Morgunblaðið - 21.12.1962, Síða 23
Föstudagur 21. des. 1962
MORCVNBLAÐ1Ð
23
Hagkerfi spillingarinnar
KAFTAKERFINU hefir nú að
imiklu leyti verið létt af íslenzk-
um þjóðarbúskap. Munu fáir
sakna þess að vilja leiða það
yfir landsmenn á ný.
Haftakerfið leiddi af sér alls-
kyns ósóma í þjóðfélaginu, sem
enginn maelir bót, ekki einu sinni
dyggustu aðdáendur kerfisins.
En þeir halda því þá fram, að
kerfið sjálft hafi verið ágætt,
en því aðeins illa framfylgt.
Flestir eru þeirrar skoðunar,
að svartimarkaðurinn, smyglið,
ekattsvikin, skömmtunin og verzl
unin með „leyfin“ o.fl., séu rök
rétt og óhjákvæmileg afleiðing
af kerfinu og verði það alltaf
þannig geti aldrei öðru vísi orð-
ið,
í hinu norska blaði Farmand
birtist nýlega grein með þessu
nafni: Korrupsjons-ökonomi.
Greinin er skrifuð af indversk-
u.m prótfessor við Gujarat-há-
skólann í Ahmedabad í Indlandi.
Ljóst er hvers vegna hið norska
tekur upp þessa grein. Hafta-
kerfið á marga áhangendur í
Noregi. Lýsingar Indverjans á
óstandinu í Indlandi í þessum
efnum munu koma mörgum Norð
manni kunnuglega fyrir sjónir.
Og þess vegna birtist nú hér í
blaðinu lausleg þýðing á þessari
grein, að allir íslenzkir kaup-
sýslumenn og aðrir, sem feng-
ið hafa að reyna hið íslenzka
haftakerfi, munu á sama hátt
kannast við a-m.k. sum þeirra
fyrirbæra, sem lýst er í grein-
inni.
Það er sama hversu ólíkar
þjóðirnar eru, sem fylgja hafta-
kerfinu — sjúkdómseinkenni
þess verða alltaf hin sömu.
Einnig þarna austur frá sann-
ast það, sem Sjálfstæðismenn
Ihafa alltaf sagt um haftakerfið.
Bönn og höft leiða alltaf til lög-
brota. Aukin lögbrot kalla á auk-
ið eftirlit, strangari retfsingar og
meiri höft og fleiri bönn, og þann
ig áfram koll af kolli. Árangur af
af stefnu sosíalista og annarra
haftapostula er alltaf Lögreglu-
ríkið ef þesSi þróun er ekki
stöðvuð í tæka tíð.
★ • ★
Iridversfca stjórnin hefir sett
á laggirnar nefnd til að vinna
„gegn spillingu“ og. er hlutverk
hennar að endurskoða gildandi
eftirlitsreglur hjá embættismönn-
um stjórnvaldanna og finna raun
hæfar leiðir til þess að aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar gegn spill-
ingunni beri árangur.
Spillingin í Indlandi er komin
á hættulegt stig og veldur al-
mennum áhyggjum. Hinn 8. des.
1959 sögðu indversk blöð „að
forsetinn mundi láta rannsaka
þær kærur, sem beint hefði verið
gegn ráðherrum, háttsettum em-
bættismönnum og öðrum opin-
berum starfsmönnum, um mis-
notkun embættisvaldsins."
Shri C. D. Deshmufch sagði að
hann hefði fengið lagðar fram
sannanir fyrir því, að spilling
væri í emibættisfærslu á „háum
6töðum“ og prófessor S. Radha
Krisnan þáverandi varaforseti,
lét í ljós áhyggjur vegna þeirrar
„skapgerðar-kreppu" (karakter
krise) — sem þjóðin hefði orðið
fyrir.
Spillingin hjá stjórnvöldum er
eðlileg afleiðing ráðandi stefnu
í efnahagsmálum, þar sem höftin
eru einn megin þáttur hagkerfis-
ins. Stjórn efnahagsmála er fram
fcvæmd með leyfum, kvótum og
einkaleyfum, sem ekki kosta
neitt fyrir þá, sem veita leyíin,
þ.e.a.s. opinbera embættismenn
og stjórnmálamenn. Það er held-
ur ekki ætlunin að „leyfin“ eigi
að fcosta neitt fyrir þá, sem um
þau sækja. En þau færa nú samt
epilltum opinberum starfsmönn-
um gífurlegar fjárhæðir.
Innflutningsleyfin eru þau
leyfi, sem mest er sótzt eftir.
Síðast liðin sjö ár voru gefin
út slák leyfi til einkafyrirtækja
og opinberra aðila fyrir um Rs.
1.019 crores (2.14 milljarða doll-i
ara) að meðaltali á ári. Þessi!
leyfi eru gífurlega verðmæt fyrir
leyfishafa. Innflutningsleyfi fyr-
ir gerfi-silki færa t.d. leyfisbafa
hagnað sem nemur ca. 315%
þ.e.a.s. innflutningsleyfi fyrir
gerfisilki fyrir 100 Rupi er raun-
verulega 315 Rupi virði fyrir
leyfishafa. Skjal sem ekki hefir
kostað neitt að gefa út, og sem
veitir eiganda leyfi til að flytja
inn gerfi-silki fyrir t.d. Rs. 1
crore (2.1 milljón dollara) er
Rs. 3.15 crores virði (6.6 millj.
dollara).
Þetta er sannarlega einskonar
Aladdins-lampi, sem býr til verð-
mætisfúlgur úr engu!
Lampinn hefir verið notaður
í verzlunarráðuneytinu síðast lið-
in 20 ár. Og Aladdin er hin ind-
verska ríkisstjórn.
Hið ólöglega „verð“ á inn
flutningsleyfum fer eftir því fyr-
ir hvaða vöru leyfi er veitt. Þau
eru breytileg allt frá 30% til
500% (eða meira) af leyfisupp-
hæðinni. Síðastliðin 7 ár hafa
verið veitt leyfi fyrir að meðal-
tali Rs. 613 crores (1.3 milljón
dollara) á ári til einkafyrirtækja,
sem flytja inn vörur. Sé nú gert
ráð fyrir að meðal — „verð“ sé
75% af leyfisupphæðinni hafa
þessi leyfi fært óheiðarlegum
opinberum starfsmönnum eitt-
‘hvað um það bil Rs. 460 crores
(970 milljón dollara) a ári.
Slífcum gífurlegum fjárhæðum
'hefir lampi Aladdins deilt út með
al hinna útvöldu einu sinni á
ári.
Verksamningarnir, sem gerðir
eru við hið opinbera eru lí’ka
mjög eftirsóttir vegna þeirra
ofsalegu gróðamöguleika sem
þeir veiba. Þegar ríkið tilkynn-
ir að fjárfest hafi verið Rs. 100
crores í opinberar framfcvæmd-
ir, fara í raun og veru aðeins
60—90% til framkvæmdanna —
og er þá hér meðtalinn eðlileg-
ur ágóði til verktakanna. Hitt
fer sem óeðlilegur gróði til sömu
aðila og auðvitað líka til hinna
útvöldu.
Ef maður svo tekur með þann
einkasölugróða, sem einkaatvinnu
rekendur geta haft af einkaleyf-
um verður summa alls þessa ó-
heiðarlega gróða, sem haftakerf-
ið leiðir af sér eitthvað um það
bil Rs. 750 crores (1.600 milljón
dollana).
Þessi óvenjulega skattbyrði,
sem lögð er á atvinnustarfsem-
ina í landinu, er að sjálfsögðu
bæði ósiðleg og gífurlega skað-
leg. Þar sem hún táknar ágóða,
sem efcki er endurgreiðsla fyrir
neina veitta þjónustu, má með
réttu kalla þetta ránsfeng, sem or
sakast af haftabúskapnum. Þetta
lendir að síðustu á þjóðinni í
heild og þó sérstaklega á milli
stéttunum, sem voru illa settar
áður.
Aufc þess að valda ranglátum
tekj utilf ær slum (f rá millistétt
til hinnar nýju stéttar), þá örfa
þessar tekjur óheilbrigða eyðslu,
þar sem hér er um léttfengnar
tekjur að ræða. Spillingin rýrir
sparifjársöfnun og fjármagns-
myndun og tefur fyrir efnahags-
legum framförum.
Það er þessi' gífurlegi og ólög-
legi gróði sem hefir -skapað hina
stenku sérhagsmuni (vested ínt-
I erests), sem vaxið hafa upp í
kjölfar áætlunarbúskapanns.
Það er mjög óraunhæft að ætl-
ast til þess að stjórnmálamenn
og embættismenn, sem vaid hafa
i til þess að gefa út „leyfin“ muni
standast freistinguna að taka við
I fé, þar sem hér eru á ferðmni
| „himalayiskar" summur.
Án efa eru í þessum hópi opin-
berra starfsmanna að finna marga
strang-heiðarlega menn, en það
þýðir aðeins að þeir slá hend-
inni á móti gróða, sem fellur
þess í stað í hlut miður heiðar-
legra starfsbræðra. Sjálif eftir-
spurnin eftir leyíunum býður
upp á spillinguna.
að hætta öllum rikisreknum á-
ætlunarbúskap. Starfsemi ríkis-
valdsins verður síðan að tak-
marka við það hlutverk sem
eðlilegt verður að telja, að það
hafi með höndum.
Sú spilling, sem við sjáum
Indland hefir litla von um að
losna undan þessari spillingu, ef
fcvóta og haftakerfinu verður við
haldið. Nefndin, sem skipuð er
til þess að uppræta spillinguna,
getur svo gjarnan lagt til að
herða verði eftirlitið og að beitt
verði strangari refsingum en nú
eru í gildi lögum samkvæmt.
Þetta gagnar bara mjög lítið.
Við höfum þegar fengið það sann
að:
Gerð var tilraun til að koma
i veg fyrir gullsmyglið og var
þá tollalögum frá 1878 breytt á
árinu 1955, eftir tilmælum toll-
yfirvalda. Lagabreytingin var
í því fólgin að sönnunarbyrðin
var færð frá ákæruvaldinu til
sakbornings; Þegar lögreglan
lagði hald á gull, sem hún hafði
grun um að væri smyglað, varð
eigandi gullsins að sanna að ekki
væri um smyglvaming að ræða.
Þessi mikilvæga lagabreyting
svifti aðeins þá menn, sem verzla
með gull, þýðingarmiklum mann-
réttindum — en hún kom ekki
í veg fyrir gullsmyglið.
Gullsmyglið hélt stöðugt á-
fram, vegna þess að aðgerðin
beindist ekki gegn orsökum
meinsins, sem er sá gífurlegi
munur, sem er á indversku gull-
verði og gullverði á heimsmark-
aði.
Við verðum að losna við leyf-
is- og kvótakerfið og afskipti rik-
isvaldsins af efnahagslífinu eif
við eigum að uppræta spilUng-
una. Við verðum að breyta um
stefnu og reyna að nálgast hug-
rnynd Gandihis um „minimum“-
ríkið.
Leyfisveitingar er ekki hægt
að losna við á meðan enn er við
líði sá gríðarmikli mismunur
sem er á vöruverði innanlands
og markaðsverði á samskonar
innfluttum vörum. Og þennan
verðmismun er ekki hægt að
minnka nema með þvi að hverfa
frá þeirri verðbólgu-pólitík, sem
nú ríkir og síðan verður að fella
gengið á „rupi“ til samræmis
við þá verð- og bostnaðarhækk
un, sem orðin er og orsakast hef-
ir af verðbólgu-pólitík undan-
farinna ára.
Hverfa verður algerlega frá
haftapólitíikinni en til þess þarf
ir stjórnmálamenn halda, sú
veiki sem hægt er að lækna með
nýjum lögum og strangari refs-
ingum.
Meinsemdin á rót sína að rekja
til þess efnahagskerfis, sem við
búum við í dag. Verði það ekki
allt í kringum okkur í dag er afnumið, mun spillingin þróast
ekki eins og barnslega einfald- áfram svo sem verið hefir.
ENSKIR og ÍTALSKIR
KARLMANNASKÓR
NÝKOMNIR
SKÓSALAN
tAUGAVEGI 1
Karlmannaföt
Útlendu karlmannafötin komin. Amerískt snið.
100% ull.
Manchester
Skólavörðustíg 4.
B
d>S e a u l */■»'
R E
Shantpoo þrjár tegundir
Fyrir feitt hár, fyrir þurrt hár og fyrir normal hár.
John H. Breck Inc. — Manufacturing Chemists, Springfield,
Massachusetts, New York, Chicago, San Francisco, Los Angeles,
Ottawa, Canada.
— Fæst í ölium snyrtivöruverzlunum og apótekum.