Morgunblaðið - 06.02.1963, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. febrúar 1963
f frostunum ber mikið á
gufustróknum sem staðið hef-
ur í 2—3 ár upp í loftið í
Tungutúninu. Ýmsir hafa nú
fyrst verið að veita honum
athygli og ljósmyndari blaðs-
ins tók þessa mynd af honum
um daginn. Það, sem þarna
er að gerast, er að Hitaveitan
hefur tengt horholu til
bráðahirgða og vatnið er svo
heitt í henni, um 130 stig, að
það verður að hleypa gufunni
af Ieiðslunni á miðri leið. —
Heita vatnið rennur samt allt
áfram eftir leiðslunni.
Lijósm. Mbl.: Ól.K.M.
Vöruhappdrætti
SÍBS
I GÆR var dregið í 2. flokki
Vöruhappdrættis SÍBS, um 1100
vinninga að fjárhæð alls kr.
1.161.000,00. Þessi númer hlutu
hæstu vinninga:
6517 9285 19085 28474 28790
34470 37052 47666 54096 62607
63247
«
5.000
1064 2274 7275 18800 21536
33312 37343 40984 41303 47296
49169 49324 51959 54991 59308
63851
(Birt án ábyrgðar).
5 % kauphækkiin
í Borgarnesi
VERKALÝÐSFÉTjAG Borgar-
ness og vinnuveitendur í Borg-
arnesi hafa ákveðið, að allir
kauptaxtar í samningum þeirra
skuli hækka um 5%, tíma- og
vikukaup frá og með fimmtu-
deginum 24. Janúar 1903, en
mánaðarkaup frá og með 1.
fehrúar 1963.
Ennfremur að greitt verði
helgidagakaup fyrir alla hafn-
arvinnu (upp- Og útskipun) sem
unnin er eftir hádegi á laugar-
dögum.
Samningar eru lausir sem
áður og gildir þetta samkomu-
lag þar til öðruvísi um semst.
INIVFLIJTIMIIMGIJR NÆR
4 MILLJARÐAR 1962
ÍSLENDINGAB fluttu út vörur
árið 1962 fyrir 3.618 milljónir
króna, en inn fyrir 3.842 milljón-
ir og varð vöruskiptajöfnuður-
inn því óhagstæður um 224
milljónir.
Árið 1961 varð útflutningur
Jandsmanna fyrir 3.075 milljón-
ir, en innflutniiigur fyrir 3.222
mílljónir. Það ár varð vöruskipta
jöfnuðurinn óhagstæður um 147
milljónir króna.
í desembermánuði 1962 voru
fluttar út vörur fyrir 393.8
milljónir króna, en inn fyrir
532.7 milljónir, þar aí skip og
flugvélar fyrir 126.3 milljónir.
Vöruskiptajöfnuðurinn í desem-
ber varð því óhagstæður um
138.8 milljónir.
Samsvarandi tölur fyrir des-
ember 1961 eru:
Kr. 200.000 Útflutningur 412.4 milljónir,
innflutningur 403.5 milljónir,
24779 þar af skip og flugvélar fyrir
102.7 milljónir. Vöruskiptajöfn-
Kr. 100.000 uðurinn þá varð þvi hagstæður
5641 um 8.9 milljónir.
Árið 1962 voru flutt til lanids-
Kr. 50.000
45425 Kr. 10.000 Ekkert s
ins skip Og flugvélar fyrir 195.6
milljónir, en fyrir 193.4 árið
1961. ■
Leif Mohr
EKKERT hefur spurzt til Fær-
ingsins Leif Mohr frá Fuglafirði,
en hans var saknað af togaran-
um Jóni Þorlákssyni, er hann
átti að mæta á vakt sl. sunnu-
dagsmorgun.
Talið er ullvíst, að Leif hafi
verið um borð, er togarinn fór
llm 81 rithöfund að
velja til Nóbelsverðlauna
Stokkihólmi, 4. febrúar (NTB)
NOBELSVERÐLAUNANEFND
Sænsku akademíunnar kom sam
an til fundar i dag til að velja
út tillögum, sem henni hafa
borizt, um rithöfunda, er til
greina koma við úthlutun bók-
menntaverðlaunanna næstt
haust. Frestur til að skila tiilög
um rann út hinn 1. febrúar, og
var nefndin sammála um að 81
rithöfundur kæmu til greina. TU
lögur láu fyrir um mun fleiri.
Verðlaunanefndin hefur aldrei
haft úr jafn mörgum rithöfund-
um að velja og nú. í fyrra, þeg-
ar bandaríski rithöfundurinn
Jóhn Steinibeck hlut No/belsverð-
launin, komiu alls 71 rithöfundar
til greina.
vill nú þegar ráða
fréttaritara á Akureyri
Upplýsingar gefur Stefán Eiríksson,
umboðsmaður Morgunblaðsins á Akureyri,
sími 1905 og 1634.
frá Reykjavík kl. 4 á laugardag.
Þá var blíðskaparveður. Hann
fannst ekki við leit um borð, en
Jón Þorláksson er á leið til
Englands.
Leif Mohr er um 25 ára
gamall, ókvæntur.
— Rússar
Framhald af bls. 1.
stefnu Frakklands í heild. Orð-
sendingarnar eru langorðar, um
20 vélritaðar síður, og mjög harð
orðar. Tekið var skýrt fram að
þær væru frá stjórn Sovétríkj-
anna, en ekki utanríkisráðuneyt-
inu.
Stjórnmálafréttaritarar í
Moskvu telja að mótmælunum
sé aðallega beint gegn þeim köfl-
um samningsins, er varða varn-
armál. Þrátt fyrir yfirlýsingar
Frakka, álítur Sovétstjórnin ber-
sýnilega að ákvarðanir um
fransk-þýzka samvinnu í varn-
armálum, nái til samvinnu á
sviði kjamorkuvopna.
Fyrirlestur í
Fláskólanum
BANDARÍSKI sendikennarinn,
próf. Herman M. Ward, flytur
10 fyrirlestra á vormissirinu fyrir
aimenning og verða þeir fluttir
á miðvikudagskvöld um kl. 20.15
í 6. kennslustofu Hláskólans.
Fyrsti fyrirlesturinn verður í
kvöld, miðvikudaginn 6. febr.
og fjallar um Thomas Hardy.
Mesta skipatjón
á friðartímum
frá því árið 1929
London, 5. febrúar — (NTB)
Á ÁRINU 1962 urðu meiri skipa-
skaðar en nokkurt ár annað síð-
an 1929, ef frá eru talin heims-
styrjaldarárin, að því er segir í
ársskýrslu, sem vátryggingafé-
laga-samsteypan í Liverpool hef-
ur gefið út.
Alls fórust á árinu 124 skip,
sem voru samtals 507.530 tonn.
Helmingurinn af þessu tjóni
varð á skipum, er sigldu undir
fánum Grikklands, Líbauon,
Líberíu eða Fanama.
f sambandi við þessa miklu
skipatapa, leggur samsteypan á-
herzlu á að nauðsynlegt sé að
sýna meiri aðgæzlu, jafnvel þótt
skipin séu búin ratsjám, og
bendir á að í alþjóðasiglingum
verði öll lönd að gera strangar
kröfur að því er varðar ratsjár-
útbúnað.
Skortur á þekkingu getur leitt
til þess að ratsjáin, í stað þess
að vera skipstjórninni ómetanleg
aðstoð, getur orðið beinlínis
hættuleg, segir í skýrslunni.
Sérstaklega varð mikið um
skipsströnd á síðasta ári, og fór-
ust á þann hátt 68 skip, sem
samtals voru 280.732 tonn. Er
það 100.000 tonnum meira en á
árinu 1961.
Hin stórfelldu tjón vegna skips
stranda og ásiglinga gefa ástæðu
til að efast að því er varðar
notagildi nýjustu siglingatækj-
anna, segir í skýrslunni. Hins
vegar má ekki gleyma að taka
tillit til þess hvernig ástandið
væri án þessara tækja í heimi,
þar sem fleiri, stærri og hrað-
sigldari skip sigla í aukinni um-
ferð siglingaleiðanna.
Viðskipta-
samningui
við Ung-
verjnlnnd
VIÐSKIPTA- og greiðslusamn-
ingur milli íslands og Ungverja-
lands var undirritaður í Búda-
pest 5. febr. Gildir hann til eins
árs. Gert er ráð fyrir, að héðan
verði m.a. fluttar út þessar vör-
ur: Freðfiskur, síld, fiskimjöl,
lýsi, ull, gærur og húðir. Hing-
að er gert ráð fyrir að ka-upa
m.a.: Járn, stál, sykur, vefnað-
arvörur, búsáhöld.
EYJABATAR FENGU
2-7 TONN Á LÍNU
Vestmannaeyjum, 5. febrúar.
LfNUBÁTARNIR héðan reru í
gærkvöldi og komu inn í dag.
Afli þeirra var mjög tregur.
Bátamir fengu 2—7 tonn, enda
var veður fremur slæmt á mið-
unura. Stormur er heggja megin
við Eyjamar og ekki er veiði-
veður hjá síldarflotanum, sem
enn liggur hér.
Togarinn Haukur kom hingað
í morgun og losaði 30—40 tonn
af fiski í togarann Ask, sem var
að veiðum austan við Eyjar.
Bilun mun vera á katli Hauks,
sem sigldi síðdegis til Reykjavík-
ur. Askur fer aftur á veiðar.
Einnig kom togarinn Gylfi hér
í dag og bíður þess að fá síld.
— Fréttaritari.
Einn línubátur
á sjó frá Akranesi
EUNN línubátur, Slkipaskagi,
reri í gærkvöl-di. og er á sjó í
dag.
Ms.Fjallfoss kom í dag með
um 30 standarða af timtori til
byiggingarvöruverzlunar Harald-
ar Böðvarssonar & Co.
Á 12. tímanum í morgun fór
rafmagnið af í um hálfa klukku
stund. — Oddur.
I GÆR á hádegi var hæg NA
átt og bjart víðast hvar hér
á landi og allmikið frost.
Smáél voru norðantil á land-
inu. Þá var ísrek á siglingaleið
út af Vestfjörðum milli Galtar
vita og Kögurs og sömuleiðis
um 25 mílur norður af Rauðu-
núpum á Melrakkasléttu. Kalt
var í Suður-Evrópu, 5 stiga
frost í Madrid, hiti á frost-
marki í Feneyjum og eins stigs
hiti í Marseille.
Veðurspáin í gærkvöldi:
SV-land og miðin: NA kaldi
en stinningskaldi á miðunum,
léttskýjað.
Faxaflói og miðin: NA kaldi,
víðast léttskýjað.
Breiðafjörður og miðin: NA
kaldi, víða skýjað.
Vestfirðir og miðin: NA
gola, smáél norðan til en ann-
ars léttskýjað með köflum.
Norðurland og miðin: NA
gola, víðast léttskýjsið í inn-
sveitum en hætt við smáélj-
um á miðum og annesjum.
NA-land, NA-mið til SA-
miða: Norðan og NA stinnings
kaldi en allhvasst á miðunum,
él.
Austfirðir: Norðan stinn-
ingskaldi eða allhvasst, él
norðan til.
SA-land: NA kaldi eða
stinningskaldi og léttskýjað.