Morgunblaðið - 06.02.1963, Page 11
Miffvikudagur 6.- febrúar 1963
MORCVWBLAÐiÐ
11
Áttræður í dag:
Jón H. Fjalldai
IUelgraseyri
HANN eir einn eftirminnilegasti
persónuleiki í hópi samferða-
manna. Fjör hans og atorka, hug
sjónir hans í búnaðarmálum,
Ihverskonar félagssamtökum og
menningarmálum, fórnar- og
Ihöfðingslund eru höfuðeinkenni
hans. Hann hefur á langri ævi
verið sannur uppreisnarmaður
gegn hverskonar afturhaldi, rang
læti, þröngsýni og daufingja-
Ihætti. Hann hefur verið mikill
baróttumaður, farið í broddi fylk
íngar og rutt björgum úr vegi
samferðamanna. í baráttu sinni
Ihefur hann verið hreinskiptinn
og heill, ekki alltaf hógvær né
Ihlifisaimur, en sannur og dreng
lundaður að leikslokum. Hann er
einn af þeim mönnum, sem vex
þvi meir að virðingu og mann-
kostum sem kynnin verða nánari.
Jón Halldórsson Fjalidal er
fæddur að Rauðamýri í ísafjarð
ardjúpi, 6. febrúar 1883, sonur
hj ónanna Halldörs J ónssonar,
óðalsbónda þar, Jónssonar stór-
bónda að Laugabóli og konu hans
Ingibjargar Jónsdóttur af Burstar
tfellsætti Foreldraa: Jóns Fjall-
dals voru miklum og fjölþættum
kostum búin, sem gengið hafa
r-kulega í erfðir til barna þeirra.
Haaldór á Rauðamýri var eng-
inn hversdagsmaður. Hann hafði
tframazt erlendis við búnaðar-
nám, vann síðan ötullega að um-
bótum heima í héraði. Hann var
fhöfðingi mikill, brennandi áhuga
maður fyrir hverskonar fram-
tförum og lét mikið að sér kveða
i héraðsmálum.
Jón Fjalldal stundaði nám í
IFlensborgaa'skóla og siðar bú-
tfræðinám við Vinteriandbrugs-
skólann í Oslo.
Árið 1909 kvæntist Jón ungri
og glæsilegri konu, Jónu Kristj-
ánsdóttur frá Tungu í Dalamynn
um. Hún mun hafa verið um
margt óvenjuleg kona sakir
gáfna og hugsjóna. Sama ár hófu
þau búskap á Melgraseyri. Þar
gerðist starfssaga þeirra og við
þann stað verður Jón Fjalldal
évallt kenndur. Melgraseyri varð
í höndum þeirra hjóna lands-
Ikunnur staður. f>au byggðu og
ræktuðu jörð sína af meiri stór-
Ihug og glæsimennsku en þá var
titt í sveitum landsins. Híbýla-
prýði og heimilismenning var
meiri en almennt gerðist og er
það hér staðhæft án þess að kasta
að sé rýrð á aðra.
Jóna Fjalldal andaðist 1932.
Var það, sem að líkum lætur
mikið áfall fyrir eiginmann henn
ar og heimili og var hennar sárt
saknað í héraði.
Tvö börn eignuðust þau. Hall-
dór, kaupmaður í Keflavík,
kvæntur Sigríði Skúladóttur, og
Þorgerður, frú í Reykjavik.
Árið 1950 kvæntist Jón Fjall
dal Ásu Tómasdóttur og eiga þau
einn son, Magnús, nú 12 ára að
aldri.
Búskap hættu þau hjónin 1956
Og hafði Jón þá búið á Melgras
eyri i 46 ár. Þau fluttu til Reykja
vikur sama ár. Eiga þau nú heima
á Hraunteig 15.
Jafnframt umsvifamikilum bú
skap og búnaðarframkvæmdum
á jörð sinni hefur Jón Fjalldal
látið mikið til sín taka í félagsmál
um, skólamálum og héraðsmál-
um. Hann hefur gegnt fjölda op-
inberra starfa. Verið hreppsstjóri
í sveit sinni í fjöldamörg ár, átt
6etu í hreppsnefnd, skólanefnd,
irý slunef ndarma ð ur, fulltrúi á
Btéttarsambandsþingi bænda,
búnaðarþingstfulltrúi, étt sæti í
Btjórn Kaupfélags Xsfirðinga
o.fi. mætti nefna. Hann hefur
beitt sér fyrir félagslegum búnað
wiramkivæmdiun og hagkvaem-
«ri verzlunartháttuim bænda.
Hanin vair upphafsmaður að
stofnun skólans í Reykja-
nesi, mesti hollvættur hans
og lengstum formaður skóla-
nefndar héraðsskólans. Stórhug-
ur hans í því máli, heilindi og
einlægmi, barátta hans fyrir vel
gengni skólans og sæmd, verður
okkur, sem með honum unnu
og nutum forustu hans, ógleym-
anlegt vitni um fagra mannlega
viðleitni til þess að búa sem bezt
í haginn fyrir þá, sem upp eru
að vaxa og landið eiga að ertfa.
Þau hjónin Ása og Jón Fjall-
dal búa nú á friðsælu heimili
sínu í höfuðborginni. Hinsvegar
hafa þau ekki sezt í helgan stein
Enn er unnið og alin önn fyrir
ungum sonum, syni þeirxa hjóna
og stjúpsyni Jóns..
Jón Fjalldal vinnur nú, þegar
hann stendur á áttræðu, fullan
starfsdag, sem umsjónarmaður í
stórfyrirtœkinu Héðni í Reykja
vik.
Þegar litið ér yfir langa, litríka
og athafnasama ævi vinar míns
Jóns Fjalldal er margs að minn
ast og margt að þakka.
Það hefur oft verið glatt og
bjart um hið glæsilega höfuðból
Melgraseyri, þegar ný og traust
bygging vax af grunni risim, þeg
ar nýjar sléttur klæddust skrúði
vorsins, þegar góð og mannvæn
leg börn uxu úr grasi og við
blöstu vonir um glæsta en þó
óráðna framtíð þeirra, þegar
eitthvað hafði miðað fram á veg
í félagslegum verkefnum til hags
bóta og menningar fyrir sveit og
hérað, sameiginlega fyrir fólkið
í samtíð og framtíð. En það hef-
ur einnig syrt að og þá hef-ur
ekki dulist sálarstyrkur, hetj-u-
iund og þrek Melgraseyrarbónd-
ans. Hann hefur vaxið við hverja
raun og ekki látið bugast. Sárast
var af öllu missir hinnax mikil-
hæfu og glæsilegu eiginkonu, svo
ástðúleg sem sambúð þeirra yax.
Rétt fyrir jólin 1948, þegar
Jön Fjalldal var nær 65 ára að
aldri, brann íbúðarhús hans með
öllum búnaði. Ýmsum mun hatfa
þótt það sem sjálfgert, að þá gæf
ist Jón upp og færi frá Melgras
eyri, svo margir sem erfiðleikarn
ir voru á þeim árum m.a. hvað
allt fólkshald snerti.
En Jón Fjalldal gatfst ekki upp
Hann gat ekki hugsað sér að
skilja við ástkært höfuðból sitt
í rúst. Hann byggði allt að nýju
stórmannlega og vel, sem hans
var votn og vísa.
Um það bil, sem þeirri fraan-
kvsemd lauk, var heilsa hans að
bila og á þann hátt að ekki var
unnt fyrir hann að vinna að al-
hliða bústörfum. Hann seldi þá
Meigraseyri ungum hjónum,
fnændkonu sinni og manni henn
ar.
Á ým.sum timamótum í ævi
Jóns Fjalldal hafa honum verið
tfæirðiar iþakkir samifierðamanna
fyrir unnin störf og vottuð virð-
ing fyrir óeigingjarna baráttu í'
þágu menningar og hverskonar
framifara.
Hann hefur verið sæmdur
riddarakrossá fáikaorðunnar og
Búnaðartfélag ísiands kjörið hann
heiðunsfélaga.
Um þessar mundir er Ríklharð-
ur Jónsson iistamaður að móta
mynd af Jóni Fjalldal. Skal
mynd þessi varðveitast í héraðs-
skólanum í Reykjanesi til minn-
ingar um þann ma-nn, sem með
réttu má nefna upphafsmann að
þvi að skólinn var stofnaður og
staðsettur þar. Fer vel á þvi,
að þar varðveitist svipmót þessa
miikla hugsjónamanns í ræktun
lýðs og lands, innan ætrtarhér-
aðs hans, þar sem hann vann
sitt ævistarf til sannrar fyrir-
myndar æskúnni.
Jón Fjalldal hefur aldrei
stefnt að því að safna veraldar-
auði. Hann hefur alltatf skipað
sér í íylkingu með þeim, sem
minna máttu sín. Táknrænt er
það að hann beibti sér fyrir
styttingu hins lan-ga vinnutíma,
sem víðast var á sveitaheimil-
um. Taldi hann að eins vel ynn-
ist, þótt ekki væri að jafnaði
unnið nema 10 stundir daglega
og fólkið yrði ánægðara og fengi
tómstundir .
Allt starf og iítf Jóns Fjalldal
hetfur borið fagurt vitni um
hjartalag hans. Fyrir það skulu
honum nú færðar alúðarþakikir,
ásamt heilshuga ósk um að hann
megi enn um mörg ár njóta góðr-
ar heilsu, samvistar ástvina
sinna, eiginkonu, barna og
bamabarna, og sjá ungan og
efnilegan son komast á mann-
dómsár.
Það lætur að líkum, að hug-
ur Jóns bónda leiti í átthaga
norður í Djúp. Þangað er ljútft
og gott að hvarfla. Víðsýni mik-
ið frá Melgraseyxi um allt ísa-
fjarðardjúp, stórbrotið og fagurt.
Hæg-ur þeyr ber honum ilmiiui
af sólvermdu lyngi og kjairi úr
brekkum Fögruhlíðar.
Aðalsteinn Eiriksson.
Lobnunót
Ný loðnunót til sölu. —
17 faðmar á dýpt og 70 faðm-
ar á lengd. Selst með lítilli
útborgun og góðum lánsfresti.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA-
SALAN
SKIPA-
LEIGA
VESTURGÖTU 5
Simi 13339.
Önnumst kaup og sölu
verðbréfa.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík:
AÐALFUNDUR.
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík
verður haldinn í dag miðvikudaginn 6. febrúar
1963, kl. 9. e.h. í Tjarnarbæ.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Fulltrúar eru áminntir um að mæta stundvíslega
Stjórn Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
Útboð
Tilboð óskast í raflögn í hús Tollvörugeymslunnar
h.f. við Héðinsgötu í Laugarneshverfi. Teikningar
og útboðslýsingu afhendir, gegn 500 kr. skila-
try&gúigu, Jón Á. Bjarnason, verkfræðingur c/o.,
Raftækjasalan h.f., Vesturgötu 17.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa.
Bergstaðarstræti 14.
Verkst^óra
með matsréttindi og reynslu í starfi vantar strax
í frystihúsið í Kópavogi.
SJÓFANG h.f., Tryggvagötu 8 — Sími 24980
N ý 1 e g u r
Mercedes Benz
diesel 180, 5 manna í mjög góðu standi,
til sölu— Skipti hugsanleg.
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 18585.
Kaupmenn — Kaupfélög
Framleiðendur
Fyrirliggjandi fallegt úrval af kjóla- pilsa- og buxna terylene.
Kr. Þorvaldsson & Co.
heildverzlun — Grettisgötu 6. — Sími 24730 og 24478.
•^^XwKóXw.w.v.i
!*X*Xv;,X,Xí,Xýíi:i$!;S:U
Lokastíg 5 Símí 16887 20623