Morgunblaðið - 06.12.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.12.1962, Blaðsíða 22
22 MORGUN BLAÐIÐ Fimmtudagur 6. des. 1962 Jörð í Fljótshlíð er til sölu. — Upplýsingar gefnar á Málflutningsskrifstofu VAGNS E. JÓNSSONAB Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480. Jörð fil sölu Jörðin Engimýri í Öxnadal er til sölu og laus til ábúðar á næstkomandi vori. Góðir greiðsluskilmálar. RÚTUB ÞOBSTEINSSON, Engimýri. SPEGLAR — SPEGLAR SPEGLAR í TEAK-römmum fyrirliggjandi. — Margar stærðir og gerðir. Baðspeglar, Handspeglar, Rakspeglar, Veggspeglar. Einnig margskonar smærri speglar í miklu og fjölbreyttu úrvali. Hentugar jólagjafir. SPEGLABtJÐIN, Laugavegi 15. Sími: 1-96-35. H afnarfjörður Látið hreinsa fötin og þvo skyrturnar tímanlega fyrir jólin. Skyrtumóttaka fyrir Þvottahúsið FÖNN Efnalaugin SIJNNA Linnetsstíg 1. Danskar dömupeysur nýkomið fallegt úrval. Dömuundirföt Bonnie Artemis Carabella Asani Ceres Max Mjög f jölbreytt úrval. Amerískir dömusloppar Snyr tivörudeild: Cjafakassar og ilmvötn í nýju úrvali. Við höfum jólagjöfina handa eiginkonunni eða unnustunni. Laugavegi 19 — Sími 17445. vann 52% leikja sinna knattspyrnu á árinu KR í Einar Sæmunndsson endurkjörinn form. AÐALFUNDUR KR var haldinn miðvikudaginn 28. nóvember sl. í félagsheimili KR við Kapla- skjólsveg. Formaður félagsins, Einar Sæmundsson, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna og sérstaklega Gísla Halldórsson, for seta ÍSÍ og Inga Þorsteinsson, ný- kjörinn formann FRÍ. Áður en gengið var til fundar- starfa minntist formaður þriggja látinna félaga: Brynja Þuríður Guðmundsdótt ir lézt 30. júní sl. Hún starfaði lengi í fimleikum og á skíðum og átti um nokkur ár sæti í aðal- stjórn KR. Kjartan Guðjónsson setti 9 unglingamet Jóhann Bogason lézt 15. nóvem ber sl. Hann var verkstjóri við byggingu KR-vallanna og félags heimilisins frá upphafi og síðan húsvörður við íþróttahús KR eft ir að það tók til starfa. Sigurgeir Guðjónsson lézt 25. nóvember sl. Hann var lengi með al fremstu sundmanna og sund- knattleiksmanna hérlendis og sat lengi í stjórn sunddeildar KR og formaður hennar um skeið. Heiðruðu fundarmenn minn- ingu hinna látnu félaga með því að rísa úr sætum. Fundarstjóri var kjörinn Þórir Jónsson og fundarritari Sigurgeir Guðmannsson. Ritari félagsins, Gunnar Sig- urðsson, flutti ársskýrslu félags- ins og úrdrátt úr ársskýrslum hinna 7 íþróttadeiida. Á vegum aðalstjórnar var efnt til sumar- dvalabúða fyrir drengi og stúlk ur í skíðaskála KR í Skálafelli, og dvöldust um 60 börn þar á tveim þriggja vikna námskeiðum. Stjórnandi var Hannes Ingibergs son, íþróttakennari. Knattspyrna: KR varð Reykja víkur- og Bikarmeistari á árinu og vann 4 mót í yngri flokkunum. Alls unnu flokkar KR í knatt- spyrnumótum sumarsins um 52% sinna leikja. Félagið tók á móti danska úrvalsliðinu SBU, sem lék hér 4 leiki. Á árinu lagði KR til 8 landsliðsmenn í 4 landsleikjum. Fimleikar: Sýningarflokkur fé lagsins sýndi 4 sinnum á árinu og m.þ. á 17. júní hátíðinni. Efnt var til hressingarleikfimi fyrir konur og karla og stofnaður var drengjaflokkur. Deildin sá um móttöku 50 manna sænsks fim- leikaflokks sl. sumar. Frjálsar íþróttir: Deildin tók þátt í öllum frjálsíþróttamótum, sem haldin voru á árinu. Á Meist aramóti íslands vann KR 8 ís- landsmeistara titla af 22 og á Unglingameistaramóti íslands vann KR 9 titla af 16 mögulegum. Á árinu setti KR 9 drengja- og unglingamet og voru þau öll sett af Kjartani Guðjónssyni. Er hann einn efnilegasti frjáls- íþróttamaður, sem hér hefur kom ið fram lengi, og bindur félagið miklar vonir við hann. Ilandknattleikur: Félagið tók þátt í öllum mótum á árinu og varð Reykjavíkurmeistari í 3. fl. karla A og íslandsmeistari í 3. fl. karla B. Á árinu ták félagið á móti danska handtknattleikslið- inu Efterslægten og tókst sú heimsókn mjög vel. Frekar hefur hallað undan fæti í meistaraflokk um karla og kvenna, en mikil grózka er í yngri flokkum félags ins og gefur það fyrirheit um, að KR muni innan tíðar skipa sér á ný í fremstu röð í handknatt- leik. Körfuknattleikur: Félagið hef ur átt miklu gengi að fagna í körfuknattleik á árinu og er orð ið meðal sterkustu félaga í þeirri grein. Á íslandsmótið sendi KR 8 lið og varð árangur góður hjá flestum liðum félagsins. Á Reykja víkurmótinu vann KR meistara flokk kvenna og 3. flokk barla. Skíðaíþróttir: Á Reykjavíkur- meistaramótinu vann félagið 6 meistarastig og sérstaklega vakti athygli árangur Mörtu B. Guð- mundsdóttur, og einnig hafa kom ið fram nokkrir efnilegir ungir skíðamenn. Unnið hefur verið að raflýsingu brekkunnar umhverf is hina nýju skíðalyftu félagsins í SkálafelÚ og eru aðstæður til æfinga við hinn nýja skála félags ins orðnar mjög góðar. Sund: Árangur sundmanna fé- lagsins hefur mjög batnað á ár- inu og hefur félagin-u bætzt mikið af nýju og efnilegu sundfólki og Ihafur það aðallega byggzt á sundæfingum sl. sumar í Sund- laug Vesturbæjar. Mest hefur borið á Erlingi Þ. Jóhannssyni, Sigmari Björnssyni og Sigrúnu Sigvaldadóttur. Á árinu var end urreistur sundknattleiksflokkur félagsins og hefur það fært nýtt líf í þá íþróttagrein, sem legið hef ur niðri um nokkur ár. Gjaldkeri félagsins, Þorgeir Sigurðsson, gaf yfirlit yfir fjár- hág og afkomu félagsins á starfs- árinu. Afkoma félagsins var mjög góð, en stöðugt skortir fé til rekst urs deildanna, þótt innheimta árs gjalda félagsmanna hafi aldrei gengið svo vel sem sl. ár, er inn- heimtust 91.000.00 kr. í stjóm vom kosnir: Einar Sæmundsson, formaður. Ágúst Hafberg, Birgir Þorvalds son, Gunnar Sigurðsson, Sveinn Björnsson og Þorgeir Sigurðsson. Varastjóm: María Guðmunds- dóttir, Georg Lúðvíksison og Hörður Óskarsson. EndurskoSendur: Ólaíur Nielsssn og Björn Björgvinsson. Varaendurskoðendur: Sveinn Jóns- son og Helgi V. Jónsson. Formaður fimleikadeildar: Árni J, Magnússon. Kennarar í fimleikum: Benedifct Jakobsson, Jónas Jónsson, Gunnvör Björnsdóttir, Dóra Emilsdóttir, Björn Þór Ólafsson. Formaður frjálsíþróttadeildar: Óskar Guðmundsson. Þjálfari: Benedikt Jakóbsson. Formaður handknattleiksdeildar: Magnús Georgsson. Þjálfarar: Öm Steinsen, Sigurðuí Óskarsson, Marla Guðmundsdóttir. Heinz Steinmann og Bjöm Einarsson, Formaður knattspyrnudeildar: Sig- urður Halldórsson. Þjálfarar: Sigurgeir Guðmannsson, Öm Steinsen, Murdo McDougall, Gunn ar Jónsson og Agnar Ármannsson. Formaður körfuknattleiksdeildar: Helgi Sigurðsson. Þjálfarar: Ólafur Thorlacius. Þjálfari: Ólafur Thorlacius. son. Formaður stmddeildar: Jón OtU Jónsson. Þjálfarar: Sigmar Björnsson og Jón Otti Jónsson. Plötusmiðir og Rafsuðumenn óskast. — Mikil eftir og næturvinna. VÉLSMIÐJAN JÁRN H.F. Síðumúla 15 Sími 3-55-55 og 3-42-00. Lnglingsstúlka Stúlku vantar okkur nú þegar til símavörzlu. Vélritunarkunnátta æskileg. C^gbUMBDÐIÐ HR. HRISTJÁNBSDN H.F. SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00 Krossviður Limba 4—5 og 10 m/m stærð 122x220 cm Beyki 3 og 4 m/m — 122x220 cm nýkomin. HJÁLMAR ÞORSTEINSSON & CO .H.F. Klapparstíg 28 — Sími 11956.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.