Morgunblaðið - 21.12.1962, Síða 19
Z96T ‘sap '\Z jnSepmsp^;
MORGVHBT. AÐItí
19
mig úm það hvers vegna þetta
hérað er nefnt Norway House.
Einn náungi svaraði fyrirspurn
minni á þá leið, að staðurinn
hefði alltaf heitið þessu nafni!
Annar gat þess til, að nafnið
standi í sambandi við norskan
landkönnuð frá fyrri tímum. En
ekki vissi hann hvern, eða hve
nær.
Fræðibækur segja að nafnið
sé dregið af hóp norskra verka-
manna, sem lögðu þarna vegar-
spotta snemma á 19. öld. Þetta
er einhver fyrsti verzlunarstað
ur Hudsonflóa félagsins í norð-
vestur landinu, og var einnig
snemma miðstöð trúboðsstarfs á
meðal Indíána. Fjöldi sumar-
gesta koma þarna áriiega, en
flestir flýta sér suður á bóginn
áður en vatnaleiðin lokast af
vetrarfnostunum. Nægar vistir
eru fluttar norður á sumrin, fyr
ir vetrarmánuðina. En er vetur
gengur i bæ, eru menn kyrrsett
ir þarna, og nokkun veginn úti-
lokaðir frá umheiminum.
Þetta var yfirleitt ánægjuleg
ferð. Veðrið var yndislegt alla
dagana. Einn morguninn var ég
á þilfari mjög árla, sólin var að
koma upp, hvergi gári á vatns-
fletinum, og blakti ekki hár á
höfði. Ég gaf mig á tal við há-
seta, sem þar var að störfum,
og sagði við hann: „Þetta er mik
il blessuð blíðan.“ „You’re darn
rigiht,“ sagði maðurinn, og svo
varð ekki sú samræða lengri.
Allur aðbúnaður á skipinu var
hinn bezti, og maturinn góður
og hættulega mikill við hverja
máltíð. Eftir aðra eins ferð og
þetta átta menn sig á því betur
en ella, hversu geysilegt flæmi
jafnvel Manitobafylkið er út af
fyrir sig, hversu fjölbreytt er
náttúra þess, loftslag og fólkið
sjálft.
— Sumarferð
Framhald af bls. 17.
Var hann kappsamur mjög við
fiskdrátf.inn, en um aUt hinn
mesti sómamaður. Sá var þó ljóð
ur á ráði þessa manns, að hann
var máihaltur mjög, eitthvað
svipað og George VI. Bretakon-
ungur, sællar minningar. Þetta
kom sér þeim mun verr, er mik-
ið lá við að gefa snarpar fyrir-
skipanir við sjómennskuna. Þá
kom það stundum fyrir, að for-
maðurinn bliknaði og blánaði all
ur í framan, en kom upp engu
orði. Síðar heyrði ég þess getið,
að hann hefði fengið fulla lækn
ingu á þessu, og þótti mér vænt
um þá frétt. En þrátt fyrir van-
kunnáttu mína á öllu, sem að
þessu starfi laut, og málhelti for
manns gekk allt slysalaust að
mestu þetta sumar. Ég féll að-
eins einu sinni útbyrðis á sigl-
ingu, en eineygður Indíáni, sem
ég vissi aldrei hvað hét, en var
einn af bátsverjum, greip í buxna
skálm mína og dró mig inn í
bátinn eins og hvern annan hvít
fisk.
Frá Warrens Landing var hald
FIESTA
MYNDAVÉL
með lampa kr. 385.00
Hans
Petersen h.f
Sími 20313.
M.s. Keenor á Berens River
ið á minna skipi áleiðis til Nor-
way House, og er það um tutt-
ugu mílna vegalengd. Var farið
mjög hægt, og í óteljandi krók-
um og lykkjum eftir árfarvegin
um til þess að forðast að taka
niðri á skerjum, sem virðast vera
alls staðar á leiðinni. Norway
House er ekki aðeins einn til-
tekinn staður, að mér skilst, held
ur heil sveit, með ýmsum þorp-
um og mörgum viðkomustöðum.
Þarna var mjög fagurt og frið-
sælt um að litast. Þar eru ýmsar
merkar stofnanir, svo sem skól-
ar og spítalar. Laetur stjórnin
sér augsýnilega mjög annt um
líðan þess fólks. Enginn gat frætt
íbúið til leigu
Nýleg 2ja herb. íbúð á hæð í húsi í Laugarási er til
leigu frá 1. janúar n.k. íbúðin er ein stór stofa, lít-
ið svefnherbergi, eldhús, bað o. fl. íbúðin er mjög
vönduð. Leigist einstaklingi eða barnlausum hjón-
um. Tilboð með upplýsingum sendist afgr. Mbl. fyrir
hádegi mánudaginn 24. þ.m. merkt: „Laugarás —
3141“.
Orðsending til Suðurnesjamanna frá
Verzlun NONNA og BUBBA
Keflavík og Sandgerði
Á jólaborðið:
Svínakjöt allskonar.
London lamb
Nýtt kindakjöt, útbeinað og fyllt.
Hangikjöt, útbeinað.
Álegg, margar tegundir.
''
''
Nýir ávextir:
Appelsínur — Epli.
Vínber — Bananar.
Klementínur — Melónur.
Öl og sælgæti
—.Gjafavörur í miklu úrvali, —
Sandgerði: Barnaskór nýkomnir.
Keflavík: Leikfangabazar.