Morgunblaðið - 06.12.1962, Blaðsíða 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 6. des. 196£
mmmmm
Peter Small og kona hans. Myndin var tekin í matsal Loftleiða að kvöld 13. nóvember, er þau
hjónin höfðu hér stundarviðdvöL
Hylkið hilar —
Whittaker ferst
Skyndilega kippti maður-
inn aftur fætinum inn fyrir.
Strax á eftir gáfu kafararnir
merki um, að hylkið skyldd
dregið úr sjó. Er það var kom
ið upp á um 60 metra dýpi,
þá köfuðu þeir Chris Whitta-
ker, 22 ára gamall Breti, og
kafarinn Dick Anderson, til
móts við hylkið, mönnunum
tveimur, sem í því voru, til
aðstoðar, en þeir höfðu til-
kynmt, að það læki.
Whittaker reyndi að lagfæra
hlerann, en mistókst og varð
að koma upp á yfirborðið.
Var hann þá með blóðnasir.
Hann fór aftur niður, komst
að hylkinu, en hvarf síðan í
djúpið.
„Aðeins formsatriöi, eft-
ir tilraunina í Sviss“
Sagði Peter Small við MbL 13. nóv. —
18 dögum síðar var hann ldtinn
UM miðjan síðasta mánuð
birti Mbl. viðtal við ungan,
brezkan mann, nýgiftan,
sem var á leið með konu
sinni vestur um haf —
ekki í brúðkaupsferð —
heldur til að setja nýtt
heimsmet í köfun. Peter
Small, og félagi hans,
svissneski vísindamaður-
inn Hannes Keller, ætluðu
að sýna heiminum, að
hægt væri að starfa á dýpi,
sem áður var talið of niik-
íð fyrir mennska menn til
að þola.
18 dögum eftir að við-
talið birtist hér í blaðinu,
var Peter Small látinn,
köfunartilraunin hafði mis-
tekizt' hrapallega. Hann
varð að lúta í lægra haldi
fyrir gömlum ógnvaldi kaf
arans, kafaraveikinni. Fé-
lagi hans, Keller, komst
naumlega lífs af, en þriðji
kafarinn, ungur Breti að
nafni Chris Whittaker,
fórst einnig, er hann reyndi
að koma þeim Keller og
Small til hjálpar.
Lengur — á meira dýpi
Forsaga þessa máls er sú,
að svissneskur prófessor, Al-
bert Biihlmann, hafði tekið
saman höndum við stærð-
fræðinginn Hannes Keller um
að leysa vandamál, sem fram
til þess hefur verið óviðráð-
anlegt. Þeir töldu sig vera
búna að komast að aðferð,
sem þeir reyndar héldu
leyndri, er gæti gert mönn-
um kleift að dveljast lengur
á meira dýpi, en áður hefur
verið gert.
Tilraun í Sviss
Snemma í nóvembermán-
uði kvöddu þeir Peter Small
til Ziirich í Sviss, þar sem
framkvæmd skyldi í þrýsti-
klefa lokatilraunin undir
sjávarköfun á 300 metra dýpi.
Small dvaldist í 5 mínútur
í klefanum, við þrýsting sem
svarar til 300 m dýpis. Áður
hafði Keller sjálfur dvalizt í
um 1 sekúndu við sama þrýst-
ing, en slíkt kallast skyndi-.
„köfun“, og reynir ekki nánda
nær eins mikið á líkamann.
Er fréttamaður Mbl. ræddi
við Small um þetta atriði í
matsal Loftleiða að kvöldi 13.
nóvember sl. sagði hann:
„Kemur í ljós á 5 mínútum".
„Jú, á 5 mínútum kemur í
ljós, hvort líkaminn þolir
köfun við slíkar aðstæður.
Annað hvort veikjast menn
þá, eða ekki“.
Tilraunir svissnesku vís-
indamannanna gengu út á það
að rannsaka allar hugsanleg-
ar blöndur af lofttegundum,
sem nota mætti til innöndun-
ar við köfun. Höfðu þeir, eft-
ir því sem frá var skýrt, talið
sig hafa komizt að þeirri nið-
urstöðu, að köfnunarefni
hefði ekki þau lífshættulegu
áhrif, sem álitið hefur verið.
Við rannsóknir sínar höfðu
þeir stuðzt við útreikninga
rafeindaheila, sem gefið hafði
250.000 mismunandi niður-
stöður — og þeir töldu sig
hafa fundið réttu loftblönd-
una — sem þeir héldu leyndri.
„Hvernig þær eru, er víst
leyndarmál“
Aðspurður, um það í hverju
þessi tækni Svisslendinganna
væri fólgin, svaraði Small:
„Ég veit lítið annað en það,
að ég var látinn anda að mér
mismunandi loftblöndum úr 5
eða 6 kútum, til skiptis.
Hvernig þær eru, er víst
leyndarmál. . . . “
Síðar sagði Small: „Já, ætl-
unin er að fara niður í 1000
fet (300 m) — raunverulega
er það aðeins formsatriði eft-
ir tilraunirnar í Sviss. ... “ •
1 einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Associated Press
fréttastofunni í gær, segir
svo:
Við Catalinaeyju á mánudag
„Tveir brezkir kafarar,
klæddir froskmannsbúning-
um, týndu í dag lífinu fyrir
utan Ca/talina-eyju við
strönd Kaliforníu, er verið
var að reyna að hnekkja
heimsmetinu í köfun.
Á mánudag höfðu kafararn-
ir og vísindamenn farið með
skipinu „Eureka“ um 1% km
úti fyrir Catalina-
eyjar, sem er um 30 km frá
strönd Kaliforníu. Olíufélagið
„Shell“ hafði lánað skipið til
fararinnar. Tilgangurinn var,
eins og áður segir, að sýna
fram á, að menn gætu hafzt
lengur við á miklu dýpi, en
áður hafði verið gert. Loft-
kútar þeirra voru fylltir sér-
stakri loftblöndu, en ekki var
kunnugt um samsetningu
hennar.
A 300 m dýpi
Peter Small, sem var 35 ára,
og svissneski vísindamaður-
inn Hannes Keller, 28 ára,
fóru síðan inn í sérstakt köf-
unarhylki. Var því sökkt nið-
ur á 300 m dýpi. Fylgzt var
með hreyfingum kafaranna í
neðansj ávarsj ónvarpL
Skyndilega sást, er niður á
hið mikla dýpi var komið, að
annar þeirra rak fótinn út
um op, neðst á hylkinu, en
því hafði verið lokað með
hlera.
Keller og Small
meðvitundarlausir
Loks tókst að ná hylkinu
upp á yfirborðið, en þá voru
bæði Small og Keller með-
vitundarlausir. Var þeim
haldið í hyilkinu þá tvo tíma,
sem ferðin tók til flotahafn-
arinnar á Long Beach. Þar
átti að setja þá í sérstakan
þrýstiklefa, en læknar létu
flytja þá til sjúkraskips. —
Keller komst aftur til með-
vitundar, en Small lézt.
Ákveðið á síðustu stundu
1 lok skeytisins frá AP seg-
ir, að yfirmaður köfunardeild-
ar bandaríska flotans, N. E.
Dickerson, hafi skýrt frá því,
að í tilraunaköfun sl. laugar-
dag, á 60 m dýpi, hafi Small
fundið til veikinda. Mun það
hafa verið ætlunin, að banda-
rískur kafari, John Light, frá
New York, færi í þessa djúp-
köfun, en á síðustu stundu
var ákveðið að Small færi
með Keller.
Þannig var skýrt frá væntanlegri tilraun Kellers, fyrr á árinu.
Frá flokksþingi kommúnista á íta'nu:
Þurfum ekki oð segja Albanía,
þegar við viljum segja Kína
Róm, 5. des. (NTB-AP).
A FLOKKSÞINGI ítalskra
kommúnista í dag, gagnrýndu
fulltrúar kommúnistaflokka
Italíu, Hollands, Rúmeníu og
Tékkóslóvakíu stefnu kín-
verskra kommúnista. Meðal
ræðumanna á flokksþinginu
var Giancarlo Pajetta, einn af
leiðtogum ítalskra kommún-
ista. Mótmælti hann harð-
lega ásökunum þeim, sem for
maður kínversku sendinefnd-
arinnar á þinginu, Chao Yi-
ming, beindi til ítalskra
kommúnista í gær. Pajetta
fordæmdi stefnu Kínverja og
lýsti stuðningi ítalskra komm
únista við stefnu Sovétríkj-
anna. Sagði hann, að engin
ástæða væri til þess að beina
gagnrýni á Kína að Albönum.
Tími væri kominn til þess að
beina henni afdráttarlaust að
Kínverjum sjálfum. Ræðu
Pajetto var ákaft fagnað.
NæSt á eftir Pajetto tók Blas
Rojas, fulltrúi Kúbu, til máls.
Hann sagði, að aðflutningsbann-
ið, sem Bandaríkin hefðu sett á
Kúbu og herstöðvar þeirra við
Guantanamóflóa væru ógnun
við heimsfriðinn. Rojas minntist
aðeins einu sinni á Kína, þegar
hann sagði, að Kínverjar keyptu
sykur ai Kúbubúum. Af ræðu
hans mátti marka, að hann
fylgdi Sovétríkjunum að mál-
um.
Pajetto sagði í dag, að engin
ástæða væri til þess að nota
lengur rósamál: — Þegar okkur
langar til þess að segja Kína,
þurfum við ekki að segja Al-
banía. Kínverjar hafa ráðizt á
flokk okkar og. stefnu hans og
við verðum að svara þeim. Við
svörum með því að segja, að við
getum ekki samþykkt neitt, sem
miðar að því að rjúfa samstarf
okkar við kommúnistaflokk Sov-
étríkjanna og friðarstefnu hans.
Pajetto sagði, að ítalskir komm
únistar væru fylgjandi stefnu
Sovétríkjanna í Kúbumálinu.
Ráðamenn Sovétríkjanna hefðu
bæði varið Kúbu og afstýrt
styrjöld. Nafnið Krúsjeff þýðir
það sama og friður í augum
okkar.
— Stefna Kínverja veldur
ítölskum kommúnistum áhyggj-
um, sagði Pajetta, en við erum
reiðubúnir að ræða við þá eins
og þeir hafa sjálfir farið fram á,
en við munum ekki ganga í ber-
högg við skoðanir okkar.
Fulltrúar á flokksþinginu risu
úr sætum og fögnuðu ræðu Paj-
etta, að undanskildum Kínverj-
um. Þeir sátu hljóðir.
— Eldsvoði
Framhald af bls. 3
fá hey keypt þetta árið, því
heyskapartíð hefði víðast á
landinu verið léleg.
Um kl. hálf tvö tyllti þyrla
frá varnarliðinu sér á túnið
á Saltvík; var hún á leið frá
Hvalfirði til Keflavíkurflug-
vallar með póst og farþega.
Flugmaðurinn hafði veitt
reyknum athygli og var kom
in til að bjóða aðstoð sína.
Var þá talið að slökkvistarfið
væri það vel á veg komið, að
ástæðulaust væri að kveðja
fleiri aðila á vettvang.
Eins og áður segir varð ekki
tjón á skepnum í fjósi, en
þó kviknaði í ketti, sem
flækzt hafði inn í hlöðuna.
Reyndu menn að komast að
kettinum til að skjóta hann,
en hann skreið lengst inn i
heyblásarann og ómögulegt að
koma að honum skoti. Hafði
ekki tekizt að aflífa köttinn,
þegar við hurfum á brott á
þriðja tímanum.
— x x x —
Um sex-leytið var ekki enn
búið að ráða niðurlögum elds
ins. Var þá gripið til þess ráðs
að moka heyinu út á hlað og
voru margar hendur á lofti við
það starf.
Um það leyti varð slys á ein
um slökkviliðsmanni og skarst
hann á fæti á heyskurðarhníf,
Var farið með hann í slysa-
varðstofuna og gert að sárum
hans.
Óskað var efti* að mokkrir
slökkviliðsmenn stæðu vörð
við hlöðuna fram eftir nóttu
í öryggisskyni. Fóru tveir
menn frá Slökkviliði Reykja*
víkur upp eftir rétt eftir kl.
8 í því skyni, en þá var slökkvi
starfinu að mestu lokið.