Morgunblaðið - 27.11.1962, Side 22
22
MORGVTSBIAÐ1B
ÞriSjudagur 27. nóvember 1962
Fram jafnaöi 6
marka forskot í 15:15
FH-IIðinu tókst ekki að
skora síðustu 20 mín.
leiksins
Spenrtandi leikur að Hálogalandi
FRAM og FH mættust í hörkukappleik á sunnudaginn og var það
xnegin íþróttaviðburður helgarinnar. Innanhússmeistarar Fram og
utanhússmeistarar FH ( margra ára innanhússmeistarar) skildu
jöfn eftir klukkustundar baráttu 15 mörk gegn 15. Og þessi bar-
átta meistaranna var litbrigðarík — stundum léleg, stundum mjög
góð, yfirleitt alltaf spennandi, en þó aldrei eins og í lok leiksins.
Er um 20 mín voru til leiks-
loka, höfðu FH-ingar náð mjög
góðri forystu 15 mörk gegn 0.
En eftir þetta tókst FH ekki
að skora en Framarar söxuðu
á forskot Hafnfirðinga og tókst
á síðustu sekúnðum leiksins að
jafna leikinn 15—15. Húsfyliir
áhorfenda var að þessari har-
áttu enda var enginn svikinn
af heimsókn í Hálogaland
þessa stund.
★ Gangur leiksins
Um leikinn í heild mætti segja
að úrslitin hafi verið réttlát. FH
hafði allan tímann forystu (8—7
í hálfleik). Framan af voru leik-
menn Hafnfirðinga all grófir. Ein
ar, örn og Pétur fengu áminningu
á fyrstu mínútum leiksins fyrir
slæman leik. En FH náði frum-
kvæðinu. Pétur Ant. byrjaði að
skora, Sig. Einarsson jafnaði,
Ragnar Jónsson og Pétur náðu
forskoti FH 3—1, Tómas Tómas-
son minnkaði bilið í 3—2 og Birg-
ir Björns. jók það aftur í 4—2.
Guðjón Jónsson minnkaði í 4—3
en Birgir jók í 5—3.
KSÍ jbén-
oð/ vel
Á ÞINGI KSÍ kom fram að
hagur sambandsins er mjög
góður eftir árið. Hagnaður
af tveimur landsleikjum
nam samtals tæpum 160
þúsundum kr. Var það af
keppninni við írland hér í
Rvík og í Dublin samtals
118 þús. kr. og af keppni
við Norðmenn rúmar 39
þús. kr.
Þrátt fyrir þetta greiddi
Knattspyrnusambandið sam
tals um 150 þús. kr. í vallar-
leigu fyrir 3 landsleiki
(Færeyjar að auki).
Hagur KSÍ stendur með
miklum blóma. Gjaldkeri
sambandsins er Ragnar Lár-
usson.
Þá fékk Fram víti en Ingólfur
skaut í stöng og aftur skömmu
síðar skaut Ing. í stöng yfir vörn.
Guðjón minnkaði bilið í 5—4 en
FH (Auðunn) jók aftur í 6—4
og litlu síðar skoraði Kristján
Stefánsson glæsilegt mark 7—4
fyrir FH. Guðjón minnkaði í 7—5
eftir hratt og gott spil Fram.
Og þá fékk Fram aftur víti
en Ingólfi mistókst að skora. Pét-
ur Ant. jók svo litlu síðar í 8—5,
'en Fram hafði síðasta orðið í hálf
leiknum. Ágúst Þór og Sig. Ein.
skoruðu tvö síðustu mörkin og
hálfleik 8—7 fyrir FH.
★ Yfirburðir FH
í byrjun síðari hálfleiks náði
FH algerum tökum á leiknum —
og jafnvel heppnin fylgdi þeim
í því. Pétur Ant. skoraði fyrsta
markið en Erlingur svaraði fyrir
Fram. Síðan komu mörkin eins
og á færibandi hjá FH en Fram
fékk ekki svarað. Páll Eiríksson
og Ragnar Jóns. skorðu tvö mörk
hvor, örn og Einar sitt hvort og
staðan var komin4 15—9 fyrir FH
og 19 mín til leiksloka. Leikurinn
virtist algerlega unninn. Fram
hafði smám saman bugast og FH
náði tökunum.
En þá sýndi Fram sitt.rétta
andlit — andlitið sem þeir
heilluðu Árósarbúa með á dög-
unum. Það hófst barátta — og
heppnin snerist líka á sveif
með þeim. Ágúst skorar, síð-
an Ingólfur, þá Sig. Einarsson.
Staðan er 15—12. Pétri er vís-
áð af velli fyrir endurtekin
gróf brot. Meðan hann er frá
skorar Guðjón og stuttu síðar
Ingólfur. Staðan er 15—14 og
mínúta eftir. Á síðustu sek-
úndum eru FH-menn sekir að
grófu broti við mann á línu
og dæmt er vítakast. Guðjón
skoraði úr því örugglega und-
ir spennu æpandi áhorfenda og
líðandi síðustu sekúndurnar
15—15 var staðreynd klukku-
stundar baráttu.
★ Of lítill völlur
Leikurinn var mjög sveiflótt-
ur eins og frásögnin sýnir.
Hvorugt liðið hefur þá yfir-
burði yfir hitt að það eigi að
geta skorað 6 mörk í röð En lítill
Guðjón jafnar fyrir Fram úr vítakasti á síðustu sek. Áður. hafði Hjalti varið 3 vítaköst.
völlur gerir sitt til að lið fá*ekki
notið sín. Og mikið væri gaman
að sjá þessi tvö okkar beztu lið
á stóru salargólfi.
Mér finnst FH græða meira á
litlum sal. Stærri leikmenn, frek
ari og ágengari samfara meiri
krafti gera sitt til þess. Allt þetta
setur meiri „smásalar“-svip á
leik FH en Fram. Fram-liðið náði
hins vegar oftar beittara spili
framan við vörn, spili sem meira
ógnaði og opnaði fyrir línuspili.
Það er list handknattleiksins og
án kunnáttu í slíku verðum við
alltaf taldir frumstæðir hand-
knattleiksmenn, hversu langt sem
landslið okkar nær. Úrslitin eða
mörkin eru að vísu aðalatriðið
í hverjum leik en kunnátta í spili
setur þó alltaf svip sinn á hvert
lið.
Fram átti allt of lélega kafla
í þessum leik, ekki sízt í vítaköst-
unum, sem mistókust 4 af 6. Slíkt
er afar lélegt. Liðið veiktist líka
af því að Hilmar skyldi ekki vera
með en hann er einkum traustur
í vörn. En liðsmenn allir áttu
góða spretti, en undirritaður er
þó á því að þeir geti ekki sýnt
fyllilegan styrk sinn fyrr en á
Framh. á bls. 23.
ísland á Olympíuleika
í Tokio í knattspyrnu
ÁRSÞING KSÍ var sett á laugar-
daginn kl. 2 e.h. og þinginu lauk
I fyrrakvöld. Þingið sóttu fuil-
trúar frá öllum aðildarfélögum
KSÍ utan tveimur og fóru þeir
með 73 atkvæði. Hefur aldrei
verið jafn vel mætt á þingi KSÍ.
Björgvin Schram setti þingið
með stuttri ræðu þar sem hann
sérstaklega bauð velkominn Gísla
Halldórsson forseta ÍSÍ sem nú
mætti í fyrsta sinn á þingi KSÍ
sem slíkur.
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ
kvaddi sér hljóðs meðan kjör-
bréfanefnd starfaði og flutti
kveðjur ÍSÍ. Hann afhenti Björg-
vin Schram gullmerki ÍSÍ sem
framkvæmdastjórnin hafði sam-
þykkt að veita honum í þakklæt-
isskyni fyrir hjartnær 40 ára starf
í þágu knattspyrnu og íþrótta
yfirleitt.
Á þinginu var samþykkt m. a.
að tak- þátt í Olympíleikunum
1964 og mæti ísland þar fyrst
í forkeppni sem bundin er við
landssvæði. Ekki er vitað fyrr en
eftir áramót að þátttökufresti
lýkur við hverja íslendingar
leika.
Samþykkt var að vísa til stjórn
ar athugun á reglum um lands-
liðsnefnd og landsliðsleikmenn.
Fyrir þinginu lágu tillögur um
breytingar á mótareglum.
Tveir liðir þeirra sem aðkall-
andi voru vegna móta næsta vors
voru samþykktir en hinum öllum
vísað til milliþinganefndar sem
skipuð var Axel Einarssyni, Sig-
urgeir Guðmannssyni og Sæ-
mundi Gíslasyni. Sama nefnd á
að fjalla um tillögur um breyt-
ingar á stjórnarkjöri KSÍ.
f stjórn fyrir næsta ár voru
kjörnir Björgvin Schram form.
til eins árs en í stjórn til tveggja
ára Axel Einarsson, Sveinn
Zoega og Ragnar Lárusson, allir
endurkjörnir. Fyrir voru í stjórn
Guðm. Sveinbjörnsson, Jón Magn
ússon og Ingvar N. Pálsson.
f þinglok var sýnd fróðleg
knattspyrnukvikmynd frá Brasi-
líu, Ítalíu og víðar, lærdómsrík
mjög enda mátti þar sjá ýmsar
af frægustu knattspyrnustjörnum
heims.
Ingi og
Bogi
kjörnir
formenn
AUK ársþings KSf sem get
ið er um hér á síðunni voru
haldin um helgina ársþing
Frjálsíþróttasambandsins og
Körfuknattleikssambands-
ins. Ekki er unnt að geta
samþykkta þinganna allra
nú, en formaður Frjáls-
íþróttasambandsins fyrir
næsta ár var kjörinn Ingi
Þorsteinsson sem verið hef-
ur varaformaður samhands-
ins. Lárus Halldórsson á Brú
arlandi sem gegndi for-
mannsstörfum baðst undan
endurkjöri. Aðrir í stjórn
voru endurkosnir.
I Körfuknattleikssam-
bandinu var Bogi Þorsteins-
son flugumferðarstjóri á
Keflavíkurflugvelli endur-
kjörinn formaður svo og
aðrir stjórnarmenn.
Nánar verður sagt frá
þingum þessara sambanda
síðar.