Morgunblaðið - 18.11.1962, Síða 4
4
Járnsmíði
Tökum aC okkur allskonar
járnsmíði, viðgerðir og ný-
smíði.
Katlar og stálverk hf.
Vesturgötu 48. Sími 24213.
Forhitarar
Smíðum forhitara. Allar
stærðir.
Vélsmiðjan KYNDILI.
Sími 32778.
Járnsmíðar
Smíðum skorsteinsfesting-
ar fyrir sjónvarpsloftnet
og ýmiss konar járnsmíðar.
Fjölvirkinn
Bogáhlíð 17. Sími 20599.
500 hænuungar
6 mánaða gamlir, til sölu
á Fossvogsvegi 3.
Keflavík
4ra herb. íbúð til leigu frá
nk. áramótum. Fyrirfram-
greiðsla. Uppl. að Mána-
götu 9.
Óska eftir að taka á leigu
2ja herbergja íbúð. Uppl.
gefnar í síma 19531.
Vön afgreiðslustúlka
með góð meðmæli óskar
eftir atvinnu 1. janúar.
Abyrgðarstaða kæmi til
greina. Uppl. í síma 24720
frá 9—5.
Til sölu
góð Necci saumavél í skáp
að Sólvallagötu 5 A, —
Simi 16946.
Fordson varahlutir
til sölu. Upplýsingar í
síma 51428.
Hafnarfjörður
íbúð óskast til leigu 1. des.
Uppl. í síma 51328.
Útlendingur óskar eftir
herbergi til leigu með eða
án húsgagna. Upplýsingar
í síma 35685.
tbúð óskast til leigu
Ung hjón óska eftir 2—3
herbergja íbúð. Uppl. í
sima 36188 og 33997.
STÓB SENDIBtLL, TIL SÖLU
Stöðvarpláss getur fylgt.
Uppl. eftir kl. 2 að Nýbýla-
vegi 34 A, Kópavogi. —
Sími 22636.
Keflavík
Hjarta crepe garnið er
komið. Margir fallegir litir.
Elsa
Hafnargötu 15. Sími 2044.
Keflavík
Jólasokkarnir á börnin,
hvítir, bláir og gulir.
Elsa
Hafnargötu 15. Sími 2044.
MORCVlXTtr ifílfí
Sunnudagur 18. nóv. 1962
Reglnr þfnar eru dásamlegar þess
vegna heldur sál mín þær. Útskýr-
ing orðs þíns upplýsir gerir (ávisa
vitra. (Davíðssálm. 119).
í dag er sunnudagur 1*. nóvember.
322. dagur ársins.
Árdegisdæði er kl. 10.03.
Síðdegisflæði er kl. 22.38.
Næturvörður vikuna 17.-24.
nóvember er í Vesturbæjar Apó-
teki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vilk
una 17.-24. nóvember er Ólafur
Einarsson, sími 50952.
Neyðarlæknir — sími: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
vlrka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Sjúkrabifreið Hafnarfjarðar
sími: 51336.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
ORÐ lífsins svara í síma 24678.
I.O.O.F. 3. = 14411198 = 8V2 - 0 -
I.O.O.F. 10 = 14411198V2
I.O.O.F. = Ob. 1 P. = 1441120 8V2
— Fræðsla um merki
n EDDa 596211207 = 2 Atkv.
n MÍMIR 5962111 97 = 2
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt held
ur fund í Sjálfstæðishúsinu mánu-
dag9kvöldið 19. þ.m. kl. 8.30. Fjár-
málaráðherra Gunnar Thoroddsen tal-
ar á fundinum og svarar fyrirspurn-
um. Allar Sjálfstæðiskonur eru vél-
komnar meðan húsrúm leyfir.
Skemmtiatriði og kaffidrykkja.
Vorboðakonur Hafnarfirði. Munið
fundinn í Sjálfstæðishúsinu annað
kvöld kl. 8,30. Þar verður upplestur
og skuggamyndir sýndar. Félagskon
ur fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
KFUM og K, Hafnarfirði. Á almennu
samkomunni í kvöld, sem hefst kl.
8.30, talar Hilmar B. I>órhallsson.
Kvenréttindafélag íslands: Fundur
verður haldinn í félagsheimili pren-t-
ara að Hverfisgötu 21 þriðjudaginn
20. nóv. kl. 20.30 stundvíslega. Fund-
arefni: 1. Bazarinn 4. desember nk.
2. Frá sjónarhóli ungra stúlkna (Nokkr
ar ungar stúlkur taka til máls).
Kvenstúdentafélag íslands heldur
annan fræðslufund sinn um ræðu-
mennsku og ræðugerð í Þjóðleikhús-
kjallaranum þriðjudag 20. nóv. kl.
8.30 síðdegis. Fyrirlesari verður Bene-
dikt Gröndal, alþingismaður.
Breiðfirðingafélagið hefur félagsvist
og dans miðvikudaginn 21. þ.m.
Aðalfundur Geðverndarfélags ís-
lands verður haldinn í I. kennslustofu
Háskólans mánuda^inn 19. þ.m. kl.
20.30. Venjuleg aðalfundarstörf.
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss er á leið til Reykjavíkur, Detti-
foss er á leið til NY, Fjallfoss er
á leið til Raufarhafnar, Seyðisfjarðar
og Eskifjarðar, Goðafoss er á leið til
Reykjavíkur, Gullfoss kemur til Rvík
í dag. Lagarfoss fer frá Reykjavík,
í dag tid Grundarfjarðar Raufarhafn-
ar og Dalvíkur, Reykjafoss er á leið
til Lysekil og Kotka, Selfoss er í Rvík
Tröllafoss er á leið til Vestmanna-
eyja og þaðan vestur og norður um
land, Tungufoss er á leið til Lysekil.
Hf. Jöklar: Drangajökull er í Vent-
spils, Langjökull er á leið til Camden
USA, Vatnajökull er á leið til Amst-
erdam og Rotterdam.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Rvík
Esja fer frá Reykjavík á hádegi í dag
austur um land í hringferð, Herjólf-
ur er í Reykjavík, Þyrill var 1 Manch-
ester í gær, Skjaldbreið er í Reykja-
vik, Herðubreið er á Austfjörðum á
suðurleið.
Ljóð dagsins velur að þessu
sinni Helgi Hjörvar, rit-
höfundur. Um val sitt seg-
ir hairn:
Þetta kvæði er valið af þrennu: — það mun vera nær ófcunn-
ugt þjóðinni; — hin einfalda og hjartnæma fegurð þess er
mikil; — kvæðið mætti verða góð kveðja ungum elskendum
í dag ag á morgun. — H.Hjv.
SAKNAÐABSTEF EKKJU
eftir Matthíhs Joehumsson
Með hálfum hug og veikri von
ég valdi tvísýn spor;
mðr sýndist lukkan laus
og völt,
en lífs mins burtu vor.
En heilum hug og helgri von,
minn holl vin, þig ég kveð
og lofa Guð, sem gaf mér
þig —
þó gjöfin væri léð.
Þú bauðst mér hvorki æsku-
l ár
né auð hjá þinni hlið,
en bauðst mér tryggt og
guðhrætt geð
og góðs manns sálarfrið.
Og kjör mín léttust, lukkan
kom,
hún liggur sjaldan föl;
við þykjumst einatt grípa
gull,
en grípum stríð og kvöl.
Ég kosti mat, en metorð ei
né mannvirðinga stig,
og mér var nóg að Guð mér
gaf
eins góðan mann og þig.
Við fáum stundum fögur haust
og frostahlé um sinn;
nú syrtir að um sólargang
og sumaraukann min.
Þá sveinninn vígist vænni mey
hann vandar morgungjöf.
En dýrri kvöldgjöf konan á
er kyssir manns sins gröf.
Ef sérhver lánuð lukkustund
til launa heimtar sár,
þá verðskuldar þú, vinur
minn,
að væti beð þín tár.
Með hrærðum hug og helgri
trú
ég hníg við tóman beð
og lofa Guð, sem gaf mér þig
þó gjöfin væri léð.
í gær opinberuðu trúlofun
sína Guðríður Pá'lsdóttir Bauða-
læk 11, og Wilhelm Sverrisson
Bragagötu 26.
75 ára er á morgun, mánudag,
Hallgrímur Guðmundsson frá
Grafargiii í Önundarfirði. Hann
dvelst á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Þinghólsbraut 13,
Kópavogi.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband af séra
Jónd Tborarensen Jóhanna Sóley
Hermannsdóttir og Erlingur Ein-
arsson, bókbindari. Heimili
þeirra verður fyrst um sinn að
öldugötu 42.
FRÉTTASÍMAR MBL.
— eftir iokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
-K -K -K GEISLI GEIMFARI -K -K -K
KNOWlMö YOu ^
coulD BE HIT wiTh
k THE RADiO-ACTivE
\ SPRAY ?
Buoc, r don't deserve
A FAVOR, BUT I'LL ASK
ANYWAY. LET ME 60 OUT
THERE AND DISLODÖE ^
THAT MlSSILE /
BUCKT, I kTNOW HOW TO DlSLODÖE
. THAT MlSSILE. BLOCKINö THE
SPRAY TUBE. IT’S RlSKY... BUT
W£ HAVE NO CHO/CE //
REX, WHOEVER DOES
THE DlSlNTESRATlNÖ
COULP HIMSElF SET
BlASTED BY THAT .
DEADLY RADtO-
ACTIVE SÞftAYt M£
— Ég veit hvernig hægt er aö losa
stífluna úr rörinu. Það er hættulegt,
en við verðum að gera það. Það verð-
ur að skjóta upp í rörið til að losa
stífluna.
— Rex, hver sem reynir þetta á
stórlega á hættu að lenda sjáfur í
geislavirka mökknum. Þið eruð báð-
ir asnar, til hvers á að vera að hætta
sér svona.
— Geisli, ég á ekki skilið að mér
sé gerður greiði, en ég ætla samt að
biðja þig. Láttu mig fara og losa
stífluna.
— Og þú veizt að þú gætir orðið
fyrir mökknum.
JÚMBÖ og SPORI —-K— -4<— K— Teiknari: J. MORA
Lestin stanzaði, og Spori teygði sig
eftir töskimni sinni upp í farangurs-
netið. — Vertu tilbúinn til að fara úr
lestinni, Júmbó, sagði hann. — Við er-
um komnir á leiðarenda.. — Ég er
alveg tilbúinn, svaraði Spori, — það
ert bú, sem ert með allan farangur-
inn.
Það var fjöldi annarra, sem ætlaði
út þama á sama stað. Þeirra á meðal
var Júlíus Atlas, sem Júmbó hafði
haldið vera Spora. — Ég verð að
viðurkenna að þeir eru líkir, muldr-
aði hann, kannski þeir tveir gætu
gert mer smágreiða.
Hann setti í hvelli upp gerviskegg
og sólgleraugu. — í þessu gervi þekk-
ir enginn mig aftur, sagði hann lágt,
það ergir áreiðanlega blaðamennina.
Svo fylgdi hann eftir Júmbó og
Spora niður á brautarpallinn.