Morgunblaðið - 27.11.1962, Page 13

Morgunblaðið - 27.11.1962, Page 13
Í>rii5juðágur 27. nðvember 1952 MORCTJIVBL 4Ð1Ð 13 tfónas Þorbergsson: Lif að loknu þessu. Aldarfjórðumgs miðilsþjónusta Hafsteins Björnssonar. Minningar Finnu lí£s og liðinnar og fleira, Sfeuggsj'á, Hafnarf. 1962. Það hafa ekfci margir menn ritifaerari en Jónas Þorbergsson etjórnað blöðum hér á íslandi. Hjá honuim fer saiman mikið vald á íslenzkri tungu, skap- hiti og skörp greind. Það hefði því engum þurft að koma á ó vart, þótt hann helgaði sig að nokkru ritstörfum, þegar hann lét af emibætti sem útvarpsstjóri, og þá ekfei sízt þar eð hann hef- ur verið og er ærið ern og hefur árwallt fylgzt vel með í atvinnu- málum, stjórnmálum og menning armálum þjóðar sinnar og öllu því helzta, sem gerzt hefur í umheiminum. Hann hefur og á síðustu árum skrifað mjög at- hyglisverðan bækling um íslenzk fræðslumiál og stóra bófe um einn helzta búnaðarframuð íslendinga fyrr og síðar, en þeim, sem les þá bók, sem nú er frá hon- um komin, Líf að loknu þessu, getur vart dulizt, að hann muni hafa varið til þeirra starfa, sem eru forsendur hennar, mifelu af tíma sínum, og að hann fjalli þar um mál, sem hann teljf að sé svo mikilvægt, að honum sé skylt að tala, því að þekfeing á því sé það eina, sem geti breytt sambúð og samskiptum einstaklinga og þjóða og bjargað mannkyninu af þeim helvegi sem það treður nú. Hann hefur það traust á ábyrgðartilfinn- ingu manna, * að ef unnt sé að sannfæra þá um það með rök- um, sem reist séu á staðgóðum rannsóknum, að líf sé að loknu þessu og að velfarnaður hvers einstaklings í því lífi sé kominn undir viðhorfum hans og við- leitni á þessu tilverustigi, muni að minnsta kosti verða við það miðaðar samibúðar- og menning- arhættir siðmenntaðs mannkyns, svo að reynt verði að hjálpa þeim breysku og veilu í stað þess að auka á ábyrgðarleysi þeirra og skilningsskort með full- yrðingum um það, að tilveru þeirra og skuldaskilum sé lok- ið um leið og þeirra lífsblóm fellur fyrir ljá hins slynga sláttu manns — og þess vegna sé sama, hvernig þeir verji gáfum sínum og kröftum, sarna hvernig þeir ýti við öðrum og hvað þeir traðki undir fótum af því, sem náunga þeirra er viðkvæmt eða jafnvel heilagt. 2. Jónas hefur mál sitt á því að skýra í aðaldráttum, hvað sé marbmið réttilega ástundaðs spír itisma — og sýnir fram á, að þær spurningar, sem spiritistar hafi leitazt við að fá svarað með raunsönnum rökurn, séu einmitt þær sömu og einna fastast hafi fenúið á dyr hugsandi manna frá örófi alda. En þrátt fyrir þessa Btaðreynd hafi þessi mál ekki verið hér á Vesturlöndum tekin svipuðum tökum og spiritistar gera nema um rúmt aldarskeið. Hann gerir síðan grein fyrir því, að auk þrjátíu ára persónu- legrar reynslu reisi hann fuil- vissu sína „um framlíf mann- anna . og samiband mannlegra sálna þeirra, sem enn dveljast holdi klæddar í jarðneskum efn- isheimi og hinna, sem framliðnar eru til andlegrar tilvistar,“ á vitn isburðum Heilagrar ritningar og prentuðum heimildum um ti’l- raunir og rannsóknir erlendra eálkönnuða, og nefnir þar sér- etaklaga tvö rit, en þau eru Human Personality and its Ser- vial of Bodily Death, eftir F.W. H. Myers og The History of Hann telur ser að tala Spiritualism, eftir Arthur Conan Doyle. Síðan segir hann frá því, hverjar voru orsakir þess, að honum var það möíigum öðrum fremur áhugamál að fá sann- anir fyrir framlífi. Hann missti á barnisaldri móður sína, og af þvá leiddi, að heimilið sundr- aðist. Frásögn hans aí þessari þrautareynslu er stuttorð, en mjög átakanleg. Hann varð þess svo vís, að furðu mörgum af samferðamönnum hans var svip- að farið, — þeir höfðu orðið, að þola ástvinamissi, sem hafði haft Jónas Þorbergsson lamandi áhrif á’ eSlilega lífs- nautn og jákvæða afstöðu þeirra gagnvart umhverfinu. Oig kenn- ingar kirkjunnar reyndust hon- um og þeirn steinar, en ekki brauð. Þá skýrir hann frá fyrstu kynnum sínum af spíritisman- um og rekur því næst stutt- lega feril þekkingar sinnar og reynslu á þeim vettyangi, unz hann staðnæmist við Hafstein Björnsson, sem hann hefur á und anförnum árum haft við mjög náið samband og samstarfs, ekki aðeins í þeirn tilgangi að fá sem gleggstar og flestar sannanir fyr ir framlífi, heldur líka til að afla fyrir meðalgöngu hans sem • mes trar ogvíðtækastrar'vitneskju um, hvernig því lífi sé háttað. Svo notar hann þá aldarfjórð- ungsafmæli miðilsstarfsemi Haf- steins fyrst og fremst sem tilefni til að kynna alþjóð, hvers hann og þeir, sem hafa með hionum hafa starfað, hafi orðið vísari. Bók hans er sem sé ekki néma að nokkru skrifuð til að vekja athygli á Hafsteini Björnssyni sem miðli, heldur vegna mikils- vægis þess málefnis, sem er hinn ráunverulegi kjarni hennar. 3. Höfundur bókardnnar fjallar nú fyrist um dulrænar gáfur yfirleitt, þjálfun miðla og hvað þar beri að varast, lýsir því næst miðilshæfileikum Hafsteins og fer nokkrum orðum um þær tvær bækur, sem frú Elinborg Lárus- dóttir hefur skrifað um hann sem mdðil, en í þeim er mergð vottfestra vitnisburða karla og kvenna um reynslu þeirra á mið- ilsfundum hjá Hafsteini og þær sannanir, sem þeir hafa þar fenig ið fyrir framlífi ástvina, vina og kunningja. Þar nefnir hann sér- staklega ti'l skýrslu Jóns dóm- prófasts Auðuns um fundi spíri- tista af Norðurlöndum í Svíþjóð sumarið 1949 — og frásögn Þór- bergs Þórðarsonar rithöfundar af fundi hjá Hafsteini. Þvi næst er gerð grein fyrir ætt og uppvexti Hafsteins og örðugleikum þeim, sem hann átti við að stríða vegna dulargáfna sinna. Svo eru sagð- ar ýmsar sögur af sýnum hans og eftir honum höfð sundurgrein- ing á þeim verum, sem hann hefuæ séð. Næst er kafli um það, með hverjum hætti þau tímamót urðu í ldfi Hafsteins, að hann tók að starfa sem miðill, síðan saigt ýtarlega frá mdðilsþjónustu hans og stjórnendum hans handan að, lýst sálförum hans og skráð eft- ir honum sitthvað, sem hefur í sálförum fyrir hann borið á öðr- um tilverustigum. Því næst er langur kafli, sem heitir Minning- ar Finnu lífs og liðinnar — en Finna er einn af stjórnendum Hafsteins. Allt er þetta vel og rökvís- lega skrifað, eitt öðru tengt, bvað eina í lífrænu samhengi lipurs máls og ljósrar hugsunar við heildina. En hér eru ekki born- ar fram sannanir, heldur skýrt blátt áfram frá því, sem miðill- inn hefur sjáilfur sagt eða fram- liðnir menn af hans munni. Höf- undur lítur svo á, að framlíf mannanna hafi þegar verið full- sannað, sannað með vitnisburð- um erlendra raunvísindamanna, sem beittu til öryggis á miðils- fundum aðferðum, sem voru hliðstæðar þeim, er þeir notuðu við þær vísindalegu rannsókn- ir, sem þeir höfðu stundað á lögmiálum hins sýnilega heims og þeirra afila, er þar gætir, og ennfremur með vitnisburðum manna, sem hér á landi hafa sótt miðilsfundi og þá ekfci sízt hjá Hafsteini Björnssyni, — það skortir aðeins á, að menn kynni sér þessa vitnisburði af fyllstu alvöru. Og það er skoð- un höfundar, að þessar sann- anir veiti tryggingu fyrir þvd, að Hafsteinn miðill fari ekki með fleipur um það, er sálfarir hans hafi veitt honum vitneskju uim — og ekki heldur Finna, sem hefur staðið að ýms- um helztu sönnunum, er fram hafa komið fyrir miðilshæfileika Hafsteins Björnssonar. Þarna ætlar höfundur sér umfram allt að koma að þeirri vitneskju, að eins og maðurinn sáir hér á jörðunni muni hann uppskera á næsta tilverustigi. Það er hið mikla meginatriði þess boðskap- ar, sem bókin á að flytja og höf- undurinn lítur á sem skilyrði fyr ir gerbreytingu á sambúðarhátt- um einstaklinga og þjóða. 4. Seinasti kafli bókarinnar heit- ir Bókarlok. Þar víkur höfund- ur einkum að íslenzku kirkjunni og viðhorfum hennar við spirit- ismanum. Þar vili hann freista þess að gera kirkjunni ljóst, að áhrifa- og getuleysi hennar stafi fyrst og fremst af því, að nú — á dögnm tæknilegra raunvísinda og rökvísi um flest, sem þekking mannanna nær til — láti þorri þeirra sér ekki nægja í andleg- um efnum aildagamlar kenning- ar kirkjunnar. Þeir þurfi sannanir til að trúa. Hann hefur áður í bók sinni skírskot- að til þess, að Kristur leyfði Tómasi, lærisveini sínum, að þreifa á síðusárinu til þess að hann sannfærðist um, að hann sæi ekfei ofsjónir, heldur meist- ara sinn og herra, og hví skyldi þá ekki leyfa mönnum nútímans að leita sannana fyrir öðru lífi. Hötfundur hefur fært rök að því, hve mikilvægar slíkar sannanir hafa reynzt syrgjendum, en hitt er þó ekki síður mikilvægt, að viðhorf manna við lífinu yfir- leitt mótist af sannfæringu þeirra um það, að líf er að loknu þessu. Hann bendir á, að hinir biblíuföstu, sem nú sinna al- rriennast málum kirkjunnar, beri fyrir sig bann úr lögum Móse gegn því að leita frétta af fram- liðnum. Og hann er svo hóg- vær og væginn, að hann spyr ekki þá hina sömu: Úr því að þið viljið hlýða þessu boði í hin« um fornu Móse-lögum, hvers vegna fordæmið þið þá ekki hrossakjötsát, hvers vegna bann- ið þið ekki, að menn leggi sér tii munns rækjur og humar og önnur lagardýr, sem ekki hafa hreistur eða sundugga? Og hvers vegna heimtið þið ekki, a^ trúlofuð stúlka, scm verður ber að nánum mökum við ann- an en unnusta sinn, verði ásamt honum rekin út úr borginni og þau grýtt? Hví að hlýða frekar einu en öðru í lögum Móse, hvað sem líður skynsemi ykkar? .... En höfundur segir hiklaust: „Ég efast um, að nokkur kirkjudeild á Vesturlöndum sé nú í meiri hættu stödd en hin evangelísk- lúterska kirkja um að hrinda mönnum frá sér til fullrar heiðni.“ Og hann segir ennfremur: „Kærleikurinn er mestur I heimi. Kærleifcurinn er undir- stöðulögmál andlegrar verund- ar mannsins. Kærleikur manna á miili skiptir mestu máli þessa heims og annars. Ástvinakær- leikurinn er dýpstur og sárast- ur. „Spurningin mikla“ um fram- lif og endurfundi ástvina þjáir einihverntíma á ævinni hjarta hvers einasta heilbrigðs manns, sem kemst til vits og ára. Ótví- rætt svar við þeirri spurningu er því í dag „mikilvægasta málið í heimi“ með því að styrkasta vé trúarinnar og um leið kirkj- unnar er að finna í hjarta hvers þess manns, sem hefur öðlazt vissu sannreyndanna um fram- lífið og endurfundi ástvina. Kær- leikssaimkennd allra manna gagn vart Guðdómdnum og sókn tii æðri þroska er háleitasta stefnu- mark mannsins og hin æðsta sæla.“ Hann segir fleira, og allt af þeirri sörnu djúpu alvöru og sannfæringu, sem spiritisminn hefur veitt honum sjálfum í nauð um stöddum. — og af þörf til að hjálpa öðrum, einstaklingnum og heildinni, já, öllum sem lifa og þjást á þessari jörðu. Guðmundur Gislason Hagalín Níu bœkur Menningar- sjóðs komnar út Valfrelsi félagsmanna hefur verið aukið mjog BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs sendi í vikunni frá sér 9 bækur og 4 eru rétt ókomnar. Fyrr á árinu hafa komið út hjá Menn- ingarsjóði 3 bækur svo heildar- útgáfan er 16 bækur auk 4 árs- eöa tímarita. Meðal bókanna sem út komu í s.l. viku eru þær þrjár bækur sem forráðamenn útgáf- unnar muni einkum velja, enda eru þær bækur boðnar á sérlega lágu verði. •fa Valfrelsi og félagsgjöld Valfrelsi félagsmanna hefur nú verið aukið frá því sein Árni Óla áður var. Áður máttu félags- menn velja úr 5—6 bókum en nú geta félagsmenn valið úr öllum bókum útgáfunnar, gömlum og nýjum. Þrjár bæk- ur eru boðnar á sérlega lágu verði og byggist það verð á miklu stærri upplögum en al- mennt gerizt um bækur hér á landi. Félagsgjald hjá Menningarsjóði og Þjóðvinafélaginu er 250 kr. fyrir óbundnar bækur en 350 fyr- ir bundnar. Félagsgjaldið er mið- að við að félagsmenn fái bæk- urnar á framleiðslu kostnaðar- verði. Félagsmenn fá 3 bækur fyrir ársgjald sitt auk Alman- aksins. Almanak 1963 Almanak fyrir 1963 er með svipuðu sniði og verið hefur. Þetta er 89. árangur og hafa próf- essorarnir Trausti Einarsson og Leifur Ásgeirsson búið almanak- ið undir prentun. Upplag alman- aksins er um 18 þúsund eintök og mun það sennilega stærsta bókaupplag hérlendis. Þrjár bækur á lágu verði Menningarsjóður býður 3 bæk ur á sérlega lágu verði. Eru þær þessar: „Þúsund ára sveitaþorp. Úr sögu Þykkvabæjar í Rangárþingi“ eftir Árna Óla. Rekur Árni þar sögu Þykkvabæjar, þessa merki- lega sveitaþorps, sem eitt sinn var að því komið að fara í eyði en á nú glæsilega framtíð. Marg- ar myndir prýða þetta ritverk Árna Óla, en þetta er 4. bókin sem Menningarsjóður gefur út eftir hann. „Lundurinn helgi“ eru sögur eftir Björn J. Blöndal bónda og Stefán frá Hvítadal veiðimann í Borgarfirði. Eru 1 bók þessari 9 sögur en þær heita Nótt, Gráni, Bíldur, Jökull, Berg búar, Arnarstapi, Snotra, Endur fundir og Surtur, „Milli Grænlands köldu kletta“ ferðaþættir frá Grænlandi eftir Jóhann Briem listmálara og prýð- ir hann bókina með teikningum. Lýsir Jóhann því sem fyrir augu ber á stöðvum hinna fornu Græn lendinga, m. a. húsaleifum á bæ Eiríks rauða, Brattahlíð og bisk- upssetrinu í Görðum. Fléttar hann og í frásögnina landslýs- Framhald á bls.14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.