Morgunblaðið - 27.11.1962, Síða 11
Þriðjudagur 27. nóyeiriber 1962
MpncvNni.AÐiÐ
11
Sjötugur i dag:
Ingimar Óskarsson
er krefst næmrar athyglisgáfu
og gagnrýni. Það er kunnugt öll
um, er til þekkja, bæði hérlend-
is og erlendis, að Ingimar er einn
allra færasti maður á þessu
sviði, sem nú er uppi, og er is-
lenzkuim fiskirannsóknum mikill
sómi að hafa slíkan mann í þjón
ustu sinni og vona ég, að Fiski-
deildin fái notið starfskrafta
hans árfam enn um sinn.
Persónulega vil ég þakka Ingi
mar mjög gott samstarf undan*
farin 16 ár og fyrir hönd starfs-
bræðna hans á Fiskideildinni
færa honum okikar beztu árnaðac
óakir.
Jón Jónsson
grasafræðingur
NÁIN þekking á náttúru lands- |
ins, bæði lifandi og dauðri er
undirstaða þess að fólkinu vegni
vel í landinu. Grasvöxtur, göng-
ur fiska, heitt vatn í jörðu —
allt eru þetta atriði, sem miklu
valda um lífskjör fólksins, bæði
í dag og á morgun. Ennþá ráðum
við þó litlu um stærð hinna ein
stöku árganga í fiskstofnunum
né ýmiss þau atriði, er mestu
valda um afkomu bóndans. Þekk
ing á þessu getur þó á margan
hátt auðveldað þær ráðstafanir,
sem gera þarf hverju sinni, til
þess að mæta þeim vanda, sem
að höndum ber.
Það er ánægjulegt fyrir vísinda
menn, sem vinna að hagnýtum
rannsóknum, að sjá þær verða
þjóð sinni að gagni, en oft er það
svo í okkar unga rannsóknar-
starfsemi, að undirstöðurann-
sóknirnar vantar, því að ekki hef
ur verið fyrir hendi fé, fólk né
•tími til þess að sinna þeim.
Einn þeirra manna, sem unn-
ið hafa að því að treysta undir
stöðuþekkingu okkar á náttúru
íslands, Ingimar Óskarsson, er
sjötugur í dag. Ingimar hefur
unnið merkit brautryðjendastarf
bæði á sviði grasafræði og dýra
fræði, alltaf sem hjáverk með
öðrum skyldustörfum. Hann er
sjálfmenntaður maður í báðum
þessum fræðigreinum. en með
frábærri eljusemi, festu og
öruggri dómgreind hefur hann
lagt fram þýðingarmikinn skerf
í íslenzkum náttúrufræðirann-
sóknurn og skrifað um þær fjöl
margar ritgerðir í íslenzk og er-
lend vísindarit.
í þessari stuttu afmælisgrein
verða ekiki rakin hin margvíslegu
, vísindastörf Ingimars, enda hef-
ur kerling Elli engin áhrif haft
á fræðimennsku hans, eins og
sézt bezt á því, að fyrir skömmu
kom út annað bindi af riti hans
um Skeldýrafánu íslands, og fyrr
á þessu ári kom út bók hans Fisk
ar í litum. Hann er kunnur út-
varpsfyrirlesari um náttúrufræði
og hefur einnig ritað mi'kið í
blöð og tímarit um hugðarefni
sín.
íslenzkar fiskirannsóknir áttu
því láni að fagna að ráða Ingi-
mar í þjónustu sína árið 1947,
og hefur hann verið samstarfs-
maður undirritaðs þann tíma við
rannsóknir á þorski og innt af
hendi mjög mikið stanf á því
sviði. Aldursákvarðanir fiska eru
undirstaðan fyrir mati okkar á
stærð fiskistofnanna og sveiflum
í árgangaskipun, er miklu ráða
um aflabrögð. Á þeesu sviði hafa
vísindahæfileikar Ingimars kom
I ið að miklu liði, því að hér er
I um að ræða erfiða smásjárvinnu,
KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR *
>
KVIKMYNDIR
•* KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR UM: * KVIKMYNDIR ■*
Hafnarfjarðarbí ó:
Flemming og Kvik.
„Fleming“-bækurnar dönsku eru
eitt vinsælasta lestrarefni
danskra barna og unglinga, enda
eru vinirnir Flemming og Kvik,
skemmtilegir strákar, að vísu dá-
lítið baldnir í skólanum, en þó
góðir drengir inn við beinið. —
í þessari mynd er sagt frá ýmsum
brösum þeirra og fleiri félaga
þeirra í 2. bekk í skóla Hallings
rektors í einu af úthverfum borg
arinnar. Strákarnir eiga í ýmsum
útistöðum við suma kennaranna
og einnig sín á milli. Kennararnir
taka pörum strákanna misjafn-
lega, sumir af skilningi og vinna
virðingu drengjanna, en aðrir
beita þá hörku og jafnvel ósann
girni.
En Halling rektor er hinn mild-
andi meðalgöngumaður, enda hef
ur hann á langri ævi jafnan starf
að eftir einkunnarorðunum: —
„Reyndu — með hinum sterka
armi kærleikans“. Hér verður
ekki rakið efni myndarinnar, en
það skal aðeins sagt að myndin
er bráðskemmtileg og ágætlega
leikin, enda fara þarna með hlut
verk margir mikilhæfir danskir
leikarar svo sem Johannes Meyer,
eem leikur Halling rektor, Jörgen
Reenberg, Berthe Qvistgoord,
Ghita Nörby o.fl. að ógleymdum
drengjunum Steen Flensmark og
Per Geckler, er leika Flemming
og Kvik. Myndin er einnig mjög
lærdómsrík og á vissulega erindi
bæði til kemnara og fereldra
skólabarna.
Sem sagt: prýðileg mynd, létt
en þó þannig að hún vekur til
umhugsunar um vandamál æsku-
fólksins og þeirra sem eiga að
leiðbeina því og ala það upp.
Háskólabíó:
Styrjöldin mikla.
Þetta er ítölsk verðlaunamynd
tekin í CinemaScope og fylgir
henni danskur skýringartexti.
Myndin gerist á Ítalíu í heims-
styrjöldinni fyrri, er ítalir og
Austurríkismenn eigast þar við í
harðvítugum orustum. Aðal per-
sónur myndarinnar eru þeir
Oreste (Alberto Sordi) og Gio-
vanni (Vittorio Gassman), sem
hittast fyrst í Norður-ftalíu ár-
ið 1917. Þeir eiga það sammerkt
að þeir hata stríðið og eru vissu-
lega ekki heldur sérlega hugdjarf
ir stríðsmenn. Oreste er eigin-
gjarn og bleyða, en Giovanni
nokkru skárri en hann og frakk-
ari, einkum í munninum og nýtur
töluverðrar kvenhylli, enda tekst
honum að heilla hina fögru
Constantinu, sem þó er all ver-
aldarvön. Þessar vafasömu hetj-
ur lenda saman í ömurlegum og
illa búnum herbúðum og komast
aft í hann krappan þó að þeii
noti hvert tækifæri til þess að
komast hjá hættum stríðsins. En
svo fer að lokum að Austurríkis-
menn taka þá til fanga og reyna
að fá þá til að ljósta upp hernað-
arleyndarmáli herdeildar sinnar.
En þá bregður svo kynlega við
að þessir tveir menn neita að
gefa nokkrar upplýsingar, þrátt
fyrir það að þeim er hótað líf-
láti ella, og þannig ljúka þeir
ævi sinni sem sannar hetjur og
góðir synir ættjarðar sinnar.
Þetta er mikil mynd og ágæt-
Framhald á bls. 14.
Ný ævintýraleg og spennandi drengjabók eftir Walt Eisney,
ZORRO er nú komin út á íslenzku og fæst í flestum bóka-
verzlunum um land allt. — Þetta er fyrsta bókin í bóka-
flokki. — Walt Disney gerði söguna fyrir sjónvarpsmynd.
Síðan var gerð kvikmynd eftir sjónvarpsmyhdinni og nú
kemur hún einnig út í bókaformi.
BEX
Golfteppahreinsari
h. TT
GOOÐHOBSEmnNGUKTriCTI
J.J
Glæsilegt nýtt heimilistæki, sem gerir yður kleift að
halda gólfteppunum tandurhreinum FYRIRHAFNAR-
LAUST. — BEX-BISSELL teppahreinsarinn ásamt
BEX-BISSELL gólfteppashampoo, eru langárangurs-
ríkustu tæki, sinnar tegundar á markaðinum.
Söluumhoð:
Reykjavik:
Teppi h.f.
Austurstræti 22.
Keflavík:
Verzl. Kyndill.
Selfoss:
Kaupf. Árnesings
Akranes:
Verzl. Drífandi.
ísafjörður:
Húsgagnaverzlun
ísafjarðar.
Sauðárkrókur:
Verzl. Vökull.
Siglufjorður:
Bólsturgerðin,
Haukur Jónasson
Akureyri:
Bólstruð
Húsgögn h.f.
Húsavík:
Verzl. Askja h.jC.
Neskaupstaður:
Höskuldur
Stefánsson.
V estmannaey jar:
Marinó Guð-
mundsson.
★ Reynið BEX-BISSELL þegar í dag
*
Notið aðems það bezta
BEX- Blssel
★
Notið
PLASTIC OG NYLONEFNI
Fljótandi og í deigformi
— á tré, stein og málma
TIL UTAN- OG INNANHÚSSNOTKUNAR:
á málma — járn, stál, magnesiumblöndur
aluminium króm
steinsteypu, steina, asbest, gler,
glerjung, plastic, leður, vefnað, á hverskonar tré.
Glært og í litum — auðvelt í notkun.
Einkaumboð á íslandi fyrir
NEODON-WERK
HELMUT SALLINGER
KRUMBACH.
V-ÞÝZKALANDI;
Bragi Einarsson,
P.O.Box 1266. — Sími 15166.
Reykjavík.
NEODON
^ _
Undraefni.