Morgunblaðið - 27.11.1962, Síða 10

Morgunblaðið - 27.11.1962, Síða 10
MORGUNBLAÐIB í>riðjudagur 27. nóvember 1963 ie KmnMMMfimMMIMMMMMiWMMMIHnHHnMMIMIHMIMMninMNIM Veldur stefna Krúséffs algerri andstððu Rússa og Kínverja ? ÞVÍ, sem gerzt hefur í sam skiptum Indverja og Kín- verja, hefur verið líkt við martröð: Dreymandinn sér andlit vinar og félaga. Skyndilega kemur í ljós, að andlitið er gríma og á bak við býr hatursfullt augnatillit óvinar. Dreym- andinn vaknar og er þakk látur fyrir, að hér var að- eins um draum að ræða — en í sama mund veit hann, að hann hefur kom- ið auga á sannleikann: í draumnum hafði hulinn réttmætur ótti komið upp á yfirborðið. Þetta er jafn vel enn óhugnanlegra en martröðin, því að nú veit dreymandinn, að raunveru leikinn verður ekki leng- ur umflúinn. Raunveruleikinn birtizt Indverjum 20. október. Fram til þess tíma höfðu þeir lifað í samræmi við trú sína á hlutleysi. Það var rökstutt með þeirri skoðun, sem þeir höfðu á stórveldunum í austri og vestri. Sovétríkin og Bandarík- in höfðu hagnýtt sér að- stöðu sína eftir síðari heims styrjöldina til að skipta heiminum í tvær heildir, til að bæta valdastöðu sína, að dómi Indverja, og því Mao-Tse tung gátu þeir hvorugum fylgt. Kínverjar, aftur á móti, höfðu lýst yfir frændsemi við aðrar Asíuþjóðir, lof- að betra og heiðarlegra lífi, og þótt Indverjar að- hylltust ekki kínverskan kommúnisma, þá töldu þeir sig eiga sameiginlega baráttuyfirlýsingu með þeim. Tíminn leiddi hins veg- ar í ljós, að Indverjar höll uðust, í hlutleysi sínu, meira að Rússum en öðr- um þjóðum. Samskipti þessara landa voru góð, og ástæðan er augljós, frá sjónarmiði Rússa: Indland var stærsta hlutlausa ríkið í heiminum. Er líða tók að lokum síð asta áratugs, fór að bera á ásækni Kínverja í garð Indverja. Ráðamenn þeirra vildu þó ekki gera sér grein fyrir eðli Kínverja og treystu því jafnvel, að færi ásækni þeirra vax- andi, þá myndu Rússar beita áhrifum sínum. Á undanförnum árum hafa orðið miiklar breytingar á sam búð Rússa og Kínverja, þann ig, að nægt hefði, að sumra áliti, til að gera Indverjum Ijóst, hrvert stefndi. Þeir héldu þó fast við trú sina, allt fram til þess, að kínverskar her- sveitir réðust inn í norðaust- urhluta Indlands 20. október. Gagnkvæmt hlutleysi? Er Kínverjar réðust á Ind- land 1959, gaf Tass-fréttastof- an rússnesfca úit yfirlýsingu, þar sem lýst var hryggð yfir deilu þeirri, sem risin væri. Voru báðir aðilar hvattir til að leysa vandamál sín frið samlega. Þetta var í fyrsta skipti, sem Sovétríkin tóku hlutlausa afstöðu milli komm únistaríkis og ríkis, sem ekki var stjórnað í anda þeirrar stefnu. í október sama ár fór Krús éff til Kína, og er fullyrt, að þar hafi hann tekið í sama streng. Þá lýsti hann einni-g sömu skoðun yfir, er Æðsta ráðið kom til fundar þá um haustið. Einhæf túlkun Indverja Túlkun Indverja á þessari afstöðu Krúséffs var einihæf og tvíeggjuð. Hún hefur vafa lítið rennt stoðurn un-dir þá trú Ndhrus og Menons, að Rússar myndu reynast þeim hliðhollir, ef til frekari að- gerða Kinverja kæmi í garð Indverja. Þá, eins og bæði fyrr og síð ar, virðast Indverjar ekki hafa gert sér grein fyrir stefnu, þróun og eðli mál-a innan kommúnistaríkjanna. Deila sú, sem þá var raunveru lega hafin milli Rússa og Kín verja, vakti hvorki þá né síð ar hugarfarsbreytingu með ráðamönnum Indverj-a, svo að þeir teldu nauðsyn á að end urskoða utanríkismálastefnu sína. Deilumál koma í dágsljós Fra-m til ársins 1958 var samvinna Rússa og Kínverja -góð. Mao-Tse tung bjó heri sína rússneskum vopnum. Efnahagsaðstoð Rússa lagði grundvöllinn að iðnvæðingu Kína. Deilumál þessara aðila voru fá og smá, og allt virtist benda til þess, að þeir royndu berjast fyrir „sigri byltingar innar á alþjóðavettvangi“. 1958 fór hins vegar að bera á ummælum kínverskra leið toga um yfirvofandi stríðs- hættu og nauðsyn þess að bægja henni frá með „ákveðn um aðgerðum". Sérstaklega var viikið á mjög neikvæðan hátt að samn ingatilraunum við Vesturveld in. Sú gagnrýni var þó dul- búin, þar eð hún vék einkum a*ð „endurskoðunansrt.efnu“ Titós. Engurn gat þó dulizt, að hér var ekki síður vikið að stefnu Krúséffs. Þessarar gagn rýni gætti í æ ríkari mæli, og hámarki sínu náði hún 1960, er enn var ráðist á Tito og Lenin hafinn til skýjanna. Stefna Krúséffs var þar gagn rýnd í smáatriðum og skorti Krúséff -aðeins nafn forsætisráðherr- ans í þau um-mæli, til að um opinbera árás væri að ræða á valdhafana í Kreml. Þessu var fylgt eftir með persón-ulegum árásum á Krús éff, er þing verkalýðssamtaka kommúnistaríkjanna var hal-d ið í Peking. Deilan harðnar Svar Krúséffs bom, er hald inn var fundur kommúnista- leiðtoga í Búkarest mánuði síð ar. Þá má segja, að bardag inn hafi verið hafinn. Hann harðnaði enn, er fulltrtúar rúmlega 80 kommúnista- flokka komu saman í Moskvu baustið 1960. Aldrei fram til þessa höfðu sMfc stóryrði ibommúnistaleiðtoga heyrst, hvers í garð annars. Frásagn ir ítalska kommúnista, er sátu þennam fund, benda til þess, að næ-rri hafi legið, að al- gjör klofningur hlytist af inn an aiþjóðakommúnismans. Lítið er vitað um s-amband rússneskra og kínverskra feoromúnista fra-m til þess, er Stalín og Mao-Tse tun-g gerðu bandalag sitt. Ýmislegt þykir þó h-afa komið fram, er bendi til þess, að þá hafi aldrei ríkt fullt gagnikvæmt traust. Þegar kólna tók með Kínverjum og Rússum 1958, hafi þeir fyrr- nefndu minnz-t fyrri reynslu sinnar. Rússar hætta allri aðstoð Er gagnrýni M-ao-Tse tung va-r fcomin á þetta stig, hæ-ttu Rússar allri hernaðar- og efna hagsaðstoð sinni við Kínverja. Það jók enn á óvildina í garð ráðamanna Sovétríkjanna. Þar með var fóturn kippt undan framfaraáætlun þeirra, er gera átti Kína að iðnaðar vel-di. Rússar horfðu í Kína ramba fram á barm gjald- þrots án þess að tonfta litla fingri ti'l hjálpar. Bjó misskilningur Maos að baki? Ekki verður bjá því fcomizit að varpa fram þeirri spurn- in-gu, hvað hafi valdið, að Rússar stofnuðu framtíð og öryggi stærsta samherja síns þannig í voða. Hafi það verið -gagnrýni fcínverskra komm- únista, hvers vegná buðu þeix þá Rússum byrginn? Sennilegasta skýringin, sem fram hefur komið, er sú, að Mao-Tse tuing h-afi lagt út á þessa hættulegu braut gagn- rýni vegna grundvallarmis- skilnings á tveimur mikil-sverð um atriðum. • f fyrsta lagi h-afi hann of metið efnahagslegan mátt Kiína. Þetta hafi leitt til þess, að hann hafi ekki haft augun opin fyrir því, hverju-m aug- um Kína var litið af þeim rlikjum, sem gerðu sér grein fyriri framtSðanmöguleiikum Kínverja, eins og þeir raun- verulega voru. Þar á meðal voru þau ríki, sem Kínverj- ar ætluðu sér að gerast leið togar fyrir. • í öðru lagi hafi Mao-Tse tung ekki gert sér grein fyrir veldi Krú-séffs, fyrr en það var um seinan. „Friðsamleg sambúð“ þyrnir í augum Kínverja Margt er það, sem telja verð ur tU beinna eða óbeinna or- sa-k-a deilu Kínverja og Rússa. Eitt af þei-m atriðum eru sam Skipti Rúss-a við vestrænar þjóðir á ým-sum vettvangi, og e. t. v. einnig -innan vébanda Sameinuðu þjóðanna. Að dómi Kínverja er hér um að ræða hættulegan samgang við höfuðóvin. Krúséff virðist gera sér grein fyrir þvi, að einangrun er hættul-eg. H-ann virðist ekki trúa á þá skoðun Stalins, að það sé nægilegt að sitja innan veggja Kreml, til þess að skoðunum verði hrundið í framkvæmd. Eins og áðu-r er vikið að, þá var gagnrýni Kínverja í upp hafi dulbúin á þann hátt, að henni var beint gegn Júgó- -slavíu. 1960 og 1961 háði Krús éff 'harða baráttu til að sveigja Albaníu til fylgis við „frið- samlega -sambúð“, og stefnu sána. Það tókst ekki, og eftior að Krúséff lýsti and-úð sinni á Hoxha, einræðisherra Alban íu, á 22. þingi rússneska komm úni-staflokksins 1981, snerist Hoxha algerlega á band með Kínverjum. Þá hætti einnig efnahagsaðstoð Rússa við Al- bani. Frá þeirn tíma hafa þeir lagzt á eitt, Mao-Tse tung og Hoxha, að kalla Krúséff svik ara og liðhlaupa. Kínverjar nota nú Albaníu til árása á Krúséflf, og hefur lan-dið þann ig orðið nokfcurs konar tákn baráttu Kínverja og Rússa. Kínverjar staðfesta stefnu sína Flestir, sem fram til þessa hafa efcki trúað á árasar- eð-a „útbreiðslustefnu" kínverskra fcommúnista, munu hafa færzt feti fjær þeirri skoðun sinni, er Kínverjar gerðu árasina á Indland. Ailt vlrðist benda til, að þetta hafi verið stefna fcín- verskra fcommúnista allt frá upphafi. Tímarit kinverska fcommúnistaflokk'sins, „Rauði fáninn“ birti nýlega fyrirlest frá árinu 1939: „H-vernig á góður fcommúnisti að vera“? Þar segir að leggj-a verði á- herzlu á að „útbreiða bylt- inguna, unz allt mannkyn hafi verið frelsað". 1. október sl„ aðeins þremuir vikum áður en innrásin i norð austurhluta Indland.- 'rófst, segir í yfirlýsingu fcínvcrsku stjórnarinnar, með tilvísun til sa-m-þykktar fra 28. septem— ber, að „leggja verði áherzlu á að úfbreiða alþjóðakomm- úinismann". Kemur fram, að slífcri stefnu verði að fyl-gja, þrátt fy-rir stefnu Rússa — því verði Kínverjar að berj- ast einir 1 þeim tilgangi. Tilgangur árásarinnar á Indland. Árásin á Indland er^f flest um sérfræðingum talin gerð í a.rn.-k. tvíiþættum tilgangi: • Þeir séu í fyrsta lagi að vinna ný lands-væði, og efast fáir um, að þeir telji fulla þörf á því. (% í öðru lagi séu þeir að undirstrika andstöðu sína við stefnu Krúséffs um „friðsam lega sa-mbúð", sem þeir telja nú hreina villu, og frávifc fra grund-vallarkenningum M-arx og Lenins, sem miði að al- heim-sútbreiðslu þessarar stjórnmálaskoðunar. Þá er einni-g talið, að Kin- verjar séu með árás 'sinni að j undirstrika það, að þeir séu } mesta þjóð Asíu, og framtíð- arleiðtogi. Afstaða Rússa til Indlands nú Viðbrögð hlutlausra landa við árásinni á Indland eru > vel kunn. Reið allra Indverja hefur verið vakin. Þótt Rúss- ar bafi nýlega áfcveðið að l láta Indv-erjum í té MIG-orr- ustuþotur, þá táknar það á eng-an hátt, að þei-r ætli sér að í leggja In-dverjum lið. Sá samn ingur var gerður áður en inn rásin hófst, og Rússar geta því staðið við hann, án þess að um bein-a íhlutun af þeirra ; hálfu sé -að ræða. Enn hefur heldur ekkert komið fram, sem bendir til, að þeir muni ganga len-gra í stuðningi sín- um. Ráðizt að hyrningar- steini stefnu Krúséffs Enginn vafi leikur á þvi, í að Kínverjar hafa gert sér í fulla grein fyrir því, að með ■ því að ráðast á Indland, hafa ; þeir stefnt í stórhættu allri sa-mbúð Rússa og hlutlausra i ríkja. Þar með hefuir verið ráðizt á hyrningarsteininn í utanríkismálastefnu Krúséffs. ! Þetta staðfestir aðeins enn betur, hve mikl-a hættu Kín- verjair telja steðja að alþjóða ; fcommúnismanum of stefnu Krúséffs. Þó verður enn ekki séð, að tilræði þeirra við ' Krúséff -hafi leitt til þess, að hann hafi orðið að hverfa frá ■ stefnu sinni, eða víkja fyrir öðrum öflum, sem vildiu aftur hvarf til stefnu Stalins og Kín verja. t Hér er því greinilega um tvær stefnur að ræða. Mao-Tse tung er einangrunarsinni. Má m.a. til marks hafa, að hann Framhald á bls. lö. Hoxha

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.