Morgunblaðið - 06.02.1963, Side 8

Morgunblaðið - 06.02.1963, Side 8
8 MORGUNBLAÍnÐ Miðvikudagur 6. febrúar 1965 ALUINIUM - Údýrt - Gott Sléttar plötur 1x2 metrar Þykkt 0.6 mm. kr. 74.25 fermetri — 1.0 — — 117.00 — — 1.2 — — 137.00 — — 1.5 — — 172.00 — Prófílar - Ri ör - Stengur Hamraðar plötur 60 x 280 cm kr. 282.— platan. lougovegi 178 Símr 38000 Kex og kökur ! Þekkt dönsk verksmiðja óskar eftir sambandi við umboðsmenn á íslandi til að selja kex, smá- kökur og formkökur. Aðeins gæðavörur. CITY KAKE Roskildevej 374 — Köbenhavn, Valby. Husnæði óskast 1—2 herbergi með sér baði eða snyrtiklefa fyrir einhleypan ungan mann. Tilboð merkt „1765“ sendist afgr. Mbl. sem fyrst. Huseign óskast Félagssamtök óska eftir húseign til kaups, fyrir starfsemi sína. Tilboð er greini stað og stærð, sendist afgr. Mbl. fyrir 12. þ.m. merkt: Húseign — 1736. Eínkaflugmenn Stofnfundur Félags ísl. einkaflugmanna verður haldinn að Hótel Borg í kvöld, miðvikudag kl. 8.30. Nokkrir áhugamenn Sólarkaffi Bílddælinga og Amfirðinga verður drukkið að Hótel Borg, sunnudaginn 10. þ. m. kl. 8,30 e.h. Merki afhent og borð tekin frá kl. 5-7 sama dag. Nefndin Góður bifvélavirki sem gæti tekið að sér trúnaðar- stöðu, óskast strax. — Hátt kaup. Góð vinnuskilyrði. Tilboð merkt: >,Traustur — 1758“ sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag. Deilt um verðlagsgrundvöll land- búnaðarins og út- flutningsuppbætur FIMM mál voru á dagskrá neðri deildar Alþingis í gær. Frum- vörp um landsdóm og ráðherra- ábyrgð voru til 2. umræðu. Hafði Einar Ingimundarson (S) fram- sögu fyrir nefndaráliti um bæði frumvörpin, sem síðan var visað til 3. umræðu. Lög um heimild til handa Utan verðunesslegati til þess að selja ábúanda Utanverðuness í Rípur- hreppi hálfa jörðina voru til 1. umræðu. Séra Gunnar Gíslason í Glaumbæ (S) hafði fraimsögu fyrir frumvarpinu, sem síðan var vísað til 2. umræðu og land- búnaðarnefndar. ' ★ >á kom til fyrstu umræðu frumvarp um breytingar á lög- tim um Framleiðsluráð landbún- aðarins, og hafði flutningsmaður frumvarpsins, Björn Pálsson á Löngumýri (F), framsögu. Gerir frumvarp hans ráð fyrir því, að við núgildandi lög bætist ákvæði, sem veiti bændum 25% af and- virði framleiðsluaukningarinnar. Taldi Björn gildandi lög um verð lagsgrundvöll landbúnaðarafurða ófullkomin og raunar bændum í óhag að ýmsu leyti. Bændur fengju of lítið fyrir framleiðslu sína, og ættu tekjur þeirra að vera 30% hærri ef miðað væri við laun verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, eins og fram- leiðsluráðslögin gerðu ráð fyrir. Björn kvaðst að lokum alltaf hafa viljað núverandi ríkisstjórn vel og ráðið henni heilt eftir beztu getu. Vegna væntanlegra kosninga væri stjórnarsinnum á þingi það fyrir beztu að sam- þykkja frumvarp sitt. ★ Viðskiptamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason (A), tók næstur til máls. Kvað hann gagnrýni Björns á lögunum um fram- leiðsluráð bitna á Framsóknar- mönnum, og gagnrýni hans á framkvæmd laganna virtist frá- leit. Fullt samkomulag náðist í sex manna nefndinni með full- trúum neytenda og bænda, en meirihluti hinna síðarnefndu væru Framsóknarmenn. Sýndi það samkomulag, hve málflutn- ingar Björns væri fjarstæður. Þá kvað viðskiptamálaráðherra dóm Björns um þessa löggjöf rangan, því að þessi lög veittu bændum meiri rétt en nokkurri annarri stétt í landinu. Afurðaverð þeirra hækkaði í samræmi við kauphækkun launastéttanna í bæjum (verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna). Kjarabætur bænda kæmu því sjálfkrafa á silfurfat, eftir að aðrar stéttir hefðu barizt fyrir þeim. Engin önnur stétt væri í jafn góðri að- stöðu. ★ Hins vegar kvað Gylfi ýmis- legt við lögin að athuga, sérstak- lega við ákvæði þeirra um út- flutningsuppbætur. Uppbótunum væru engin takmörk sett, og því þyrftu íslenzkir skattgreiðendur stundum að gefa landbúnaðar- vörur úr landi. Bændur fengju fyrir vöruna verð þeirra erlendis og þar á ofan útflutningsuppbæt- ur, miðaðar við verð hér heima. Tók ráðherra sem dæmi útflutn- ing á undanrennudufti til Ung- verjalands, Sviss og V-Þýzka- lands væru svo háar, að þar væri um stórkostlega meðgjöf skatt- borgara hér að ræða. Erlendir neytendur greiddu 14 þess verðs, sem bændur fá fyrir útflutn- inginn, en íslenzkir skattgreið- endur %. Árið 1962 voru seld úr landi 650 tonn af undanrennu- dufti, og fengust fyrir það 2.9 millj. kr. Útflutningsuppbætur til bænda námu hins vegar 8.4 milljónum. Meðalverð á einingu, sem Svisslendingar greiddu, var kr. 3.63, en uppbætur námu kr. 12.30. Hefðu meðalútflut-nings- uppbætur á árinu numið 287% á þessari vörutegund. ★ Landbúnaðarmálaráðherra, Ing ólfur Jónsson (S), tók næstur til máls. Taldi hann ólíklegt, að fulltrúar bænda í sex manna nefndinni mundu samþykkja málflutning Björns Pálssonar, svo fjarri, sem hann hefði verið réttu lagi og niðurstöðum nefnd- arinnar. Hefði allt of mikil ásök- un á fulltrúa bænda í henni fal- izt í ræðu Björns. Björn hefði farið með ýmsar rangar upplýs- ingar, og t. d. næði það ekki nokkurri átt að halda því fram, að bændur hefðu 30% lægri laun en lögin um framleiðsluráð ætl- uðust til. Til afsökunar Birni væri það aftur á móti, að hann mundi hafa ruglazt á tölum, og rakti ráðherra það nánar. Til þess að geta gert réttan saman- burð á launakjörum stétta, yrði að nota sambærilegar tölur við útreikninginn. Rétt væri, að búa þyrfti betur að bændum, en það yrði ekki gert með því að fara rangt með staðreyndir. „Tíminn“ hefði talið lögin um Framleiðsluráð land- búnaðarins ágæt allt frá árinu 1947 og a. m. k. fram til ársins 1958. Sú mikla endurbót hefði verið á þeim gerð að tryggja bændum sama verð fyrir afurðir sínar erlendis og þeir fengju hér. Kvaðst ráðherra vera þeirrar skoðunar, að bændur mættu ekki missa þetta ákvæði úr lögun- um, því að það væri bezta trygg- ing þess, að þeir fengju þáð verð, sem ætlazt væri til, að þeir fengju. Uan nauðsyn þessarar tryggingar vitnaði bezt skýrslu sú, er viðskiptamálaráðherra hafði vitnað til, þar sem í ljós kom, að bændur hefðu fengið allt að þremur fjórðu úr verði vegna tryggingarinnar um út- flutningsuppbætur. Án hennar væri ekki unnt að framkvæma lögin þannig, að bændur fengju hliðstæð laun og launastéttir I bæjum, enda hefðu bændur ekki fengið þau, áður en þessi trygg- ing var sett í lögin. Þá báru bændur sjálfir hallann af út- flutningnum. Þetta hefði ekki breytzt fyrr en í tíð núverandi stjórnar. Mj ólkurframleiðsla hefði auk- izt gífurlega seinustu árin, þrátt fyrir spádóma stjórnarandstæð- inga um minnkandi framleiðslu landbúnaðarafurða, minni ný- rækt o. s. frv. Undanfarið hefði nýrækt árlega numið 3.400 — 3.500 hektörum lands, en á árinu 1961 hefði hún orðið 3.960 hekt- arar, og varla mundi hún minnl á árinu 1962. Áburðarnotkun hefði og aldrei verið meiri en nú. ★ Fólksflutningar úr sveitum hefðu verið miklir allt frá alda- mótum, en skv. athugunum á þeim, sem fram hefðu komið ný- lega í útvarpserindi Páls Zóp- hóníassonar, hefðu þeir ekki aukizt að tilttölu á síðustu árum. Þá kvað ráðherra eyðijörðum alls ekki fjölga hraðar nú en áður. í tölu eyðijarða fælist oft Framih. á bls. 23 Laxveiðimenn Tilboð óskast í veiðirétt í Blöndu næsta sumar. Skriflegum tilboðum sé skilað til undirritaðs, sem veitir nánari upplýsingar, fyrir 1. marz n.k. Þeir, sem hafa ráð á eldis-seyðum, til að selja veiðifélaginu, láti þess getið í tilboðum sínum. F.h. stjórnar Veiðifél. Blanda Pétur Pétursson Höllustöðum Sími: Bólstaðarhlíð. Flugmenn óskast Flugfélag íslands h.f. óskar að ráða nokkra flug- menn í þjónustu sína á vori komanda. Umssekjendur skulu hafa lokið atvinnuflugmanns- prófi og hafa blindflugsréttindi. Þeir skulu einnig hafa lokið skriflegum prófum í loftsiglingafræði. Eiginhandarumsóknum sé skilað til skrifstofu starfsmannahalds Flugfélags íslands h.f. við Haga- torg fyrir þ. 15. febrúar n.k. * ^w/e/w /s /ff/íds// r 'SS zs a ICEi-A.lSID/Kin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.