uppsprettu hins illa hér í heimi uppsprettu öryggisleysis og rót- leysis, ógna og stríðs. Okkur skortir þann kærleika, sem Guð einn getur kveikt í mannshjört unum. Við erum of gleymin á náðargjafir Guðs. Við höfum um of gleymt þeim náunga, sem Guð hefur falið okkur að elska sem bróður. m. Og hér erum við komin að eina úrræðinu, sem okkur er gefið til að komast út úr öng- þveitinu. Við þurfum að taka alvanlega boðskap Jesú Krist. Guð hefur auðsýnt okkur náð sína í Jesú Kristi og fyrirgefið okkur syndirnar. Þess vegna verðum við einnig að vera fús til að fyrirgefa, þótt eitthvað sé gert á hluta okkar. Við stönd- um í sporum hins skulduga þjóns Sá maður, sem neitar að fyrir- gefa öðrum, hefur um leið hafn- að fyrirgefningu Guðs. Sá mað- ur, sem tekur ekkert tillit til ná- unga síns, hefur brotið hið tvö- falda kærleiksboðorð, sem Jesús sagði, að væri æðst allra boð- orða. Og hér gildir hið sama í lífi einstaklinga og þjóða. Lausn- in á vanda mannkynsins í dag er sú breyting hugarfarsins, sem kemur innan að, frá því hjarta, sem er mótað af kærleika Guðs. Mennirnir geta aldrei sjálf- ir einir síns liðs leyst vanda- m,álin, sem steðja að í dag. Eina vonin er fólgin í því, að Guð fái framkvæmt vilja sinn með okk- ur. Framtíð mannkynsins hér á jörð er komin undir því, hvort við látum mótast af vilja hans eða ekki. Og hér eiga allir hlut að. Það er mikil alvara fólgin í lokaversi guðspjallsins: „Þannig mun einnig faðir minn himnesk ur breyta við yður, ef þér fyr- irgefið ekki hver og einn af hjarta bróður yðar.“ Hér er um að ræða eina skil- yrði Guðs fyrir náð hans. En þetta skilyrði er ófrávíkjanlegt. Tökum því boðskap Jesú Krists alvarlega. Gerum alvöru úr þvf að fylgja boðum hans. Þá eigum við von mitt í vonleysi samtíð- arinnar. Þá eigum við öryggi mdtt í öryggisleysinu, því að þá höf- um við grundvallað líf okkar á því bjargi, sem aldrei bifast. Þá getum við örugg horft til fram- tíðarinnar, því að við eigum full vissu um þá náð, sem nægir til eilífs lífs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.