Morgunblaðið - 06.12.1962, Blaðsíða 2
2
' MORCVNBLAÐIÐ
Fimmludagur 6. des. 1962
í GÆR var unnið að því að
setja upp hinn margumrædda
plastihimin í Háskólabíó, en
hann á að bæta enn Mjóm-
burðinn í húsinu. Fyrstu
hljómleikamir, þar sem plast-1
himinsins nýtur við, verða í
kvöld, og verður fróðlegt að
heyra hvernig hann reynist.
Myndin sýnir hluta „himins-
ins“ við uppsetninguna í gær.i
Maðurinn til hægri er annar
arkitekta hússins, Guðmund-
ur Kristinsson, sem fylgdist
með uppsetningunni. (Ljósm.
Ól. K.M.)
Ritklúbbur
Æskulýðsráðs
TIL STARFA hefur tekið á veg-
um Æskulýðsráðs Reykjavíkur
ritklúbbur fyrir ungt fólk á aldr-
inum 15—20 ára. Eru viðfangs-
efni klúbbfélaga að skrifa sögur,
ritgerðir o. fl., og njóta þeir til-
sagnar í þeim efnum. í>að, sem
nógu gott Þykir, verður
væntanlega birt á prenti. Upplýs-
ingar um Ritklúbbinn er hægt að
fá á Lindargötu 50, Frakkastígs-
magin, sími 159 37. Þar verður
einnig haldinn klúbbfundur kl.
800 e. h. á föstudagskvöld.
— Banvæn þoka
Framhald af bls. 1.
skyggnið víðast minna en fimm
metrar og mikið er um umferð-
arslys. í Hollandi hafa þrír menn
látið lífið og í Amsterdam urðu
að meðaltali 30 árekstrar á
klukkustund í dag. f Belgíu lét
einn maður lífið í umferðarslysi
og 20 særðust. Milli kl. 6 og 8 í
morgun var lögreglan í Vestur-
Berlin kölluð út 70 sinnum
vegna umferðarsiysa.
Vetrarhjálpin
tekin til starfa
Sinnti í fyrra 700 hjálparbeiðnum
Vetrarhjálpin í Reykjavík hef-
ur ný hafið starfsemi sína á þess
um vetri. Ráðgert er sem fyrr
að skátar fari um bæinn og safni
gjöfum. Ennfremur verður skrif-
stofa hennar opin alla virka
daga kl. 10-5 að Thorvaldsens-
stræti 6, þar sem er skrifstofa
Rauða Kross íslands. Sími Vetr-
arhjálparinnar er 10-7-85.
í fyrra bárust Vetrarhjálpinni
700 hjálparbeiðnir, aðallega frá
öldruðu fóilki og barnafjölskyld-
um. Var þá útMutað 333 þúsund
krónum auk fatnaðar, sem barst
til söfnunarinnar. Skátar fóru
þá um bæinn tvö kvöld og söfn-
uðu þeir alls liðlega 125 þúsund
krónum auk mikils notaðs fatn-
aðar, sem ekki verður metinn
Var það 25. árið, sem skátar
Tollmúrar innan EFTA?
Ósamræmdar samningaviðræður við EBE
taldar geta valdið erfiðleikum
Brussel, 5. desember (NTB).
ÞAÐ var tilkynnt í Briissel í dag,
að loknum fundi ráðherranefnd-
ar Efnahagsbandalagsins EBE,
að Noregur og Danimörk mun
þurfa grípa til sérstakra inn-
flutningstolla gagnvart Sviþjóð,
fari svo, að ekki verði búið að
ræða aukaaðild Svíþjóðar, Sviss
og Austurríkis að Efnahagsbanda
laginu, þegar Noregur og Dan-
mörk hafa leitt til lykta viðræð-
ur sínar um fulla aðild að EBE.
Ráðherranefndin ræddi í dag
234. grein Rómarsamningsins.
Samkvæmt henni verður Bret-
land, gerist það meðlimur Efna-
hagsbandalagsins, að segja upp
gagnkvæmum verzlunarsamning-
um, m. a. við önnur lönd Frí-
verzlunarsvæðisins — EFTA.
Talsmaður nefndarinnar sagði
hins vegar, að slíkar ráðstafanir
í tollamálum, sem hér um ræðir,
og yrðu tímabundnar, komi að-
eins til greina gagnvart löndum,
sam sótt hafa um aukaaðild. Stafi
það af því, að vandamál, sem
lausnar bíða, séu s>vo mörg, að
þau verði vart leyst þegar við-
ræðum um fulla aðild Bretlands,
Noregs og Danmerkur lýkur.
Samkvæmt gildandi samning-
um tekur það eitt ár að segja
sig úr EFTA. Ráðherranefnd
EBE hiefur óskað eftir því, að
þessi hlið málsins verði tekin til
umræðu á fundium í næstu viku
við fulltrúa Breta, því að vart
sé hægt að ganga frá aðild Breta,
meðan slíkar kvaðir hvíli á
þeim.
í næstu viku skal einnig rætt
við brezka fulltrúa um landbún-
aðarmál, jafnframt því, sem
vandamálin í sambandi við EFTA
verða rædd. Virðist nefndin geta
fallizt á, að komið verði að ein-
I'/? NA 15 hnifor \*r 5* V 50 hnutor H Sn/<Homo t ÚSi **" 7 Skúrír S Þrumur w.z, jS. KuUoakit ZS4 Hihtk* H Hm%
hverju leyti til móts við kröfur
brezku stjórnarinnar um fram-
hald niðurgreiðslu til bænda í
Bretlandi.
Hins vegar hefur ráðherra-
nefnd EBE krafizt þess, að Bret-
ar hafi að fullu samið sig að
reglum um landbúnaðarmál
EBE, ekki siðar en í árslok 1969.
Á það hafa Bretar ekki viljað
fallast fram til þessa.
Talsmaður Hollands í ráðherra
nefndinni sagði í dag, að hægt
ætti að verða að finna þá lausn
á vandamálum EFTA-Iandanna,
sem gerði Bretlandi, Noregi og
Danmörku kleift að halda ó-
breyttum tollum gagnvart öðrum
meðlimum EFTA, þar til þau
lönd hefðu endanlega samið um
afstöðu sína til EBE.
Talsmaður Breta gaf yfirlýs-
ingu um málið í dag, og felst í
henni, að Bretar geti ekki orðið
meðlimir EBE, fyrr en EFTA
vandamálið sé leyst.
Þá kom það fram af brezkri
hálfu í dag, að Bretar gætu ann-
azt nokkra málamiðlun í þessum
erfiðleikum, þar eð samningur
EFTA landanna sín á milli muni
falla sjálfkrafa úr gildi, er öll
löndin 7 hafi gengið frá samn-
ingum sínum við EBE.
Þoka tefur flug-
vélar Loftleiða
Ein teppt í London, önnur lenti í Kanada
EIRÍKUR Rauði, flugrvél Loft-
leiða, sem fór til London sl.
mánudag, hefur verið teppt þar
síðan vegna þoku. t gær var
ekki búizt við því að vélin kæm
ist hingað fyrr en á föstudags-
kvöld, eí marka mátti veður-
Um hádegi í gær var lægðar
miðja (990 millibair) við suður
strönd landsins og virtist
stefna norður yfir það austan
hallt. Má því búast við breyti
tegu og óstöðugu veðri. Há-
þrýstisvæðið er óhaggað yfir
Bretlandseyjum og meðan svo
stendurr þarf tæpast að óttast
alvarlega N-átt eða kuldia hér
á landi.
Strákar
skemma bíla
KLUKKAN fimm í gær var lög
reglan kvödd að Glófaxa við Ár-
múlia, en þar höfðu tveir sex ára
drengir valdið skemmdum á fjór
um bílum, þar á meðal einum
kranabíl, sem þama var.
— Nehru
Framhald af bls. 1.
fréttamönnum, að engar nýjar
fregnir hefðu borizt af því, að
Kínverjar væru að draga heri
sína til baka. Talsmaður hersins
í Tezpur skýrði frá því, að orðið
hefði vart hreyfingar á herliði
Kínverja, en ekki væri hægt að
skera úr um hvort þeir hörfuðu.
Sú skoðun er talsvert útbreidd
í Tezpur, að Kínverjar noti tím-
ann á meðan ekkert svar fæst
frá Indlandsstjórn við vopnahlés
tillögunum, til þess að byggja
vegi um fjallaskörðin, auka. lið
sitt og flytja birgðir til landa-
mæranna.
Samkvæmt fregnum fréttastof
unnar Nýja Kína, afhentú Kín
verjar Indverjum 64 særða stríðs
fanga í Bomdi La í dag. Höfðu
Kínverjar áður lofað að afhenda
fanga þessa og Rauði krossinn
sendi ökutæki til að flytja þá til
Tezpur.
söfnuðu, og jafnframt það ár
sem þeir söfnuðu mestu. í ár er
ráðgert að skátar fari um allan
bæinn jafnt á tveimur kvöld-
um.
Vetrarhjálpin biður að láta
þess getið, að hún muni meta
það ef henni berast ábendingar
um fjölskyldur eða einstaklinga
sem raunverulega þurfa á að-
stoð hennar að halda, en ekiki
munu sækja um hana sjálfir.
Siglufjarður- )
skorð opnuðist
uf sjólfu sér
Siglufjarðariskarð opnaðist
síðdegis í gær og ■ má
segja að það hafi að mestu
leyti opnazt af sjálfu sér. Að
vísu fór ýta um miðjan dag í
gær, en verkefni hennar var
það eitt að ryðja burtu nokkr-
um smáhöftum. Hér hefur
verið góð tíð að undanförnu
og er það algjört einsdæimi
að skarðið skuli opnast af
sjálfu sér í desembermánuði.
En ekkert má útaf bera, svo
það lokist ekki aftur Stefán.
spána í London. Farþegar frá
Glasgow voru hins vegar vænt-
anlegir í gærkvöldi.
í fyrradag var mikil þoka í
New York og nágrenni, og lok-
uðust flugvellirnir á Idlewild,
La Guardia og flugvöllurinn í
Newark, New Jersey. Farþegar
á leið til New York lentu því
margir í borgum, sem þá hafði
ekki dreymt um að heimsækja.
Tvær Loftleiðavélar voru þá
á leið vestur um haf. Sú, sem á
undan var, varð að lenda á Monk
ton á Nova Sootia í Kanada, en
sú síðari lenti á Idlewild, en þok
unni var þá að létta þar. Fyrri
vélin hafði tveggja stunda við-
dvöl í Monkton og hélt síðan
áfram til New York.
83 ára maður
fyrir bíl
EKIÐ var á gamlan mann vestur
á Hringbraut kl. 16:45 í gærdag.
Varð slys þetta á gatnamótum
Birkimels og Hringbrautar, þair
sem Eiríkur Ásgeirsson, 83 ára
gamall, mun hafa ætlað að ganga
yfir Hringbraut.
í sama mund bar þar að fólks-
bifreið vestur Hringbraut og lenti
vinstra framhorn hennar á Ei-
ríki. Féll hann í götuna og mun
hafa fótbrotnað og skrámazt í
andliti.
Eiríkur var fluttur í Slysavarð
stofuna og þaðan á Landakot. Var
líðan hans í gærkvöldi ekki góð.
Rannsóknarlögreglan biður
vitni sem kynnu að hafa orðið
að þessu slysi að gefa sig fram
á skrifstofu rannsóknarlögregl-
unnar á Fríkirkjuvegi 11.
Stfórnar-
kreppa
Buenos Aires 5. des. (NTB)
TÍU AF 18 ráðherrum í stjóm
Argentínu hafa sagt af sér em-
bættum og alvarlegt ástand rík-
ir nú í landinu. Herinn hefur aft
urkallað öll leyfi hermanna og
stjómmálafréttaritarar telja, að
lýðræðið í landinu sé í hættu
og einræðissjórn verði komið
þar á.
Meirihluti hersins er óánægður
með stjórnina og flestir liðsfor-
ingjarnir eru fylgjandi einræðis-
stjórn. Aðstoðarforsætisráð-
herrann, sem fer með málefni
hersins er fylgjandi lýðræðinu.
Vill hann að reynt verði að koma
á sáttum milli ráðherranna, sem
sögðu sig úr ríkisstjórninni og
þeirra, sem eftir sitja.
Sjö sækja um
sýslumanns-
embætti
í FYRRADAG rann út frestur til
að sækja um- embætti sýslu-
manns í Skaftafellssýslu. Sjö um-
'sóknir bárust. Umsækjendur eru
Björgvin Bjarnason, sýslumaður
í Hólmavík, Einar Oddsson, full-
trúi borgardómara í Rvík, Frið-
rik Sigurbjörnsson, lögreglustjóri
í Bolungarvík, Guðlaugur Ein-
arsson, hdl., Magnús Óskarsson
fad'L, Ólafur Ólafsson, fulltrúi 1
skrifstofu Alþingis og Sigurður
Briem Jónsson, settur sýslumað-
ur í Vík í Mýrdal.
MÁLFUNDANÁMSKEH). _
2. hópur (leiðbeinandi Þór Vil-
hjálmsson) kemur saman n.k.
mánudagskvöld. — 3. hópur (leið
beinandi Birgir ísl. Gunnarsson).
og 4. hópur (leiðbeinandi Guðm.
H. Garðarsson) koma saman í
Valhöll í kvöld kL 8.00.
NÝm FÉLAGAR. _ Skrifstofan
í Valliöll (sími 17102) er opinn
allan daginn. — Lítið inn og
kynnið ykkur félagsstarfsemiua.
Stiórnin.