Morgunblaðið - 21.12.1962, Page 22
22
MORCVlSm 4 ÐIÐ
Föstudagur 21. des. 1962
Karl Halldórsson:
Kommúnismi
á íslandi
I>egar tveir eða fleiri menn
taka tal saman um stjórmál, er
algegnt að faeyra eftirfarandi orð:
„Það er alveg sama hvaða flokk-
ur fer með völd, þetta eru allt
faagsmunaklíkur, og forustumenn
irnir hugsa aðeins um að skara
eld að sinni köku.“ Sl'ik orð bera
vitni háskalegu andvaraleysi eða
algjörum óvitaskap.
Hér á landi eru þrír stjórn-
málafiokkar, Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur. I>ar að auki eru
kommúnistar sem faafa ruðst inn
á stjórnmálasviðið, enda þótt
enginn viti nú með vissu favað
samtök þeirra faeita. Sameining-
arflokkur alþýðu Sósíalistaflokk-
urinn, Alþýðubandalag, f>jóð-
varnarflokkur eða Hernámsand-
stæðingar.
' Stjórnmálaflokkana þrjá grein
ir á í höfuðatriðum. Einn fylgir
| ríkisrekstri atvinnuveganna í
! sem flestum atriðum, annar vill
, ‘hafa á því samvinnusnið og sá
! þriðji telur einkareksturinn
faeppilegasta formið á sem flest-
um sviðum. Þetta eru allt eðli-
legar skoðanir og sjálfsagt að
þær kómi fram í lýðræðisþjóð-
félagi. Enda er þessum flokkum
stjómað af íslenzkum huga og
faöndum.
Allt öðru máli gegnir með
( kommúnista. Þeirra félagsskapur
er ekki stjórnmálalegs eðlis, eins
og heilvita menn hugsa sér slíkt,
heldur líkist hann miklu fremur
La Mafía eða Ku Kux Klan,
nema hvað feður kommúnism-
! ans voru upphafsmönnum hinna
samtakanna miklu snjallari í á-
róðrinum, enda nutu þeir þegar
lögverndar þeirra, (og það gera
lærisveinar þeirra enn í dag)
sem fyrst yrðu látnir hverfa,
hvar og hvenær sem kommún-
isminn næði völdum. Og fyrir
andvaraleysið ræður nú komm-
únisminn yfir svo ofsalegum eyð-
ingartækjum, að allt mannkyn
nötrar af ótta.
Kommúnistar komu sér þegar
í byrjun upp fallegri stefnuskrá,
um bræðralag og „öreigar allra
landa sameinizt." Lengi vel fóru
þeir ekki dult með á hvern hátt
markinu skyldi náð, með upp-
reisn gegn ríkisstjórnum og lög-
gjafarvaldi, með blóðugri bylt-
ingu. Deildir voru stofnaðar um
heim allan. En ein var stjórnin,
fámenn klíka austur í Moskvu,
og gildir það enn í dag .
En kommúnistar sáu það áður
en langt um leið, að ofbeldis-
kenning þeirra og byltingaráform
hlutu lítinn hljómgrunn meðal
JÓLAGJÖF KARLMANNSINS
FÁIÐ ÞÉR HJÁ OKKUR
ÚRVALS VÖRUR
NVJAR VÖRUR
menningariþjó>a, en til þeirra
þurftu þeir nauðsynlega að ná.
Þá var skipt um bardagaaðferð.
Allt í einu urðu þeir mestu lýð-
ræðissinnar heimsins ,þeir prédik
uðu allra manna mest um frelsi
og réttlæti. Þeir reyndu að koma
sér í mjúkinn hjá andstæðingum
sínum, og tókst það víða furðu
vel. Venjulega menn grunaði
ekki lævísina, þeir sáu ekki úlf-
inn undir sauðargærunni. En
'kommúnistar eiga mikið ai gær-
um, og margvíslega litum.
Hér á landi hefur fjöldi lýð-
ræðislega sinnaðra manna látið
blekkjast af fagurgala kommún-
ista, og meira að segja eftir að
•þeir gátu ekki að fullu dulið
úlfshárin, samanber villimann-
legar árásir á löggjafanþing þjóð í
arinnar, hin pólitísku verkföll
síðari ára, og lokun þjóðvega "í
samfaandi við þau.
Kommúnistum hefur verið lyft
upp í áhrifastöður, og þeim þann
ig gefinn kostur á að auka mold-
vörpustarfsemi sina, og ráðast að
traustustu rótunum, „því lak-
asti gróðurinn ekki það er sem
ormarnir helzt vilja naga“. Og
nú er svo komið að í sumum
fjölmennum starfsstéttum ríkis-
valdsins eru kommúnistar í meiri
hluta. Að vísu er rétt að taka
það fram, að fjöldinn allur sem
fylgir kommúnismanum að mál-
um, er ekki kommúnistar, og
myndu herfa eins og aðrir, ef
til kastanna kæmi, en þeir eru
fainir nytsömu einfeldningar þang
að til.
A fyrstu árum kommúnismans
bér á landi, ráku trúnaðarmenn
hans töluverðan áróður gegn því
að þjóðin kynnti sér uppruna
sinn og sögu. Sérstaklega var
þessum áróðri beint að börnum
og æskufólki. Því var t.d. sagt
að íslendingasögúrnar væru ein-
ungis lygasögur og aðalefni þeirra
morð og rán. Hræddur er ég um
að Jóni Sigurðssyni hefði fundist
'fátt um slíka kenningu, en hann
er sá maður sem kommúnistar
eigna sér oftast .
Hvað sem segja má um sann-
leiksgildi sumra sagna, er það
víst að íslendingasögurnar eru
lýsingar á iifi og störfum for-
feðra okkar og mæðra, þar finn-
um við örnefni um land okkar
allt, sem geymast enn í dag og
þaðan streymdi orkan sem réði
úrslitum í þjóðfrelsisbaráttunni.
Þetta vita kommúnistar, þess j
vegna vilja þeir fjarlægja æsk-
una frá þessari vitneskju, hún i
gæti vakið þjóðerniskennd, en
það er erfiður þröskuldur fyrir
kommúnismann að yfir stíga.
Núverandi fræðslulöggjöf er í
höfuðdiáittum samin af einum
harðsvíraðasta kommúnista hér-
lendis, Brynjólfi Bjamasyni. Eft-
ir hennni ber börnum að vera í
skóla frá sex til fimmtán ára
aldurs, haustið, allan veturinn
og fram á sumar hverju sinni.
Maður skyldi nú ætla að eft-
ir slikt nám í táu ár, væru ungl-
ingarnir vel menntaðir. En því
miður, það er öðru nær. Ekki
vegna þess að þeir hafi ekki
hæfileikana, heldur er löngu bú-
ið að ofgera þeim. Skólabekkir
Karl Halldórsson
eru auðvitað nauðsynlegir að
vissu marki, en seta á þeim, jafn
vel hálfa ævina er engum manni
holl. Lifið og höfundur tilverunn-
ar ætlast til annars. Enda er
mér kunnugt um það, að ungl-
ingarnir í dag vita minna um
land sitt og sögu en jafnaldrar
mínir, sem fengu aðeins átta
vikna skólagöngu í»þrjá til fjóra
vetur til fermingaraldurs.
Og þá kem ég að aðalatriðinu
sem kommúnistar vilja ná. Vekja
námsleiða, valda kæruleysi, af-
manna þjóðina, þá er akurinn
tilbúinn.
En þó er enn torleiði fyrir
kommúnismann, en það eru
traust heimili. Ég var einu sinni
með í þætti Sigurðar Magnús-
sonar „Spurt og spjallað í útvarps
sal“. Þar mættu tvær konur, báð-
ar kommúnistar. Þeim fannst
ekki nokkurt atriði að barn hlyti
uppeldi hjá móður sinni, hún
gæti verið út og suður allan dag-
inn, en hefði barnið á „stofnun“
á meðan. Einmitt á þennan hátt
er allt persónuatgervi lagt i
rúst, og þá ekki síður siðgæði
og trú. En það er undanfari
kommúnismans.
Það er engin tilviljun að Krús-
éff velur sér algjörann villimann
til aðstoðar í kalda stríðinu, á
ég þar við Fidel Castro.
Góðir íslendingar, ég veit að
ég er nokkuð stórorður í þess-
ari grein. En hún er gerð í þeim
tilgangi að vekja þjóðina af and-
varaleysi gagnvart þeim voðaleg
asta háska sem yfir mannkynið
hefur dunið.
Útsölustaðir: Gardínubúðin, Laugav. 28, Skeifan, Kjör-
garði, Fatabúðin Skólavörðustíg 21, VBK Vesturg. 4.