Morgunblaðið - 21.12.1962, Page 10
10
MORGVNBLAÐ19
Föstudagur 21. des. 1962
Grenivíkurkirkja
Húsavíkurkirkja
Gamla Svalbarðskirkjan
Kirkjan á Skútustöðum
Laufáskirkja
Visitazia í Suður
Þingeyjarsýslu
Kirkjan á Þóroddsstað
Gamla og nýja kirkjan í Reykja
blíð
Fyrir framan gömlu Svalbarðs-
kirkjuna: Frú Laufey Olson, frú
Magnea Þorkelsdóttir, Benedikt
Baldvinsson formaður sóknar-
nefndar, herra Sigurbjörn Einars
son, séra Jón Bjarman, Kjartan
Magnússon sóknarnefndarmaður
frá Víðihóli og séra Friðrik A.
Friðriíksson prófastur á Húsa-
vík.
EINS og kunnugt er af fréttum,
visiteraði biskupinn yfir íslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson, Suð-
ur-Þingeyjarprófastsdæmi seinni
hluta sumars. Af þvi til-
efni ræddi fréttamaður Mbl. lítil
Iega við biskup og fékk meðfylgj
andi myndir, sem sonur hans tók
í förinni.
— Það hefur verið hlutverk
'biskupa ihér frá upphafi, sagði
foiskup í byrjun samtalsins, að
fara visitazíuferiJir til safnað-
aniria. Söfnuðurnir eru heimsótt-
ir, lífi þeirra og starfi kynnzt,
ásigkomulag húsa og annarra
eigna kirkjunnar athugað, mun-
iir hennar skrásettir o.s.frv.
Þetta er mjög mikilvæguæ þáttur
í starfi biskups, og bonum ekki
hvað sízt nauðsynlegt að þekkja
viðhorf prests og safnaðar.
— Hvernig er fyrirkomulag
sjólfrar heimsóknarinnar til safn
aðarins?
— í fyrsta lagi er messugerð,
sem sóknarprestur tekur þátt í,
en biskup flytur að jafnaði
predikunina. Að messu lokinni
talar biskup til safnaðarins um
almenn málefni kirkjunnar og
sérmál hennar á hverjum stað.
Þá er að geta þriðja þáttarins,
sem er nýtekinn upp: Böm eru
boðuð til viðtals við biskup, og
er séæstök áherzla lögð á að fó
Kirkjan á Lundarbrekku
böm á fermingaraldri til við-
tals. Þetta var mjög ánægjuleg
nýbreytni, og hef ég haft mikla
gleði af að tala við börnin, sem
fjölmemntu alis staðar til kirkju
við þessa visitazíu eins og und-
anfarin 2 ár. Með mér var vest-
ur-íslenzlk kona, frú Laufey Ol-
son, sem starfar í Fyrstu lúther-
sku kirkjunni í Winmipeg. Hef-
ur hún fengizt þar við kirkju-
legt starf meðal barna, og var
mér fengur að því að kynnast
reytnslu hennar í þeim efnum.
'Hún talaði við bötmin í öllum
kirkjunum, auk mín. — í fjórða
lagi er svo haldinn fundur með
sóknamefnd, en öðrum úr söfn-
uðinum er einnig heimilt að
sitja þann fund. Þá er kirkjan
skoðuð, og síðan fara fram um-
ræður.
— Hvað eru margax kirkjur
í þessu prófastdæmi?
— Þær eru 17, og svo er sam-
komuhús á Tjömesi, sem notað
er til kirkjulegra athafna. Próf-
astur er séra Friðrik Friðriks-
son á Húsavík, en prestarnir eru
alls sex og þjóna Laufás-, Háls-,
Vatnsenda-, Grenjaðarstaða-,
Hlúsavikur- og Skútustaðapresta-
kölium. Hafa þeir 2—4 sóknir
hvier um sig. — Prestamir eru
fremur ungir, og tel ég prófasts-
dæmið vel skipað.
— Hvemig er ásigkomulag
kirknanna?
— Þæir eru yfir leitt í góðu lagi
og vel við haldið. Tvær kirkjur
eru alveg nýjar, á Svaibarði og
í Reykjahlíð, báðar hin glsesi-
legustu guðshús. — Þá vildi ég
gjarnan geta þess, að hirða kirkju
garða ear þarna mjög til fyrir-
myndar. Ég sá engan í vamhirðu,
en marga prýðilega hirta. Víða
hefur verið sléttað út, eftir að
samin hefur verið ná'kvæm leg-
staðaskrá, sVo að hœgt er að
ganga að hverju leiði. Hin smekk
lausu grjótbyrgi, sem fyrst munu
hafa farið að tíðkast í Reykja-
víik, eru sjaldgæf ,og víða mikill
trjágróður og snotrir iundir.
— Hvemig var kirkjusókinin?
— Hún var mjög góð. Þess má
geta til gamans, að á Illuga-
stöðum var 150% kirkjusókn. 40
eru í sókninni, en 60 komu.
— Og safnaðarlíf?
— Það má víst teljast allgott,
eftir þvi sem gerist hérlendis.
Reglulegar bamaguðsþjónustur
eru t.d. haldnar allt árið á Húsa-
vík og í Grenjaðarstaðasókn. Þá
heimsækja prestar Skóla og ungl-
ingafélag er þarna starfandi. —
Safnaðarblöð eru gefin út á tveim
ur stöðum. — Sömglíf er gott,
enda er prófasturinn, séra Frið-
rik Friðriksson, mjög ötull í söng
málum og kona hans snjall organ
isti. í Reykjahlíðarkirkju er einn
yngsti organisti landsins. Hann
heitir Jón Stefánsson og er 16
ára. Þar er góður söngur.
í sambandi við æskulýðs-
starfið vil ég líka geta þess, að
ég kom að Vestmannsvatni, þar
sem Æskulýðssamband Hóla-
stiftis er að reisa sér sumarbúð-
ir. Þarna er gullfallegt, og veit
ég, að norðlenzk börn eiga eftir
að eiga þarna margar ánægju-
stundir.
Frá Grenjaðarstað
Illugastaðakirkja
Draflastaðakirkja
Biskup, prestar og prófastur í
Suður Þingeyjarsýslu fyrir fram
an Einarsstaðakirkju á afmælis-
degi hennar, 12. ágúst. Frá vin-
stri: Séra Friðrik A. Friðriksson
þrófastur, séra Jón Bjarman,
séra Þórarinn Þórarinsson, herra
Sigurbjörn Einarsson, séra Öm
Friðriksson, séra Sigurður Guð-
mundsson og séra Sigurður Hauk
ur Guðjónsson.
Ljósavatnskirkja Svalbarðskirkja
Kirkjan i Nesi í Aðaldal Einarsstaðakirkja Þverárkirkja
„Hugprúðir menn"
eítir J. F. Kennedy, og
J fótspor meistarans"
eítir H. V. Morton
ÁSRÚN hefur sent frá sér tvær
bækur, báðar þýddar, er hlotið
hafa mjög góðar viðtökur erlend
is
Er hér í fyrsta lagi um að ræða
bók John F. Kennedys, forseta
Bandaríkjanna, „Hugprúðir
menn“ (Frofiles in Courage), er
hlaut Pulitzerverðlaunin banda-
rísku 1957. Hin bókin er „í fót-
spor meistarans“ (In Steps of the
Master), eftir H. V. Morton.
„Hugprúðir menn“ er safn ævi
sögubrota þeirra bandarískra
þingmanna, er skarað hafa fram
úr, manna, sem með viljastyrk sín
um mótuðu nýjan heirn. Hér er
um að ræða litríkar persónur,
ólíkar að uppruna, menntun, gáf-
um og siðgæði, sem allir áttu þó
sögulegt baksvið og sögulegt fram
lag.
f inngangi og lokakafla bókar-
innar fæst nærmynd af John F.
Kennedy, en þar lýsir hann við-
horfum sínum til hinna „hug-
prúðu manna“.
í formála bókarinnar „f fótspor
meistarans". segir höfundur, H.V.
Morton: „Þessi bók er ferðasaga.
Hún fjallar um ævintýri þess
manns, sem fór til Landsins helga
til þess að sjá með eigin augum
þá staði, sem snerta ævi Jesús
Krists, og leita sér vitneskju um
þann nýja fróðleik, sem fræði-
menn á sviði mannkynssögu og
fornminjarannsókna hafa grafið
upp um sögusvið guðspjallanna“.
Bók þessi hefur selzt í geysi-
stóru upplagi erlendis, enda hef-
ur hún verið gefin út a. m. k. 25
sinnum, áður en hún kom íslenzk
um lesendum fyxir sjónir.
Málmar
Kaupi rafgeyma, vatnskassa,
eir, kopar, spæni, blý, alum-
iníum og sink hæsta verði.
Arinbjörn Jónsson
Sölvhólsgötu 2 — Sími 11360.