Morgunblaðið - 06.12.1962, Blaðsíða 12
12
MORCÍJNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 6. des. 1962
Utgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefónsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjóm: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aigreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakið.
EIRÍKUR
KRISTÓFERSSON
F*áir menn munu njóta al-
mennari virðingar og vin-
sælda að afloknu ábyrgðar-
miklu ævistarfi en Eiríkur
Kristófersson, skipherra. Það
er heldur ekki að ástæðu-
lausu, sem íslendingar þakka
þessum manni, því að í land-
helgisdeilunni við Breta kom
hann fram af slíkri stillingu
og festu, að fyrir hans verk
og annarra þeirra, sem störf-
uðu í landhelgisgæzlunni,
varð frá upphafi ljóst, að leik-
ur Breta mundi verða þeim
erfiður og ekki endast þeim
til sigurs.
Ef einn árekstur hefði þá
orðið, sem kostað hefði
mannslíf, hefði verið ógjör-
legt að sjá fyrir enda þess
atviks. Það hefði getað leitt
til nýrra árekstra og upp-
þota, sem hæglega hefðu get-
að orðið þess valdandi, að
menn hefðu krafizt stjórn-
málaslita við Breta, úrsagnar
okkar úr Atlantshafsbanda-
laginu, einangrunar meðal
vestrænna þjóða og ef til vill
annars verra, því að raddir
heyrðust um það að biðja um
rússneska „vernd“.
Það er ekkert launungar-
mál, að í landhelgisdeilunni
töldu kommúnistar, að þær
aðstæður gætu skapazt, að
hér yrði hægt að koma á
byltingu. Þeir miðuðu allar
aðgerðir sínar við það að tor-
velda friðsamlega lausn máls
ins og haga aðgerðum þann-
ig að leiddi til sem mestra
átaka. Opinberlega hafa þeir
að vísu ekki játað þessi á-
form sín, en hver meðal-
greindur maður, sem eitt-
hvað hefur kynnt sér starfs-
aðferðir kommúnista erlend-
is og hérlendis, getur þó gert
sér ljósa grein fyrir tilgangi
þeirra.
í gser getur sá ritstjóri
kommúnistablaðsins, sem
sýknt og heilagt boðar það,
að íslendingum eigi að búa
sömu örlög og Kúbubúum, þó
ekki á sér setið. Hann ræðst
að Eiríki Kristóferssyni fyrir
það að hafa afstýrt vandræð-
um í landhelgisdeilunni. Með
hliðsjón af vonum þeim, sem
'kommúnistar bundu við þau
átök, þá er þessi árás á Eirík
Kristófersson skiljanleg. Ef
kommúnisti hefði verið í hans
siöðu eða einhver ofstopa-
maður, kynni svo að hafa
farið að íslendingar byggju
nú við sælu „kúbansks“
stjómarfars.
Þessi árás kommúnista á
Eirík Kristófersson undir-
strikar þjóðhollustu hans og
afrek þau, sem hann vann.
Án kommúnískrar árásar
hefði það varla verið talið
sannað, að hann hefði unnið
stórvirki, því að þá fyrst er
það ljóst, að um þjóðhollan
afreksmann sé að ræða, þeg-
ar kommúnistar ráðast að
honum.
ENDURSKOÐUN
TOLLSKRÁR-
INNAR
¥ tilefni af hinum skipu-
•*■ lögðu verzlunarferðum til
útlanda hefur mönnum orðið
tíðrætt um innflutnings- og
tollamál.
Eins og kunnugt er voru
tollar á margháttuðum varn-
ingi, einkum þeim, sem
smyglað hafði verið til lands-
ins eða menn keyptu á ferða-
lögum sínum erlendis, lækk-
aðir stórlega í fyrra. Engu
að síður er talsverður verð-
munur á þessum vörum í
sumurn nágrannalandanna og
einkum *er verðlag einna
lægst í Bretlandi. Með
an svo háttar verður ætíð
erfitt að stemma stigu við
kaupum þessara vara utan-
lands.
Enda þótt ekki sé hægt að
amast við því, að menn kaupi
eitthvað til eigin nota á ferða
lögum sínum erlendis, er hitt
ljóst ,að gjörsamlega er úti-
lokað að láta það viðgangast,
að menn geti auglýst ferðalög
í þeim tilgangi einum að
koma varningi fram hjá
tolli. Ef slíkt væri liðið, hlyti
líka virðingunni fyrir öðrum
lögum en tollalögum að vera
hætt.
Tollskráin er nú í endur-
skoðun, eins og kunnugt er,
og gert er ráð fyrir að það
þing, sem nú situr, afgreiði
ný tollalög. Er þar enn gert
ráð fyrir tollalækkunum og
samræmingu tolla. Er það vel
farið, því að sannleikurinn er
sá, að svo óhóflegir tollar,
sem hér hafa tíðkazt, bjóða
lögbrotunum heim, og þar að
auki geta þeir beinlínis unn-
ið gegn tilgangi sínum. Þeir
geta rýrt tekjur ríkissjóðs í
stað þess að tryggja þær, og
þeir geta leitt til meiri gjald-
eyriseyðslu, því að há álagn-
ing er greidd erlendis, þegar
vörur eru keyptar x smásölu.
Um síðustu mánaðamót lét
bandaríska kjarnorkumála-
nefndin gera tilraun með
kjarnorkusprengju neðanjarð-
ar á Nevada-eyðimörkinni. —
Tilgangur tilraunarinnar var
að kanna á hvern hátt nota
má kjarnorku við hafnargerð,
námugröft, byggingu skipa-
skurða o. íl. — Sprengd var
kjarnorkusprengja um 200 m
fyrir neðan yfirborðið og var
sprengiorka hennar sú sama
og í 100 þúsund lestum af
TNT sprengiefni.
Þremur sekúndum eftir
sprenginguna reis upp fjall
yfir sprengjunni, og var það
um 100 metra hátt og 200 m í
þvermál. Svo hvarf fjallið, en
eftir varð 100 metra djúpur
gígur, 365 metra í þvermál. Á
efri myndinni sést fjallið, en á
þeirri neðri gígurinn.
Sir Winston Churchill
88 ára síðastliðinn
og streymdu þá til hans sím-
skeyti og heillaóskir alls
ar að úr heiminum. — Mynd
þessi var tekin á
inn fyrir framan heimili
Churchills við Hyde Park
Gate í London.
Stúkan Framsókn
40 ára
STÚKAN Framsókn nr. 187 á
Siglufirði átti 40 ára starfsafmæli
laugardaginn 10/11 sl. Stúkan var
stofnuð 10. nóv. 1922 og voru
stofnfélagar 30 að tölu. Hefir stúk
an starfað næstum óslitið síðan.
Hún hefir um áratugaskeið rekið
Gesta- og sjómannaheimili Siglu
fjarðar, en það hefir annazt fyrir
greiðslu sjómanna á sumrum
jafnan verið mjög mikið sótt. —
Þá hafði stúlkan á sínum tíma
forgöngu um leikstarf í bænum
og á vegum hennar voru margir
sjónleikir sýndir. Stúkan hefir
gefið út blaðið „Regin“ um
margra ára skeið, ritstjóri þess
er Jóhann Þorvaldsson kennari.
Félagar stúkunnar eru nú 233.
Stúkan minntist þessa afmælis
með hófi í Sjómannaheimilinu sl.
laugardag. Árni Jónasson umboðs
maður Stórtemplars stýrði hófinu
og rakti í fáum dráttum tildrögin
að stofnun stúkunnar og gat um
margháttuð störf hennar. Hlöðver
Sigurðss. skólastjóri ræddi um
Góðteplararegluna á íslandi. Sr.
Ragnar Fjaíar Lárusson sóknar-
prestur ávarpaði hina yngri fé-
laga og bað þá vel að halda heit
það, þeir hefðu unnið við inn-
göngu í stúkuna. Auk þessa voru
ýmiss skemmtiatriði, söngur og
dans.
Heiðursfélagar stúkunnar eru
Andrés Hafliðason, Þóra Jónsd.
og Guðrún Jóns.
— Stefán.
AÐ FALSA
SÖGUNA
IT’ins og alkunna er falsa
" kommúnistar ætíð sög-
una. Þeir þurfa meira að
segja að skipta um blöð í bók-
um og heilu útgáfurnar til
þess að hagræða frásögnum
af mönnum og málefnum, eft
ir því hver ofan á er hverju
sinni. Fram að þessu hafa
þeir verið einir um þessa
iðju. En einnig á þessu sviði
virðast þeir nú vera að eign-
ast bandamenn hér á íslandi.
Þannig segir Tíminn í gær,
þegar hann birtir grein um
falsanir á ummælum Aka
Jakobssonar varðandi dóms-
málaráðherrann í Nýsköpun-
arstjórninni, sem Áki hefur
mótmælt:
„Nútíðin lætur það ganga
til framtíðarinnar á spjöldum
sögtmnar.“
Morgunblaðið getur að vísu
fullyrt, að enginn söguritari
muni láta sér til hugar koma
að styðjast við fréttafölsun-
arblaðið Tímann, nema þá að
sú ógæfa eigi eftir að henda,
að saga landsins verði skrif-
uð á kommúnistískan hátt.
En hitt er vissulega hryggi-
legt, að einnig þennan þátt í
bardagaaðferðum kommún-
ista skuli Framsóknarmenn
nú taka upp.