Morgunblaðið - 21.12.1962, Page 5
Föstudagur 21. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
5
Jyví að þeim er mögulegt að lifa
pg starfa í friði.
Meðal þeirra, sem eru í valda
aðstöðum í Bandaríkjunum, eru
menn, sem með réttu má kalla
„vitfirringa". „Vitfirringarnir"
lögðu til og leggja enn til að far-
ið verði hið bráðasta með stríð
ó hendur Sovétríkjunum og öðr-
ura sóisíalistaríkjum.
Með sanngjörnum samningum
hefur okkur tekizt að afstýra
styrjöld vegna Kúbu. Heimurinn
rambaði bókstaflega á barmi
kjarnorkustyrjaldar. En reynist
okkur fært að leysa hnútinn, ef
heimsvaldisinnar herða hann aft-
ur? Enginn getur ábyrgst það.
Við skulum hugleiða það, að
ólga kæmi upp í Evrópu t.d.
vegna deilunnar um friðarsamn-
ing við Þýzkaland. Gerið ykkur
í hugarlund, að bandarískir hern
aðarsinnar og æsingamenn á borð
við Adenauer, sem hvetja þá í
laumi, krefjist þess, að Vestur-
veldin sýni hörku, jafnvel meiri
hörku en til þessa.
Við getum sagt við þessa menn
Dettur ykkur í hug, að við mun-
um flytja eldflaugar frá Sovét-
ríkjunium sjálfum, þó þið beitið
ofckur þvingunum eða við séum
hræddir þó að þið hótið að láta
sprengjur falla?
Ég segi ykkur hreinskilnislega,
að það misreiknið ykkur hrapal-
lega, ef þið byggið stefnu ykkar
á slíkum útreikningum.
Yfckur tékst ekki að afgreiða
brýn alþjóðleg vandamái þ.á.m.
Þýzkalandsmálið, með slíkum
aðferðum. Þessi vandamál krefj-
ast lausnar, en það er augljóst
að þið viljið grafa þau og koma
okikur í gröfina með þeim. Ef
einhver heldur að til sé skófla,
sem er nægilega stór til þess að
grafa okkur og eldflaugavopn
okkar, þá getum við sagt hon-
um, að Sovétriíkin og önnur sósía
listarífci eiga jafnstóra, ef ekki
stærri, skóflu.
Það getur leitt til tortímingar-
styrjaldar, að leggja út á þessa
braut, að ætla að leysa deilur
með hótunum um valdbeitingu.
Þetta ættu vestrænir stjórnmála-
menn að íhuga.
Félagar fulltrúar! Við verðum
að játa að háværar óánægjuradd
ir vegna friðsamlegrar lausnar
Kúbumálsins heyrðust einnig úr
öðrum herbúðum. Þær bárust
frá frá þjóð, sem kveðst fylgja
stefnu Marx og Lenins, þó að
hún eigi raunverulega ekkert
sameiginlegt með Marx-Leninist-
un
Ég hef leiðtoga Albana í huga.
Gagnrýni þeirra á aðgerðir Sov-
étríikjanna er efnislega sú sama
og gagnrýni mestu afturhalds-
seggja og hernaðansinna Vestur-
landa.
Hvers vegna hrópa leiðtogar
Albana nú hærra en nokkrir
Krúsjeff og Tító (í miðið) ræðast við á fundi æðsta ráðsins í Kreml. Á myndinni eru í fremstu
röð frá vinstri: Anastas Mikoyan aðstoðarforsætisráðherra Sovétríkjanna, Carlos Rodriguez, for-
maður viðskiptasendinefndar frá Kúbu, Krúsjeff, forsætisráðherra, Tító, forseti og forseti Sovét-
ríkjanna Leonid Brezhnev.
«num JUpiim. fir
er ávallt: Wl
Jólagjafir
Við bjóðum yður
stærra úrval af jóla-
gjöfum en. nokkru
sinni fyrr.
Eingöngu þekktar og
vandaðar vörur:
Fjölbreytt
úvral í dömu-
og herra-úrum
<§|g»
GEORG JENSEN
Stálborbbúnabur
Silfurborðbúnaður og skarfgripir
Gullvörur: allskonar innlendar og erlendar.
Silfur og Silfúrplettvörur, ýmiss konar
Bing & Gröndal postulínsvörur
Stál og messing vörur, fjölbreytt úrval.
Skartgripir allskonar 1 bezta gull-doublé.
Gjörið svo vel og lítið inn.
aðrir? Ég ætla að segja ykkur
sögu úr mínu eigin lífi í þessu
sambandi.
Ég minnist þess, að ribbaldarn-
ir í námuþorpunum voru vanir
að fá litla drengi, sem varla
kunnu að tala til þess að hrópa
ókvœðisorð, sem þeir gátu varla
borið fram fyrir utan glugga
hjá fólki. Og þeir gerðu annað
verra. Þeir sögðu við litla drengi
„Farður til móður þinnar og
segðu þetta við hana. Hérna hef-
urðu þrjá kópeka fyrir.“
Albönsfcu leiðtogarnir haga
sér eins og þessir óvitar. Einhver
hefur kennt þeim að hrópa ó-
kvæðisorð fyrir utan glugga ann
arra og æpa verztu blótsyrði að
rnóður sinni, sem er kommúnista
flofcfcur Sovétrikjanna og þeir
fá þrjá kópeka fyrir. En þegar
þeir blóta hærra og nota ljótari
orð, þá fá þeir hrós og meiri
peninga.
Félagar fulltrúar! Nú langar
mig til þess að ræða sambúðina
við Júgóslaviu. Tító forseti og
félagarnir Rankovic, Veselinov og
aðrir stjórnmálaménn þáðu boð
ofckar og eyða nú leyfi sínu í
Sovétrífcjunum. Við lítum á þá
sem vini og höfum þegar átt við
þá nytsamilegar viræður, sem
hafa aukið gagnkvæman skiln-
ing. Ég verð að segja, að þær
hafa staðfest enn einu sinni, að
við lítum sömu augurn á mörg
alþjóðleg vandamái, milliríkja-
máil og viðsfciptamáil.
Leiðtogar Júgóslaviu og við
erum sannfærðir um það, að auk
in tengsl Sovétríkjanna og Júgó
slavíu eru ekfci aðeins hagsmuna
mál þjóða okkar, heldur miða
þau að því að styrkja öflin, sem
berjast fyrir friði, lýðræði, sósía-
lisma og kommúnisma.
Albanskir sértrúarmenn og
kreddukarlar reyna af öllu afli
að koma í veg fyrir bætta sam-
búð sósíalistaríkjanna og Júgó-
slavíu. Þeir voru byrjaðir að
öskra, en nú hækka þeir raust-
ina, þegar félagarnir Tító, Rank-
ovic, Veselinov og aðrir júgó-
slavneskir leiðtogar em í Sovét-
ríkjunum.
Okkur er sagt, að samvinna við
Júgóslava sé ámælisverð, þar
til allur hugsjónalegur ágrein-
ingum þeirra og annarra sósía-
listaríkja hefur verið jafnaður.
Þetta segja okkur menn, sem
kalla sig Marx-Leninista.
En þetta er beinlínis heimsku-
legt. Jafnvel heimsvaldasinnar
eru að reyna að jafna ágreinings
efni sín til þess að þeir geti toom-
izt heilir á húfi úr baráttunni
við kommúnismann, sem á sí-
aufcnu fylgi að fagna.
Þeir vinna þrotlaust að því að
efla og útvíkka Efnahagsbanda-
lag Evrópu, þrátt fyrir misfclíð
milli meðlima bandalagsins.
í herbúðum okkar er einnig
fólfc, sem vill sundra fylkingu
sósialista, en það er ekki stefna
okikar, það er ekki stefna þeirra,
sem fylgja kenningum Marx og
Lenins.
Sovétrifcin gera allt og munu
gera alílt til þess að stuðla að
einingu þeirra, sem berjast fyrir
friði og þjóðfélagslegum fram-
förum. Og verði þessi stefna
fyrir árásum ónefndrar þjóðar,
sýnir það aðeins, að forystumenn
hennar hafa ekki einlægan á-
huga á þvi að efla samheldni
kommúnistahreyfingarinnar.
Hinir margeftirspurðu
ÞÝZKU
drengja mokkasínur
eru komnar aftur.
Svartar og brúnar.
LÁRUS G. LÚÐVÍGSSON, Skóverzlun, Bankastræti 5.
I
ÚR
Við seljum mikið af úrum.
Við höfum örugga viðgerðaþjónustu.
Helztu merkin eru:
Pierpont,
Mondia,
Roamer,
Certina,
Alpina,
Omega og
Rolex.
Við seljum einungis viðurkennd
svissnesk merki.
Jólaúrval okkar er gott.
uðn Sipmunilsson
Skarigripoverzlun
cjripur
^'a^ur
Hverfisgötu 49 og Austurstræti 18.
er œ